Vikublaðið - 08.04.1994, Síða 12
12
Samfélagift
VIKUBLAÐIÐ 8. APRIL 1994
Atvinnuleysi er enn sem komið
er aðeins hagtölur í opinberri
umrœðu á íslandi.
Stjórnmálafélagið Birting
gekkst fyrir fundi á Kornhlöðu-
loftinu við Bankastrœti í
Reykjavík þann 22. mars síðast
liðinn þar sem rœtt var um hinn
mannlega þátt atvinnuleysisins.
Fundarstjóri var Guðrún Helga-
dóttir alþingsmaður en fyrirles-
arar voru Halldór Grönvold,
Hulda Finnbogadóttir, Katrín
Fjeldsted, Björn Grétar Sveins-
son og Gestur Guðmundsson.
Bjöm Grétar Sveinsson í rœðustól og honum á vinstri hónd eru Halldór Grónvold og Hulda Finnbogadóttir. Myndir: Ól.Þ.
Lífstíll atvinnuleysis
festir rætur á íslandi
Halldór Grönvold skrifstofu-
stjóri Alþýðusambands Is-
lands talaði fyrstur. Hann
sagði að fram til ársins L992 hefði lít-
ið borið á atvinnuleysi á Islandi og frá
árinu 1970 hafi ávallt verið betra at-
vinnuástand hér en á Norðurlöndun-
um. Eftir að atvinnuleysi festi hér ræt-
ur hefur hinsvegar orðið vart sömu
einkenna og þekkt eru í nágranna-
löndum okkar. Atvinnuleysi í aldurs-
flokkunum 16-19 ára og 20-24 ára er
tvöfalt meira en hjá öðrum hópum og
því styttri skólagöngu sem fólk á að
baki því meiri líkur eru á að það verði
atvinnulaust.
Eftir að Halldór hafði dregið upp
mynd af atvinnuleysisástandinu íjall-
aði hann urn stöðu verkalýðshreyfing-
arinnar gagnvart samtökum atvinnu-
rekenda. Hann sagði verkalýðshreyf-
inguna standa höllum fæti gagnvart
atvinnurekendum á tímum samdráttar
og atvinnuleysis. Aðstæður í atvinnu-
lífinu ráða meiru hér en víða á Norð-
urlöndum vegna þess að laun og kjör
eru að nokkrum hluta ákveðin á
vinnustað en ekki bundin í samning-
um verkalýðshreyfingar við samtök
atvinnurekenda.
- Stjórnendur fyrirtækja eru með-
vitaðir um hvar valdið liggur við þess-
ar aðstæður. Við þekkjum dæmi um
að ráðningarkjörum hafi verið breytt
einhliða, veikindaréttur starfsmanna
ekki virtur og kaup ekki greitt á rétt-
um tíma. Starfsmenn hafa stundum
orðið að velja á milli þess að taka á sig
launalækkun eða missa vinnuna, sagði
Halldór.
Gestur Gnániundsson: Við ennn að
eignast kynslóð þar sem hluti sjálfsí-
myndarinnar er að vera atvinniilaus.
Halldór kvað róttækra aðgerða þörf
ef ráða ætti bug á atvinnuleysi. Til að
ná því markmiði að allir hafi atvinnu
þarf hagvöxtur að vera tæplega 4 pró-
sent á ári til aldamóta en hagspár gera
aðeins ráð fyrir 1-2 prósentum.
Vondi draumurinn er
veruleiki
Hulda Finnbogadóttir var formað-
ur nefndar sem hafði það verkefni að
deila út 60 milljónum króna, sem rík-
isstjórnin samþykkti að taka af einum,
milljarði króna til að bæta atvinnuá-
standið og láta renna í atvinnutæki-
færi fyrir konur.
Hulda þekkir atvinnuleysið af eigin
raun. Þegar hún kom heim að utan
fyrir þrem árum þurfti hún að gangast
undir uppskurð og eftir endurhæfingu
tók við atvinnuleysi. í erindinu tvinn-
aði hún saman persónulega reynslu og
reynslu af starfi sínu sem formaður
nefndarinnar.
Nefndin um atvinnumál kvenna
hafði til ráðstöfunar 60 milljónir
króna en alls var sótt um rúmlega 300
milljónir. Flestar umsóknir voru
vegna ýmiskonar smáiðnaðar. Sveitar-
félög, samtök og hópar kvenna sóttu
um stærstu upphæðirnar. Margar
konur sóttu um styrk sem einstakling-
ar en nefndin gat lítið sinnt þeim.
- Konurnar sem ég talaði við voru
ekki að sækja um styrki til að fara af
stað með atvinnurekstur sem gæti gert
þær ríkar. Þær vildu ekki taka lán því
þá þurftu þær að veðsetja heimili sín.
Konurnar höfðu ríka ábyrgðarkennd
og vildu fara sér hægt. Það sem rak
þær áfram var sjálfsbjargarviðleitni,
sagði Flulda.
Frá Alþingi
íbúö fræðimanns í Kaupmannahöfn
skv. reglum um hús Jóns Sigurössonar
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um hús
Jóns Sigurðssonar er laus til afnota tímabilið 1. septem-
ber 1994 til 31. ágúst 1995. Fræðimenn, sem hyggjast
stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaup-
mannahöfn, geta sótt um afnotarétt af íbúðinni, sem er
í Skt. Paulsgade 70 (örskammt frá Jónshúsi). Hún er
þriggja herbergja (um 80 ferm.), en auk þess hefur
fræðimaðurinn vinnuherbergi í Jónshúsi. íbúðinni fylgir
allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður og er hún látin í té
endurgjaldslaust. Dvalartími í íbúðinni er að jafnaði þrír
mánuðir en til greina kemur skemmri tími eða lengri eftir
tilvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til skrifstofu Al-
þingis eigi síðar en 1. maí n.k.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með dvöl
sinni í Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri störf-
um. Þá skal tekið fram hvenær og hve lengi óskað er
eftir íbúðinni, svo og fjölskyldustærð umsækjanda. Tek-
ið skal fram að úthlutunarnefnd ætlast til að dvalargestir
nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaupmanna-
höfn.
Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Alþingis í
Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendiráði íslands í
Kaupmannahöfn.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1980-1.fl. 15.04.94- 15.04.95 kr. 351.662,40
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, mars 1994.
SEÐLAB ANKIÍSLANDS