Vikublaðið - 03.03.1994, Blaðsíða 1
Heimtufrekja
atvinnurekenda
Þrátt fyrir gífurlegar tilfærslur
á álögum frá fyrirtækjum til al-
mennings heldur Verslunarráð
áfram að heimta tilhliðranir til
sín og niðurskurð. Bls. 12-13
Helgarblaðs-
dómurinn
Samkvæmt dómnun eru fjöl-
miðlar að brjóta lög alla daga.
Skiptir sannleikurinn engu
máli? Hvað gerir blaðamanna-
stéttin? BIs. 4-5
Fortíðin á Fróni
Eigum við bara um þá tvo kosti
að velja að samþykkja sögu-
skoðun Jónasar frá Idriflu eða
Baldurs Hermannssonar?
Sagnfræðingar þinguðu um
endurskoðun sögunnar. BIs 8-9
9. tbl. 3. árg.
3. mars 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Davíð fór á taugum
Davíð Oddsson forsætisráðherra beygði sig fyrir kröfum Jóns Baldvins um breytingar á bú-
vörulagafrumvarpinu. Trúnaðarbrestur í ríkisstjórninni gerir hana óstarfhæfa.
Deilur um frumvarp til
breytinga á búvörulögum,
sem forsætisráðherra hef-
ur kallað „tittlingaskít,“ urðu til
þess að Davíð Oddsson velti fyrir
sér að slíta ríkisstjómarsamstarfi
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks.
En þegar til átti að taka þorði for-
Listaverðlaun
Evrópuráðsins
Evrópuráðið hefúr samþykkt
tillögu Ragnars Arnalds þing-
manns um Evrópuverðlaun til
ungra rithöfunda og listamanna.
Með þessu er ráðherranefnd
Evrópuráðsins falið að beita sér fyrir
samningi um árleg verðlaun til ungra
rithöfunda og listamanna, eitt árið
fyrir tónlist og dans, annað árið fyrir
ljóð, skáldsögur og leiklist og það
þriðja fyrir myndlist og byggingarlist.
Verðlaunin í að afhenda árlega á
sérstakri Listahátíð Evrópu, sem
haldin verði til skiptis í þeim ríkjum
sent gerast aðilar að samningnum.
sætisráðherra ekki að leggja árang-
ur rikisstjómarinnar undir dóm
kjósenda og á elleftu stundu ákvað
hann að fallst á kröfur Jóns Bald-
vins Hannibalssonar utanríkisráð-
herra um breytingar á frumvarp-
inu.
Formaður landbúnaðarnefndar,
Egill Jónsson, var aðalhöfundur ffum-
varpsins sem hann vann í nánu sam-
starfi við Davíð Oddsson. I frumvarpi
Egils var gert ráð fyrir yfirgripsmikilli
vernd fyrir íslenskan landbúnað gegn
innflutningi búvara. Jón Baldvin og
Alþýðuflokkurinn samþykktu ekki
frumvarp Egils og vildu takmarka vald
landbúnaðarráðherra til að leggja á
verðjöfnunargjöld.
Nokkrum sinnum hefur verið gert
samkomulag um frumvarpið en það
hefur ekki haldið. Á mánudagskvöld
var enn eitt sainkomulagið gert sem
fól það í sér að skorður voru reistar
við valdi landbúnaðarráðherra til að
leggja á verðjöfhunargjöld. A Alþingi
er niðurstaðan túlkuð á þann veg að
Davíð Oddsson haíi guggnað og gefið
eftir gagnvart Alþýðuflokknum með
því að knýja formann landbúnaðar-
neíndar til að fallast á breytingar á
texta ffumvarpsins. Egill Jónsson hef-
ur borið sig mannalega eftir mánu-
dagssamkomulagið en á þingi gengur
hann undir nafninu „bakkmann.“
Landbúnaðarnefhd kom frumvarpinu
ffá sér á þriðjudag á grundvelli sam-
komulags forsætisráðherra og Jóns
Baldvins. Alþýðuflokksmenn neituðu
þó að skrifa undir neíndarálitið þar
sem þeir féllust ekki á túlkun Egils á
ffumvarpinu.
Svokallaður skinkudómur Hæsta-
réttar hratt af stað ferli sem átti að
Ijúka mcð breytingum á búvörulögum
til að taka af öll tvímæli um lagalegar
forsendur innflutnings á búvörum. A-
greiningur unt túlkun ffumvarpsins í
landbúnaðarnefnd eykur líkurnar á á-
ífamhaldandi réttaróvissu á innflutn-
ingi búvara.
Davíð Oddsson og Jón Baldvin töl-
uðust við í gegnum fjölmiðla um efn-
isatriði frumvarpsins en forðuðust að
hittast undir íjögur augu og þykir það
staðfesta trúnaðarbrestinn í ríkis-
stjórninni. Engar líkur eru taldar á því
að rflásstjórnin hafi burði til að ná
samkomulagi um mikilvæg og um-
deild mál á borð við máleíhi sjávarút-
vegsins.
Út vil ek
✓
Utvarpsstjóri, séra Heimir
Steinsson, kann að vera á leið-
inni til Gautaborgar í Svíþjóð til að
taka við stöðu sendiráðsprests.
Heimildir Vikublaðsins herma að
Heimir sýni stöðunni áhuga en
umsóknarfrestur rennur út 15.
mars.
Að sögn Þorbjörns Hlyns Arna-
sonar biskupsritara hafa niargir
prestar leitað eftir upplýsingum um
stöðu sendiráðsprests en biskup veitir
stöðuna.
R-listinn opnar
skrifstofu
■41 Reykjavíkurlisti Alþýðubanda-
lags, Alþýðuflokks, Framsóknar-
flokks, Kvennalista og Nýs
vettvangs opnar kosningaskrifstofu
á næstunni í húsnæði gamla
Alþýðubankans á Laugarvegi 31.
Málefnavinna framboðsins er langt
komin og innan tíðar verður
stefhuskráin Iögð fram. A mynd-
inni eru þrír efstu menn Alþýðu-
bandalagsins á R-listanum, þau
Guðrún Ágústsdóttir, Arni Þór
Sigurðsson og Arthúr Morthens.
8. mars gegn kynferðisofbeldi
Alþjóðlegur baráttudagur
kvenna er 8. mars og í ár
verður dagurinn tileinkaður and-
ófi gegn kynferðislegu ofbeldi.
Þriðjudaginn 8. mars verður sam-
stöðuganga þar sem gengið verð-
ur ffá Hlemmi og niður á Hlað-
varpann við Vesturgötu 3.
- Við hvetjum alla til að taka þátt,
ckki síst karlmenn, og gera daginn
sýnilegan, segir Heiðrún Sverris-
dóttir fóstra sem Alþýðubandalagið
tilnefhdi í undirbúningshóp bar-
átmdagsins.
Þetta er í annað sinn sem dagur-
inn er helgaður baráttunni gegn
kynfcrðislegu ofbeldi. Þann 8. mars
1989 var grunnurinn lagður að
starfsemi Stigainóta, fræðslu- og
ráðgjafamiðstoð fyrir konur og börn
sem beitt eru kynferðislegu ofbeldi.
Fyrir starf Kvcnnaathvarfeins og
Stíganióta hefur margt áunnist á
liðnum árum en betur má ef duga
skal. 1 ár er valdn sérstök athygli á ó-
viðunandi réttarstöðu fórnarlamha
kvnferðislegs ofbeldis.
Gangan fer frá Hleinmi klukkan
17:30 á þriðjudag og fremstar í
flokld fara svartklæddar verur sent
minna okkur á líðan fómarlamba
kynfcrðislegs ofbeldis.
Hannes betlar af ríkinu
Boðberar óheffrar frjáls-
hyggju og einkavæðingar,
þeir Hannes Hólmsteinn
Gissurarson og Friðrik Friðriksson
útgefandi tímaritsins Efst á baugi
eru þessa dagana að senda meðal
annars stofhunum og fyrirtækjum
ríkisins bréf, þar sem farið er fram
á auglýsingasamning upp á 500
þúsund krónur á ári. Þessi beiðni
til stofnana og fýrirtækja í eigu
skattborgaranna er send í Ijósi þess
að „þetta tímarit mun ekki fá jafh
víðtæka dreifingu og þau sem
höfða til breiðasta hóps lesenda",
eins og segir í bréfi Hannesar
Hólmsteins og Friðriks.
Ogmundur Jónasson vakti athygli á
bréfi þessu sl. miðvikudag á fundi á
vegum Varðar og SUS um einkavæð-
ingu. I bréfinu búast þeir félagar sem
fyrr segir ekki við mikilli „dreifingu",
þ.e. eftirspurn, á við önnur blöð og
því muni blaðið þurfa að „byggja tals-
vert stóran hlut af tekjunt sínum á
auglýsingum". Eru viðtakendur ein-
dregið beðnir um „skilning og yel-
vild“ og uin að auglýsa í fjórum þlöð->
urn á ári fyrir 500 þúsund krónur.
Þeirra á meðal fyrirtæki skattborgar-
anna.
„Þannig haga þeir sér þessir
heilögu markaðsstjórar ffjálshyggj-
unnar, sem vilja að allt lifandi og dautt
fari á markað. Að ríki og sveitarfélög
komi þar hvergi nærri. Það er ekki eft-
irspurn eftir skoðunum þessara boð-
berra nýsköpunar hugarfarsins á
markaði og þá er lagst á hné og beðið
um skilning og velvild. Þeir hika ekki
við að gráta út rándýra auglýsinga-
stvrki frá .fyrirtækjuin skattborgar-
anna,“ segir Ögmundur.
A einkavæðingarfundinum kom
meðal annars fram hjá Friðrik Soph-
ussyni fjármálaráðherra að á for-
gangslista n'kisstjórnarinnar um sölu
ríkisfyrirtækja væru Landsbankinn,
Búnaðarbankinn, Iðnlánasjóður, Iðn-
þróunarsjóður, Fiskveiðasjóður, Sem-
entsverksmiðjan og Aburðarverk-
smiðjan. í umræðu um hugsanlega
kaupendur nefndi Friðrik meðal ann-
ars lífeyrissjóðina, sem hefðu árlega
um 2 milljarða í ráðstöfunarfé, er-
lenda íjárfesta og almenning.
Happdrætti Alþýðubandalagsins
Af óviðráðanlegum orsökum verða vinningsnúmer sem birta átti í
Vikublaðinu í dag ekki birt fyrr en að viku Iiðinni.