Vikublaðið - 29.04.1994, Síða 12
12
-XL %
VIKUBLAÐIÐ 29. APRIL 1994
1. maí ávarp
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykja-
vík, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
og Iðnnemasambands fslands 1994
Atvinnuleysi er efst í huga okkar nú
1. maí á baráttudegi verkafólks. A
síðustu mánuðum hefur atvinnuleysi
verið meira en nokkru sinni áður.
Flestar fjölskyldur í landinu þekkja
lamandi og skemmandi áhrif atvinnu-
leysis.
Aldamótakynslóðin átti baráttu-
menn sem lögðu grunn að fúllvalda
ríki. Kreppukynslóðin stóð af sér
mestu viðskiptaáföll aldarinnar og
reisti um leið atvinnulífið úr rúsmm.
Kynslóð effirstríðsáranna gerði Island
að velferðarríki. Nú bjóðum við vel-
komna æsku landsins í fylkingu okkar
sem viljum berjast gegn því efnahags-
lega og félagslega ranglæti sem blasir
við í þjóðfélaginu:
- Þar sem vinnufúsar hendur fá ekki
vinnu.
- Þar sem margfaldur launa- og
kjaramunur undirstrikar öfga og
ranglæti í samfélaginu.
- Þar sem hinn almenni launamað-
ur er látinn taka alla ábyrgð á glæfra-
legum starfsháttum lánastofnana á
undanförnum árum.
- Þar sem launamaðurinn þarf að
sæta uppsögn úr starfi jafnvel án upp-
sagnarfrests á meðan stórbokkinn
skammtar sér biðlaun sem nema
hundruðum þúsunda á mánuði.
- Þar sem alþingismenn, ráðherrar,
bankastjórar og hæstaréttardómarar
búa við margfaldan þann lífeyrisrétt
sem aðrir launamenn verða að sætta
sig við.
- Þar sem stjórnmálamenn standa
ekki við yfirlýsingar sínar eða loforð
eftir kosningar.
- Þar sem nokkrir útgerðarmenn
og stóratvinnurekendur í fiskvinnslu
eru, með dyggri aðstoð stjórnmála-
manna, að sölsa undir sig það sem eft-
ir er af auðæfunum í hafinu.
- Þar sem æska landsins er látin
gjalda fyrir langvarandi vaxtaokur.
- Þar sem fjármagnseigendur hafa
verðtryggðar tekjur en launamenn
ekki.
Bótalaust tímabil atvinnuleysis-
trygginga er tímaskekkja, sem ber
að afnema án tafar. Möguleika at-
vinnulauss fólks til hagnýts náms þarf
að auka. Undirbúning átaksverkefna
sveitarfélaga þarf að vanda vel og gæta
þess að þau snúist um innihaldsrík
verkefni. Brýnast af öllu er að útrýma
atvinnuleysinu.
Stöðguleiki hefur einkennt efna-
hagslíf og vinnumarkað á undanförn-
um árum. Verðbólga er vart mælan-
leg. í samanburði við launakosmað
erlendis hefur launakostnaður hér-
lendis lækkað. Launafólk greiðir nú
skatta sem fyrirtæki greiddu áður.
Enda þótt atvinnureksturinn greiði
sáralítið til samfélagsins segir at-
vinnureksturinn sig á sveitina enn og
aftur. Velferðarkerfi atvinnurekstrar-
ins er dýrasta velferðarkerfi landsins.
Launafólk greiðir iðgjaldið en at-
vinnurekendur fá bæmrnar. Launa-
fólk greiðir tapið en þeir hirða arðinn.
Að öllu samanlögðu hefur starfsum-
hverfi atvinnurekstrarins verið eins og
atvinnurekendur helst gám kosið sér.
Samt er atvinnuleysi!
Utvegurinn neitar að greiða sam-
félaginu auðlindaskatt heldur
skattleggur sjálfan sig með kvóta-
braski. Úr röðum útvegsmanna hefur
heyrst að nú sé kominn tími til að selja
aðgang að fiskimiðunum á alþjóða-
markaði með því að selja hlut í út-
gerðum sínum. Útfærsla landhelginn-
ar í 12, 50 og síðan í 200 rnílur er
dæmi um góð áform sem yfirgengileg
ágirnd og hroki eru að gera að engu.
Flestum er að verða ljóst getuleysi
ffjálshyggjunnar til að leysa brýn
vandamál eins og atvinnuleysi.
Launalækkun og réttindaskerðing
launafólks er eina úrræðið sem hún á
við atvinnuleysi. Skammtímagróði er
tekinn fram yfir fjárfestingu til langs
tíma. Vextir eru háir.
Frjálshyggja verðleggur brask
hærra en launavinnu.
Kvótabraskið er Ijósasta dæmið um
það. Vegna mannfyrirlitningarinnar
sem býr í ffjálshyggjunni verður ekki
ráðið við atvinnuleysið með ráðum
hennar.
Gegn atvinnuleysinu verður að ráð-
ast með markvissum, opinberuin að-
gerðum.
Vandi okkar verður leystur með
fyrirhyggju - ekki með frjálshyggju.
Við höfum ekkert með memaðarlaus
markmið ffjálshyggjunnar um lág-
launastörf að gera. Við þörfnumst
memaðarfullra markmiða fyrirhyggj-
unnar um vel launuð störf. Getuleysi
ffjálshyggjunnar sýnir að verkafólk og
samtök þess verða að taka taumana í
sínar hendur og stýra í átt til nýsköp-
unar í atvinnulífinu. Við þörfnumst
meiri effirspurnar á innanlandsmark-
aði. Fyrsta skrefið til þess er meiri
kaupgeta - fólk sem getur keypt.
Framundan er undirbúningur að
gerð kjarasamninga. Kröfur okkar
í komandi kjarasamningum hljóta að
taka mið af afkomu þjóðarbúsins, sem
er betri nú en útlit var fyrir þegar gild-
andi kjarasamningar voru gerðir.
Kröfur okkar hljóta því að snúast að
auknum jöfnuði í þjóðfélaginu. Of lít-
il nýsköpun og fjárfesting í atvinnulífi
hindrar hagvöxt.
ugleysi atvinnurekenda á þessu
sviði kallar á ffumkvæði okkar og
forysm. A sama tíma og yfirvöld
kunna ráð til að skattleggja fæðis- og
ferðahlunnindi launafólks allt niður í
tvo strætisvagnamiða á dag eiga þau
engin ráð við skattsvikum. Launafólk
krefst þess, að ríkisvaldið beini spjót-
um sínum að neðanjarðarhagkerfinu
sem lengi hefur þrifist í þessu þjóðfé-
lagi. Það ætti að liggja í augum uppi
að þeir 11-15 milljarðar sem talið er
að ríkissjóður verði af í neðanjarðar-
hagkerfinu eru ekki í vösum launa-
manna.
Frændþjóðir okkar á Norðurlönd-
um, Svíar, Norðmenn og Finnar,
greiða senn atkvæði um aðild að Evr-
ópusambandinu. Ef verður af inn-
göngu þeirra í Evrópusambandið
munu þessar þjóðir leggja mikla á-
herslu á samstarfið á meginlandinu og
hætta er á að það dragi úr áhuga þeirra
á norrænni samvinnu.
Sameiginlegur markaður Evrópu-
sambandsins verður áff am mikilvægur
fyrir okkur á komandi árum. Vestan
við okkur er að ýmsu leyti álitlegur
markaður og austur í Asíu er annar í
örum vexti. Því er brýnt að við mótum
stefnu í ljósi þessara aðstæðna.
Grundvöllur hennar hlýtur að vera
fiskveiðilögsaga í höndum íslendinga.
Krafan er að þjóðin verði spurð í jafn
afdrifaríku máli.
Aldamót eru skammt undan. Við
erum hin nýja aldamótakynslóð. Við
okkur blasa ærin verkefni. Við þurfum
markvissa, arðsama langtímafjárfest-
ingu í atvinnuvegunum. Við þurfum
að losa okkur úr viðjum stöðnunar
sem frjálshyggjan hefur kallað yfir
okkur.
Við þurfum að gefa spilin upp á
nýtt.
Launafólk.
Gerum 1. maí að raunverulegum
baráttudegi, þar sem við sameinumst
um kröfúna:
FULL ATVINNA FYRIR ALLA -
ATVINNA ER MANNRÉTTINDI
Sendum viðskiptavinum okkar og öllu launafólki
árnaðaróskir á hátíðisdegi verkalýðsins
VERKAMANNAFÉLAGIÐ DAGSBRÚN Niðursuðuverksmiðjan QB Vesturvör 12 Grandi hf. EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
StaðarsíýáCi Sírútafirði |
cÆ=3 lESSOK Haraldur
. m. REYKJAVÍKIIRHÖFN Böðvarsson hf.
Olíufélagið h.f. Akranesi
MJÓLKURBÚFLÓAMANNA ÉJ LANDSVIRKJUN fl félag 4*1 bókagerðar- Ib# manna ÍSLENSKIR AÐALVERKTAKAR