Eintak

Útgáva

Eintak - 23.06.1994, Síða 32

Eintak - 23.06.1994, Síða 32
lamir 'ígeríu Ná þeirlengm en Kamerún? Rashidi Yekini er kannski gott dæmi um nígerisku landsliðsmennina. Hann erþrítugur og hefur skorað 23 mörk með landsliði Nigeríu. Rashidi vinnur kannski ekki danskeppni við Roger Milla, en hann gæti aftur á móti komið mörgum varnarmanninum á óvart með hraða sínum og snerpu. Hann er rúmlega tveir metrar á hæð og vöðvastæltur og þykir ótrúlega skotfastur. Þrátt fyrir stærð sína er hann snarpur og það voru þessir eiginleikar hans sem gerðu hann að markaskorara leiktíma- bilsins íPortúgat þar sem hann lék í vetur. Nú hefur hann verið seldur til grísku meistaranna Olympyakos. WorfdCupUSm . , r . . . . ^ #»^ Pratt rynr pa viour- kenndii staðreynd að Nígeríumenn hafi á að skipa sterkasta knattspyrnuliði Afr- íku, hafa þeir á vissan hátt fallið í skuggann fyrir nágrönnum sínum frá Kamerún, sem komust í áttaliða úrslit heimsmeistarakeppninnar á Ítalíu 1990. Nígeríumenn ætla sér í þetta skiptið að gera betur. Stefnan hefur verið tekin á fjórðungsúrslitin, og ef það takmark næst, verður það í fyrsta sinn sem knattspyrnulið frá Afríku nær svo langt. „Við munúm standa okkur betur en Kamerún- ar,“ segir Stephen Keshl, fyrirliði nígeríanska liðsins. „Það væri gott, bæði fyrir Nígeríu og alia Afríku, ef okkur tekst að komast langt í keppninni." Afríkumeistarar Þegar Nígeríumenn sigruðu Afr- íkubikarinn í Túnis fyrir nokkru, fengu þeir gullið tækifæri til að æfa og spila í loftslagi sem er svipað því sem ríkir í Dallas; hár hiti og mikill loftraki. I Túnis unnu þeir Zambíu, 2:1 og sýndu þar með fram á styrk- leika sinn í afrískri knattspyrnu. Þjálfari Nígeríumanna, hinn hol- lenski Clemens Westerhof, hefur bætt stífara leikskipulagi og aga við hina hefðbundnu aðferð Nígeríu- manna að sækja - og sækja meira. Þetta þýðir að mörkunum fækkar, sem þeir fá á sig í hverjum leik. „Nígeríumenn höfðu það orð á sér að vera látlaust í sókn,“ segir Ef- an Ekoku, landsliðsmaður Nígeríu og leikmaður Norwich. „Leikaðferð okkar hefur í gegnum tíðina minnt svolítið á strategíu Manchester Un- ited og Tottenham í gamla daga; ef þið skorið fjögur, þá skorum við bara fimm.“ En sú leikaðferð nær ekki lengur upp á pallborðið hjá Nígeríumönn- um og Westerhof hefur sýnt þeim fram á að stífur sóknarleikur hefur einnig sína galla. Beinskeyttir sóknarmenn... En þótt þjálfarinn hafi lagt áherslu á vörnina og leikskipulag hefur liðið á að skipa beinskeyttum sóknarmönnum, og Rashidi Yek- ini er kannski besta dæmið um það. Hann er þrítugur og hefur skorað 23 mörk með landsliði Nígeríu. Rashidi vinnur kannski ekki dans- keppni við Roger Milla, en hann gæti aftur á móti komið mörgum varnarmanninum á óvart með hraða sínum og snerpu. Hann er rúmlega tveir metrar á hæð og vöðvastæltur og þykir ótrúlega skotfastur. Þrátt fyrir stærð sína er hann snarpur og það voru þessir eiginleikar hans sem gerðu hann að markaskorara leiktímabilsins í Portúgal þar sem hann lék í vetur. Nú hefur hann verið seldur til grísku meistaranna Olympyakos. Félagi Yekinis í framlínu Níger- íumanna er Daniel Amokachi, 21 árs og markakóngur liðs síns, FC Brugge í Belgíu. Fyrir aftan þessa tvo eru þrír leikmenn sem vakið hafa athygli með liðum sínum í Evrópu; Victor Ikpeba, tvítugur og leikur með Mónakó, Augustine Okocha, frá Eintracht Frankfurt og Sunday Oliseh, nítján ára gutti, sem leika mun með ítalska liðinu Reggia í vetur. ...en vandamál í vörninni Þótt framlína nígerska liðsins líti vel út, setja sparkfræðingar spurn- ingamerki við vörn þess. Flestir varnarleikmennirnir eru komnir til ára sinna og fæstir þeirra léku mik- ið á síðasta tímabili. Augustine Eguavon, sem spilar með Kortrijk í Belgíu, eyddi mestum hluta síðasta leiktímabils í banni. Uche Okec- huwu hefur ekki leikið með félags- liði síðustu tvö tímabil og Stephen Keshi var rekinn frá félagi sínu, Molenbeek í Belgíu, eftir að hafa komið of seint úr sumarleyfi. En þrátt fyrir vandamál í vörn- inni hefur nígerska liðið ekki fengið á sig mörg mörk í síðustu leikjum. Þrátt fyrir erfiða leið í heimsmeist- arakeppnina, þar sem rétturinn til að leika í Bandaríkjunum vannst á markahlutfalli, fékk liðið aðeins fimm mörk á sig í átta leikjum, og verstu úrslitin voru þegar það tap- aði fyrir Fílabeinsströndinni 2:1. Keppnin um Afríkutitilinn leiddi heldur ekki í ljós nein alvarleg vandamál í vörninni. En Ekoku varar við yfirlæti. „Afríkukeppnin var ekki raunverulegt próf á getu liðsins. Yftrburðir okkar voru ein- faldlega slíkir að hin liðin gátu lítið sótt að marki okkar.“ Heitt undir þjálfaranum Þjálfari liðsins, Westerhof, hefur lítið látið uppi um leikskipulag, en hefur hins vegar séð til þess að liðið fengi nægan undirbúning. Hann hefur einnig staðið í ströngu við nígerska knattspyrnusambandið og fyrir skömmu leit út fyrir að hann yrði að taka pokann sinn rétt fýrir keppnina. Lítil! vinskapur ríkir milli þjálfarans og framámanna í knattspyrnusambandinu og einn þeirra lýsti honum sem „stjórnlaus- um.“ Westerhof hefur einnig verið gagnrýndur fýrir að velja nígerska leikmenn sem leika með liðum í Evrópu, frekar en leikmenn sem leika heima fyrir. Hann ber það fyr- ir sig að engin atvinnumannadeild sé til staðar í Nígeríu og hann þurfí á reyndum leikmönnum að halda sem standist taugaspennuna sem fylgi svo stórri keppni sem heims- meistarakeppnin er. En þrátt fyrir allt þetta gleðjast Nígeríubúar yfir velgengni liðsins. „Ég var í rauninni yfir mig hissa á móttökunum eftir að við unnum Afríkubikarinn," segir Westerhof. „Þegar liðið kom heim vildu skyndilega allir þekkja okkur, allt frá forsetanum og niður úr. Raunsæ bjartsýni Þessi hollenskættaði þjálfari er bjartsýnn á gengi liðs síns í Banda- ríkjunum. „Ég held að sigurinn í Afríkubik- arnum hafi fært liðinu mikið sjálfs- traust. Nú getum við farið og trúað því að við komumst langt í heims- meistarakeppninni. Við förum sem Afríkumeistarar og ég er sannfærð- ur um að við gerum betur en Kamerúnar," segir Westerhof. Riðillinn sem Nígería leikur í verður án efa erfiður og hættan fyr- ir liðið er án efa sú að liðið hefji leikinn með of mikið af væntingum og vonum á bakinu, ólíkt Kame- rúnum sem komu öllum gjörsam- lega á óvart fyrir fjórum árum. Níg- eríumenn ættu einnig að hafa það hugfast að Zaire, þáverandi Afríku- meistarar, fóru til Þýskalands 1974, og töpuðu öllum leikjum sínum í undanriðli, án þess að skora eitt einasta mark. En bjartsýni Westerhofs byggist á því að velgengni Afríkumanna undanfarin ár hafi sýnt þeim fram á að þeir geti raunverulega spilað fal- legan og árangursríkan fótbolta - og unnið leiki. „Við förurn ekki með falsvonir í farteskinu til Bandaríkjanna,“ segir Westerhof, „heldur væntingar sem eru byggðar á raunveruleikanum. Tími Afríku sem stórveldis í knatt- spyrnu er kominn. © FIMMTUDAGUR 23. JÚ.N.Í 19.94

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.