Vikublaðið - 29.04.1994, Qupperneq 4
4
VIKUBLAÐIÐ 29. APRIL 1994
Verulegur bati hjá flestum fyrirtækjum í fyrra
Kreppa hverra?
Hagnaðurinn hjá þeim fyrirtækjum sem opinberað
hafa afkomutölur síðasta árs hátt í þrefaldaðist.
Taprekstur er að mestu bundinn við fiskvinnslu og
þau útgerðarfyrirtæki sem ekki hafa getað spilað á
kvótakerfið.
Yfirlit Vikublaðsins yfir afkomutölur
fýrirtækja 1993 og 1992 sýnir að í
flestum tilfellum reyndist um veru-
legan afkomubata að ræða, en á sama tíma
eykst atvinnuleysi og kaupmáttur rýrnar.
Að undanförnu hafa fréttir birst í íjölmiðl-
um um tug og hundruð milljóna króna
hagnað helstu fyrirtækja landsins. Þeirra á
meðal eru kvótahæstu útgerðarfyrirtæki
landsins, en að öðru leyti eru það helst fyr-
irtæki í sjávarútvegi sem nú tapa og ein-
staka fésýslufyrirtæki sem tapa vegna þess
hve mikið fer á afskriftarreikning þeirra.
Útgerðin tapar - ekki þó hinir
útvöldu
Á meðfylgjandi listum sést hagnaður 64
fyrirtækja á síðasta ári, tap 12 fyrirtækja og
loks eru talin fimm fyrirtæki sem bjuggu
við nokkra sérstöðu. I öllum tilfellum er
um að ræða endanlega útkomu, þ.e. eftir
skatta, afskriftir og fleira. Þegar hagnaðar-
fyrirtækin 64 eru skoðuð keinur í ljós
hagnaður upp á alls tæpa þrjá milljarða,
sem er bati upp á 1,8 milljarða frá árinu
áður, 1992. Þetta er hátt í þreföldun á
hagnaði eða 153 prósent.
Meðal þessara fyrirtækja sýnir Eimskip
mesta aukningu hagnaðar milli ára eða
409 milljónir króna, en Grandi og SR-
mjöl tæplega 270 milljónir. Athyglisverð-
an bata er að sjá hjá hinum útvöldu út-
gerðarfyrirtækjum, Granda, Utgerðarfé-
lagi Akureyringa, Þormóði Ramma, Síld-
anánnslunni og Búlandstindi. Samtals
kom síðasta ár út með hagnað upp á 385
milljónir króna hjá þessum fimm útgerð-
arfyrirtækjum, en árið áður var hjá þeim
tap upp á 243 milljónir. Þetta er bati upp á
628 milljónir króna.
Olíufélögin þrjú skila árlega miklum
hagnaði hvað sem annars á dynur. Á síð-
asta ári komu þau út með alls 384 milljóna
króna hagnað, sem er aukning um 34
milljónir. Langstærstu tryggingafélög
landsins, Sjóvá-Almennar og Vátrygg-
ingafélag Islands, sýna einnig umtalsverð-
an hagnað, alls 310 milljónir, sem er aukn-
ing upp á 75 milljónir.
Fésýslan að jafna sig á af-
skriftum
Fésýslufyrirtæki landsins hafa lagt háar
fjárhæðir á afskriftarreikninga sína allra
síðustu ár og sýna því talsverðar sveiflur.
Landsbankinn kvittaði fyrir 1992 með tapi
upp á 2.733 milljónir króna vegna mikilla
afskrifta, en á síðasta ári gat bankinn bók-
fært 443 milljón króna hagnað. Afskriftir
voru áberandi hjá Islandsbanka á síðasta
ári og tap ntikið, en hjá Búnaðarbankan-
um, sparisjóðunum sem eru 31 og Lána-
stofnun sparisjóðanna var um mikla aukn-
ingu hagnaðar að ræða milli ára.
Önnur fésýslufyrirtæki komu flest vel
út. Landsbréf, Kaupþing, Féfang, Lýsing
og Ilandsal sýndu öll hagnað, alls upp á
105 milljónir, sem er rúmlega tvöföldun á
hagnaði frá árinu áður. 1 lins vegar töpuðu
Glitnir, Lind og Þróunarfélagið, en hjá
síðasttalda fyrirtækinu varð þó um mikinn
bata að ræða og treysti félagið sér til að
kaupa hlut í SR-mjöli fyrir 18 milljónir
króna.
%
Eimskipafélagið:
Bókfærði liðlega 40 milljón króna tap
1992 en 370 milljón króna hagnað á
síðasta ári.
Grandi:
Keypti vænan hlut í Þormóði ramma af
ríkinu fyrir rúmar 80 milljónir, bókfærði
hagnað upp á 108 milljónir, sem er bati
upp á 264 milljónir frá árinu áður.
Afkoma fyrirtækja 1993 og 1992
- milljónir króna -
64 hagnaðarfyrirtæki:
1993 1992 mism.
Sparisjóðirnir (31) + 395 + 175 + 220
Eimskip + 368 -41 + 409
SR-mjöl + 220 -48 + 268
ESSO + 197 + 198 - 1
Sjóvá-Almennar + 195 + 162 + 33
Stöð 2/Bylgjan + 154 + 171 - 17
Vátryggingafélag íslands . + 115 + 73 + 42
Útgerðarfélag Akureyringa + 112 + 10 + 102
Þormóður rammi + 111 -45 + 156
Grandi + 108 - 156 + 264
SHELL + 96 + 92 + 4
OLÍS + 91 + 60 + 31
íslensk endurtrygging + 78 + 165 -87
Mjólkursamsalan + 77 + 64 + 13
Sameinaðir verktakar + 64 + 38 + 26
Áburðarverksmiðjan + 57 + 15 + 42
VISA + 57 +124 - 67
Lánastofnun sparisjóðanna + 56 + 51 + 5
Islenskar sjávarafurðir + 51 + 38 + 13
Síldarvinnslan + 50 + 4 + 46
Búnaðarbankinn + 47 - 31 + 78
Osta- og Smjörsalan + 45 + 66 -21
Hampiðjan + 41 + 40 + 1
Landsbréf + 25 + 8 + 17
Pharmaco + 24 + 29 -5
Kaupþing + 23 + 4 + 19
Féfang + 23 + 3 + 20
Lýsing + 20 + 24 -4
Handsal + 14 + 9 + 5
Tæknival + 14 - 4 + 18
Sæplast + 12 + 12 + 0
Ármannsfell + 8 -88 + 96
Tollvörugeymslan + 7 + 7 + 0
Búlandstindur + 4 -56 + 60
Alls + 2963 +1170 +1793
12 tapfyrirtæki: Flugleiðir - 188 - 134)
Sementsverksmiðjan - 111 (-160)
KEA (móðurfélag) -51 (+ 12)
Steinullarverksmiðjan - 47 (-57)
Miklilax -34 (-190)
Kísiliðjan -32 (+6)
Glitnir - 20 (+4)
Sláturfélag Suðurlands - 16 (-30)
Úrval/Útsýn - 12 ( + 25)
Þróunarfélagið - 10 (-57)
Lind . - 1 ( + 26)
Tölvusamskipti - 0 (-12)
Alls - 522 (- 567)
Sérstök tilfelli: Landsvirkjun - 3250( -2119) -1131
íslandsbanki - 654 (-176) -478
ÍSAL ca 0 (- 800) + 800
Landsbankinn + 43( 2733) + 2776
Járnblendifélagið + 146 (-567) + 713
Alls -3715- 6395 + 2680