Eintak - 25.08.1994, Page 6
CINTA K
Gefið út af Nokkrum íslendingum hf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Framkvæmdastjóri: Árni Benediktsson
Auglýsingastjóri: Örn ísleifsson
Dreifingarstjóri: Pétur Gíslason
HÖFUNDAR EFNIS í ÞESSU BLAÐI
Alda Lóa Leifsdóttir, Andrés Magnússon,
Björn Ingi Hrafnsson, Björn Malmquist, Bonni, Davíð Alexander,
Gauti Bergþóruson Eggertsson, Glúmur Baldvinsson,
Gerður Kristný, Hallgrímur Helgason, Huldar Breiðfjörð, Jói Dungal,
Jón Óskar Hafsteinsson, Jón Kaldal, Loftur Atli Eiríksson,
Óttarr Proppé, Ragnar Óskarsson, Sigurjón Kjartansson,
Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson, Sævar Hreiðarsson
og Þorvaldur Þorsteinsson.
Setning og umbrot: Nokkrir íslendingar hf.
Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi.
Verð í lausasölu kr. 195.
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuði fyrir tvö blöð í viku.
Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 10 prósenta afslátt.
Siðun stjórnmála-
manna
í EINTAKI í dag er greint frá bráðabirgðaniðurstöðum Sam-
keppnisstofnunar vegna kæru Norma hf. á hendur samgönguráðu-
neytinu. I þessum niðurstöðum kemst stofnunin að því að ráðu-
neytið hafi brotið samkeppnislög með því að færa skipasmíðastöð
norður í landi þurrkví á siifurfati á sama tíma og eigendur Norma
hf. hafa þurft að greiða fyrir sína þurrkví með eigin fé.
Samkeppnisstofnun hefur því úrskurðað að það sé ólöglegt þegar
ráðherra, af góðmennsku við kjósendur í sínu kjördæmi, styrki at-
vinnufyrirtæki þar svo heiftarlega að sams konar fyrirtæki í öðrum
landshlutum fari á höfuðið. Eflaust hefur flestum verið ljóst hingað
til að slík háttsemi væri óhæfa. En stjórnmálamenn hafa ekki látið
það aftra sér í von um að geta haldið starfi sínu örlítið lengur. Með
þessum — og reyndar öðrum nýlegum úrskurðum Samkeppnis-
stofnunar — ætti þeim hins vegar að verða ljóst að þeim er þetta
óheimilt. Það ber því að fagna niðurstöðum stofnunarinnar.
Áður hefur stofnunin úrskurðað um ólögmæti þess að fyrirtæki
sem stjórnmálamenn hafa dælt í styrkjum, standi blygðunarlaust í
því að ná verkefnum af fyrirtækjum sem hingað til hafa getað stað-
ið á eigin fótum. Og hjá stofnuninni liggja allt að 20 sambærilegar
kærur sem bíða afgreiðslu. Það er því von á að stofnuninni muni
takast á næstu mánuðum að siða stjórnmálamenn til þess að hætta
að hjálpa fólki með því að leggja líf annarra í rúst.
Líkast til eru ný samkeppnislög og meðferð Samkeppnisstofnun-
ar á þeim eitt stærsta skrefið sem stigið hefur verið til þess að draga
úr neikvæðum áhrifum atvinnustjórnmálamanna á þjóðfélagið - ef
til vill að nýjum stjórnsýslulögum slepptum. Með þessum tveimur
lagabálkum hafa völd stjórnmálamanna verið skert og í framtíðinni
munu þau sjálfsagt halda aftur af stjórnmálamönnum.
En þetta eru aðeins tvo fyrstu skrefin. Á næstu árum þarf að stíga
fleiri skref til að skerða völd stjórnmálamanna og koma í veg fyrir
að þeir geti notað skattafé til að þess að tryggja sjálfum sér áfram-
haldandi völd án tillits til hagsmuna almennings. Fyrir nokkrum
árum kom fram sú hugmynd að banna halla á fjárlögum með lög-
um. Það sem lá að baki þeirri hugmynd var að með því gætu stjórn-
völd ekki eytt fjármunum umfram það sem þau voru tilbúin að
skattleggja almenning. Stjórnmálamenn gætu því ekki slegið sig til
riddara með því að veita fjármunum í eitthvert gæluverkefnið án
þess að taka á sig skömmina af því að hækka skatta á sama tíma.
Þrátt fyrir að finna megi hagfræðileg rök sem mæla gegn þessari
hugmynd þá er umræða um hana engu að síður þörf sökum þess að
hún snertir meginvandann við taumlausan austur atvinnustjórn-
málamanna úr sjóðum almennings.
En úrskurðir Samkeppnisstofnunar hafa aðrar afleiðingar og
ekki síður jákvæðar. Þeir eru skilaboð til þeirra sem stunda at-
vinnurekstur að það er vænlegra að gera út á góðan rekstur og
vandaðar áætlanir en ríkisstyrki og væl utan í stjórnmálamönnum.
Þrátt fyrir að þessir úrskurðir snerti ekki aðra en þá sem eru í
beinni samkeppni við ríkisfyrirtæki eða fyrirtæki sem lifa beint eða
óbeint á ölmusum stjórnmálamanna þá er hugsanlegt að áhrif
þeirra kunni að gæta í atvinnugreinum þar sem flest öll fyrirtæki
hafa kosið að gera frekar út á ríkissjóð en markaðinn.
Þessir úrskurðir eru því skref í átt til siðunar í stjórnmála- og
viðskiptalífi. ©
Ritstjórn og skrifstofur
Vesturgata 2,
101 Reykjavík
sími 1 68 88 og fax 1 68 83.
Hvarf Valgeirs Víðissonar enn óupplýst
Var í sambandi
við Fíkniefha-
lögregluna
Valgeir Víðisson, sem hvarf í
júlí síðastliðnum, var kunnugur
fíkniefnalögreglumanninum Guð-
mundi Baldurssyni og átti við
hann trúnaðarsamtöl með óreglu-
legu millibili, að sögn Guðmundar.
Rannsókn á hvarfi Valgeirs hefur
enn ekkert leitt í ljós um örlög
hans, en rannsóknin er nú unnin í
samstarfi Lögreglunnar í Reykjavík
og RLR.
Trúnaðarsamtöl
„Ég talaði síðast við hann í júní,
en eðli málsins vegna er ómögulegt
fyrir mig að greina frá því hvað við
töluðum um,“ segir Guðmundur.
Hann segir þá Valgeir hafa verið
málkunnuga, á sama hátt og hann
hafi samskipti við marga í fíkni-
efnaheiminum.
Valgeir var tekinn þann 20. janú-
ar á þessu ári fyrir ákeyrslu á tvo
bíla og færður á lögreglustöðina við
Hverfisgötu. Hann var yfirheyrður
og síðan tók Guðmundur við hon-
um og segist hafa átt af honum tal.
Guðmundur segir að Valgeir hafi
ekki virst vera undir áhrifum og
eftir því sem næst verður komist,
var ekki lögð fram kæra á hendur
honum fyrir ölvunarakstur.
Guðmundur segist engan þátt
hafa átt í þeim málum, enda geti
lögreglan ekki samið um niðurfell-
ingu refsingar, þótt viðkomandi
geti gefið verðmætar upplýsingar í
staðinn. „Ég kippti ekki í neina
spotta til að losa Valgeir undan
kæru, enda er mér það ómögulegt,"
segir Guðmundur.
Ekkert með hvarf
hans að gera
Eins og áður segir voru þeir Val-
geir og Guðmundur málkunnugir
og töluðust óreglulega við. „Þótt ég
hafi talað við hann, þarf það ekki að
þýða að hann hafi verið að koma
Mikið hefur nú dregið úr skjálft-
unum fyrir austan fjall og að sögn
Páls Halldórssonar, jarðeðlis-
fræðings á Veðurstofu, er búist við
þvi að þessi lota jarðhræringa sé að
renna sitt skeið á enda. „Hins vegar
hafa nýlega orðið skjálftar í
Þrcngslunum og við Hengil, þannig
að búast má við einhverjum skjálft-
um á Hellisheiðinni sjálfri. Það er
hins vegar ómögulegt að spá fyrir
um tímasetninguna á þeim,“ segir
Páll.
Rúmlega þúsund kippir á
sólarhring
Jarðskjálftahrinan í kringum
Hveragerði byrjaði fyrir alvöru um
miðjan ágúst, en að sögn Páls hafa
jarðhræringar verið þarna síðan í
júlí. „En mesta hrinan byrjar í
kringum 10. ágúst. Þremur dögum
síðar fjölgar skjálftunum gríðar-
lega, þann dag kemur kippur upp á
3,8 á Richter og 15. ágúst er fjöldi
þeirra um fimm hundruð á sólar-
hring,“ segir Páll. Næstu daga
komu reglulegir kippir á stærðar-
gráðunni 3-4 stig á Richter og um
upp um einhverja í fíkniefnaheim-
inum,“ segir Guðmundur. „Við
áttum okkar trúnaðarsamband og
ég get eðilega ekki greint frá efni
okkar samtala.“ Guðmundur segir
að ekkert hafi komið fram við
rannsókn hvarfs Valgeirs, sem gæti
bent tii þess að samband þeirra hafi
eitthvað nteð hvarf hans að gera.
Að sögn Jónasar Hallssonar
hjá Lögreglunni í Reykjavík hefur
síðustu' helgi mældust að jafnaði
um 1160 kippir á sólarhring, sá
stærsti upp á 4,2 stig á Richter.
„Síðan þá hefur mikið dregið úr
virkninni og í gær mældust um
fimm litlir skjálftar á klukkustund,
eða um 70 á sólarhring, allir undir 1
á Richter,“ segir Páll. „Það er því
allt sem bendir til þess að þessi
hrina sé yfirstaðin.“
Klassíkt skjálftasvæði
Að sögn Páls eru skjálftar á þessu
ekkert nýtt komið fram um hvarf
Valgeirs Víðissonar. Aðspurður um
hvort samband hans við Fíkniefna-
lögregluna sé mögulegur áhrifa-
þáttur, sagði Jónas að hann gæti
ekki tjáð sig um einstaka þætti
rannsóknarinnar. Bæði Lögreglan í
Reykjavík og RLR vinna nú að
rannsókn á hvarfi Valgeirs, en eins
og kom fram í EINTAKI fyrir rúmri
viku, hefur ekkert komið fram sem
túlka megi sem ábendingar um ör-
svæði nokkuð algengir og hafa oft
verið stærri en þeir sem mælst hafa
undanfarið. „Haustið 1954 reið
mikil hrina jarðskjálfta yfir þetta
svæði, og flestir þeirra áttu upptök
sín norðan við Hveragerði, á svip-
uðum slóðum og nú er. Þann 1.
apríl 1955 kom síðan stór skjálfti
upp á 5,5 stig á Richter, þannig að
þetta svæði er nokkurs konar klass-
ískt jarðskjálftasvæði," segir Páll.0
lög Valgeirs.
Samkvæmt heimildum EINTAKS
ríkir í fíkniefnaheiminum jafnmikil
óvissa um örlög Valgeirs og innan
hóps þeirra lögreglumanna sem
fást við rannsóknina á hvarfi
hans. ©
Nú standa yfir samningavið-
ræður innan Sjónvarpsins
milli dagskrárdeildar og
hinna sívinsælu Spaugstofumanna
um að þeir taki upp þráðinn þar
sem frá var horfið fyrir nokkrum ár-
um. Samkvæmt heimildum innan
RÚV stendur til að koma þætti
þeirra á dagskrá eftir næstu ára-
mót, svo dyggir aðdáendur verða
að bíða enn um sinn...
IAIþýðublaðinu
í gær segir
JÓN BlRGIR
Pétursson frá því
þegar hann var í
flugvél sem lenti
nærri því í árekstri
yfir Bretlandi. Vél-
in varð að taka svo krappa beygju
að farþegarnir hentust til og frá.
Jóni Birgi segist svo frá: „Sjálfur var
ég á salerninu þegar þetta gerðist,
kíttaðist upp að veggnum og var
það mjög óþægileg tilfinning svo
ekki sé meira sagt.“ Skyldi engan
undra þegar Jón Birgir kýs
sérstaklega að nota orðalagið að
„kíttast upp að veggnum"...
Skjálftahrínan á
Suðuriandi í rénum
Búist við skjálftum á Hellisheiði á næstunni
6
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994