Eintak - 25.08.1994, Page 19
Nafn Bjarm Tryggva
Fæðingardagur 6. desember 1963
Hæð 182 cm
Þyngd 80 kg
Háralitur Ljósskolleitur
Augniitur Gráblár
Sérkenni Tattó af Frank Zappa á vinstri öxl
og Óðni á hægri
efðá22
skemmtanahalds á staðnum.
„Listaverk eiaa ad hola fyllibyttur
á öllum stigum.“
Guftmundur Rúnar hefur fengist
vid ýmsar tegundir mvndlistar oe
meðal annars giörninpa op víd-
eóverk. Hann kveðst þó ekki gera
ripp á milli þeirra. Síðastliðinn
vetur stundaði Guðntundur
Rnnar mvndlistarnám í Rotter-
dam og heldur brátt þanqað aft-
ur.Q
Hver?
Bjarni Tryggva er trúbador
sem sló í gegn árið 1986 með
plötunni Mitt líf, bauðst eitt-
hvað betra? og plötuni Önn-
ur veröld árið 1987 en hljótt
hefur verið um hann síðan.
Hvað?
Bjarni er nú í stúdíói Hvarfi
að taka upp nýja plötu sem
kemur væntanlega út á
næstu mánuðum. „Þetta
verður meira trúbadormúsik
en á hinum plötunum og lít-
ið notast við session-menn,“
segir hann. „Þessi plata fjall-
ar meira um nánasta um-
hverfi mitt og sögur tengdar
því en hinar voru meira inn
á við og um mig sjálfan.“
Hvers vegna?
„Frami minn var skjótur á
sínurn tíma og ég var ekki að
fullu meðvitaður um hvað
ég vildi gera,“ segir Bjarni.
„Ég dró mig því í hlé og fór
að læra netagerð hjá föður
mínum á Höfn í Hornafirði
og hef nýlokið því námi. Þá
dustaði ég rykið af gítarnum
og hef verið að spila sleitu-
laust síðan.“
Hvernig?
„Trúbadorinn er alltaf einn
og hefur engan annan á
sviðinu til að styðja sig við
og það gerir þetta erfiðasta
geirann innan tónlistarinn-
ar,“ segir Bjarni. „Stemmn-
ingin sem myndast þegar ég
kem fram fer allt eftir við-
brögðunum úti í salnum.
Ég held að aðalmálið sé að
spila það sem maður hefur
gaman af sjálfur og ég tek oft
lög sem eru ekki samin sem
trúbadorlög og útset þau á
minn persónulega hátt. Mér
finnst útkoman úr því at-
hyglisverðari en ef maður
kóperar eitthvað beint,“ seg-
ir hann.
Hvaðan?
Bjarni er frá Norðfirði en
býr í Reykjavík. Hann spilar
samt úti um allt land en
finnst auðveldast að gera út
frá höfuðborginni.
Hvert?
Þegar nýja platan kemur út
stefnir Bjarni á að leggjast í
víking og herja á Norður-
löndin til að byrja með,
vopnaður gítarnum og
munnhörpunni. Spila-
mennska víðar í Evrópu gæti
síðan fylgt í kjölfarið.Q
Stefnumótalínan
„Ljúfkona ú aldrinum tuttugu til þrjátíu ára. Ég er lífs-
reyndur heimsmaður í eldri kantinum, 190 sentimetrar á
hœð á sokkaleistunum. Ég leita að traustri konu sem vin og
félaga með framtíðarsamband í huga. Ég bý einn úti á landi,
er barngóður, fjárhagslega sjálfstæður og með húmorinn í
lagi. Endilegaýttu á einn ogégmun hafa samband. Bæjó.“
Aðeins 39,90 kr. mínútan
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994
19