Eintak - 25.08.1994, Side 11
Skihn^ðarmál sóknarprestsins á Seltjarnarnesi
Oánægja með
frammistöðu biskups
Ólafur Skúlason biskup er gagnrýndur afprestum fyrir linkind í málinu og einkennilega afstöðu. Fjölmörg dæmi eru til um
skilnaðarmál presta. í flestum tilvikum varþeim gertað láta afembætti, segir séra Ágúst Sigurðsson, presturá Prestsbakka.
Óánægja ríkir meðal margra
kirkjunnar manna með frammi-
stöðu og afskipti biskups Islands,
Ólafs Skúlasonar, af því deilu-
máli sem upp er komið í kjölfar
skilnaðarmáls sóknarprestsins við
Seltjarnarneskirkju. Af samræðum
blaðamanns EINTAKS við fjölmarga
presta, virðist það vera útbreidd
skoðun þeirra á meðal að Ólafur
hafi sýnt allt of mikla linkind í
þessu máli sem og öðrunt deilu-
málurn er komið hafa upp í hans
biskupstíð milli presta og safnaða
þeirra. Helst er Ólafur gagnrýndur
fyrir að leggja ekki til að presturinn
hætti þar sem hann hafi augljóslega
brotið þá siðfræði sem kirkjan
byggir á.
Biskup og safnaðar-
stjórn deila hart
Séra Sólveig Lára Guðmunds-
dóttir, sóknarprestur í Seltjarnar-
neskirkju, lenti í skilnaðarntáli eftir
að hafa átt í ástarsambandi við ann-
an prest. Sá er Gylfi Jónsson, að-
stoðarprestur við Grensáskirkju,
sem samkvæmt heimildum EIN-
TAKS mun láta af störfum vegna
málsins. Það ætlar séra Sólveig þó
ekki að gera og um það standa deil-
urnar.
Hluti sóknarnefndarinnar krefst
þess að Sólveig láti af störfum því
að æra kirkjunnar og sóknarprests-
ins sé að veði. Ólafur Skúlason
biskup hefur neitað þessu og biður
nefndina um að sýna skilning.
Sóknarnefndin lítur hins vegar
víxlspor prestsins alvarlegum aug-
um og telur það hvorki prestinum
né kirkjunni til framdráttar að
hann haidi áfram starfi.
Biskup og safnaðarstjórn eru því
ósammála og nú er beðið eftir úr-
skurði siðanefndar prestafélagsins.
Ólíklegt er að niðurstaða hennar
muni breyta neinu til eða frá þar
sem hún hefur ekkert vald yfir mál-
urn presta. Sama gildir urn sóknar-
nefndir og biskup segist ekki hafa
vald til að hreyfa presta. Þannig
virðist ljóst að enginn hefur vald til
Sættir harðri gagnrýni af hálfu
presta sinna.
að úrskurða I málinu og því ófyrir-
séð hvernig deilan leysist.
Prestar óánægðir
með biskup
Guðfræðingur sem EINTAK talaði
við segir að hugsanlega geti kirkju-
málaráðherra haft endanlegt vald í
málinu en það sé á hinn bóginn
óalgengt að hann beiti sér í þessu
rnáli. Hann segir að ráðuneytið beri
oftast fyrir sig þekkingarleysi og vísi
öllum deilumálum til biskups.
Aðstoðarprestur á Reykjavíkur-
svæðinu sem ekki vill láta nafns
síns getið segir það almennt álit
manna innan kirkjunnar að Ólafur
biskup hafi klúðrað þessu máli sem
og öllum deilumálum sem upp hafa
komið innan safnaða undanfarin
ár. „Það virðist enginn geta tekið af
skarið þegar koma upp vandamál
með starfsmenn kirkjunnar. Kirkj-
an er eins og höfuðlaus her. Það er
kurr í fólki innan kirkjunnar út af
þessu.“
Aðstoðarpresturinn telur að það
væri kannski vænlegt að málið á
Seltjarnarnesi verði gert að próf-
máli þar sem endanlega verði látið
reyna á vald biskups. „Biskupinn
gerir ekki neitt nema að skrifa lítt
spennandi bréf. Sama var uppi á
teningnum varðandi deilurnar í
Keflavík. Presturinn ætti að draga
sig í hlé, tvímælalaust. Biskupinn
ætti að segja það hreint út og styðja
þar með siðfræði kirkjunnar. Því
þarna er verið að brjóta mörg sið-
fræðiprinsip.“ Undir þetta síðast-
nefnda tekur séra Baldur Vil-
helmsson, prófastur í Vatnsfirði.
Mýmörg dæmi um
framhjahald presta
Séra Ágúst Sigurðsson, prestur
á Prestsbakka í Hrútafirði, segir að
mýmörg dæmi séu um framhjá-
haldsmál og skilnaðarmál presta í
sögu kirkjunnar hér á landi sem og
annars staðar. Séra Ágúst segir að
refsing fyrir svona nolckuð í gamla
daga hefði verið sú að menn misstu
hempuna í tvö til fjögur ár. Þá hafi
gefist tími til að láta sárin gróa. Síð-
ar hafi svo viðkomandi prestar
Styrkveitingar Halldórs Blöndal samgönguráðherra til Akureyrarhafnar
Bijóta í bága við
samkeppmslög
að mati samkeppnisráðs, auk þess sem leiga
hafnaryfirvalda á slippum ertalin ólögleg
samkvæmt hafnalögum.
Samkvæmt öruggum heimildum
EINTAKS kernur fram í samantekt
samkeppnisráðs um mál Norma hf.
gegn samgönguráðuneytinu að
ákvæði hafnalaganna urn styrkveit-
ingar til dráttarbrauta og annarra
upptökumannvirkja á vegurn hafn-
arsjóða virðast stríða gegn ntark-
miði samkeppnislaga, þótt þau séu
í samræmi við hafnalög sem sam-
þykkt voru á Alþingi í vor. Einnig
er tekið fram í samantektinni að
leiga hafnaryfirvalda á dráttar-
brautum undir kostnaðarverði til
skipasmíðastöðva raski samkeppn-
isstöðu einkafyrirtækja í skipa-
smíðum og brjóti í bága gegn
hafnalögunum sjálfum. Þetta mál
hefur undanfarið verið t meðferð
ráðsins og búist er við að endanleg
niðurstaða verði afgreidd öðru
hvoru ntegin við næstu mánaða-
mót. Samantekt ráðsins er nokkurs
konar bráðabirgðaniðurstaða, en
eftir á að fara yfir athugasemdir
sem málsaðilar leggja fyrir Sam-
keppnisráð. Jón Birgir Jónsson,
ráðuneytisstjóri samgönguráðu-
neytis, segir að ráðuneytið haft
fengið frest til að koma með at-
hugasemdir en vill að öðru leyti
ekki tjá sig um málið. Ekki náðist í
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra í gærkvöld. Sævar Svavars-
son, framkvæmdastjóri Norma hf.,
segist hafa orðið fyrir vonbrigðum
með það álit ráðsins að styrkveit-
ingar til þessara mannvirkja væru
löglegar. „Ég trúi því hins vegar
ekki að þeim verði haldið áfram,
eftir að samkeppnisráð hefur kom-
ist að þeirri niðurstöðu að þær
brjóti í bága við samkeppnislögin,“
segir Sævar. Hann segist vera þeirr-
ar skoðunar að fyrst samkeppnis-
ráð hafi komist að þeirri niður-
stöðu að hafnaryfirvöld brytu lög
með því að leigja skipasmíðastöðv-
um aðstöðu undir kostnaðarverði,
væri réttast að þau bættu sam-
keppnisaðilum tjón sem þeir hafi
orðið fyrir vegna aðstöðumunsins.
„Samkvæmt ráðinu er þetta lögbrot
og hafnirnar hljóta að hætta því,
þegar þessi niðurstaða er fengin,“
segir Sævar.
Mismunun með
ríkisstyrkjum
Normi hf. kærði samgönguráðu-
neytið fyrir samkeppnisráði fyrr í
suntar á þeirri forsendu að styrk-
veitingar ráðuneytisins til Akureyr-
arhafnar brytu í bága við sam-
keppnislög. í undirbúningi er
bygging flotkvíar á Akureyri, sem
þjóna mun sarna markaði og drátt-
arbraut sem Normi hf. hefur und-
anfarin ár verið að reisa á vinnslu-
svæði sínu í Garðabæ. Samkvæmt
hafnalögum getur ríkissjóður styrkt
framkvæmd á borð við flotkvína
unt allt að 60 prósent af kostnaðar-
verði. Einkafyrirtæki geta ekki not-
ið söntu styrkja og hafnarsjóðir og í
kæru Norma hf. var bent á að þar
sem flotkvíin myndi nýt-
ast Slippstöðinni á Akur-
eyri, sætu skipasmíðafýr-
irtæki ekki við sama borð
í santkeppni á sama
markaði.
Ólögleg leiga
til hafnaryfír-
valda
Samkvæmt heimildum
blaðsins er í samantekt
samkeppnisráðs enn-
frernur bent á að ódýr
leiga hafnaryfirvalda vítt
og breitt um landið á
upptökumannvirkjum til
skipasmíðastöðva brjóti í
bága við 14. grein hafna-
laga, þar sem tekið er
fram að tekjum og eign-
um hafnarsjóðs megi ein-
ungis verja í þágu við-
komandi hafnar, en eins
og greint hefur verið frá í
EINTAKI tíðkast það víða
um land að hafnarsjóðir
leigja skipasmíðastöðvum
upptökumannvirki fyrir
leigu sem er langt undir
kostnaðarverði. Litið hef-
ur verið á þetta fyrir-
komulag sent stuðning
við bágstödd skipasmíða-
fyrirtæki, en samkvæmt
skilningi samkeppnisráðs
brýtur þetta í bága við
samkeppnislög. ©
endurheimt æru sína og embætti,
ef ekki í sömu sókn þá annars stað-
ar.
Ágúst segir að einnig hafi verið
dæmi þess að prestar hafi einfald-
lega verið fluttir um set og að þeir
hafi jafnvel getað snúið aftur í sína
gömlu sókn að liðnunr einhverjuni
tíma. Hann leggur til að þessi siður
verði viðhafður nú í máli Sólveigar
Láru. Hann tekur einnig undir það
að alið sé á deilum af kirkjustjórn-
armönnum hérlendis fremur en að
lesið sé yfir hausamótunum á
mönnum. Það hafi tíðkast hjá ís-
lenskum biskupum frá því séra Jón
Helgason var og hét. Hann telur
kirkjuna vanta sterkan leiðtoga sem
kunni að jafna mál með lagni eða
hörku. ©
Orðabækur
Arnar og Örlygs
Ófáan-
legarí
bóka-
búðum
Greiðslustöðvun
fyrirtækisins
hamlarnýrri útgáfu
Verðandi skólanemum hefur
gengið erfiðlega undanfarið að
ná sér í Ensk-íslensku orðabók-
ina og Skólaorðabókina sent
bókaútgáfan Örn og Örlygur
gefur út. Samkvæmt upplýsing-
um EINTAKS eru þessar hækur
nú ófáanlegar í bókabúðum bæj-
arins en haustið er góður sölu-
tími fyrir bækur af þessari teg-
und. „Fyrirtækið er í greiðslu-
stöðvun og þess vegna getum við
ekki lagt út í þá fjárfestingu sem
fylgir því að prenta þessar bæk-
ur,“ segir Örlygur Hálfdánar-
son hjá Erni og Örlygi. „Þetta
kemur sér auðvitað illa fyrir
okkur, því þessar bækur hafa
venjulega selst vel á þessum árs-
tíma, en við því er auðvitað ekk-
ert að gera.“
Örlygur segir að greiðslu-
stöðvun fyrirtækisins renni út 2.
september. „Við stöndum þessa
dagana í samningum við kröfu-
hafa og ég get í rauninni ekkert
sagt um hvernig það fer; ég vona
bara það besta,“ segir Örlygur. ©
Minna eintak
Bilun í
prent-
smiðju
Vegna bilana í prentsmiðju,
sem upp komu seint í gærkvöld,
er fimmtudagsútgáfa EINTAKS
aðeins 24 síður í dag í stað 32
síðna eins og venja er. Eru les-
endur beðnir velvirðingar á
því. 0
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994
11