Vikublaðið - 29.04.1994, Side 2
2
VIKUBLAÐIÐ 29. APRIL 1994
V '
-----V
BLAÐ S E M VIT'ER í
Útgefandi: Alþýðubandalagið
Ritstjóri og ábm.: Hildur Jónsdóttir
Blaðamenn: Páll Vilhjálmsson, Friðrik Pór Guðmundsson
og Ólafur Pórðarson
Auglýsingasími: (9D-813200 - Fax: (91)-678461
Ritstjórn og afgreiðsla:
Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík
Sími á ritstjórn: (91)-17500 - Fax: 17599
Útlit og umbrot: Leturval
Prentvinnsla: Frjáls fjölmiðlun hf.
Pólitísk umskipti
í vændum
Höfundar fyrsta maí ávarps fnlltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB og Iðnnemasam-
bands íslands litast í kringum sig í lýðveldinu fímm-
tugu og líst ekki á blikuna: Það er langvarandi
stöðnun, sex prósent atvinnuleysi, öfgar og ranglæti
í launum og kjörurn, launalækkun og réttinda-
skerðing hjá öllum almenningi.
Launafólk á Islandi veit að aflasamdráttur og
verðfall á erlendum mörkuðum á helstu útflutn-
ingsvöru okkar boðar kjaraskerðingu. Það gefur
eítir í kaupi þegar þannig stendur á og hefur á síð-
ustu árum greitt þá skatta sem fyrirtækin borguðu
áður. Afleiðingin er minnsta kaupgeta í áratug og
stórvaxandi skuldir heimilanna.
Kenningin um að lægra kaup skapi fleiri störf
virðist ekki sannast hér á landi, þótt launakerfið sé
sveigjanlegra hér en í flestum öðrum löndum vegna
þess hve vön við erum að laga okkur að sveiflum í
þjóðartekjum. Atvinnureksturinn hefur síðustu ár
búið við vinnufrið, lækkandi launakostnað og minni
álögur en áður. En enda þótt atvinnulífið virðist á
mörgum sviðum vera að komast út úr taprekstri og
skilyrði í sjónum fari batnandi bendir fátt til þess að
atvinnuástand skáni til muna.
I fyrsta maí ávarpinu er lögð áhersla á að íslend-
ingar þurfi að losa sig úr viðjum stöðnunar sem
ffjálshyggjan hefur kallað yfir þjóðina. Það verður
ekki gert nema með róttækri stefnubreytingu við
stjórn landsins. Pólitísk umskipti þurfa að verða í
landinu til þess að komast að nýju á braut hagvaxtar,
framfara og jöfnunar lífskjara. Það sem ekki hefur
náðst fram við samningaborðið eða í kjaraátökum
þarf að knýja fram við kjörborðið. •
Pólitísk umskipi eru í nánd. Reykjavíkurlistinn er
á sigurbraut og hefur lagt megináherslu á aðgerðir í
atvinnumálum, lagfæringar eftir óstjórn sjálfstæðis-
manna og úrbætur í vaxandi félagslegum vanda-
málum í höfuðborginni.
Alþýðubandalagið hefur lagt fram grundvöll að
nýjum stjórnarháttum í landinu með Grænu bók-
innni, þar sem samhæfing í þágu útflutningsmark-
miða og áhersla á atvinnu, jöínuð og siðbót eru í
brennidepli. Meðal andstæðinga frjálshyggjunnar
er að skapast hugmyndaleg og starfsleg samstilling
sem gæti dugað til pólitískra umskipta í þingkosn-
ingum. Markmið fyrsta maí ávarpsins hljóma vel
inn í þá samstillingu.
miklu máli
Sjónarhorn
Já, jafn
IVikublaðinu 15. apríl var grein
eftir unga konu sem undirritaðri
fannst allrar athygli verð. Konan
heitir Sigþrúður Gunnarsdóttir og er
ein af of fáum ungitm konum á vinstri
væng stjórnmálanna sem starfa í póli-
tík. Hún er m.a. formaður Samtaka
herstöðvaandstæðinga. I fyrirsögn
greinarinnar spurði Sigþrúður: Skipt-
um við máli? Og þó ég hafi ekki fylgst
náið með stjórnmálastarfi hennar þá
svara ég hiklaust að konur eins og hún
skipti máli. Sigþrúður var nógu djörf
til þess að bjóða sig fram í varafor-
mannssæti í nýrri ungliðahreyfingu
vinstri manna, Verðandi. Hún tapaði
kosningunni fyrir ungum karlmanni
og hún skrifar greinina til þess að gera
lesendum Vikublaðsins ljóst að hún er
óhress með þá niðurstöðu.
Það finnst mér rétt af henni.
Hún er óhress með að ungliða-
hreyfingin skyldi annað árið í röð
kjósa stráka í embætti formanns og
varaformanns en láta henni þó ritara-
sætið eftir. Það er hefðbundið kven-
mannssætí í mörgum félögum. Sig-
þrúður titlar sig ritara karlaklúbbsins.
Stjórnmálamenn fram-
tíðarinnar
Þegar stjórnmálahreyfingin Verð-
andi var stofnuð fyrir rúmu ári fór
ekki hjá því að ég tæki eftir hversu fáar
konur voru í forystu hennar. Mér
fannst það ekki bera hreyfingu ungra
vinstri manna og „jafnréttíssinna"
gott vitni og síst auka mér bjartsýni
um framtíðina. 1 ungliðahreyfingun-
um hljóta stjórnmálamenn framtíðar-
innar þjálfun sína og með því að líta á
forystusveit þeirra má spá um hverjir
fari með völdin eftír 15-20 ár. Og Sig-
þrúður upplýsir í grein sinni þá
hryggilegu staðreynd að á landsfundi
Verðandi hafi aðeins verið 5 stelpur
en nokkrir tugir stráka.
Fólki finnst kannski að fýrst svo
fáar ungar konur sýni áhuga þá sé
eðlilegt að völd þeirra eða valdaleysi
sé í samræmi við það. Sigþrúður segir
ekkert um það hvers vegna stelpurnar
voru svona fáar. Bara að þær voru ekki
nema fimm. En það skiptír miklu máli
að vita hvort ungar konur hafi al-
mennt ekki áhuga á stjórnmálum eða
hvort þær hafi ekki tækifæri tíl þess að
sýna áhuga sinn í verki? Eru þær
kannski bundnar yfir börnum sínum
og strákanna? Eru þær að vinna fyrir
þeim? Fengu þær enga hvatningu?
Skortir þær kjark?
Einstaklingshyggja eða
samstaða
Sigþrúði Gunnarsdóttur skortir í
það minnsta ekki kjark. Og fyrir það
ætti hún að hljóta umbun. En það
kann samt að vera að einhverju sé á-
bótavant í „strategíu" eða hernaðarlist
ungra kvenna í stjórnmálum líkt og
kvenna almennt á íslandi. Margar ís-
lenskar konur hafa farið þá leið að
berjast sem einstaklingar til áhrifa í
krafti einhverra sérstakra hæfileika og
tekist það bærilega. Þær eru braut-
ryðjendur og afrekskonur en oft ansi
einar. Aðrar leggja áherslu á sam-
stöðupólitík innan hópsins og
Kvennalistinn er auðvitað besta dæm-
ið uni það. Konur í öðrum stjórn-
málaflokkum, einkum á vinstri væng,
hafa stundum náð árangri í krafti sam-
stöðunnar, en stundum hefur hún
verið í molum og málin tapast þess
vegna. Það sést ekld af grein Sigþrúð-
ar með hvaða hætti hún undirbjó
framboð sitt. Það sést ekki hvort hún
bauð sig fyrst og fremst fram sem full-
trúi kvenna eða éinhvers annars hóps?
Það sést ekki hvort hún reyndi árang-
urslaust að smala kynsystrum sínum á
fundinn eða hvort hún treystí bara á
stuðning strákanna? Það sést bara að
stelpurnar voru fáar og Sigþrúður
tapaði.
Konur skipta jafn
miklu máli
Núna skömmu fyrir sveitastjórnar-
kosningar er staða íslenskra kvenna í
stjórnmálum mjög tíl umræðu og at-
hygli beinist að því hversu hlutur
þeirra er miDu minni en hlutur
kvenna annars staðar á Norðurlönd-
um. Eg held það fari ekki á milli mála
að íslenskar konur þurfi að taka bar-
áttuaðferðir sínar til endurskoðunar
enn á ný ef þær vilja bæta sinn hlut.
Vonandi tekst Sellunum, hinni ný-
stofnuðu kvennahreyfingu Alþýðu-
bandalagsins, að blása nýju lífi í jafn-
réttísumræðuna innan vinstri hreyf-
ingarinnar. Það liggur svo bersýnilega
í augum uppi („Snati minn“) að þess
er full þörf. Konur skipta vinstri væng
stjórnmálanna ekki minna máli en
karlar.
Þær skipta jafn miklu máli.
Höfundur er rithöfundur
Tökum þátt í viðburðum dagsins - 1. maí
Alþýðubandalagið í Reykjavík hvetur alla félagsmenn sína og stuðningsmenn
flokksins í Reykjavík til að taka þátt í hátíðarhöldum og kröfugöngu dagsins 1. maí á
hátíðis- og baráttudegi verkalýðsins. Alþýðubandalagið í Reykjavík efnir ekki til
sérstakrar samkomu á hátíðisdegi verkalýðsins að þessu sinni en hvetur félaga til að
mæta á samkomur verkalýðsfélaganna - og bendir á að R-listinn hefur opið hús að
Laugavegi 31 allan daginn.
Alþýðubandalagið í Reykjavík