Vikublaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 17
VIKUBLAÐIÐ 29. APRIL 1994
17
kosningarnar
Vestmannaeyjalistinn fær byr í seglin
Sjálfstæðisflokkurinn klofinn
Forystusveit Vestmannaeyjalistans fundar. Frá vinstri Ragnar Óskarsson, Svanhildur Guðlaugsdóttir, Guðmundur P. B. Ólafsson, Guðmunda Stein-
grímsdóttir og Guðný Bjarnadóttir. Myndog grein: Bergþór Bjarnason
S
Vestnvannaeyjum hafa Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur og
Framsóknarflokkur ákveðið að
bjóða fram sameiginlegan lista, Vest-
mannaeyjalistann. Á sama tíma geng-
ur Sjálfstæðisflokkurinn klofinn til
kosninganna. Georg Þór Kristjáns-
son, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
býður fram sérlista þar sem að flokk-
urinn vildi bola honum úr bæjar-
stjórn. Ahrifamenn í Flokknum hafa
lagst á Georg til að fá hann ofan af
framboði sínu. Á sarna tíina og Sjálf-
stæðisflokkurinn logar í illdeilum hef-
ur Vestmannaeyjalistinn haldið opna
fundi með bæjarbúum og fengið góð-
ar viðtökur.
Fjárhagur bæjarins
stærsta verkefnið
„Undirtektir hafa verið mjög já-
kvæðar gagnvart framboðinu og hefur
verið íjölmenni á fúndunum hjá okk-
ur,“ segir Ragnar Óskarsson, bæjar-
stjóraefni Vestmannaeyjalistans og
varaþingmaður Alýðubandalagsins á
Suðurlandi. „Við leggjum ríka áherslu
á að bæta fjárhag bæjarins og hræra
upp í þeirri gífurlegu skuldasúpu sem
bærinn situr í. Kosningaloforðalisti er
ekki það sem í boði verður, við ætluin
að vera heiðarleg gagnvart bæjarbú-
um enda ræðst allt af fjárhag bæjarins
og því er ekki hægt að lofa miklum
framkvæmdum. Sjálfstæðisflokkurinn
. hefur sagt að fjármálastjórn þeirra
hafi verið góð en hún hefur fyrst og
ffeinst falist í að safna skuldum og
breyta gömlum lánum tíl að fá hag-
stæðari kjör.“
Ragnar Óskarsson segir skuldirnar
hafa aukist gífurlega og að útgjöld
bæjarins þurfi að skera niður, þó án
þess að rýra þjónustu bæjarins. Frani-
bjóðendur V-listans, Guðmunda
Steingrímsdóttir, Guðný Bjarnadóttir
og Svanhildur Guðlaugsdóttir hafa
t.d. farið yfir dagvistarmálin og kom-
ist að því að með sveigjanlegum opn-
unartíma megi auka dagvistunarþjón-
ustu án aukins tilkostnaðar.
Sjálfstæðisflokkurinn
klofinn
Georg Þór Kristjánssyni, bæjarfull-
trúa, var boðið að taka 7. eða 13. sæti
á framboðslista Sjálfstæðismanna en
bafnaði því og ætlar að bjóða fram
sérstakan lista til bæjarstjórnar.
Heimildir Vikublaðsins segja að
topparnir í Sjálfstæðisflokknum hafi
lagst á Georg Kristjánsson til að fá
hann ofan af framboðinu. Davíð
Oddsson forsætisráðherra, Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra og Arni
Johnsen þingmaður, hafi allir reynt að
tala Georg tdl. Honum var boðið að
taka þriðja sæti ffamboðslista Sjálf-
stæðismanna gegn því að hætta við
framboðið en því hefúr Georg hafnað.
Fyrrum leiðtogi Sjálfstæðismanna í
bæjarmálum, Sigurður F.inarsson,
staðfestir í viðtali við eyjablaðið Frétt-
ir að hann óttíst að sérffamboðið taki
fyrst og ffemst fylgi ffá Sjálfstæðis-
flokknum.
Kemur okkur ekki við
Ragnar kallar atvinnustefnu meiri-
hluta Sjálfstæðismanna „kemur oklcur
ekki við“ stefnu og hana hafi minni-
hlutinn gagnrýnt á þessu kjörtímabili.
„Bærinn á að styðja við atvinnulífið og
hafa frumkvæði en ekki draga kjark úr
fólki. Bæjarfélagið sjálff á þó ekki að
stofna til atvinnureksturs heldur auð-
velda stofnun nýrra fyrirtækja með því
að greiða leiðina í gegnum kerfið,
hjálpa til við lánafyrirgreiðslu og
fleira. Vestmannaeyjalistinn vill ráða
atvinnumálafulltrúa með þekkingu og
reynslu sem getur aðstoðað við að
finna út hvað gengur og hvað ekki og
bæjarfélagið getur tímabundið gefið
eftir gjöld. Við viljum ekki benda á
hvers konar atvinnuuppbygging á að
eiga sér stað en hér eru góðar aðstæð-
ur fyrir hendi í ferðaiðnaði, til ný-
sköpunar á sjávarafúrðum, besta vatn
sem hægt er að fá og ýmislegt fleira.“
Vestmannaeyjar tilrauna-
sveitarfélag?
Vestmannaeyjar er eitt þeirra
sveitarfélaga sem hefur sótt um að
verða svokallað tilraunasveitarfélag.
Ef Vestmannaeyjabær verður til-
raunasveitarfélag tekur bæjarfélagið
við mörgum verkefnum sem ríkið hef-
ur annast og fær til þess ákveðna
tekjustofna sem ríkið hefur áður feng-
ið í sinn hlut. Bæjarfélagið kemur þá
til með að greiða 15 prósent af stærri
verkefnum t.d. rekstri sjúkrahúss.
Vestmannaeyjalistinn styður hug-
myndina, telur þetta vera spennandi
verkefni og í samræmi við þá hug-
mynd listans að Vestmannaeyingar fái
að stjórna sínum málum sem mest
sjálfir.
Verknámshús við fram-
haldsskólann
Arið 2001 er áætlað að grunnskóli
verði einsetinn og við það miðast upp-
bygging í skólamálum. A kjörtímabil-
inunt 1986-90 þegar Alþýðubandalag,
Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur
skipuðu meirihluta var hafist handa
við byggingu verknámshúss Fram-
haldsskólans í Vestmannaeyjum en
Sjálfstæðisflokkurinn hefúiv verið í
meirihluta síðan 1990. „Frá því að
grunnurinn var gerður hefur ekkert
verið gert,“ segir Ragnar. „Við ætlurn
okkur að klára verknámshúsið á næsta
kjörtímabili. Það er okkar helsta
áherslumál í menntamálum. Aherslan
er ekki bara á bóknám heldur einnig
verknám, því ætlum við að gefa
gaum.“
Annað atriði er tengist ungu fólki í
stefnu Vestmannaeyjalistans er skipun
nefndar á vegum bæjarins sem á að
vinna að málefnum ungs fólks.
Nefndin verður skipuð ungu fólki og
þannig á að gefa því tækifæri tíl að
ákveða sjálft hvernig slculi háttað
stefnu í þeirra málurn.
Bæta samskipti við
náttúru
Umhverfismál skipa stöðugt stærri
sess í stjórnmálaumræðu og Ragnar
segir það einnig eiga við um bæjar-
málin. Víða séu sár á eyjunni sem
unnin hafi verið í gegnum tíðina og
þau þurfi að græða. „Núna þarf átak í
að bæta samskiptin við náttúruna. Það
jiarf að athuga hvernig ástandið er og
hvernig það á að vera. Friðlýst svæði á
nýja hrauninu er ein hugmynd sem
við leggjum fram. A þessum svæðum
verður ekki hreyft við neinu og þau
verða kortlögð. Annað sem tengist
heilbrigði og umhverfi er sorpeyðing-
arstöðin sem var nauðsynleg en er á
margan hátt mislukkuð. Hún skilar
ekki því sem hún átti að skila, brennir
sorpinu illa og mengar. Sorpeyðing-
arstöðin er verkefni sem þarf að vinna
í á næstunni.“
Bjartsýnn á kosningarnar
Ragnar Oskarsson segir það sem
hann nefni aðeins brot af þeim hug-
ntyndum og tillögum sem Vest-
mannaeyjalistinn leggi fram. Fram-
undan séu nýir tímar í Vestmannaeyj-
unt. Hann er bjartsýnn á að vel gangi í
kosningunum í maí, ekki síst vegna
þeirra jákvæðu viðbragða sem listinn
hefúr fengið og þeirn glundroða sem
ríkir innan Sjáflstæðisflokksins í Vest-
mannaeyjum.
iC
irók
óyc
ki
Kínverskir hugsuðir tíl forna voru flestir sam-
rnála um allt undir hiinninum. „Tian Xia“,
þ.e. heimsbyggðin öll, skyldi sameinast í eitt
ríki. Landfræðilegar aðstæður takmörkuðu reyndar
hugmyndir þeirra um hinn siðmenntaða heim við
Kínaveldi sem er umkringt af strjálbýlum sléttum
og eyðimörkum í norðri, úthafi í austri, frumskóg-
um í suðri og ókleifum íjöllum í vestri. Þrátt fyrir
þetta hefur kínverska heimsveldið ávallt verið rnarg-
falt íjölmennara og þéttbýlla en Evrópa frá því að
sagnaritun hófst.
Kínverskir heimspekingar í fornöld voru því í
raun allir alþjóðasinnar í ýtrustu merkingu þess
orðs, hvort sem þeir fylgdu Konfúsíusi eða Laotse
að málum. Það er því ekki nema von að þeir hafi
gert miklar kröfur til ríkisleiðtogans sem áttí að
stjórna þessa víðfeðma ríki.
26. brot úr Bókinni um Veginn
Þyngd cr rót léttvægis. Kyn'ð er bcrrti óróleikans. Þess
vegna ferðast hcföarmaóur allan daginn án þess að skilja
við þunga vagna. Jafnvel þótt hann sjái fi'ægð ogframa
er hann afslappaður og æðrulaus.
Hvers vegna geriryfirmaður tugþúsunda stríðsvagna
þá sjálfan sig léttvægan undir himninum? Með léttvægi
glatast rætumar, við óróleika glatast herrann.
Umritun þýðanda
Þyngd er forsenda léttvægis. Róserni gerir ríkis-
stjórnanda kleift að hafa vald á ókyrrð. Þess vegna
gleyma sannir hefðarntenn aldrei þeirri ábyrgð, sem
þeim hefur verið falin, hvert sem þeir fara. Þeir láta
ekki glepjast af sæilífi, heldur halda þeir ró sinni og
æðruleysi.
Hvers vegna gera ríkisleiðtogar sig þá léttvæga og
lítilsiglda í augum heimsveldis síns? Léttvægi þeirra
verður til þess að þeir glata tengslunum við uppruna
sinn; ókyrrð og óstöðugleiki steypir stjórn þeirra í
glötun.
Þýðandi: Ragtiar Baldursson
Bergþór Bjamason