Eintak

Útgáva

Eintak - 07.04.1994, Síða 33

Eintak - 07.04.1994, Síða 33
Það er nóg til af niðurdrabbaðri rónatónlist þó að alvöruséní séu ekki að rembast við að velta sér upp úr henni. með kabbojhatt og gerviskegg, hann er alltaf eins. Annars er gúdd- ígæjatríóið allt í svörtu og bófarnir með rauða klúta, svipað og löggan og gengin í Los Angeles. Bófarnir eru líka dópistar eins og eiginkona Wyatts Earp og réttlætir það að hann gefur skít í hana og skýtur bófana. Ljósi punkturinn við myndina er leikur Val Kilmers en hann skapar eftirminnilega per- sónu sem Doc Holliday og hann er það eina í myndinni sem ekki er tekið úr klisjusaíhinu. Upp með hendur eða niður með brækur. Bang! © Popp ÓTTARR PROPPÉ Hikk hikk hikk osfrv Tom Waits: Thf. Black Rider ★ Tom Waits hefur sérhæft sig í viskílegri búllumúsík í tuttugu ár. Tónlistin þróaðist hægt og rólega upp í það að vera hress rokkmúsík í anda Rolling Stones enda Keith Ri- chards með í för um tíma. Og viti menn, þessi druslulega viskírödd, illa hirtur hýjungurinn, þessi Dag- ur Sigurðar Bandaríkjanna sló loksins í gegn. Nú fór kappinn að leika sjálfan sig í bíómyndum og það síaðist inn í tónlistina. Plötum- ar þróuðust alltaf lengra niður í ræsið þangað til að hún var orðin svo blindfull að auðheyrt var að enginn gat spilað hana undir áhrif- um, hvað þá hlustað á hana. Waits hafði afrekað að flytja fylleríið inn í stofu broddborgaranna. Á nýju plötunni gengur Waits skrefið til fúlls. Hlustandinn er kominn niður úr ræsinu í móðukenndan undra- heim götuleikhúsavímunnar. Plat- an er samin við leikrit og fer ekki á milli mála. Persónurnar taka völdin af tónlistinni, Waits er sögumaður sem segir óskiljanlega sögu. The Black Rider er tónlistarlegt hámark þeirrar niðurníddu liststefnu fyller- íisins sem rithöfundurinn Charies Bukowski gerði alræmda. Þetta er platan fyrir þá sem vilja skella sér kvöldstund í ræsið án þess að missa úr vinnu. Undirritaður er þó einn af þeim sem bíða eftir að Tom Wa- its kíki aðeins upp á yfirborðið. Það er nóg til af niðurdrabbaðri róna- tónlist þó að alvöruséní séu ekki að rembast við að velta sér upp úr henni.© Nafn: Eiríkur Rafn Jónsson (Eilab) Fæðingardagur: 2. febrúar 1952 Hæð: 186 sm Þyngd:75 kg Háralitur: Ljósskolleitur Augnlitur: Ljósblár Sérkenni: Léttgeggjaður Hmer? Hm rAÐAN? Hv AÐ? Hmers VEGNA? Hmernio? Hmeht? Eiríkur Rafn Magnús- SON er listhönnuður sem vakið hefúr athygli fyrir markverða smíðagripi úr jámi sem hann býr til og sel- ur í Smíðagalleríinu að Æg- isgötu 4 í Vesturbænum. Hann opnaði Smíðagalleríið árið 1989 sem verður því fimm ára á þessu ári. Orðstír Eiríks hefur borist víða og nýlega heimsóttu hann með- al annarra blaðamaður og ljósmyndari ffá tískublaðinu Elle og mun afraksturinn birtast í nóvemberhefti blaðsins. Eiríkur hefúr verið að smíða allt ffá því hann klambraði saman fyrsta kassabílnum í Blesugrófinni. Hann lærði verkfæra- og stansasmíði í Svíþjóð en að því loknu kom hann heim og býr nú í Hafú- arfirði. „Smíðagalleríið er verkstæði og verslun þar sem fólk get- ur komið og látið smíða fyr- ir sig hvað sem hugurinn gimist og fæst ekki annars staðar. Þetta em ýmiss kon- ar húsgögn, innréttingar og skrautmunir, að viðbættum utanhússgripum eins og garðshliðum og fleiru,“ segir Eiríkur. „Viðskiptavinirnir eru þverskurður af þjóðfé- laginu, allt ffá ráðhermm og upp úr,“ eins og hann orðar það. „Upphaflega var ég að vinna í járnsmiðju og það var alltaf verið að biðja mig um að smíða hitt og þetta,“ segir Ei- ríkur. „Fólk var að koma í finum fötum inn í skítuga smiðjuna og þar fæddist hug- myndin að opna snyrtilega smiðju. Til að byrja með var ég með teppi á gólfúnum, en ég geng ekki alveg svo langt í snyrtimennskunni lengur.“ „Markmið okkar er að fúll- nægja óskum viðskiptavin- anna sem best, sama hvað þær eru ffíkaðar. Við höfum reynt að ffamleiða staðlaða smíðagripi en það gengur ekki og því smíðum við aldr- ei tvo hluti sem eru nákvæm- lega eins. Til að byrja með var þetta svolítið hark en í dag þurfum við ekkert að auglýsa því verkefúin streyma inn.“ Eiríkur er stórhuga og er að reisa pýramídalagaða bygg- ingu undir verkstæðið og verslunina í Straumi í Hafú- arfirði en hugmyndin er að reka áffam útibú í miðbæn- um í Reykjavík. Hafnarfjarð- arbær stendur að þvf að skipuleggja listiðnaðarsvæði í Straumsvík þar sem ýmsir hönnuðir munu búa og selja ffamleiðslu sína í nágrenni við álverið. EINAR MEÐ OLLUM það er ekki einleikið hvað það er gaman að leika sér í snjónum en gamanið kárnar þegar kokkurinn haffi spyr hvort þetta sé súkkat. „ertu viss um að þetta er ekki súkkat einar, sagði haffi við mig, mjög undrandi yfir tilburðum mínum hvar ég lá á jörðinni og reyndi að rúlla upp snjókalli úr snjó páskahretsins. auðvitað var ég handviss. þetta er snjór, á leiðinni að verða að bolta og snjókalli elsku haffi minn. sérðu það ekki, það er ekkert súkkat hér minn kæri kokkur. „en einar þú hlýtur að vera með súkkat vél á þér?" „upp með hendur!" sagði kokkurinn. en það er ekkert hérna. í alvöru þetta er snjóbolti á leiðinni að verða snjókall nema ég smassi honum á hausnum á þér. ég reyndi að útskýra fyrir kokknum hvernig snjónum er rúllað hring eftir hring þangað til hann stækkar. hann trúði mér ekki fyrr en hann hafði reiknað út eðiislægu eiginleika ómöguleikans að gera þetta við súkkat. á meðan skyldi hann sykurmolann eftir á hvolfi. FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994 33

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.