Eintak - 25.08.1994, Side 7
v:-í- ■' :
■
sifs;::,:*;:;*?: ííwíííkíísí;
■
■
V/ y-K ■ ■ ' ''■■%■, ’ * ■■.
..
'
1?3| Pf J;'
88jœ|JL*fe t '-w |
Brugðust skyldum sínum
í EINTAKI í síðustu viku var sagt
frá því að hluthafar í Veði hf.
myndu tapa milljónum á fjárfest-
ingurn sínum í félaginu. Veð hf. var
stofnað fyrir tveimur árum og var
Pétur H. Blöndal hugmyndafræð-
ingur og aðalhvatamaður að stofn-
un félagsins. Hlutverk þess var að
bjarga framkvæmdum bygginga-
fyrirtækisins SH-verktaka í Set-
bergslandi í Hafnarfirði en hug-
myndin var að þær björgunarað-
gerðir myndu jafnframt skila hlut-
höfum Veðs afbragðs ávöxtun. Svo
hefði líka getað farið ef SH-verk-
takar hefðu ekki orðið gjaldþrota
um það bil hálfu ári eftir stofnun
Veðs. Gjaldþrotið virtist koma
stofnendum Veðs algerlega í opna
skjöldu, sem hlýtur að þykja ein-
kennilegt því stofnendur og stjórn-
armenn Veðs voru að mildu leyti
þeir sömu og sátu í stjórn SH-verk-
taka. Þetta voru til að mynda Pétur
Blöndal, Jón Halldórsson og Sig-
urður M. Magnússon. Þessir þrír
menn sátu í stjórn SH-verktaka og
hefðu samkvæmt öllu átt að vita
nákvæmlega hver staða fyrirtækis-
ins var.
Þegar kaupsamningar milli Veðs
og SH-verktaka eru skoðaðir sést
að það eru sömu mennirnir sem
sitja beggja vegna borðsins, í hlut-
verkum kaupenda og seljenda. Þeir
sem undirrita til dæmis kröfu-
kaupasamning sem Veð og SH-
verktakar gerðu með sér í ágúst
1992, eftir að Veð hf. hafði keypt
hluta af framkvæmdum SH-verk-
taka í Setbergslandi, eru fyrir hönd
seljenda (SH-verktaka); Jón Ingi
Gíslason, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, og stjórnarmennirnir Pét-
ur Blöndal, Jón Halldórsson og Sig-
urður M. Magnússon. Þeir þrír síð-
astnefndu undirrita samninginn
einnig fyrir hönd kaupenda, Veðs
hf. Að auki semur Jón Halldórsson
samninginn og er vitundarvottur á
honum. Hann er sem sagt vitund-
arvottur að eigin undirskrift og
fjárræði.
Þetta þykja lögfróðum heimilda-
mönnum EINTAKS ekki góð latína
og segja að gjörningar á við þennan
veiki mjög samninga og gefi bú-
stjóra mun meiri möguleika til rift-
unar ef þurfa þykir.
Sömu heimildamenn segja að
það sé heldur haldlítil vörn hjá
Pétri Blöndal að skýla sér bak við að
stjórnarmenn SH-verktaka hafi
ekki vitað hver raunveruleg staða
fyrirtækisins var þegar ráðist var út
í stofnun Veðs. Pétur segir orðrétt:
„Það má segja að menn hafi á
sínum tíma ekki fengið réttar upp-
Iýsingar um hver raunveruleg staða
fyrirtækisins var. Ástandið var
þannig að stjórnarmenn SH-verk-
taka vissu jafnvel ekki hver staða
þess var.“
Hinir lögfróðu heimildamenn
blaðsins segja að það sé klár skylda
stjórnenda að vita hver staða fyrir-
tækis er, svo ekki sé talað um þegar
farið er út í aðgerðir af þeirri stærð-
argráðu sem viðskipti SH-verktaka
og Veðs voru. Segja þeir að með
þessum orðum sé Pétur á vissan
hátt að játa á sig gáleysi sem gæti
varðað við lög um hlutafélög en þar
segir meðal annars um skyldur
stjórnenda:
„Félagsstjórn fer með málefni fé-
lagsins og skal annast um að skipu-
lag félags og starfsemi sé jafnan í
réttu og góðu horfi.“ og „Félags-
stjórn skal annast um að nægilegt
eftirlit sé haft með bókhaldi og
meðferð fjármuna félagsins.“
Á það skal bent að ffamkvæmda-
stjórar sem hafa yfirumsjón með
daglegum rekstri fyrirtækja vinna á
ábyrgð stjórnar og að stjórnarmenn
geta á hverjum tíma farið fram á að
sjá öll þau gögn og upplýsingar sem
þeir krefjast.
Þeir sem töpuðu á Veði eru
margir hverjir óhressir með fram-
göngu Péturs og félaga og hafa á
orði að þeir hafi ekki staðið sig í
stykkinu.
„Það er spurning hvort þessir
menn hafi verið orðnir kærulausir
eftir of margar stjórnarsetur og
farnir að líta á þetta sem launuð,
áhyggjulaus kaffisamsæti en ekki
vinnu sem fylgdi mikil ábyrgð,“
segir til dæmis aðili sem tapaði
nokkrum milljónum á viðskiptum
sínum við Veð en vill ekki láta
nafns síns getið.
Vafalaust klár með
reiknistokkinn en
klaufi 1 mannlegum
samskiptum
Pétur H. Blöndal vandar ekki
fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar
kveðjurnar þegar rætt er um við-
skipti Veðs við bæinn. Hann lætur
liggja að því að afstaða bæjaryfir-
valda til Veðs hf., eftir gjaldþrot
SH-verktaka, hafi orðið til þess að
gera stöðu Veðs verri en hún þurfti
að vera.
„Fulltrúar bæjarins hótuðu að
rifta öllum samningum og settu þar
með allt x óvissu. Við gáturn ekki
selt neitt þar sem allt var ófrágengið
við Hafnarfjarðarbæ sem var að
lýsa einhverjum óþekktum kröfum.
Ef við hefðum náð samkomulagi
strax við Hafnarfjarðarbæ hefði
staða Veðs verið miklu betri, það
var óvissan sem fór með þetta,“
segir Pétur.
Guðmundur Benediktsson,
bæjarlögmaður Hafnarfjarðar,
skipaði megin hlutverk fyrir hönd
bæjarins í samningaviðræðunum
við Veð. Hann segir ásakanir Péturs
fráleitar og fullyrðir að slæm staða
Veðs sé Pétri sjálfum að kenna og
að það hafi verið framkoma Péturs
sem kom í veg fyrir að samkomulag
næðist.
„Pétur kom því miður ekki vel
fram. Hann var mjög orðhvatur og
á köflum orðljótur og með gífur-
yrði. Það var því miður ekki hægt
að ræða þessi mál við hann með
málefnalegum hætti. Þetta breyttist
allt með nýjum mönnum.
Bærinn var að sjálfsögðu allur af
vilja gerður til að leysa þetta mál
með sem bestum hætti, því hags-
munir bæjarfélagsins og íbúanna
fara auðvitað saman í öllu. Þessar
ásakanir Péturs í garð Hafnarfjarð-
ar er einungis fyrirsláttur sem á
ekki við nein rök að styðjast. Pétur
Blöndal er vafalaust klár með
reiknistokkinn en hann er klaufi í
mannlegum samskiptum,“ segir
Guðmundur.
Það rennir stoðum undir þessi
orð Guðmundar að efitir að skipt
var um stjórn hjá Veði, og nýir
menn komu til samningaviðræðna
við bæinn fyrir hönd félagsins, tóku
viðræðurnar að ganga á annan veg
og samningar tókust sem báðir að-
ilar gátu vel við unað.
Þorsteinn Haraldsson er for-
maður hinnar nýju stjórnar sem
tók við Veði um síðustu áramót.
Þau stjórnarskipti voru ekki að
frumkvæði Péturs Blöndal heldur
komu þannig til að aðrir hluthafar
sáu að til þess að tap þeirra yrði
ekki enn meira en stefndi í, varð að
skipta unx aðila við stjórnvöl fyrir-
tækisins. Það er að segja, útséð þótti
um að Pétur gæti komið málefnum
fyrirtækisins í höfn og því tók ný
stjórn við. Þorsteinn Haraldsson
staðfestir þetta í samtali við blaða-
mann EINTAKS.
„Það að ég tók við stjórnarfor-
Pétur H. Blöndal
Lögfróðir heimildamenn blaðs-
ins segja að það sé haldlitil vörn
hjá honum að skýla sér bak við
að stjórnarmenn SH-verktaka
hafi ekki vitað hver raunveruleg
staða fyrirtækisins var þegar
ráðist var út í stofnun l/eðs.
mennsku í þessu félagi var alfarið
fyrir mitt eigið frumkvæði en ekki
vegna þess að einhver leitaði til
mín. Skömmu fyrir síðustu áramót
var hópur hluthafa í Veði kallaður
saman til skrafs og ráðagerða um
málefni félagsins. Á þeim fundum
fæddist sú hugmynd hjá mér að
það kynni að vera skynsamlegt að
skipta út stjórn félagsins og taka
mál þess öðrum og nýjum tökum.
Það átti til dæmis við um að fara
aftur að Hafnarfjarðarbæ og athuga
hvort ekki væri hægt að gera betur.
Ég ráðfærði mig við tvo aðra hlut-
hafa um það hvernig þeim litist á
að koma í stjórn ef þáverandi stjórn
væri tilbúin að hverfa ffá. Þeir lýstu
sig reiðubúna til stjórnarsetu og í
framhaldi af því var haldinn hlut-
hafafundur og ný stjórn kjörin með
öllum greiddum atkvæðum.“
Þorsteinn vildi ekkert segja um
það hvort hluthafar væru almennt
reiðir Pétri vegna þess hvernig mál
Veðs hafa þróast eftir fögur fyrir-
heit.
Þegar blaðamaður spurði Þor-
stein hvort hluthöfum í Veði fynd-
ist ekki að Pétur Blöndal, Jón Hall-
dórsson og Sigurður M. Magnús-
son hefðu trassað að vinna heima-
vinnuna sína áður en Veð var
stofnað, svaraði hann:
„Ég undrast ekki að þér sýnist
það.“
Guðmundur Benediktsson,
BÆJARLÖGMAÐUR
Hafnarfjarðar
„Pétur kom því miður ekki vel
fram. Hann var mjög orðhvatur
og á köflum orðljótur og með
gífuryrði. Það var því miður ekki
hægt að ræða þessi mát við
hann með málefnalegum
hætti. “
Yfirgangur Péturs við
íbúoarkaupendur
Það voru ekki einungis hluthafar
í Veði sem höfðu hagsmuna að
gæta um að byggingaframkvæmdir
í Setbergslandi myndu ganga vel.
Þeir sem keyptu óbyggðar íbúðir af
SH-verktökum, sem Veð keypti
síðan, áttu að sama skapi mikilla
hagsmuna að gæta um að fram-
kvæmdirnar myndu ekki stöðvast.
Samskipti þeirra við hina nýju
framkvæmdaraðila voru að þeirra
sögn ekki sem skyldi.
„Það vantar ekki að Pétur og fé-
lagar hafi byrjað samskipti sín við
okkur íbúðarkaupendur mjög
glæsilega og gefið út fagrar yfirlýs-
ingar. Þegar menn sáu síðan að
dæmið ætlaði ekki að ganga upp
snerust draumórar þeirra upp í
martröð senx bitnaði ekki síst á
okkur,“ segir Sigurður Svavars-
son sem keypti ásamt konu sinni
raðhús í Setbergslandi og staðfestir
þar með orð annarra íbúðarkaup-
enda sem EINTAK ræddi við.
Sigurður átti töluverð samskipti
við forsvarsmenn Veðs á sínum
tíma og er sammála Guðmundi
Benediktssyni, bæjarlögmanni
Hafnarfjarðar, og fleirum um að
Pétur Blöndal búi yfir litlum dip-
lómatískum hæfileikum.
„Pétur á að leggja fyrir sig allt
annað en samskipti við fólk. Sam-
skipti við hann voru í stórum drátt-
um þannig að ef maður var ekki
sammála honum æsti hann sig.“
Þegar Veð tók yfir framkvæmdir
SH-verktaka var gerður samningur
milli Veðs, íbúðarkaupenda í ein-
stökum húsum í Klettabergi og bú-
stjóra SH-verktaka. Samningur
þessi fól Veði að ljúka framkvæmd-
um við íbúðirnar. Greiðslustaða
kaupenda var mjög misjöfn og til
þess að staða hvers íbúðarkaup-
enda væri skýr átti að gera ná-
kvæmt mat á verkstöðu við undir-
skrift samningsins. Þannig átti að
áætla hvað hver og einn átti mikið
ógreitt í þeim framkvæmdum sem
eftir voru.
„Þessi samningur var þverbrot-
inn, með stóru Þ-i, af þeirra hálfu.
Þetta mat kom aldrei frá þeim. Það
eina sem þeir fylgdu eftir í þessum
samningi var að við áttum að
greiða þeim. Framkvæmdaáætlun
þeirra var einnig tóm steypa. Ég
fékk eina útgáfu í hendurnar, annar
íbúi í húsinu aðra útgáfu og sá
þriðji enn eina. Það liggur í augum
uppi að slík framkvæmdaáætlun
getur ekki verið traust. Mergur
málsins er að við vildum að þeir
framkvæmdu og síðan myndum
við borga fyrir það sem framkvæmt
var. Þetta vildum við í ljósi feng-
innar reynslu af SH-verktökum.
Þeir vildu hins vegar að við borg-
uðum og síðan yrði framkvæmt.
Þannig stóðu málin stál í stál. Þegar
reynt var að semja á fundum end-
aði það í einhverri illsku. Samning-
ar geta aldrei gengið ef annar aðii-
inn verður kolbrjálaður ef hinn
segir ekki já og amen við hans til-
lögum, en þannig lét Pétur á fund-
um okkar við hann.
Þetta mál var allt hið skelfilegasta
og leiðinlegasta og ég mundi segja
að Pétur Blöndal ætti hvað stærstan
þátt í að svo fór. Maðurinn hefur
nánast ekki neitt samskiptavit að
mínu áliti og ég held að hann hafi
valdið meiri skaða en gagni í þessu
máli öllu,“ segir Sigurður.
Undir þessi síðustu orð taka
reyndar fleiri málsaðilar sem EIN-
TAK ræddi við og segja að með
stífni og þvermóðsku hafi Pétur sett
málin í enn verri hnút en þau voru,
sem aftur hafi leitt til þess að tap
Veðs hf. varð meira en efni stóðu
til.O
:IMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994
7