Eintak - 25.08.1994, Qupperneq 22
Framarar höfðu heppnina með sér
Sigurmark á
síðustu stundu
Rafn Marteinsson skrifar
„Ég er ánægður nreð sigurinn en
ég er langt í frá ánægður með leik
minna manna, sérstaklega í seinni
hálfleik. En þetta var mikið tauga-
stríð og stigin þrjú skipta öllu
máli,“ sagði Marteinn Geirsson,
þjálfari Fram, eftir sigurleik gegn
Breiðablik á mánudagskvöld. Sig-
urmarkið kom þegar vel var liðið
fram yfir venjulegan leiktíma.
Framarar komu ákveðnir til leiks
og voru mun betri í íyrri hálfleik.
Þeir Helgi Sigurðsson og Steinar
Guðgeirsson áttu báðir dauðafæri
áður en heimamenn náðu foryst-
unni á 44. mínútu. Þá skallaði Helgi
upp í þaknetið eftir góða sendingu
Ríkharðs Daðasonar. í seinni
hálfleik var eins og Framarar bökk-
uðu og Blikar náðu undirtökunum.
Þeir voru mun meira með boltann
og náðu að skapa sér nokkur ágætis
færi. Jöfnunarmark þeirra kom á
55. nrínútu og var þar að verki Will-
um Þór Þórsson eftir að boltinn
hafði breytt um stefnu af varnar-
manni Fram.
Eftir markið voru Blikar meira
með boltann og Rastislav Lazorik
gerði oft usla í vörn Framara en
gekk illa að koma boltanum frarn
hjá Birki Kristinssyni í marki
Fram. Framarar áttu hættuieg færi
inn á milli, sérstaklega þegar seint
var liðið á seinni hálfleik. Þá gerðu
þeir oft harða hríð að marki Blika
og sigurmarkið kom þegar þrjár
mínútur voru liðnar fram yfir
venjulegan leiktíma. Steinar Guð-
geirsson átti þá laglega stungusend-
ingu fram á Ríkharð sem skoraði
upp í þaknetið.
I heild var leikurinn líflegur og
bauð upp á góða skemmtun fyrir
áhorfendur en það voru markmenn
liðanna sem komu í veg fyrir að
rnörkin yrðu fleiri. Bestu rnenn
Fram í leiknum voru þeir Birkir,
Steinar og Helgi Sigurðsson en hjá
Blikunt bar mest á Hákoni Sverr-
issyni og Lazorik. Hajrudin Card-
aklija kom inn í lið Blika á nýjan
leik og átti góðan ieik þrátt fyrir
mörkin tvö.0
Fram - UBK
2:1
Helgi Sigurðsson (44.), Rík-
harður Daðason (89.) - Willum
Þór Þórsson (55.).
Fram: Birkir Kristinsson - Pét-
ur H. Marteinsson, Helgi
Björgvinsson (Ásbjörn Jóns-
son 82.), Ágúst Ólafsson, Valur F.
Gíslason - Gauti Laxdal, Kristinn Haf-
liðason, Steinar Guðgeirsson, Hólm-
steinn Jónasson - Helgi Sigurðsson,
Ríkharður Daðason.
ÉUBK: Hajrudin Cardaklija -
Einar P. Tómasson, Gústaf
Ómarsson, Ásgeir Halldórs-
son, Valur Valsson - Gunnlaugur Ein-
arsson, Hákon Sverrisson, Grétar
Steindórsson, Kristófer Sigurgeirsson
- Rastislav Lazorik, Willum Þór Þórs-
son.
Áminníngar: Steinar hjá Fram, og þeir
Gústaf, Grétar og Willum hjá UBK.
Maður leiksins
Birkir Kristinsson, Fram.
Gvendur
GVENDUR DÚLLARI, VIÐ AUSTURVÖLL, SÍMI 13344
FOSTUDAGS- OG
LAUGARDAGSKVÖLD:
Pú, hann, hún
og oll hm i
„Árna Johnsen"
stuði
HAPPY HOUR KL.23-01
Vatnasport ‘94
Vatnaíþróttir á Hafravatni
Á hugardaginn verður skemmtileg er Vatnasport ‘94, kynning á vatna- á að stunda vatnaíþróttir hérá landi, til Þarna verða einnig hraðskreiðustu hát-
uppákoma á Hafravatni, setn liggur á íþróttum af öllu tagi og tilheyrandi dœmis sjóskíði, hnébretti, seglbretti, ka- ar landsins, sem geta náð gífurlegunt
milli Reykjavíkur og Mosfellsbœjar. Það búnaði. Á sýningunni gefst fólki kostur jak og kanóaróður svo eitthvað sé nefnt. Itraða við góðar aðstœður.Q
Birkir Kristinsson Átti afbragðs leik í marki Fram.
Leifur fyrsti alþjóðadómarinn
Brátt hyllir í að Blaksamband Is-
lands eignist sinn fyrsta dómara
með alþjóðaréttindi. Leifur Harð-
arson var sendur til Póllands 21.
ágúst, á viðamikið dómaranám-
skeið á vegum FIVB. Námskeið
þetta er einnig liður í undirbún-
ingi fyrir Ólympíuleika smáþjóða
sem haldnir verða hérlendis vorið
1997. Blaksambandið og Austur-
bakki hf., umboðsaðili Nike og
ABM íþróttafatnaðar gerðu nýver-
ið með sér samstarfssamning. í
vetur munu öll landslið íslands
klæðast ABM fatnaði og 1. deild
karla og kvenna verða nefnd
ABM-deildin. Ný stjórn Blaksam-
bandsins var kjörin á ársþingi
sambandsins á dögunum. I nýrri
stjórn eru Björn Guðbjörnsson
formaður, Jón Grétar Trausta-
son varaformaður, Friðbert
Traustason gjaldkeri, Oddný Er-
lendsdóttir ritari, Stefán Jó-
hannesson, Jason Ívarsson,
Guðmundur H. Þorsteinsson og
Þórey Haraldsdóttir O
FH úrleikíEmpu
keppni félagsliða
FH-ingar töpuðu seinni leik sín-
um gegn norður-írska liðinu Linfi-
eld í Belfast á þriðjudagskvöldið
með einu marki gegn þremur. Sem
kunnugt er unnu Hafnfirðingar
fyrri ieik liðanna 1:0 í Kaplakrika og
vitað var að á brattann yrði að
sækja í seinni leiknum. Það er
skemmst frá því að segja að FH-
ingar áttu undir högg að sækja allan
leikinn. Þeir sýndu ekki nógu mikla
baráttu og komust í raun aldrei al-
mennilega inn í leikinn. Heima-
menn komust yfir á 15. mfnútu en
FH jafnaði á 20. mínútu með glæsi-
legu marki Drazens Podunavacs
beint úr aukaspyrnu. Linfield skor-
aði síðan tvö mörk fýrir ieikhlé og
þar við sat. Seinni hálfleikur ein-
kenndist af miðjuþófi og var fátt
um marktækifæri. Þó björguðu
leikmenn Linfield einu sinni á línu
eftir þunga sókn FH. Drazen Pod-
unavac var yfirburðamaður í liði
FH, skoraði eina mark liðsins og
sýndi mikla baráttu ailan leikinn.
Þess má geta að Atli Einarsson og
Jón Erling Ragnarsson komu
báðir inn á sem varamenn i í seinni
hálfleik.©
1. deild
Staðan
ÍA 14 27:6 33
FH 14 16:12 24
ÍBK 14 27:17 22
KR 14 20:12 20
Valur 14 19:22 19
Fram 14 20:21 18
ÍBV 14 17:18 18
Þór 14 21:27 14
UBK 14 15:32 11
Stjarnan 14 13:29 8
Markahæstir:
Mihajlo Bibercic, ÍA: 11
Bjarni Sveinbjörnsson,Þór: 9
Ragnar Margeirsson, ÍBK: 9
Qli Þór Magnússon, ÍBK: 8
Sumarliði Árnason, ÍBV: 8
Ríkharður Daðason, Fram: 8
22S
port
«L,
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994