Eintak

Eksemplar

Eintak - 23.06.1994, Side 34

Eintak - 23.06.1994, Side 34
WorldCup\ r;A94| Ifl 3 E □ Campos vinsæll Þessi litríki markvörður er stjama Mexikómanna Jorge Campos, markvörður Mexíkómanna, hefur aldeilis slegið í gegn á HM. Þessi 27 ára sókndjarfi markvörður er þekkt- ur fyrir afar skrautlegan Úæðn- að, skæran neongrænan mark- mannsbúning, en FIFA hélt marga fundi til að fjalla um hvort Campos mætti klæðast honum. En Campos er einnig vinsæll meðal andstæðinganna. Erik Thorsvedt markvörður var himinlifandi eftir leik Norð- manna við Mexíkó. Ekki aðeins út af úrslitunum heldur einnig því að þeir Campos skiptust á búningum og Thorsvedt telur sig hafa fundið ný gluggatjöld í eldhúsið heima á Englandi! © Romario de Sousa, framherjinn stórkostlegi hjá Brasiiíumönnum er með töframátt i tánum. Samúel Örn Erlingsson, sem lýsti leik Brasiiiu og Rússa, sagði hins vegar að eitt hefði Guð ekki gefið honum og það væri lítillæti. Suður-Kórea - Bólivía Heldur Suður-Kór- eaáfram að koma á óvart? Suður-Kórea kom skemmtilega á óvart í leiknum við Spán. Liðið lék skemmtilegan fótbolta, barðist fram á síðustu mínútu og uppskar fyrir vikið verðskuldað jafntefli. Suður-Kóreumenn leika áferðarfal- lega knattspyrnu, halda boltanum á jörðinni og beita óspart stuttu þrí- hyrningarspili en það var einmitt eftir slíkt samspil sem þeir skoruðu jöfnunarmarkið á móti Spáni. Lið Bólivíu lék einnig mun betri knattspyrnu en almennt var búist við afþví í opnunarleiknum á móti þýsku heimsmeisturunum. Eins og Suður-Ameríkumönnum sæmir eru Bólivíumenn mjög leiknir og voru óbangnir við að senda knött- inn með hælnum og sýna aðra stæla þegar þannig lá á þeim í leikn- um við Þjóðverja. Fremstur í flokki þeirra fór miðvallarleikmaðurinn Erwin Sanchez en auk þess að sýna skemmtileg tilþrif úti á velli sýndi hann það ótvírætt að hann er stórhættuleg langskytta. Fyrirfram var búist við því að það yrðu Suður-Kórea og Spánn sem mundu berjast um þriðja sætið í C-riðli en þriðja sæti í riðlakeppn- inni mun duga einhverjum fjórum liðum til að komast áfram í milli- riðlana. Þannig að leikurinn í Bost- on í kvöld er geysilega mikilvægur fýrir bæði liðin og má líta á hann sem kláran úrslitaleik um það hvort liðið heldur áffam keppni því mjög líklegt er að það lið sem tapar í kvöld þurfi að halda heim á leið þegar riðlakeppninni lýkur. © 34^253 Chartton aðhætta? Eríendir fjölmiðlar hafa veit því fyrir sér und- anfarið hvort Chariton muni láta þessa heimsmeistarakeppni marka lokapunkt á feriisínum sem þjátfari írska landsliðsins. Jack Charlton þjálfari írska landsliðsins var allt að því tekinn í dýrlingatölu á eyjunni grænu þegar hann skilaði liði sínu í átta liða úr- slit á HM 1990. írland hafði aldrei áður spilað í úrslitakeppni HM og árangurinn þótti gífurlega góður. Svo góður að 300.000 manns tóku á móti landsliðinu gólandi af hrifn- ingu er þeir lentu í Dyflinni að keppni lokinni. Núna fjórum árum seinna eru írar í úrslitum í annað sinn og bún- ir að spila sinn fýrsta leik. Hann var gegn engum öðrum en erkifjend- unum ítölum sem slógu þá út síð- ast. 1 þetta sinn náðu þeir hefndum. Maðurinn bak við sigurinn eins og svo oft áður var Jack Charlton. '„Það eina sem ég er hræddur við er sú staðreynd að ég er einfaldlega ekkert hræddur,“ sagði hann fyrir leikinn og bætti svo við að hann hefði „sterklega á tilfinningunni að þeir myndu vinna.“ Það gekk eftir. Það er greinilegt á öllum viðtöl- um í erlendum blöðum að Charl- ton hefur tekið ástfóstri við írsku þjóðina og hún við hann. „Þegar maður hefur kynnst því hversu hlý- legir Irar eru, þegar þeir hafa tekið mann á annað borð í hópinn og er farið að þykja vænt um mann, þá gerir maður allt til þess að þetta samband haldist óbreytt," sagði hann í viðtali fyrir keppnina. „Ég myndi aldrei þola að mæta fúkyrð- um þegar ég kæmi á krá á írlandi. Ef það gerðist myndi ég líklega hætta og drepa aldrei fæti mínum aftur á landið. Ég vil allra síst falla í ónáð á írlandi.“ Það er algengt að menn tali um að þeir séu tilbúnir til að gera flest til að halda í ákveðinn vin eða vina- hóp. En þegar um heila þjóð er að ræða er augljóslega eitthvað sér- stakt á ferðinni. Þessi árátta Charl- tons að hafa ótrúlegan áhuga á því hvað írskum almenningi finnst um starf hans hefur komið af stað miklum getgátum. Margir íþrótta- fréttamenn á Irlandi hallast á það að effir þessa heimsmeistarakeppni muni Charlton hætta. Hann vilji einfaldlega ekki taka áhættuna á því að mistakast og eyða ævinni í ónáð. Miklu nær sé að hætta á toppnum og lifa velsældarlífi við eilífar vin- sældir írsks almennings. Þær eru vissulega ærnar nú þegar. Sem dæmi má nefna að þegar maður ársins var valinn á Irlandi 1993 voru það ekki Sinead O'Connor, Bono í U2 eða hinn nýkjörni kvenforseti írlands sem börðustu um toppsæt- ið. Charlton sigraði með yfirburð- um. Hvernig sem fer alls óvíst að hann haldi áfram og búi liðið undir Evrópukeppninni 1996. Benda t.d. yfirlýsingar hans í fjölmörgum við- tölum við írsku og ensku pressuna eindregið í þá átt. Irskir blaðamenn telja að hann hafi það efst í huga að hætta um leið og hann skynjar minnstu hættu á að dálæti þjóðar- innar á honum sé að dvína. I síð- ustu viku sagði hann: „Þegar úrslit- in liggja fyrir mun ég setjast niður og skoða hvaða áhrif þau hafa á mína stöðu... Eitt get ég sagt hér og nú. Hvernig sem fer getur enginn kvartað yfir því að þeir hafi ekki lagt sig fram. Strax í undirbúningn- um hafa þeir staðið sig það vel að þjóðin má vel við una. Enginn þeirra hefur hlíft sér við þessar vægðarlausu æfingar sem við höf- um á þá lagt.“ STORI DOMUR (Ó)beint mark Ljóst er að dómararnir í heims- meistarakeppninni í Bandaríkjun- um koma nú betur undirbúnir til leiks en nokkurn tímann áður. Stórauknar kröfur eru nú gerðar til líkamlegs atgervis þeirra og fyrir- mælin sem FIFA gaf þeim í vegar- nesti fyrir keppnina voru í senn ströng og metnaðarfull, en í hnotskurn voru þau á þessa leið: Stuðlið með öllum ráðum að sóknarleik og refsið þeim leik- mönnum harðlega sem brjóta gegn anda leiksins um drengilega leikna knattspyrnu. Verndið snillingana fyrir tæknilega slakari andstæðing- um sem freista þess að beita öllum brögðum til að stöðva þá. Frammistaða dómaranna í leikj- unum til þessa hefur í heildina litið verið mjög góð og óhætt er að segja að þeir hafi átt sinn hlut í að gera leiki keppninnar mun skemmti- legri en í þeirri síðustu á Italíu. Að sjálfsögðu koma ávallt upp atriði í hverjum leik þar sem menn greinir á um hvort dómarinn hafi haft rétt fýrir sér en samræmingin í dóm- gæslu þeirra virðist mun betri en nokkru sinni fyrr. Sérstaka athygli mína hefur vakið frábær frammi- staða línuvarðanna, en þeir hafa varla stigið feilspor þrátt fyrir að fjölmargar sjónvarpstökuvélar fýlgist grannt með hverri þeirra hreyfingu. Frammistaða þeirra sýnir að FIFA gerði rétt í því að velja sérþjálfaða línuverði til þess að starfa á leikjum keppninnar í stað þes að láta dómarana dæma og vera línuverði til skiptis eins og jafnan áður. Effir 13 fyrstu leikina höfðu ein- ungis tvö rauð spjöld litið dagsins ljós, hvorugt þeirra fýrir hina al- ræmdu tæklingu aftan frá. Hin ströngu fyrirmæli sem FIFA gaf dómurunum fyrir keppnina um að senda leikmenn rakleiðis af leik- velli sem gerðust sekir um slíkar tæklingar virðast sem betur fer hafa haft þau áhrif að leikmenn hafa hingað til veigrað sér við að beita þeim. Dómararnir virðast hins vegar ekki hafa fylgt fyrirmæl- um FIFA út í ystu æsar og því eru leikmennirnir þegar farnir að færa sig upp á skaftið og aukaspyrnun- um hefur farið fjölgandi, eða úr um það bil 10-15 í fyrstu leikjunum upp í 40 í leik Spánverja og Þjóð- verja, sem er allt of mikið. Ég er því sannfærður um að FIFA muni í framhaldinu skerpa á þessum fyr- „Ég held að við höfum alla möguleika á að standa okkur vel. En menn verða að sjálfsögðu að vera viðbúnir því versta. 1 keppni sem þessari sitja margir eftir með sárt ennið.“ Þá er að vona að Irar, sem lengi hafa verið taldir til okkar helstu frændþjóða, verði ekki í þeirra hópi. © Jack Charlton „Það eina sem ég er hræddur við er sú staðreynd að ég er einfaldlega ekkert hræddur. “ „Badilla dómari frá Kosta Rica, sem verður líklega ekki boðið í afmælið til Sto- ichkovs, dæmdi réttilega óbeina aukaspyrnu fyrir hindrun oggafþað skýrt og greinilega til kynna með því að halda annarri hendinni uppi til merkis um að svo væri. “ irmælum og fyrirskipa dómurun- um að stöðva þessa þróun með öll- um ráðum. Eftir því sem baráttan harðnar þegar á keppnina líður megum við því líklegast búast við því að dómararnir freisti þess að grípa fyrr inn í þegar um grófan leik er að ræða og beiti spjöldun- um af meiri staðfestu. Ein af nýjungum í fyrirmælun- um til dómaranna, sem ég tel að hafi skilað mjög góðum árangri, er sú að heimila ekki meðhöndlun meiðsla inn á leikvellinum nema að um höfúðmeiðsli sé að ræða eða meiðsli markvarðar. Leikmenn vita nú að ef dómarinn þarf að stöðva leikinn til þess að hleypa sjúkraþjálfurum inn á þá munu þeir þurfa að yfirgefa leikvöllinn um tíma. Þetta hefur fækkað stór- lega hinum hvimleiðu uppgerðar- meiðslum sem plagað hafa knatt- spyrnuunnendur um allan heim undanfarin ár. Það kæmi mér ekki á óvart ef Al- þjóðanefndin (The International Board), sem hefur alræðisvald varðandi breytingar á knatt- spyrnulögunum og túlkunum þeirra, legði til að lokinni yfir- standandi heimsmeistarakeppni, að óbeinar aukaspyrnur verði af- lagðar. Hugmynd þess eðlis hefur lengi verið í umræðunni, en glæsi- legt „ó“mark Búlgarans Hristo Stoichkov í leiknum gegn Níger- íumönnum gæti orðið korninn sem fyllir mælinn. Badilla dómari frá Kosta Rica, sem verður líklega ekki boðið í afmælið til Stoichkovs, dæmdi réttilega óbeina auka- spyrnu fýrir hindrun og gaf það skýrt og greinilega til kynna með því að halda annarri hendinni uppi til merkis um að svo væri. Hann varð því að dæma markspyrnu þrátt fyrir að knötturinn hefði þanið netmöskvana með svo eftir- minnilegum hætti. Til glöggvunar fyrir lesendur skulu nú upptalin þau fimm leikbrot sem leiða til óbeinnar aukaspyrnu: 1 Háskaleikur 2 Hrinding á réttan hátt þegar knötturinn er utan leikfæris 3 Mótherji hindraður 4 Markverði hrint á eigin markteig 5 Of mörg skref (fleiri en fjögur) markvarðar GylfiÞór Orrason milliríkjadómari skrifar um dómgæslu áHM 94 Þá er óbein aukaspyrna einnig dæmd í nokkrum tilfellum þar sem ekki er um bein brot á andstæðingi að ræða, svo sem við rangstöðu. Ef ég ætti að lokum að nefna einn dómara sem mér finnst hafa skarað fram úr í hópi margra góðra, þá myndi ég vilja nefna Sýr- lendinginn Jamal Al-Sharif sem dæmdi hinn frábæra leik Kólumb- íu og Rúmeníu. Hann hafði gífur- lega yfirferð og var nánast ávallt á staðnum þegar eitthvað var að ger- ast. Hann beitti hagnaðarreglunni af mikilli kunnáttusemi og mín skoðun er sú að knattspyrnuunn- endur um allan heim muni hagn- ast vel af því verði honum falið það erfiða hlutskipti að dæma sjálfan úrslitaleikinn. © FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ1994

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.