Vikublaðið


Vikublaðið - 28.01.1994, Síða 1

Vikublaðið - 28.01.1994, Síða 1
Myndir PóUands Þorleifur Friðriksson sagn- fræðingur bregður upp lifandi lýsingu á hinum mörgu andlit- um Póllands úr ferð sinni þangað í sumar Sjá bls. 8-9 Bændablús Sjónvarpið hélt bændafúnd í beinni útsendingu á I lótel Sögu í framhaldi af gagnrýninni heimildamynd um landbúnaðinn sem sýnd var í sjónvarpinu á sun- nudagskt'öld. BIs. 16 Átök enn? Tveir alþýðubandalagsmenn sækjast efdr 5. sætinu á sam- eiginlegum framboðslista minnihlutaflokka. Uppvakn- ingur síðusm kosninga svífur yfi-r vötnum. Bls. 7 4. tbl. 3. árg. 28. janúar 1994 Ritstjóm og afgreiðsla: sími 17500 250 kr. Davíð blekkti forsetann Fjölmenni mætti á stórfund verkalýðshreyfingarinnar á Austun’elli í gær þar sem at- vinnuleysinu var mótmælt sem og ráðleysi stjómvalda. Á tólftu hverri mínútu vinnudagsins missir einhver atvinnu sína og biðröðin hjá Félagsmálastofiiun lengist sífellt. Svavar Gestsson alþingismaður upplýsti það á þingi í gær að í janúar leituðu nálega 2500 nianns til Félags- málastofúnar í Reykjavík. Þetta er tvöföldun firá því í fyrra. Sjá leiðara. Svavar Gestsson: Samstillt átak útgerðar og ríkisvalds að brjóta á bak verkfall sjómanna. Lögbrot við lög- skráningu Lögskráning sjómanna hófst mörgum klukku- stundum áður en verkfall sjómannasamtakanna var bannað með bráðabirgðalög- um ríkisstjómarinnar. Svavar Gestsson þingmaður Alþýðubandalagsins lagði á þriðjudag fram skýrslur frá Vestmannaeyjum sem sýndu að lögskráning var hafin klukkan fimm síðdegis þann 14. janúar en bráðabirgðalögin voru ekki undirrituð af forseta fýrr en seint um kvöldið. Svavar segir gögnin sýna að um samstillt átak útgerðar- manna og stjórnvalda hafi verið að ræða þegar verkfall sjó- manna var lirotið á bak aftur. - Þetta er gróft brot og sýnir hversu langt stjórnvöld voru tálbúin að ganga í baráttu sinni gegn verkalýðshreyfi ngun n i, segir Svavar. Aðeins tveir af óbreyttum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins lýstu yfir stuðningi við bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar sem bönnuðu verkfall sjómanna seint um kvöld þann 14. janúar síðastliðinn. Davíð Oddsson forsætisráðherra lét Vig- dísi Finnbogadóttur forseta íslands standa í þeirri trú að meirihluti væri fyrir bráðabirgðalögunum. AAlþingi á þriðjudag skrapp það úr munni Þorsteins Pálssonar sjáv- arútvegsráðherra að fyrirhuguð setning bráðabirgðalaga var að- eins borin undir tvo af óbreytt- uin þingmönnum Sjálfstæðis- flokksins, þá Geir Haarde og Matthías Bjamason. Það er hefð fyrir því að forseti spyrji forsæt- isráðherra hvort þingmeirihluti sé fyrir bráðabirgðalögum sem ríkisstjóm leggur fyrir forseta til staðfestingar. Eina leiðin til að fá vimeskju um Davíð Oddsson hefur innleitt stjómsýslu bananalýðveldis á lslandi. vilja þingmanna er að bera undir þá fýrirhugaða lagasetningu. Davíð Oddson hafði ekki fýrir því föstu- daginn 14. janúar þegar hann setti bráðabirgðalög á verkfall sjó- manna. Ekki er upplýst hvort Dav- íð laug að forsetanum berum orð- um eða hvort hann hafi komið sér hjá því með blekkingum að greina frá afstöðu þingliðs stjórnarflokk- anna. Enginn nema Davíð og Vigdís vita hvað þeim fór á milli og vegna þess að forsætisráðherra var er- lendis þegar bráðabirgðalögin komu til umræðu á þriðjudag fór sameinuð stjórnarandstaða fram á það að umræðunni yrði frestað. Gunnlaugur Stefánsson, þing- maður Alþýðuflokks, stýrði fund- um þingsins og hann neitaði stjórnarandstöðunni um frestun málsins. Það er fátítt ef ekki einsdæmi að forseti þingsins neiti fresmn á Atvinnuleysinu mótmælt íýrstu umræðu á öðrum þingdegi á máli sem ekki liggur á að afgreiða. Meirihlutinn ætlaði að keyra lögin í gegn á sem skemmstum tíma án þess að ntikilvæg þættir málatilbúnaðarins væru upplýstir. Stjórnarandstaðan snerist öndverð gegn offorsi meirihlutans og á þriðjudag og miðvikudag var upp- lausn á Alþingi. Bullandi ágrein- ingur, um búvöru Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram frumvarp til breyt- inga á búvörulögum vegna þess að ríkisstjómin nær ekki saman í landbúnaðarmálum. Um helgina síðustu boðaði ríkis- stjórnin að frumvarp um breytingu á búvörulögum yrði lagt ffarn á þriðjudag. Þá komu fram frum- varpsdrög sem samdægurs voru dregin til baka vegna ósættis Al- þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. Búvörulögin eru í uppnánú eftir að dómur Hæstaréttar féll í svoköll- uðu „skinkumáli" Ilagkaupa og ríkisvaldsins þar sem staðfest var að kjötinnflutningur Hagkaupa í haust hafi verið löglegur. Miðstjórnarfundur 5.- 6. mars Hreyflng Alþýðubanda- lagskvenna stofnuð ✓ Ibyrjun mars verður form- lega stofiiuð hreyfing Al- þýðubandalagskvenna og haldinn fýrsti miðstjómar- fundur í Alþýðubandalaginu cftir landsfúnd. Miðstjórn Alþýðubandalags- ins verður kölluð saman til fundar laugardaginn 5. mars næstkomandi í Reykjavík. Gert er ráð fýrir að fundinum ljúki síðilegis á sunnudag. Föstudaginn 4. inars verður væntanlega haldinn stofnfund- ur hreyfingar Alþýðubanda- lagskvenna, einnig í Reykjavík. - Sjá grein á bls. 2

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.