Eintak

Útgáva

Eintak - 07.04.1994, Síða 11

Eintak - 07.04.1994, Síða 11
! „Ég er reidubúinn til að mæta Hall- varði Einvarðssyni og öðrum þeim sem komu nálægt rannsókn málsins hve- nær sem er fyrir dómi. Ég hef engu að tapa. Segi þeir mig Ijúga þá verða þeir að sanna það. Ég vil einmitt að þeir opni á sér munninn því þá get ég rekið ofan í þá fullyrðingarnar, Sævar M. Ciesielski var dæmdur til ævitangrar fangavistar íSakadómi Reykja- víkur árið 1977. Sádómur byggðist á játningum hans og annarra sakborninga sem þeir drógu til baka á þeim forsend- um að þær hafi verið þvingaðar fram með harðræði. „Mér fannst ekki skipta neinu máii þótt ég játaði á mig hinar ýmsu sakir sem rannsóknar- mennirnir héldu fram. Það eina sem ég hugsaði um var að losna úr einangruninni, þessari martröð. “ þriggja mánaða einangrun væru menn ófærir um að svara nokkrum spurningum játandi eða neitandi því raunveruleikaskynið hverfur gjörsamlega. í mínu tilviki bættust við lyfjagjafír og margs konar harð- ræði. Mér fannst ekki skipta neinu máli þótt ég játaði á mig hinar ýmsu sakir sem rannsóknarmenn- irnir héldu fram. Það eina sem ég hugsaði um var að losna úr ein- angruninni, þessari martröð.“ Þvinguð til að fallast á tilbúnar sögur Hvaða leiðir hefurðu til að sýna ffam á sakleysi þitt? Nú virðist út- gáfa bókar og greinargerð frá þér til dómsmálayfirvalda ekki hafa haft nein áhrif. „Nei, en maður verður auðvitað að biðja um að rannsókn fari fram. Að senda dómsmálayfirvöldum þessa skýrslu í haust var leið til að sýna fram á nokkur atriði, að skýrslur hafi ekki verið teknar af ákveðnum aðilum sem eðlilegt hefði verið að gera og að saksóknari hafi brugðist þeirri skyldu sinni að rannsaka bæði sekt og sakleysi. Það gerði hann aldrei.“ Hefurðu eitthvað reynt til að fá hina sakborningana með þér í þessa baráttu? „Nei, við höfum ekki rætt það en við vitum hvað við gengum saklaus í gegnum sameiginlega. Mitt álit er að málatilbúnaðurinn hafi verið þrælskipulagður af rannsóknar- mönnunum og þeir vissu nákvæm- lega hvað þeir voru að gera. Því til sönnunar má nefna að þegar ég var handtekinn vegna póstsvikanna þá voru allar mínar eigur teknar úr íbúð minni og ég hef aldrei séð þær aftur. Þar hefðu getað leynst vís- bendingar um sakleysi mitt. Rann- sóknarmennirnir gátu heldur aldrei gefið skýringu á því hvernig þeir töldu sig hafa fengið vitneskju um að ég væri viðriðinn hvarf Guð- mundar. Þessi piltur hafði verið horfinn í tvö ár þegar byrjað var að spyrja mig út í hvarf hans og ég vissi ekki hvað verið var að yfir- „Ég gat horfst í augu við hvern sem var því ég þurfti ekki að skammast mín fyrir neitt. Al- menningsálitið var á þá leið að ég hefði orðið manni að bana en ég vissi sjálfur betur. Það var því ekkert að óttast." heyra mig um. Málið var bara borið upp þannig að þeir sögðu að ég hefði tekið þátt í líkamsárás í Hafn- arftrði. Þeir nefhdu dagsetningar og fullyrtu að Tryggvi [Rúnar Leifs- son] segði þetta og Kristján [Viðar Viðarsson] hitt. Rannsóknarmenn- irnir tóku þetta upp hjá sjálfum sér enda kom í ljós að Tryggvi og Krist- ján höfðu ekki sagt neitt. A sama hátt var þeim sagt að ég bæri hitt og þetta upp á þá. Þetta var ekkert annað en plat. Þeir bjuggu til sögur og þvinguðu okkur svo til að fallast áþær.“ Ertu að segja að þeir hafi tekið þann hluta af framburði ykkar sem þeim hentaði og raðað þeim saman? „Já. Þeir sáu hvað játningar okk- ar voru fáránlegar en reyndu samt að raða þeim saman til að réttlæta sínar gjörðir. Hallvarði bar skylda til að leita skýringa." Hvað ætti að hafa legið til grundvallar því að verið væri að bera á ykkur rangar sakir? „Einhvers konar mannvonska. Þetta hlýtur að hafa verið þræl- skipulagt annars hefðu þeir aldrei farið út í þetta. Hallvarður átti að hafa yfirumsjón með rannsókninni og ég er sannfærður um að hann hafi haft meiri áhrif en nokkur annar á það að við vorum saklaus dæmd. Rannsóknarmennirnir æddu út í óvissuna eins og vitlausir menn í stað þess að setjast niður og velta fyrir sér þeim ótal spurning- um sem komu upp og bentu í þver- öfuga átt við sekt okkar.“ u

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.