Eintak - 07.04.1994, Side 17
deyja er list.
John Wayne var til dæmis töff-
ari sem vissi hversu mikilvægt var
að deyja á sama hátt og maður lifir.
Þegar búið var að fjarlægja úr hon-
um annað lungað og helminginn af
hinu sagði hann: „Fjandinn hirði
dauðann og krabbann sem hann
ríður á.“
Og Ava Gardner var annar töff-
ari. Hún lifði lífinu, eins og það
heitir, drakk, elskaði, giftist og
skildi. Allt offar en einu sinni og
oftar en flestir aðrir. Allt þar til
hún var farin að nálgast fimmtugt.
Þá fluttist hún til London og lifði
þar í einangrun þar til hún dó á
sjötugsaldri. Rétt áður sagði hún:
„Ég sé ekki eftir neinu. Ég mundi
vilja lifa lífinu nákvæmlega eins ef
ég fengi annað tækifæri. Eg
skemmti mér konunglega.“ Þetta
er töff afstaða til lífsins.
Ava og John eru frá Hollywood.
Það er land töffaranna, Bogarts
og félaga. Á Islandi eru töffararnir
færri. Þrátt fyrir bægslaganginn í
þeim í Islendingasögunum er þar
eiginlega enginn töffari annar en
Skarphéðinn. Hann hafði þessa
dásamlegu fuck-you-afstöðu til
meðbræðra sinna, stráði einnar
línu háðsglósum allt um kring og
dó standandi í bálinu brunninn
upp að hnjám.
Gunnar á Hlíðarenda var ekki
eins töff. Ég held hann hafi snúið
við vegna þess að hann þorði ekki
utan og notað ættjarðarástina sem
afsökun. Hann fór heim að Hlíðar-
enda og beið þess aðgerðarlaus að
sér yrði slátrað. Og þegar Hallgerð-
ur neitaði honum um lokkinn lét
hann það gott heita og dó.
Og í seinna tíma Islendingum er
einhver vælin taug sem hindrar þá
í að vera töff. Það er eitthvað í
svipnum á þeim sem segir að þeir
telji sig ekki hafa fengið það sem
þeir ættu skilið.
Indriði G. er reyndar töffari en
ég man ekki
eftir fleirum í
svipinn.
Nema helst
Kidda heitn-
um Finn-
boga. Ég sótti
einu sinni um
launahækkun til Kidda þegar hann
var framkvæmdastjóri Tímans.
Hann sat við skrifborðið sitt, feitari
en lífið sjálft, og fyrir framan hann
var fat með vínarbrauðum. Hann
bauð mér sæti og spurði hvað ég
héldi að ég ætti að fá í laun. Ég
sagði 40 þúsund krónur. Hann
sagði okey. Og síðan hef ég verið
að velta því
fyrir mér hvað
hann hefði
sagt ef ég
hefði beðið
um 45 þús-
und.
En þótt það
sé fátt um gegnheila töff-
ara á íslandi þá eiga sum-
ir það til að vera töffarar
annað slagið; Bubbi, Jón
Baldvin, Hrafn. Mér hef-
ur hins vegar aldrei fund-
ist Davíð Oddsson töff
þótt mig gruni að hann vilji vera
það. Hann beitir einhvern veginn
frekar fyrir sig völdum sínum en
eigin verðleikum. Og það er aldrei
töff.
Indríði G. Þorsteinsson
rithöfundur
„Töffaraskapur er meðfæddur.
Þegar ég var að alast upp krepptu
menn hnefana og börðust. Þetta
voru miklir töffarar en þegar árin
færast yfir róast menn.
Albert Guð-
mundsson var töff-
ari I pólitík þótt hann
væri mjög ljúfur dag-
farslega. Þingmenn
við hlið Alberts í ham
urðu líkastir þing-
sveinum. Albert hafði
sinn töffaraskap úr
íþróttunum.
Svo eru líka til bílstjóratöffarar
eins og Pétur Jónsson frá Hall-
gilsstöðum í Eyjafirði sem var hæg-
látur og spaugsamur dags daglega.
Listamenn eiga dálítið bágt því
þegar þeir ætla að vera töff gerast
þeir bara rógberar og það er ekki
töff. Sömuleiðis er erfitt fyrir við-
skiptamenn að vera töff því þá
þurfa þeir að brjóta lög, til dæmis
með því að hafa fé af viðskiptavin-
um sínum.
Ég er afar mjúkur maður þó ég
sé ekki eins mjúkur og listarnir í
bæjarstjórnarkosningunum. Mér
myndi ekki líða vel ef litið væri á
mig sem töffara.
Hemingway var búinn til sem
töffari. Ameríkanar eru í raun og
veru svo mjúkir. Hjartað í þeim er
svo ljúft. Þeir verða töffarar út á
það að vera mjúkir. Hemingway er
alltaf að skrifa um einhver sorgleg
mæðumál. Humprey Bogart er
aftur á móti heilmikill töffari í
Casablanca. Þar segir hann við
konuna: „Af hverju þurfum við að
rekast hvort á annað á svona stað?“
Svo tekur hann á málunum með
hörku.
Ekki má gleyma aðaltöffaranum,
Gunnari á Hlíðarenda sem sneri
við því hlíðin var svo fögur. Það
hefði Hemingway líka gert. Svo er
maður í Njálu sem spurður er
hvort Gunnar sé heima við eftir að
hann hafði sært hann með atgeirn-
um. Maðurinn kveður nei við en
bætir þó við „...en hitt veit ég að
atgeir hans er heima“. Þetta voru
fæddir töffarar og við erum alin
upp við þessa töffarahugsjón.“
Páll Banine
söngvari The Bubbleflies
„Töffarar er þeir sem halda and-
litinu undir þrýstingi, það er að
segja þegar eitthvað fer úrskeiðis.
Fólk sem reynir að vera töff er
aftur á móti mjög ótöff. Ég veit
ekki hvort ég sjálfúr er töff. Um
það verða aðrir að dæma.
Mér fannst Sveinbjörn
Beinteinsson allsherjar-
goði mjög góður töffari.
Hann haföi töff „kvalitet“
í sér.“
Þegar búið var að fjarlægja úr honum
annað lungað og helminginn af hinu sagði
hann: „Fjandinn hirði dauðann og krabb-
ann sem hann ríður á.“
Pétur Tyrfingsson
meðferðarstjóri hjá SÁÁ
„Töffari er maður með lítið
typpi sem vill leyna því. Sjálfur er
ég vaxinn upp úr töffaraskapnum
og hef reyndar aldrei verið töffari.
Það sem mér þótti töff áður fyrr
þótti öðrum ekki töff. Það þótti
líka töff að vera ekki töff. Við vin-
irnir fórum til dæmis á böll í
„three pieces suits“. Það þótti ekki
töff. Hver hópur býr sér til eitthvað
sem er töff.
Mér finnst
Guðbergur
Bergsson anti-
töff. Ég er mikill
aðdáandi hans
og finnst hann
með skemmti-
legustu mönn-
um á íslandi. Vinur minn, Einar
Már Guðmundsson, er sömuleið-
is mjög anti-
töff. Hann er
mjög einlægur
og góður í síð-
ustu bókinni
sinni. Jónas
Kristjánsson er
líka í þessum
hópi þótt ég sé yfirleitt á öndverð-
um meiði við
hann. En
hann hikar
ekki við að
segja skoðanir
sínar.Jíg
sakría þess I
fari fólks að
/það segi skoðanir sínar burtséð frá
/ því hvað öðrum finnst. Illugi Jök-
ulsson er sá
maður í fjöl-
miðlaheiminum
sem ég dáist
mest að. Hann
liggur heldur
ekki á skoðun-
um sínum.
Þetta eru dyggðir sem eru á undan-
haldi.
Islenskir stjórnmálamenn eru
ekki töff í jákvæðri merkingu þess
orðs heldur einstaklega karakter-
lausir menn upp til hópa.“
Pálmi Gestsson
leikari
„Það er bæði jákvætt og neikvætt
að vera töff. Mér finnst þó aðallega
vera töff að fylgja sannfæringu
sinni sem og samvisku. Margir
stjórnmálamenn geta verið töffar-
ar. Þeir gera gjarnan hiklaust það
sem þeir vilja og spyrja hvorki
kóng né prest.
Mjúki maðurinn er ekki töff.
Auðvitað getur verið töff að vaska
upp en aðeins ef maður gerir lítið
af því. Það sem er mjúkt er nefhi-
lega ekkert mjög töff.
Jón Baldvin er töffari. Hrafh
Gunnlaugsson er líka á einhvern
hátt töffari og sömuleiðis Súsanna
Svavarsdóttir.
Svo er hægt að bregða fyrir sig
tækifæristöfflieitum þegar maður
þarf á þeim að halda. Méf gæti
fundist ég vera töff í ákveðnum að-
stæðum en heildaryfirbragð mitt er
ekki töff, því miður.“
Hrafn Gunnlaugsson
kvikmyndaleikstjóri
„Da Vinci var töffari. Hann
hafði ekki aðeins getu heldur líka
gáfu til að ganga á skjön við samtíð
sína og skilja eftir sig óbrotgjörn
verk. Jóhanna af Örk var annar
töffari. Kannski er það þess vegna
sem ég skírði yngstu dóttur mína
Örk. Konur eru yfirleitt meiri töff-
arar en karlmenn.
Sveinn M. Eiðsson leikari og
kaupfélagsstarfsmaður er líka töff-
ari. Hann er stofnun út af fyrir sig.
I karakter æskufélaga míns Vil-
mundar Gylfasonar bjó líka töff-
ari. Malla Schram var töffari. Og
Edda er það líka.
Sá sem reynir meðvitað að vera
töffari verður bara, eins og krakk-
amir kalla það „halló skalló“. Töff-
ari er nefnilega vöggugjöf. Ég væri
alveg til í að vera töffari ef mér
væri það áskapað.
Ég lít stundum í spegil á morgn-
ana og segi: „Þú líkist mér.“ Ég get
þó ekki fullyrt hvort ég sé töffari
eður ei enda á maður ekki að fella
slíka dóma yfir sjálfum sér. Það er
of nálægt manni eins og einhverju
sinni þegár ég var á unglingsárun-
um og kunningi minn sagði við
mig: „Mikið ofsalega er hún Tinna
systir þín sæt.“ Ég móðgaðist því
ég fann mig knúinn til að taka af-
stöðu og spekúlera í henni sem
konu. Fram að þeim degi var hún
aðeins systir mín. Það var flókið
mál því þetta var partur af sjálfum
mér sem ég þurfti að meta objek-
tívt. En svo lærir maður það þegar
maður eldist.“
Davíð Þór Jónsson
guöfræðinemi
„Þetta er spurning um að hafa
Elvis í sér og varðveita hann í
hjarta sér.
Töffari er nefnilega fýrst og
fremst það að búa yfir ákveðnu
sjálfsöryggi en ekki að eltast við
tískustrauma. Leðurjakki er til
dæmis ekki töff nema sá sem geng-
ur í honum sé töff. Það verður að
bera töffið.-^
Það eru ákveðin atriði sem aldrei
verða töff eins og til dæmis
gúmmístígvél og snjóþvegnar
gallabuxur. Það er líka mjög ótöff
að tala um það hvað sé að vera töff.
Steinn Ár-
mann Magn-
ússon var
einu sinni
heilmikill töff-
ari en svo gifti
hann sig,
eignaðist börn
og keypti sér jeppa. Karlar sem eiga
jeppa eru ekki töffarar. Töffið lak
niður af honum. Ingvar Þórðar-
son, ffamkvæmdastjóri Regnbog-
ans, er töffari. Hann hefur þetta
„glimp í ojet“ sem til þarf og hann
er ekkert að velta því fyrir sér.
Stjómmálamenn geta verið töff-
arar en þeim er oft svo mikið niðri
fyrir og það samræmist ekki því að
vera töffari. Þeir eru nefnilega
meira „happy go Iucky“ og eiga sér
fá hjartans mál. Ætli Ingibjörg
Sólrún komist næst því að vera
töffari.
Hollywoodstjörnur gera út á að
vera töffarar nema Michael J. Fox
sem gerir út á það hvað hann er lít-
ill töffari.
Hann hefur engan Elvis í sér.“
ÁrniJohnsen
þingmaður
„Töffarar eru hressir náungar
sem þora að gera hlutina öðruvísi
en allir aðrir og mér finnst gaman
af þeim sem eru dálítið öðruvísi.
Ég er hins vegar lítill töffari, heldur
ósköp venjulegur þó mér finnist
gaman að gera öðruvísi hluti en
aðrir.
Töffari getur verið harðsækinn í
vinnu sinni hvort heldur sem hann
er á sjó eða blaðamaður. Það er
ekki töff að þora ekki að taka neina
áhættu.
Ómar
Ragnarsson
er töffari.
Hann fer ó-
troðnar slóðir
og hikar ekki.
Sama er að
segja um Davíð Oddsson því hann
þorir að taka
djarfar
ákvarðanir.
Mér hefur líka
alltaf þótt Ás-
geir Sigur-
vinsson töff
sökum þess
hversu beinskeyttur hann er. Það
haggar honum ekkert. Ragnar Ax-
elsson ljósmyndari er líka töff því
hann leggur mikið á sig til að ná
settu marki. Hann leggur í raun og
veru mun meira á sig en sá sem sér
myndir hans gerir sér grein fyrir.
Þegar ég var yngri fannst mér Tarz-
an vera mikill töffari.“
Ari Gísli Bragason
skáld
„Það er töff að vera samkvæmur
sjálfum sér sem og að vera þybbinn
eða sterkbyggður. Svo er líka töff
að lesa Playboy og að senda stelp-
um blóm.
Að vera klósettvörður er ekki
töff og heldur ekki að vera deildar-
stjóri hjá hinu opinbera.
Bubbi Morthens er töff vegna
þess að hann er svo góður boxari.
Tommi á Hard Rock er líka töff.
Annars eru konur meira töff en
karlar. Vinkona mín, Kristína
Haralds fyrirsæta, er til dæmis
orginal-töffari.“
Móeiður Júníusdóttir
söngkona
„Það er mjög góður og sjaldgæf-
ur eiginleiki að vera töffari og satt
að segja þekki ég fleiri konur en
karla sem eru töffarar. Töffari hef-
ur ekkert að gera með það sem
maður gerir. Heldur hvernig mað-
urer.
Mamma mín er mikill töffari.
Það hefur eitthvað að gera með
drifkraftinn. Það er mjög gott að
alast upp hjá töffara því það veitir
manni mikla öryggiskennd.
Tvíburabræður mínir eru líka
töffarar. Þeir eru ekkert að reyna
það heldur voru þeir bara þannig
þegar þeir fæddust. Suma daga er
ég sjálf töffari en aðra ekki.“
Ollý á Bíóbarnum
„Töffarar eru gæjar sem slá um
sig. Þeir tala hátt og mikið og eru
ánægðir með sjálfa sig. Maður sér
mílu vegar þegar þeir koma.
Misheppnaðir töffarar eru affur
á móti þeir sem eru að reyna að
vera eitthvað. Það sést strax að þar
eru lúðar á ferð.
Jói motorhead er töffari af
guðs náð. Útlit hans, klæðnaður og
talsmáti hæfa sönnum töffara.
Pabbi
minn, Jón
Gunnar
Árnason
myndhöggv-
ari, var svaka-
legur töffari.
Hann var þó
allt öðruvísi töffari en Jói motor-
head því hann var ekki eins mikið
á útopnu. Pabbi minn var mjög
ákveðinn í framkomu og fólk
reyndi ekki að eiga neitt við hann.
Hann þurfti ekki annað en að birt-
ast og þá vissi fólk nákvæmlega
hvort það átti að tala við hann eða
ekki.“
Sólveig Arnarsdóttir
leikkona
„Bubbi Morthens er töffari
númer 1, 2 og
3 hér á landi.
Valdimar Örn
Flygenring
slagar líka hátt
upp í hann.
Þorleifur
bróðir minn,
sem er að verða 16 ára, er jafnframt
mikill töffari. Það sést á fasi hans,
göngulagi, stíl og klæðaburði.
Hann ber hið yfirvegaða yfirbragð
töffara. Þetta er ímynd sem maður
sér marga stráka spila.
Það er ekki töff að hafa skoðanir
og allra síst að vera femínisti. Þeir
sem gamlir eru, ljótir eða feitir falla
heldur ekki inn í ungæðisdýrkun-
ina sem nú ríkir og teljast því ekki
töff. Ég mæli þeirri dýrkun alls
ekki bót.
Ég hlýt aftur á móti að teljast
eins lítið töff og hægt er að vera.“
Sigríður Beinteinsdóttir
söngkona
„Töffari er týpa sem telur sig
meiri en aðra. FJugtakið á meira
við um stráka. Það er töff að ganga
í flottum fötum og til eru töffar-
atýpur í leðurjakka. Þetta getur líka
átt við um hluti; hús, bíla og klipp-
ingar.
Björk Guð-
mundsdóttir er
töffari. Hún er
mjög sérstök og
töff týpa. Egill
Ólafsson er líka
töffari og mikill
listamaður. Ég
verið töff á sínu
held að allir geti
sviði.“
„Ég sá heilmörg töf-
faratákn. Nokkra
zippó, helling af leð-
urjökkum og kaboj-
og mótorhjólastígvél-
um og ótrúlega marg-
ir voru með pírð augu
— ef til vill vegna
þess að þeir voru ný-
komnir fram úr
myrkrinu inn í sal. Ég
var eiginlega sá eini
sem ómögulegt var að
taka í misgripum fyrir
töffara þar sem ég
stóð úti í horni og sa-
ug íspinna
FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994
17