Eintak - 25.08.1994, Síða 2
LOF
STELLINQ VIKUNNAR
Varekki
samtsem
áðurgaman
í sumar-
fríinu,
Ingibjong?
© Skotveiðimenn siga fuglafrœðingi á Össur © Sigursteinn kennir „markvisstC(
© Hrœringar hjá Frökkum © Silfurskottumaðurinn til sýnis © Irwing Oil á eftir Olís
skrifum fyrir dagblöó og einnig
munu þeir fást við fréttavinnslu fyrir
sjónvarp, sem væntanlega mun
fara fram á vinnustað Sigur-
steins uppi á Lyng-
hálsi...
STEINGRÍMUR
Eyfjörð
myndlistarmað-
ur undirbýr nú sýningu
af miklum móð. Hana á
að halda i Gallerí Greip á
Hverfisgötunni og verður þar sjálfur
silfurskottumaðurinn í aðalhlutverki
en hann hefur löngum prýtt síður
eintaks á mánudögum...
Nokkur umskipti standa nú
yfir meðal Frakka hér á
landi. Fjölmiðlafulltrúi
franska sendiráðsins Jean-Marc
Philibert lætur af störfum í
haust og einnig hefur Franqoise
Pérez, forseti L’Alliance
Frangaise, lokið starfstíma sínum.
Að sjálfsögðu koma nýir í þeirra
stað en þeirra verður þó sárt sakn-
að...
kkotveiðimenn
khalda ráð-
"stefnu um
rjúpuna á Holiday
Inn á laugardag. Eins
og kunnugt er eru þeir ekki
par hressir með þá
ákvörðun Össurar
Skarphéðinssonar
umhverfisráðherra að
stytta rjúpnaveiðitíma-
bilið og hyggjast snúa
vörn í sókn á ráðstefn-
unni. Sér til fulltingis hafa
þeir fengið þá Ólaf K. Nielsen og
Hans Pedersen fuglafræðing frá
Noregi sem munu opna ráðstefn-
una með erindum sínum...
Sigursteinn Másson frétta-
maður á Stöð 2 þykir aldeil-
is hafa forframast í frétta-
mannastarfinu. Fyrir nokkrum
árum var hann sölumaður í
herrafataverslun, en sam-
kvæmt auglýsingu í Tímanum í
gær, mun hann sjá um „Mark-
visst fjölmiðlanám" í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti í vetur. Nem-
endur fá að spreyta sig á greina-
Stelling vikunnar er full tilbeiðslu og auðmýktar. Hverjum og einum
ætti að vera hollt að bregða sér i hana þótt ekki væri nema örfáar
sekúndur á dag. Stellingin er einföld og hægt er að nota hana i
hvers kyns klæðnaði. Þið krjúpið á kné, spennið greipar og horfið
upp á við. Best er að vera úti eða við opinn glugga svo hægt sé að
líta upp i fegurð himinsins um leið. Stellingin hentar vel þeim sem
finnst gott að fara með bænir í erli dagsins. Þetta er líka stellingin
sem þú bregður fyrirþig þegarþað á að fara að klippa greiðslukort-
in og loka reikningnum úti í búð. En einnig er hún góð fyrir þá sem
þurfa að bera upp bónorð eða vilja bara líta upp úr erli dagsins eitt
andartak og horfa upp á við.
„Jú, þetta var alveg lífsnauðsyn-
legt frí fyrir mig og mitt fólk. Eg lá
upp íloft og sleikti sólina, borðaði
góðan mat, skoðaði markverðar
byggingar og naut lífsins."
Er eðlilegt að borgarstjóri fari i
frí á fullum launum eftir þrjá
mánuði í starfi?
„Það er fullkomlega eðlilegt að
borgarstjórinn fari í frí, pvíþað er
ekki bara spurningin um mann
sjálfan, því maður er búinn að
leika sína nánustu dálítið grátt á
sfðustu mánuðum og þeir eiga
rétt á þvíað maður taki sér frí í
ákveðinn tíma. Svo er það spurn-
ingin um launin. Ég hafði svo sem
ekkert spáð í það hvernig þeim
málum væri háttað hjá borginni
og reiknaði bara með þvfað ég
sætti sömu kjörum og aðrir borg-
arstjórar. Og nú skilst mér að það
sé þannig að það séu greidd laun
ílok hvers orlofsárs eins og þeir
hefðu ekkert orlof tekið. Það
finnst mér út af fyrir sig orka tví-
mælis og þegar maður hefur tek-
ið frí eins og ég geri nú þá finnst
mér engin ástæða til að greiða
það út af fyrir sig. Þannig að þeg-
ar olofsárið er gert upp vænti ég
þess að þessir dagar verði þá
bara dregnir frá. “
Markús Örn Antonsson, fyrr-
verandi borgarstjórí, segist
ekkert kannast við að hafa
fengið greidd einhver laun í lok
hvers orlofsárs eins og hann
hafi ekkert orlof fengið.
„Ég hef mínar upplýsingar frá
embættismönnum borgarinnar. “
Heldurðu að launþegi á hinum
almenna launamarkaði fái að
fara í frí á fullum launum eftir
þriggja mánaða starfstima?
„Það eiga allir rétt á orlofi. Ég
eins og aðrir. Með ýmsum hætti
sæti ég ekki sömu launakjörum
og fólk á almennum markaði í
þessu embætti. Fólk getur
kannski haft einhverjar meiningar
um það. En ég á auðvitað að sitja
við sama borð og fyrirrennarar
mínir í starfi. Það erengin ástæða
til að ætla annað. “
í kjölfar fréttar eintaks um að
borgarstjóri hefði farið í sumarfrí á
fullum launum bar minnihluti Sjálf-
stæðisflokks í borgarstjórn fram
fyrirspurn um orlofsmál Ingibjarg-
ar Sólrúnar Gísladóttur borgar-
stjóra Reykjavíkur.
I gærkvöld gengu fjórmenning-
arnir sem eiga Pizza 67 veitinga-
staðina frá kaupum á skemmti-
staðnum Tunglinu. Þar með eiga
þeir félagar og reka þrjá skemmti-
staði í Reykjavík: Déja-vu, Rósen-
bergkjallarann og Tunglið. Eru þeir
því komnir í hóp umsvifamestu
veitingamanna í Reykjavík fyrr og
síðar, með þrjá skemmtistaði og tvo
matsölustaði.
Georg Georgiu, einn fjór-
menninganna, segir að þeir séu
óhræddir við að færa út kvíarnar og
segir að það sé greinilega markaður
fyrir stóran stað. Því til staðfesting-
ar bendir hann á það ástand sem
hefur ríkt í miðbænum undanfarn-
ar helgar þegar margra metra raðir
hafa verið fyrir utan flesta
skemmtistaðina.
„Þetta verður spútnik-staðurinn
í bænum,“ segir Georg. „Kiddi
Bigfoot verður skemmtanastjóri
nudd-
tæki
Tæki vikunnar að þessu sinni er
eins konar nuddtæki fyrir heil-
ann. Auðvitað nuddar tækið
ekki heilann beinlínis, en með
því er reynt að örva heilann á
þann hátt að eigandinn slaki
betur á. Græjan samanstendur
af stýritæki, heyrnatólum og
sérstökum „gleraugum". Stýri-
tækið sendir frá sér hljóðbylgjur
um heyrnatólin og lætur „gler-
augun“ varpa frá sér Ijósgeisl-
um, en hvort tveggja er ætlað
til þess að örva heilann á þann
hátt að alfa- og þeta-bylgjum
heilans fjölgi. Á þeim bylgjum
ber einmitt mest þegar heilinn
er í hvíld eða sköpunargáfan í
hvað mestri uppsveiflu. Þetta
hvílir heilann og gerir hann jafn-
framt hæfari til þess að takast á
við erfið verkefni fyrr en ella.
Apparatíð er knúið með fjórum
hleðslurafhlöðum og það er
hægt að nota hvar sem er. Það
er sérstaklega sniðugt fyrir úr-
vinda fólk, sem er of trekkt til
þess að sofna, flughræddir
geta betur slakað á með tæk-
inu og eins geta stresssjúkling-
ar notað það til þess að ná sér
niður þegar stund gefst milli
stríða. Tækið fæst, eins og flest
tæki þessa dálks, hjá póst-
versluninni Sharper Image og
kostar um 10.000 krónur. Það
er pantað með því að nefna
krítarkortsnúmer sitt og vöru-
númerið #PK780 í síma
901 415 344 4444.©
og mun sjá um að leggja línurnar í
tónlistarvali. Við komurn til með
að breyta einhverju, en þó ekki
miklu því staðurinn er mjög góður
eins og hann er í dag.“
Georg segist ekki vera hræddur
um að þeir séu að fara í samkeppni
við sjálfa sig með Tunglinu.
„Við ætlum að höfða til annars
hóps með Tunglinu en þeirra sem
sækja Déja-vu og Rósenberg núna.
Þetta verður aðeins fínni staður og
hugmyndin er að fólkið mæti líka
aðeins fínna í tauinu."
Að sögn Georgs er ekki í bígerð
að opna á milii Rósenberg-kjallar-
ans og Tunglsins, en eins og kunn-
ugir vita er fyrrnefndi staðurinn í
kjallara þess síðarnefnda en í ár-
daga Tunglsins var jafnan opið á
milli. Georg segir að Tunglið rúmi
fimmhundruð manns eins og stað-
urinn er í dag og ekki sé þörf á að
stækka hann meira.
„Við ætlum hins vegar að herja
stíft á skólaballamarkaðinn virka
daga í vetur og þá verður opnað á
Rósenberg
Fjórmenningarnir í
Pizza 67 eiga nú og
reka þrjá skemmtistaði:
Déja-vu, Rósenberg-
kjallarann og frá og
með gærdeginum,
Tunglið.
milli ef nauðsyn krefur. Þá mun
Tunglið taka um það bil sjö hundr-
uð manns en það eru fáir staðir í
Reykjavík sem rúma svo marga.“
Georg segir að þó að umsvifin
séu orðin mikil ráði þeir félagar
ágætiega við að halda utan um
dæmið og segir hann að Kiddi
Bigfoot sé þeim til halds og traust í
skemmtistaðarekstrinum.
Tunglið mun opna með pompi
og pragt eftir rúma viku og nú er
bara að bíða og sjá hvernig viðtök-
ur staðurinn fær hjá skemmtana-
þyrstum Reykvíkingum. 0
...fær Kristján Loftsson út-
gerðarmaður með meiru
fyrir að þora að segja það
umbúðalaust í viðtali við
Fiskeribladet í Noregi að
veiðar íslendinga í Smug-
unni séu heimskulegar.
Kristján bendir á að íslend-
ingar séu með vinnubrögð-
um sínum að bjóða heim
ryksuguflotum í sildar-
smuguna þegar síldin
genguryfir til íslands og
eins sé verið að gefa sama
færi á sér með karfann á
Reykjaneshrygg. Kristján á
lof skilið fyrir að taka á
þessum málum með skyn-
semi í stað blindrar þjóð-
ernisstefnu eins og margir
sem að þeim hafa komið.
LAST
...færherra Ólafur Skúla-
son biskup fyrir að harma
meinta trúgirni fólks, sem
fór á samkomu Benny
Hinns í vissu þess að það
fengi meina sinna bót fyrir
tilstuðlan Guðs. í hvaða
bransa heldur biskup eig-
inlega að hann sé? Hann á
að heita helsti trúarleiðtogi
landsins og trú er í beinni
andstöðu við kalda rök-
hyggju — hún snýst bein-
línis um hið yfirskilvitlega,
en þessi einföldu sannindi
virðast verða biskupnum
yfirskilvitleg. Jafnvel þó
svo ekki fái allir líkn hjá
Benny Hinn geturþað eng-
an veginn verið i verka-
hring biskupsins að draga i
efa mátt trúarinnar.
PAÐ VÆRI TILQANQSLAUST...
..að vera baggi á
einhverjum.
...að vaða á súðum
TÆKI
VIKVNNAR
Heila
Rekstur olíufélaganna er með
ágætasta móti um þessar
mundir þrátt fyrir allt krepþu-
tal. Hagnaður Skeljungs þrefaldað-
ist á fyrri hluta ársins og varð rúm-
lega 100 milljónir
f||HjraraH króna. Hlutabréf
Olís eru ófáanleg
m með öllu en kanad-
I k- J íska olíufélagið
Irwing Oil hefur ver-
ið að falast eftir þeim að undan-
förnu. Erfitt er að finna útskýringu á
hækkun bensínverðs í síðustu viku í
Ijósi þessarar rekstrarafkomu...
2
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994
© JÓN ÓSKAR