Vikublaðið - 24.02.1994, Side 1
Allt í steik!
Nautakjötsmarkaðurinn er í
uppnámi og hætta á að óró-
leikinn breiðist út yfir allan
kjötmarkaðinn. Þetta er óska-
staða fyrir stóru verslana-
keðjurnar. Bls. 8-9
Bændamafían og
sameiningin
Félagskerfi bænda heíúr þanist
út og er óþarflega þungt í vöf-
um. Þessi mál eru til umfjöll-
unar í þrem greinum á
bls. 5, 6 og 17
Landbúnaðarblað
Að þessi sinni er Vikublaðið
helgað málefnuni bænda-
stéttarinnar og er af því
tilefni 24 síður og sent til
allra bænda á landinu.
Bestu kveðjur til bænda!
BLAÐ SEM V
E R I
8. tbl. 3. árg.
24. febrúar 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Davíð á flótta
Davíð Oddsson forsætisráðherra flúði um hávetur í sumarbústað á hingvöllum á D-degi ríkisstjórnarinnar. Ætlar hann að standa
að breytingum á búvörulögum eða fallast á kröfur Alþýðuflokksmanna? Fullkominn upplausn í þingliði ríkisstjórnarinnar.
Igær þegar umdeildasta frum-
vatp ríkisstjómarinnar var
kynnt á Alþingi var forsætis-
ráðherra hvergi sjáanlegur. Davíð
Oddsson hélt til Þingvalla í sumar-
bústað embættisins þar sem hann
dvaldi daglangt í einrúmi á meðan
oddvitar Alþýðuflokksins deildu
við fonnann Iandbúnaðamefndar,
sjáfstæðismanninn Egil Jónsson.
Upplausn var á Alþingi vegna
ffumvarpsins enda getur Alþýðu-
flokkurinn ekki sætt sig við forræði
landbúnaðarráðherra í innflutningi á
búvörum, eins og það er skilgreint í
frumvarpinu. Síðdegis í gær var frum-
' varpið kynnt í þingflokkum stjórnar
og stjórnarandstöðu, en það er samið
af þrem lögfræðingum sem hafa unn-
ið í santráði við Egil Jónsson.
Eftir að alþýðuflokksmenn höfðu
kynnt sér írumvarpið stormaði Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra inn í þingflokksherbergi Sjálf-
stæðisflokksins og tilkynnti að Al-
þýðuflokkurinn samþykkti ekki þau
efnisatriði sem fjalla um vald land-
búnaðarráðherra til að leggja á tolla
og verðjöfnunargjöld. A göngum
þinghússins biðu blaða- og frétta-
menn tíðinda af alvarlegustu kreppu
þessarar ríkisstjórnar. Forsætisráð-
Djúp gjá er staðfest milli formanna
ríkisstjórnarflokkanna eftir atburði
síðustu daga og enn allsendis óvíst
hvort stjórnin spríngur á bútvöru-
lagamálinu eða lafir á hræðslunni við
dóm kjósenda.
herra var hinsvegar hvergi sjáanlegur.
Hann hafði boðað forföll og hvorki
Jón Baldvin né þingmenn og ráðherr-
ar Sjálfstæðisflokksins vissu hvar Dav-
íð var niðurkominn. Alþýðuflokks-
menn líta svo á að Davíð hafi svikið
það samkomulag sem hann og Jón
Baldvin gerðu á fundi sínum síðast
liðinn sunnudag.
Um kvöldið var forsætisráðherra
ekið til Reykjavíkur þar sem hann
veitti íjölmiðlum viðtöl. Ekkert kom
þar fraiu sem benti til þess að hann
hefði lausn á stjórnarkrcppunni.
Hann vék sér undan að svara því hvort
hann styddi frumvarp formanns land-
búnaðarnefhdar þrátt fyrir andmæli
Alþýuflokksins. Vegna málsins ríkir
nú algjör óvissa um ffamtíð ríkis-
stjórnarinnar.
Þróunarsjóður saltaður?
Vafi leikur á því hvort lög um
Þróunarsjóð sjávarútvegsuis
verði samþykkt á yfirstandandi
þingi. Frumvarpið var afgreitt til
nefndar efitir fyTstu umræðu á Al-
þingi í gær.
Frumvarpið er umdeilt, scrstak-
lega þau ákvæði sein fjalla mn vciði-
leyfagjald og úreldingu fiskvinnslu-
húsa. Lítill áhugi var meðal stjórnar-
sinna þegar frumvarpið kom til um-
ræðu. Auk sjávarútvegsráðherra og
utanríkisráðherra tók aðeins einn
stjórnarþinginaður til ntáls.
1 ríkisstjórninni hangir afgreiðsla
frumvarpsins uin Þróunarsjóðinn
saman við afdrif frumvarps um
stjórnun fiskveiða og ckki er sam-
staða um afgreiðslu þessara rnála í
stjórninni.
- Sjávarútvegsmálin eru öll í lausu
lofti hjá ríkisstjórninni og það er
með öllu óvíst hvort þessi inál verði
afgreidd í þinginu fyrir vorið, segir
Jóhann Arsælsson þingmaður Al-
þýóubandalagsins en hann situr í
sjávarúwegsnefnd Alþingis.
Útgjöld skrifstofu forsætisráðherra snarhækkuðu 1993:
Davíð fór 52%
framúr fjárlögum
Samkvæmt greiðsluuppgjöri
Ríkisbókhalds á A-hluta ríkis-
sjóðs fyrir nýliðið ár hækkuðu
útgjöld skrifstofu forsætisráðu-
neytisins á árinu um rúmar 46
milljónir króna frá því sem fjárlög
gerðu ráð fyrir. Utgjöld skrifstofu
Davíðs Oddssonar urðu þannig
nær 136 milljónir króna og fóru 52
prósent framúr fjárlögum.
Þessi mikla hækkun mun einkum
skýrast af ýmsum nýjum verkefnum á
vegum skrifstofunnar. I greiðsluupp-
gjörinu og skýrslu fjármálaráðuneytis-
ins er einkum þrennt nefnt: frágang-
ur og kynning á stjórnsýslulögum,
undirbúningur lýðveldishátíðar og
endurbætur á ráöherrabústaðnum við
Tjarnargötu.
Þegar útgjöld skrifstofa einstakra
ráðuneyta eru skoðuð kemur í ljós að
skrifstofa Davíðs hækkaði langt um-
fram aðrar. Hlutfallsleg hækkun ffá
fjárlögum varð næst mest hjá Ossuri
Skarphéðinssyni í umhverfisráðu-
neytinu eða rúmlega 30 prósent og
þriðja rnest hjá Halldóri Blöndal í
landbúnaðarráðuneytinu eða tæplega
26 prósent. Aðeins einni skrifstofu
ráðuneytis tókst að halda sig við fjár-
lög og gott betur, lækka útgjöldin.
Það var skrifstofa Jóhönnu Sigurðar-
dóttur félagsinálaráðherra sem skar
fjárveitingu sína niður um rúm 8 pró-
sent eða 6,7 milljónir.
S
kosningum til Stúdentaráðs
Háskóla Islands á þriðjudag
sigraði Röskva, samtök félags-
hyggjufólks, framboð Vöku þrátt
fyrir að Vaka nyti liðveislu Ólafs G.
Einarssonar menntamálaráðherra
á síðustu dögum kosningabarátt-
unnar.
Riiskva fékk sjö rnenn kjörna í
Stúdentaráð, Vaka fimm og Óháði
listinn, sem er nýtt ffamboð í Háskól-
anum, fékk einn mann. Röskva og
Vaka fengu sinn manninn hvort í
kosningum til Háskólaráðs.
Lánasjóður íslenskra námsmanna
var hitamál í kosningabaráttunni. A
mánudag blandaði Ólafur G. Einars-
son menntamálaráðherra sér f kosn-
ingaslaginn með því að skrifa bréf fyr-
ir Vöku þar sem hann lýsti því yfir að
nefnd sem fjallar núna um málefni
LIN muni ekki endurskoða lög sjóðs-
ins. Vökumenn notuðu ráðherrabréf-
ið á síðasta kosningafundinum til að
koma höggi á Röskvu sem hefur haft
meirihluta í Stúdentaráði undanfarin
ár. Frambjóðendur Röskvu bentu á að
menntamálaráðherra hefur ekki svar-
að fyrirspurnum Stúdentaráðs undan-
farið vegna inálefna LÍN en ffam-
bjóðendur Vöku eiga greiðan aðgang
að honum og geta pantað hentugar
yfirlýsingar frá æðsta stjórnvaldi
mcnntamála unt málefni háskóla-
menntunnar.
A myndinni cru þeir Röskvumennirttir
Guðvtundur Steingrímsson og Dagttr
B. Eggertsson aðfagna s.etiun sigri.