Vikublaðið


Vikublaðið - 08.04.1994, Síða 10

Vikublaðið - 08.04.1994, Síða 10
10 VTKUBLAÐIÐ 8. APRÍL 1994 Hrafri Gunnlaugsson er hættur sem framkvæmdastjóri Sjón- varps - í bili ætti maður að segja í ljósi þess hversu greiðan aðgang hann hefur að ríkisstofnunum sem heyra undir ráðherra Sjálfstæðis- flokksins. Þótt Hrafn sé farinn er ekki víst að andrúmsloftið sem hann kom með inn á Sjónvarpið fari með honum. I margfrægum umræðu- þætti fyrir rúmu ári kom fram að í huga Hrafns var ekki til sá greinar- munur sem flestir gera á per- sónulegum hagsmunuin og viðskip- tum. I umræðuþættinum kom frant að Hrafni þykir sjálfsagt að útdeila verkefnum opinberrar stofnunar til vina sinna. Vísbending um að andi Hrafns ríði enn húsum Sjónvarpsins er um- ræðuþáttur sem skjólstæðingur Hrafns, Oli Björn Kárason, stýrði á þriðjudagskvöld. I nokkrar vikur hefur það verið auglýst í vikublað- inu Pressunni og öðrum fjölmiðlum að Oli Björn verði ritstjóri vikurits um viðskipti sem útgefandi Press- unnar, Friðrik Friðriksson, ætlar að hleypa af stokkunum á næstunni. Liður í markaðssetningu á slíkri útgáfu er að kynna hugmyndina og þá sem að blaðinu standa fyrir aðilum í viðskiptalífinu. Oli Björn notaði því aðstöðuna sem hann hefur á Sjónvarpinu og studdist við siðfræði Hrafhs Gunnlaugssonar til að blanda geði á ábatasaman hátt við ffammámenn í viðskiptalífhu og bauð þeim inní stofu landslýðs á þriðjudagskvöld. Oli Björn var svo handviss um að hann starfaði í anda siðareglna Hrafns að hann hafði ekki fyrir því að fá menn með ólíkar skoðanir á viðfangsefninu til að eigast við. I umræðuþættinum var þess vegna engin umræða heldur áróður fyrir einlitum sjónarmiðum. Þessi tegund þáttargerðar þekktist í Austantjaldslöndunum fyrir fall kommúnismans og einnig bregður henni fyrir á sjónvarpsstöðvum sértrúarsöfnuða sem hafa þann eina tilgang að útbreiða boðskapinn. Frjálshyggjan sem Óli Björn og fleiri taka þátt í að útbreiða með fulltingi Hrafns Gunnlaugssonar er reyndar að verða því sérkennilegri sem þessari hugmyndafræði hnign- ar. A fundi sem Sjálfstæðisflokks- félögin Vörður og SUS héldu fyrir skömmu vakti Ogmundur Jónasson formaður BSRB athygli á bréfi sem þeir Hannes Hólmsteinn Gissurar- son og Friðrik Friðriksson skrifuðu til að gráta út auglýsingasamninga fyrir tímaritið Efst á baugi. Bréfið var meðal annars sent til ríkisstofn- ana og rökin sem þeir notuðu voru á þá leið að tímaritið fengi ekki milda dreifingu og þvf væri nauðsynlegt að láta auglýsingar bera útgáfuna uppi. „Þannig haga þeir sér, þessir heilögu markaðsstjórar frjálshyggj- unnar, sem vilja að allt lifandi og dautt fari á markað. Þegar ekki er eftirspurn eftir skoðunum þessara boðbera nýsköpunar hugarfarsins á markaði þá er lagst á kné og reynt að gráta út rándýra auglýsingastyrki frá fyrirtækjum skattborgaranna,“ sagði Ogmundur. Hver skyldi hafa verið fund- arstjóri á þessum fundi? Jú, hann heitir Oli Björn Kárason. Skáldin Um langan aldur hefur heimurinn farið versnandi og mannkyninu hrakar alltaf dálítið með hverri nýrri kynslóð. Eins hefur farið fyrir mörg- um tungumálum. Þessi almenna regla um hnignun heimsins á þó ekki við um íslenskt rit- mál. Aldrei hafa jafnmargir menn ritað jafnágætt mál og á þessari öld. Því má þakka framsýnum mönnum á liðinni öld sem vildu ekki una því að sagan færi sínu fram andspyrnulaust, heldur settu sér að varðveita og auðga íslenska tungu. Enda þótt margir riti prýðilega nú á tímum og ávallt hafi verið til menn sem rituðu gott mál, þá beita samt engir íslensku eins fallega og góð- skáldin, gömul og ný. Þetta er flestum mönnum ljóst og því hagnýta þeir sér iðulega orð skáldanna óbreytt þegar mikið liggur við eða þeir þurfa að tjá hug sinn um hluti sem standa hjartanu nærri. Þær eru til dæmis fáar minn- ingargreinarnar í blöðunum þar sem ekki er vitnað í línur, erindi eða jafn- vel heil kvæði eftir skáldin. Og frammámenn þjóðarinnar flytja varla svo hátíðarræður að þeir nýti sér ekki á einhvern hátt snjallyrði skáldanna til að koma almennilega orðum að hug- sun sinni. Það brást til að mynda varla að Steingrímur Hermannsson vimaði í ræðum sínum í Stephan G. Step- hansson eða Davíð Stefánsson þegar hann ávarpaði þjóðina sem forsætis- ráðherra. Og arftaki hans, Davíð Oddsson, hefur haft það fyrir sið eftir að hann settist í stól forsætisráðherra að vima í ræðum sínum á tyllidögum í Hannes Hafstein - og aldrei neinn annan. Af þessu sést að það er mjög ómak- legt sem sumir halda ffam að skáld geri ekkert gagn. Það er mönnum ekki lítdls virði að geta hvenær sem er vitnað til þeirra og gert vel smíðuð orð þeirra að sínum. Þó er mik- ilsverðast að með starfi sínu smðla skáldin mest allra að því að halda íslensku máli í rækt. Sviðsljós Síðustu sýningar á Blóðbrullaupi Nú eru aðeins eftir þrjár sýningar á Blóðbrullaupi eftir Federico Garcia Lorca, sem sýnt hefur verið á smíðaverkstæði Þjóðleikhússins síð- astliðna þrjá mánuði. Sýningin hefur hlotið mjög góðar viðtökur og verið sýnd við mikla að- sókn þennan tíma. Blóðbrullaup þarf nú að víkja af fjölunum fyrir næsta verkefni á Smíðaverkstæðinu, sem er Sannar sögur af sálarlífi systra eftir Guðberg Bergsson og Viðar Eggerts- son. Síðusm sýningar verða • laugar- daginn 9. apríl, föstudaginn 15. apríl og þriðjudaginn 19. apríl. Hjartagátan Setjið rétta stafi í reitina neðan við krossgátuna. Þeir mynda þá örnefni. - Lausnarorð krossgámnnar í síðasta blaði er Ferðalok. r- 4 3 ¥- T (s> ? 8 V 1 8 3 10 s? A = 1 = Á= 2 = B= 3 = D = 4 = Ð = . 5 = E = 6 = É = 7 = F = 8 = G = 9 = H = 10 = 1= 11 = í= 12 = J= 13 = K = 14 = L = 15 = M = 16 = N- 17- 0= 18 = Ó= 19 = P = 20 = R = 21 = S= 22 = T = 23 = U= 24 = Ú= 25 = sr 71 3 )¥ fy 9 13 )S 13 V 4 l(p ? n 7 13 18 V w~ T~ )8 V 20 21 1 3 & 22. 9- <yn 1 7~ /3 /8 w 7- 4 '1 1T~ 3 12 TT~ 2T V )T 71— 1 10 y> v- 2T lo T 27 T~ 13 TX 8T~ TJ— l 3 <o 13 ?? > Sf' 3 Zi >9- rS2 3 )2 13 V n 2°l V 10 V 10 (O I3 10 T is— W~ 20 y 22 7 (e> 1J~ 4 f 7 )<o 22 12 T Ti W 3Z ¥ 3 /2 n- /3 V 18. 3 T5~ V /4 2é TT~ 20 7 OT)20 /é> /e 18 te 73 20 7- rr-4 U 8 y 2¥ V 2¥ 2 )3 3 V 32 V= 26 = X= 27 = )3 32 ‘ s 7 2S )0 9 3 lo Y - 28 - Ý = 29 = Þ 30 ‘M 3 1 10 z. r g 7 )3 Æ = 31 = Ö= 32 =

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.