Eintak - 25.08.1994, Blaðsíða 4
SlGURÐUR G.GUÐJÓNSSON
erum og höfum alltaf
Éetáð tilbúnir til þess að
lá hlutlausan aðila
fahnsaka öll viðskipti
fimhafa við félagið.
<Þ§ss vegna fögnum
vfö því að þetta mál
fári til ráðherra."
Ógeðfelldasta frétt vikunnar
birtist á baksíðu Dagblaðsins-Vísis í
gær undir fyrirsögninni
Skotið á
mann
gegnum
lokaðar
Hluthafafundur Stöðvar 2 hafnar rannsóknarkröfu minnihlutans
núna, þegar ekki var þörf fyrir
hana 1992 og 1993, sjáum við
enga ástæðu til þess að greiða
svona tillögum atkvæði okkar.
Þessir menn þurfa að gera okk-
ur grein fyrir því að þeir kom-
ist fram hjá því að dómstólar
segi: Það er búið að leggja árs-
reikninga þessa félags fyrir
hluthafafundi í þrígang, og
jafnvel oftar, síðan flest þessi
viðskipti áttu sér stað.
Jóhann Óli Guðmunds-
son, Ásgeir Bolli Kristins-
son, Stefán Gunnarsson og
fleiri af þessum mönnum fjöll-
uðu um það á fundum sín á
milli hvort eitthvað væri við
þessi viðskipti að athuga á einn
eða annan hátt og í framhaldi
gáfu þeir allir út syndaaflausn
ef einhverjar syndir voru.
Þangað til þeir svara því af
hverju sé ástæða til þess að taka
þessi mál upp á nýju er ekki
hægt að líta á þetta öðru vísi en
áróður gegn ákveðnum ein-
staklingum," segir Sigurður.
Jóhann J. Ólafsson er einn
fjórmenninganna sem tillögur
Einars beindust gegn. Hann
segir að það sé langt frá því að
þeir hræðist rannsókn, aðrar
ástæður liggi að baki því að til-
lögum minnihlutans var hafn-
að.
„Við erum meira en reiðu-
búnir til þess að láta fara fram
rannsókn. Málið er bara að við
viljum ekki láta þess menn
stýra því hvernig hún fer fram.
Það er best að hlutlaus aðili
skoði málið, ef það verður
skoðað á annað borð, og við
erum einungis ánægðir með að
málinu verði vísað til við-
skiptaráðherra.
Annars held ég að flestir
hljóti að vera búnir að átta sig á
því að þetta sjónarspil minni-
hlutans er ekkert annað en
áróðursstríð af þeirra hálfú og
á ekki við nein rök að styðjast.
Þeir höfðu öll tækifæri til þess
að leiða þessi mál til lykta á
meðan þeir stýrðu fyrirtækinu
og þeir gerðu það líka án þess
að finna tiJefni til málssóknar.
Þannig að þessir tilburðir
þeirra núna eru óskiljanlegir.
Það má allt eins halda að þeir
séu að hefna sín vegna mál-
sóknar á þeirra hendur yfir söl-
unni á Sýn og starfslokasamn-
ingi Páls Magnússonar með
því að taka upp mál sem löngu
hafa verið Ieidd til lykta,“ segir
Jóhann. ©
Fimmtudagurinn l8. ágúst
Ég sá það þegar ég vaknaði í morgun að ísjakinn hefur enn
minnkað. Og sólin skín og skín eins og hún ætli að drepa mig.
Um hádegiö fann ég hatriö á þessu gula fífli blossa upp í mér
og ég stóð sjálfan mig að þvi að steyta hnefanum í átt til himins
hafandi yfir alls kyns klámyrði sem ég man ekki til að ég hafi
heyrt áður. Undir kvöld fylitist ég öryæntingu og gekk aftur á
skut jakans og ræddi við Dabba sel. Ég sagði honum að þrátt
fyrir að ég hafi afrekað ýmislegt um mína daga þá þætti mér
sem ég ætti enn mörgu eftir ólokið. Ég sagði honum að ég legði
líf mitt í litlu hreifana hans og bað hann lengstra orða að snúa
þeim hraðar svo við næðum einhvern tímann landi. Ég sofnaði
síðan hálf snöktandi. Úr því enginn sér til mín hérna á jakanum
ætla ég ekki að manna mig upp í að taka örlögum mínum meö
karlmennsku.
Föstudagurinn lf). ágúst
Þegar ég vaknaði í morgun fann ég að jakinn hreyfðist hægar
en áður. Hann barst undan straumi. Ég hraöaði mér aftur á skut
og féll saman þegar ég sá að Dabbi hafði yfirgefið mig. Hann
var hættur að knýja jakann áfram. Hann hafði yfirgefið mig. Ég
var einn. Aleinn. Og þegar ég áttaöi mig á þessu sá ég ekki bet-
ur en það væru hundruðir hákarla sem hringsóluðu kringum
jakann. Kannski sá ég ofsjónir. Ef til vill voru þetta engir hákarl-
ar. En ég vissi að ef þeir voru ekki þarna þá vildu þeir svo sann-
arlega vera þarna. Bíðandi eftir heimspekingi í matinn. Eftir að
hafa hugsað í hringi í marga tíma sofnaði ég úrvinda.
Laugardagurinn 20. ágúst
Ég vaknaði um miðja nótt. Yfir mér var stjörnubjartur himinninn
og dansandi norðurljós. í fyrstu horfði ég hugfanginn á þessa
sýn. Síðan fangaði annað hug minn. Jakinn hreyfðist hratt móti
straumi. Og þegar ég leit aftur eftir jakanum sá ég heilan her af
selum að ýta jakanum. Og Dabbi var fremstur. Úðlingurinn
hafði náð í vini sína að bjarga mér undan sólinni, ísköldum
sjónum hérfyrir norðan og hákörlunum. Ég dansaði um jakann
og reyndi að skemmta selunum sem lögðu þetta erfiði á sig fyr-
ir mig. Ég fór með vísur sem ég hafði lært í æsku og rak meira
að segja út á mér bumbuna, ruglaði á mér hárið og reyndi að
herma eftir Davíð. Allt fyrir selina vini mína.
Sunnudagurinn 21. ágúst
Þegar ég vaknaði í morgun fann ég að allt var breytt. Ég fann að
ég lá á heitum fleti en ekki köldum. Yfir mér var ekki frakki held-
ur sæng. Ég var ekki á ísjaka heldur heima í svefnherberginu
mínu. Ég leitaði um alla íbúð en fann engan sel. Ekki einu sinni
selskinnsslaufuna mína sem ég keypti mér um daginn. Allt sem
ég haföi upplifað undanfarna daga — hressileg ferð mín í
Smuguna, ísjakinn sem hoppaði á hrifningarkasti, ævintýralega
björgun selana og allt — þetta hafði líkast til bara verið draum-
ur. Mér leið eins og Bobby í Dallas þegar hann hafði dreymt
eina fjörutíu þætti á einni nóttu. Ég reyndi að hressa mig við,
klæddi mig, gekk niður í bæ og rakst á auglýsingu um sam-
komu í Kaplakrika. Ég fór þangað suður eftir og varð fyrir
reynslu sem ég get ekki skrifaö um að sinni.
Mánudagurinn 22. ágúst
Ég er enn að reyna að melta gærkvöldið. Ég man að ég sat úti í
sal og fann vel hvernig fólkið í kringum mig æstist og ruggaði
sér á endum til í einhvers konar hrifningarmóki. Ég hlustaöi á
manninn með sænsku popparagreiðsluna segja okkur hvernig
við ættum að opna hjarta okkar fyrir guði. Ég missti þráðinn í
því sem hann sagði en hrökk skyndilega við þegar hann öskraði
í míkrafóninn. Og þegar ég kipptist viö fann ég einhvers konar
hita hríslast um mig. Og ég vissi ekki af mér fyrr en ég var
kominn upp á svið að Ijúga upp á mig krabbameini. Og maður-
inn með sænsku popparagreiðsluna losaði mig umvendis við
það. En það var ekki nóg. Síðan gerði ég eitthvað fleira sem ég
get ekki ennþá horfst í augu við.
Þriðjudagurinn 23 • ágúst
Ég er enn að reyna að átta mig á sunnudagskvöldinu. Eftir að
ég losnaði við krabbameinið fylltist ég löngun til að losna við
fleiri sjúkdóma. Ég valhoppaði um sviðið og þuldi upp úr mér
alls kyns pestir og mein. Eg var geðveikur, kvefaður, drykkju-
sjúkur, lamaður, blindur, haltur og fullur haturs. En það var
sama hvað að mér var, alltaf losaði maðurinn með sænsku
popparagreiðsluna mig við sjúkdómana um hæl. Það var eins
og ég færi í gegnum raunir Jobs á Ijóshraða. Um leið og djöf-
ullinn steypti mig kaunum kom guð og gerði mig heilan á ný.
En aðeins til þess að fjandinn yröi laus á ný.
Miðvikudagurinn 24. ágúst
í morgun bankaði huggulegur maður á dyrnar hjá mér og vildi
vita hvort ég hefði fundið eitthvað til í krabbameininu sem ég
hafði læknast af í Kaplakrika. Ég sagði honum sem var aö ég
væri alheill. Þá spurði hann um drykkjusýkina, lömunina og
blinduna. Ég svaraði sem var að mér liði bara nokkuð vel. Þá
stakk hann upp á því að við bæðum saman, tók í hendina á
mér, leiddi mig aö rúmstokknum, kraup þar og byrjaði að fara
með bænirnar. I fyrstu fannst mér þetta sérkennilegt en þegar á
leið fann ég að ef til vill hafði ég eignast nýja vini.
© Biskupinn hrœddur við allt sem er máttugra en hann © Tölvufíklar fóru ífjallgöngu
© Kennurum kennt að dansa © Hreinsað úr kompunum í Kolaportið
fmsir
menn sem
starfa
innan kirkj
unnar eru
ekkert
alltof
ánægöir með biskup-
inn sinn og efast
stundum um aö hann
viti hvað hann er að
segja. Ýmsar sögur
ganga um hversu
óheppinn hann sé í
orðavali þegar hann er að
tjá sig við fjölmiðla. Þykir hann
í því sambandi ekkert gefa Dan Qu-
yle, fyrrum varaforseta Banda-
ríkjanna, eftir. Einu sinni á
hann að hafa sagt: „Við
verðum að hjálpa börn-
unum í Brasilíu því ekki
viljum við að þetta fólk
flæði yfir alla heims-
byggðina." Og öðru
sinni þegar andalækn-
ingar bar á góma segir
sagan að Ólafur hafi
sagt: „Ég er hræddur við
allt sem er máttugra
mér.“ Þá náttúrlega fór
guðsmyndin fyrir lítið...
Fjöldi tölvufíkla lagði leið sína
upp að Esjunni i gær, eftir að
tölvufyrirtæki lýsti eftir týndri
tölvu sem heppinn finnandi mátti
eiga. Að sögn lögreglunnar í Mos-
fellsbæ var óvenju mikið af bílum á
bílastæðinu við Mógilsá, þannig að
einhverjir hafa lagt á sig labbitúr í
þeirri von að verða kjöltumakka rik-
ari. Engum sögum fer af þvi hvort
tölvan fannst, en í auglýsingu í gær
var nánari leiðbeiningum lofað.
Enda veitti ekki af, því Esjan hefur
fleiri hliðar (og hlíðar) en þær sem
blasa við frá Fteykjavík...
Kramhúsið hefur verið ötult að
laða til sín erlenda gestak-
ennara og sá sem kemur í
vetur er Daninn Sören Sigurd
Barret. Hann lagði áherslu á tón-
listarkennslu, píanóleik og tónsmíð-
ar í Konservatoríinu í Árósum og
fjaliaði lokaverkefnið um rokktónlist
í Rússlandi og dvaldi hann þar í
landi til að klára það. Hann hefur
vakið athygli sem jasspíanóleikari
og skemmtikraftur í heimalandi sínu
og þykir fengur af að fá hann hing-
að til lands. Námskeið Sörens í
Kramhúsinu er aðallega ætlað
kennurum og fóstrum...
Fyrstu kompudagarnir verða í
Kolaportinu um helgina síðan
það flutti í Tollhúsið. Þá geta
allir gripið með sér alls kyns dót
sem þeir eru orðnir leiðir á úr
kompunum sínum og boðið til sölu.
Þrátt fyrir að seljendum og kaup-
endum hafi fjölgað í Kolaportinu frá
því það flutti er minna um notaða
muni þar en áður. Hikið því ekki við
að gramsa eilítið í kompunum og
koma með gömlu fótanuddtækin
og soda stream-tækin. Það er alltaf
til hellingur af skrýtnu fólki sem
vantar svoleiðis græjur...
OQEÐFELLDASTA
FRÉTT
VIKUNNAR
kamardyr
Að öllu jöfnu hefði maður haldið
að fyrirsögnin segði ógeðfelldasta
hluta fréttarinnar, en þegar hún er
lesin kemur annað í ljós. I fféttinni
greinir frá því að maðurinn, sem
heldur nafnleynd, hafi verið á ferð
ásamt félögum sínum á Sultarfitj-
um á Tungnamannaaffétti og hafi
þeir afráðið að gista í kofa sem þar
er. Áður en mennirnir gengu til
náða þurfti söguhetjan að ganga
örna sinna og fór í þar til gerðan
kamar til þess. Út af fyrir sig hefði
það ekki átt að vera í frásögur fær-
andi, en til allrar óhamingju fyrir
manninn reyndust vinir hans vera
rosalegir húmoristar. Einn þeirra
tók sig nefnilega til og beindi hagla-
byssu sinni að kamarhurðinni og
ætlaði að bregða kamarsátanum.
Það tókst honum svo sannarlega,
því höglin fóru rakleiðis í gegnum
hurðina og í andlit þess sem inni
sat. Gert var að sárum mannsins í
heilsugæslustöð í Laugarási, en
læknirinn þar treysti sér ekki til
þess að eiga mikið við högl, sem
sátu fast við augu mannsins, og var
hann því sendur til Reykjavíkur.
Y
A
Þessi frétt er ógeðfelld fyrir
margra hluta sakir. í fyrsta lagi eru
allar fréttir af klósettferðum fólks
einkar ógeðfelldar og bera í raun
nafnið skítafréttir með rentu. Það
er líka afar ógeðfellt að lesa um
hvað manngreyið hefur verið
óvandaður í vinavali. Ekki síður er
það ógeðfellt að lesa um það hvað
„vinur“ hans hefur verið geggjaður
og með fráleita kímnigáfu. Reyndar
dettur manni helst í hug að kauði
hafi verið dauðadrukkinn, en það
er ekki síður ógeðfelld tilhugsun að
enginn félaga hans skuli þá sjá neitt
athugavert við það að hann sé vals-
andi út að kamri með haglara í
höndinni og Bakkus einan til leið-
sagnar. Þá er það í raun ógeðfellt að
DV skuli ekki gera fréttinni hærra
undir höfði en raun ber vitni, því
einhver léttúð í meðferð skotvopna
er vitaskuld í senn ófær og ógeð-
felld.O
Meirihluti
nar
mannu
til ráðr
Villrannsókn a viðskiptum allra hluthafa
„Af hverju var þetta ekki
rannsakað þegar þeir réðu fé-
laginu? Af hverju höfnuðu
þessir menn því að það væru
fengnir löggiltir endurskoð-
endur til þess að fara ofan í
saumana á viðskiptum allra
stjórnarmanna við félagið?
Þetta eru spurningar sem við-
komandi aðilar þurfa að
svara,“ segir Sigurður G.
Guðjónsson, stjórnarformað-
ur íslenska útvarpsféiagsins,
um tillögur minnihlutans sem
var hafnað á hluthafafúndi í fé-
laginu í gær.
Á dagskrá fundarins voru
fimm tillögur Einars S. Hálf-
dánarsonar, fulltrúa minni-
hlutans í stjórn Islenska út-
varpsfélagsins, um að mál yrði
höfðað í fjórum tilvikum gegn
Jóni Óiafssyni og einu gegn
Fjórmenningum sf., en það eru
auk Jóns Ólafssonar, Haraldur
Haraldsson, Jóhann J. Ól-
afsson og Guðjón Oddsson.
Einar er mjög ósáttur við af-
greiðslu tillagnanna og segir
hana tæplega standast lög.
„Málinu verður vísað til við-
skiptaráðherra og hann feng-
inn til að ganga í það. Ef það
dugar ekki verður að leita
lengra. Það er örugglega refsi-
vert að gera þetta,“ segir Einar
en hann vísar til þess að fyrir
skömmu voru hlutabréf fjór-
menninganna og hlutabréf
Sigurjóns Sighvatssonar
færð undir eitt félag sem heitir
Útherji hf. I frétt EINTAKS um
hið nýja félag á mánudaginn
sagði Einar að það myndi eng-
in áhrif hafa á atkvæðagreiðsl-
una, því ekki væri löglegt að
nota atkvæði viðkomandi
hluthafa í atkvæðagreiðslu
varðandi málsókn á hendur
þeim. Annað kom á daginn í
gær þegar öllum tillögum
minnihlutans var hafnað. Sig-
urður G. Guðjónsson fór með
atkvæði Útherja hf. og í at-
kvæðagreiðslu um tillögurnar
fimm var öllum atkvæðum
meirihlutans beitt. Einar er viss
um að þetta hafi verið ólöglegt
athæfi og segir að þetta sé mál
NAFNSPJALD VIKWNNAR
Nafnspjaldseigandi vikunnar aö þessu sinni er Ijós-
myndari, eins og margir forverar hans í þessum
dálki. Kappinn heitir Sigurþór Hallbjörnsson og
nafnspjald hans á það sameíginlegt með nafn-
spjöldum margra annarra Ijósmyndara, að á því er
mynd af myndavél til að undirstrika hver iðja eig-
andans er. Nafnspjald Sigurþórs er hið snotrasta í
alla staði, smekklega uppsett og þær upplýsingar
sem á það eru prentaðar vel læsilegar. Lesendur geta því miður ekki notið litar
spjaldsins sem í upprunalegri útgáfu er fagurblátt. Það er við hæfi að benda á að Sig-
urþór er sjálfsagt betur þekktur undir listamannanafní sínu, Spessi, og að hann var all
umfangsmikill Ijósmyndari fyrir nokkrum misserum. Nú hefur hann hins vegar lagt frá
sér myndavélina í bili en fæst þess í stað við húsamálun.
sem ríkissaksóknari ætti að
kanna.
Sigurður segir að það hafi
legið ljóst fyrir frá því að nýr
meirihluti myndaðist í Islenska
útvarpsfélaginu að félag yrði
myndað um hlutabréfaeign
meirihlutans. Hann vísar ásök-
unum um að ólöglega hafi ver-
ið staðið að atkvæðagreiðsl-
unni til föðurhúsanna. Sigurð-
ur vill ekki gefa upp ein-
1" staka eigendur Útherja hf.
en segir að það séu hluta-
félög og einstaklingar hér í
bæ og erlendis.
Sigurður er harðorður í
garð þeirra minnihluta-
manna sem Einar er fúll-
trúi fyrir og segir málatil-
búnað þeirra illskiljanleg-
„Við erum og höfum
alltaf verið tilbúnir til þess
að láta hlutlausan aðila
rannsaka öll viðskipti hlut-
hafa við félagið. Þess vegna
fögnum við því að þetta mál
fari til ráðherra. En meðan
menn geta ekki svarað því af
hverju þörf er á rannsókn
e
S
4
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994 4