Eintak - 25.08.1994, Side 18
ÉQ VEIT PAÐ EKKI
HALLGRÍMUR HELGASON
Hilmar Örn í Sýrlandi
Islensk dulræna
Skjálftaþörfin
Ég veit það ekki. En er Ragnar
Stefánsson eini skjálftafræðing-
urinn á landinu? A hverju kvöldi
birtist hann okkur sjónvarpsáhorf-
endum nteð 4,2 á Richter á vör og
línuritin skilmerkilega skráð í
skeggið en virðist þó ekkert haggast
sjálfur. Kannski eru hinir í sumar-
fríi? Eða kannski er hann eini mað-
urinn sem virkilega finnur íyrir
skjálftunum? Það þarf mikið til að
hagga honum. Nú erum við búin
að fara hálfan hring í fataskápnum
hans, heila viku af herðatrjám, og
maður er farinn að vona það að
hrinan haldi áfram svo maður fái
að sjá restina. Ragnar á prýðileg
jakkaföt og tekur sig vel út í þeim
en ég er ekki alveg sáttur við bola-
valið. Sérstaklega fannst mér þessi
brúni með flegna hálsmálið vera
full glannalegur, en skjálftinn var
reyndar frekar snemma í því þann
daginn. En hann er búinn að standa
sig vel. í raun er ekki hægt að hugsa
sér betri skjálftafræðing. Gjörsam-
lega óhagganlegur stendur hann af
sér hvert viðtalið á fætur öðru,
traustur maður, og lætur ekki
óþreyjufulla og skjálftaþurfandi
fréttamenn hagga sér. Menn bók-
staflega þyrstir í þann stóra og æða
með sjónvarpsvéiarnar inná frið-
samleg og gufumettuð heimilin í
Hveragerði þar sem linmæltasta
fólk landsins býr; skjálftaraðirnar
búnar að hrista úr því harða fram-
burðinn og hveragubbið í gólfinu
búið að sjóða úr því allan mátt til
máls. Hvergerðingar eru svoldið
eins og maður er eftir þrjá tíma í
gufu.
En þeir eiga sínar smástyttur
uppí hillu rétt eins og aðrir lands-
menn og reyndar gott betur. Af
nokkrum myndskotum að dæma
virðast hillurnar á hvergerðskum
heimilum óvenju þéttsetnar af litl-
um fallegum og brothættum mun-
um. Og sjónvarpsmennirnir ham-
faraþyrstir súmma á dramatískan
hátt að litlum móhærðum mínía-
túr; tálguðum lambhrúti keyptum í
Kolaportinu, sem liggur á gólfinu, á
hliðinni, sár á svip. Eina verulega
tjónið. En fréttamennirnir eru samt
ekki ánægðir og þjóta aftur yfir
Heiði og uppí Efstaleiti að ræða við
Ragnar og reyna að hrista hann til
þess að spá stærri skjálfta.
„Svona...gefðu okkur nú einn
góðan, með upptök í Eden...“
En sama hvað þeir reyna að
hrista hann til og frá. Ragnar „-
Skjálfti" haggast ei. Mér hættir
reyndar við að taka skjálftahrinuna
nokkuð persónulega.
Vinur minn Húbert Nói hefur
lengi verið með þá kenningu að
landinu líki ekki við mig. Og
reynsla síðustu ára hefur sýnt að
það reynir allt hvað það getur til að
Iosna við mig. Hrista mig af sér eða
gjósa mér burt. Alltaf þegar maður
kemur til nokkurra vikna dvalar á
sínu föðurlandi brestur á með
hamförum.
Hámarki náði þessi regla í árs-
byrjun ‘91. Ég hafði þá hrökklast
heim vegna hamfara í hinum al-
þjóðlega heimi. Persaflóastríðið var
þá nýhafið. Ég leitaði mér skjóls á
gamla landinu, en þar tók ekki
betra við. Hekla hóf að gjósa. En
það má nú hafa gaman af eldgos-
um. Húbert bauð til skoðunarferð-
ar í sínum mikla og trausta fjalla-
jeppa. Undir beinni útvarpslýsingu
á BBC af eldflaugum yfir Tel Aviv -
en vinur vor Saddam var þá byrj-
aður að senda blóðmörskeppina í
Júðann - lögðum við af stað uppá
Hellisheiði á kaldri en bjartri vetr-
arnóttu. í brekkunni við Skíðaskál-
ann bilar hins vegar framdrif í
Lapplandernum, nokkuð sem ekki
hafði gerst á gjörvöllum jeppaferli
Húberts og hefur ekki gerst eftir
þetta. Þar sem við erum þarna að
bjástra við að ýta flikkinu frarn
svellið gerist það að Skíðaskálinn
fuðrar upp fyrir augunum á okkur.
Af ótta við íkveikjugrun brunum
við í bæinn og á leiðinni skellur á
þetta líka ofsaveður. Níu vindstig
og hrákaregn. Við komumst þó
klakklaust í hús til að horfa á Boga
Ágústsson þýða Scud-flaugar af
Sky-news yfir á íslensku. Rétt effir
að við erum sest til stofu er dag-
skráin rofin og tilkynnt er um and-
lát Noregskonungs. Mér var þá litið
út um gluggann og sá að þakplata
af húsinu á móti stefndi beint upp á
gluggann. Þó klukkan væri fjögur
um nótt, náði ég fljótlega sambandi
við Flugleiði og komst út daginn
eftir.O
Hilmar Örn Hilm-
arsson er nú staddur
hér á landi til að taka
upp tónlist fyrir
danska teiknimynd í
fullri lengd og nefnist
hún Leynivopnið.
Myndin er gerð af
sama fólki og gerði
Fuglastríðið í Lumbru-
skógi og fjallar hún
um tvær apafjölskyld-
ur sem standa í dular-
fullu stríði.
„Mér finnst þetta
brilliant skemmtileg
teiknimynd,“ segir
Hilmar Örn. „Húm-
orinn er mjög sérstak-
ur og tvíræður og full-
orðnir geta haft gam-
an af myndinni ekki
síður en börnin. Þetta
er svona teiknimynd
sem hægt er að eldast
með sjálfur og upplifa
alltaf á nýjan hátt.“
Hilmar segir að þetta
sé í fyrsta skipti sem
hann fáist við tónlist
sem hægt er að kalla
húmoríska og hann
hafi mjög gaman af
því. Hann hefur lokað
sig af í Stúdíó Sýrlandi
þar sem hann mun
vera í 15 daga. „Ég er
hérna einn og yfirgef-
inn í stúdíóinu og það
er svolítið erfitt," segir
hann. „Ég þarfhelst
að hafa í kringum mig
hóp af aðdáendum til
að peppa mig upp.“
Hilmar segir að
ákveðið hafi verið að
fara ekki Disney-leið-
ina við gerð tónlistar-
innar. Frekar væri rétt
að tala um íslenska
dulrænu með afrísk-
um undirtakti. „Ég
hef líka verið að end-
uruppgötva djasstaug-
ina mína sem hefur
verið útbrennt í um
tuttugu ár og ég er
með snilldar músík-
anta eins og Birgi
Baldursson mér til
aðstoðar.“
Þegar upptökum
fyrir Leynivopnið er
lokið mun Hilmar
halda rakleiðis til
Danmerkur að leggja
niður hljóðrásina fyrir
myndina. „Síðan fer
ég að undirbúa vinn-
una fyrir kvikmynd-
ina Pan sem er sam-
eiginlegt verkefni
danska leikstjórans
Henning Carlsen og
norskra og þýskra að-
ila.“ Myndin er gerð
eftir sögu Knut
Hamsun sem á
hundrað ára útgáfuaf-
mæli í október. Þá
hefur Hilmar þegar
hafið undirbúning á
gerð tónlistarinnar
fyrir Cold Fever Frið-
riks Þórs Friðriks-
sonar. „Það er fullt
að gera og erfitt að
vera latur en mér
tekst það þó sæmi-
lega,“ segir Hilmar.
Eins og lesendum
EINTAKS er kunnugt
fluttist Hilmar Örn til
snráeyju í nágrenni
dönsku eyjunnar Mön
fyrr í sumar og lætur
vel af dvölinni þar.
„Það er algjört æði að
búa þarna, hreint út
sagt fullkomið. Eyjan
er mjög falleg og ég bý
í litlu þorpi þar sem
enginn yrðir á mann.
Maður þyrfti að vera
þarna í tuttugu ár til
að fólk færi að heilsa
manni og það á full-
komlega við mig.“
Hilmar segist vera
orðinn eins og heið-
urs-Dani; hann sé svo
klökkur yfir að vera
þarna. „Ég hef löng-
um horft öfundaraug-
urn til skandínavískra
kollega mína sem fá
sér Gammel dansk
með kornflexinu.
Stórar steikur og ódýr
bjór; þetta er náttúr-
lega það sem ég er
fæddur til að njóta.“0
k teppal1
Guðmundur Rúnar Lúðvíks-
son svnir nú liósmvndaverk á
um. Verkin eru 40 talsins og segir
neska teppahefð.
..Sýningin stóð til í þriá daga. Að-
standendur veitingahússins
hringdu bara í mig og báðu mig
um að biarga sér.“ segir Guð-
mundur Rúnar.
Hann er úhrryd.diir j,nn að verkin
verði fvrir hniaski vegna taumlauss
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson
„Verk eiga að þola fyllibytturá öllum stigum.
B í Ó I N
BIOBORGIN
Út á þekju Clean Slate ★ Hálfkjánaleg gaman-
mynd.
Ég elska hasar I Love Trouble ★ Fullkomlega
fyrirséður söguþráður um ástir milli blaða-
manna á Mogganum og DV. Og álíka spennandi
og það hljómar. Hið undurförula plott efnaverk-
smiðjunnar dugir ekki til að hressa upp á leiðin-
legt ástarlíl þessa fólks.
Hold og blóö Flesh and Blood ★ Vond mynd
og væmin.
Blákaldur raunveruleiki Reality Bites ★★★
Góð skemmtun fyrir unglinga.
BÍÓHÖLLIN
Valtað yfir pabba Getting Even With Dad
★★ Ágæt skemmtun fyrir sunnudagapabba og
börnin þeirra.
Maverick ★★ Jody Foster skýtur James
Garner og Mel Gibson ref fyrir rass f þessum
grinvestra sem er lengri en hann er fyndinn.
Steinaldarmennirnir The Flintstones ★ Ettir
hina ágætu sendingu frá steinöld i Júragarðin-
um kemur hér ein mjög vond. Manni verður
nánast illt í veskinu að sjá jatn mörgum milljón-
um kastað á glæ.
Stikilsberja-Flnnur The Adventures of Huck
Finn ★★ Hefðbundin ævintýramynd eftir þess-
ari margsögðu sögu. Þeir sem sjá hana i fyrsta
skipti hafa án efa nokkuð gaman af. Hinir sjá
aðeins meðalmynd.
Ace Ventura ★★★ Davíð Alexander, 9 ára
gagnrýnandi EINTAKS, segir myndina fyndna.
Fullorðnir geta hlegið með góðum vilja.
HÁSKÓLABÍÓ
Blóraböggulinn Hudsucker Proxy ★★ Þrátt
lyrir óborganleg atriði nær þessi mynd þvi ekki
að verða brilljant.
Fjögur brúðkaup og jarðarför Four Wedd-
ings and a Funeral ★★ Hlýleg mynd í gaman-
sömum tón um ástir og heitbindingar. Þrátt fyrir
nokkuð erfiði nær hún aldrei að verða mjög
skemmtileg.
Kika ★★★ Enn ein mynd frá Almodóvar og
ekki hænuteti trá fyrri myndum hans. Gaman.
Steinaldarmennirnir The Flintstones ★ Mis-
lukkuð skemmtun sem veröur nánast óbærilega
leiðinleg þegar á liður. Flest barnanna hefðu
frekar kosið teiknimyndirnar.
Löggan í Beverly Hills 3 Beverly Hills Cop 3
★ Það er löngu komið í Ijós að Eddie Murphy
er einnar hliðar maður. Ef maður snýr honum
við þá er sama lagið hinum megin.
Veröld Waynes 2 Wayne’s World 2 ★★★
Sannkölluð gleðimynd.
Brúðkaupsveislan The Wedding Banquet
★★ Gamanmynd um homma í telum.
LAUGARÁSBÍÓ
Umrenningar Road Flower ★ Hasarmynd lyrir
hasarmyndasjúklinga.
Bronx Tales ★★ Það er mikill vandi að vera
ítalskur Ameríkani og Robert de Niro hefur
margsinnis iúlkað þennan vanda. Nú sér hann
líka um leikstjórnina og gerir svo sem ekki
margt rangt. Hann gerir heldur ekkert nýtt.
Krákan The Crow ★★ Mynd tyrir áhugamenn
um rokk, dulrænu, teiknimyndir og annað þess-
legt.
REGNBOGINN
Flóttinn The Getaway ★★★ Fagmannalega
gerð spennumynd með eilítið flottara lólki en
fyrri myndin þar sem Steve MacQuinn var að
kyssa Ali McGraw. Kim Basinger er ólíkt kyssi-
legri.
Svínin þagna The Silence ot the Ham 0
Steypa.
Gestirnir Les Visiteurs ★★★ Frönsk della
sem má hata mikið gaman af. Hraður og hlað-
inn farsi.
Píanó ★★★ Óskarsverðlaunaður leikur í að-
al- og aukahlutverkum. Þykk og góð saga.
Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol-
ate ★★★ Ástir undir mexfkóskum mána.
STJÖRNUBÍO
City Slikers II ★ Fyrri myndin var hvorki
mjög fyndin né sérlega skemmtileg. Og þessi er
lakari.
Bíódagar í raun er atriðið þar sem bóndinn ler
í sagnakeppni við Kanann nægt tilelni til að sjá
myndina.
SÖGUBÍÓ
Ég elska hasar I Love Trouble ★★ Voðalega
vel frágengin mynd en einhvern veginn stein-
dauð hið innra.
D2 - The Mighty Ducks ★ Þrátt fyrir smátt
hlutverk er það María Ellingsen sem stelur sen-
unni. Alla vega er hún það eina í þessari mynd
sem maður getur selt sér að komi manni við.
18
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994