Vikublaðið


Vikublaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 19

Vikublaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 19
VTKUBLAÐIÐ 29. APRÍL 1994 Vlðhorf 19 Stríðshættan og verkefni frioarbarattun Ekki þarf að f]ölyrða um það böl sem styrjaldir eru fyrir al- þýðu manna. Þess vegna þarf vart heldur að rökstyðja nauðsyn al- mennrar baráttu fyrir því að afstýra styrjöldum, því almenn þátttaka í þeirri baráttu getur ráðið úrslitum um stríð eða frið. Hér mun ég fjalla um stríðshætt- una og verkefni ffiðarbaráttunnar um þessar mundir, ekki síst með til- liti til þeirrar breyttu heimsmyndar sem tíðrætt hefur verið um undan- farin ár. Styrjaldir eru framhald þeirra hagsmunaárekstra sem stéttakúg- unuin elur af’ sér og nú á tímum heimsvaldastefnunnar hafa þær vax- andi tilhneigingu til að breiðast um heim allan. Engin þjóð getur því ver- ið óhult fyrir stríðshættunni en með pólitískri samstöðu í baráttu gegn hernaðaruppbyggingunni, hvers konar stríðsundirbúningi og hverri þeirri stefhu sem eykur stríðshætt- una, getur alþýða manna stuðlað að friðvænlegra ástandi. Auk fjölda annarra styrjalda hafa á þessari öld verið háðar tvær heims- styrjaldir með fókuspunkt í Evrópu. Svo brigðult er minni mannsskepn- unnar að nú virðist stelfia í enn eina endurtekningu hins inikla harmleiks. Kynt undir stríði Margt er til marks unt vaxandi hættu á nýju heimsstríði, eða í öllu falli stórstríði. Alhliða kreppa þjakar nú flest ríki heims. Þessi kreppa, sem vaxið hefur á mörgum árum, veldur ekki aðeins efnahagslegu lömunarástandi, held- ur einkennist allt þjóðlffið í vaxandi mæli af pólitískum og siðferðislegum glundroða. Heilu heimshlutarnir standa jafnvel frammi fyrir algerri upplausn. Á sama tíina eru stórveldin farin að kynda undir stríði, jafnvel hér í Evrópu, í fyrsta sinn frá lokuin seinni heimsstyrjaldar. . Við þessar aðstæður eykst spenna milli ríkja og ríkjabandalaga, sem geta stokkast upp og lireyst eftir því sein vindurinn blæs. Fasisminn er eitrað aldin stríðsins, sem nú fær vax- andi aðhlynningu í ffjósömum jarð- vegi kreppunnar. Fasisiminn hefur inörg andlit, ekki síst þegar hann byrjar að gægjast upp úr rottuholun- um. Hann einkennist ekki fyrst og Þorvaldur Þorvaldsson fremst af hefðbundnum slagorðum og táknum. Hér á Islandi höfum við undanfarin ár upplifað stórlega skerðingu á kjörum alþýðunnar og vaxandi ójöfnuð. Á sama tíma hefur markvisst verið unnið að því að brjóta niður félagslegt öryggisnet samfélagsins og þrengja að mögu- leikum verkalýðshreyfingarinnar til að bæta stöðu stéttarinnar. Allt er þetta upptaktur að fasisma sem getur breytt um svip á augabragði. Einn af hornsteinum friðarbaráttunnar í hverju landi er að leitast við að stöðva þessa hættulegu þróun áður en hún verður óviðráðanleg. Stöðugleiki kalda stríðsins Undanfarin ár hefur mikið verið rætt í fjölmiðlum um breytta heims- ntynd og lok kalda stríðsins. Yfirleitt er lárið að því liggja að með þessari breytingu hafi stríðshættan minnkað og jafnvel að heimsffiðurinn væri tryggður. Til að skoða þessar breyt- ingar nánar þurfum við að athuga það ástand sem var lengstaf ffá stríðslokum. Eftir stríð einkenndist ástandið í heiininum annars vegar af djúpstæðu hatri alls almennings á fasisma og stríðsrekstri. Hins vegar af skiptingu heimsins í áhrifasvæði rnilli risaveld- anna, Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna og þeirra handalaga sem þau mynduðu í kringum sig. Þetta ástand tryggði engan veginn að ffiður héld- ist enda voru háðar margar og blóð- ugar styrjaldir á þessu tímabili. Samt sem áður stuðlaði þetta ástand fram- an af að meiri stöðugleika en síðar varð. Ekki síst var almenningur í Evró]iu bágrækur til stríðs enda heimsstríðið mikla í fersku minni. Einnig hafði neitunarvald Sovétríkj- anna í Örvggisráði Sameinuðu þjóð- anna þau áhrif að NATO-ríkin gátu ekki heitt því fyrir sinn vagn og urðu að varast of miklar ögranir við and- Lík múslimskra barna í Tuzla, Bosníu. stæðinginn nema athuga fyrst hvert andsvarið yrði. i Ríki sem höfðu uppi ein- hverja tílburði til sjálf- stæðis gátu notfært sér ™ þetta ástand þannig að bæði hernaðarbandalögin gátu séð sér þann kost vænstan að láta þau í friði meðan þau gengu ekki í lið með andstæðingnum eða til að losna við uppgjör sem þau voru ekki tilbúin tii. Ekki er þar með sagt að skipting heimsins í áhrifasvæði þessara tveggja voldugustu bandalaga væri æskileg skipan heimsmála. Enda varð þróunin fljótt sú að effir því sem hugsjónaandstæðurnar milli þeirra niáðust út opnuðust stríðsleiðirnar. Bandaríkin og Sovétríkin gerðu kaup kaups eftir diplómatískum leiðum um það hvar hvor aðjli um sig gætí ruðst fram án afskipta hins. Þetta einkenndi flest þau stríð sem háð voru á árunum 1960-1990. Natostríð í nafni Sam- einuðu þjóðanna Með uplausn Sovétríkjanna og valdatöku svartasta afttirhalds í Rúss- landi breyttíst ástandið í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Kína varð eina ríkið með neitunarvald sem ekki er fullkomlega undirgefið bandarísku heimsvaldastefnunni, en lætur þó oft undan þrýsringi þegar á hólminn kemur. NATO-ríkin voru fljót að tíleinka sér þetta aukna svigrúm tíl að deila og drottna án samkeppni sem nokk- uð kveður að. Fyrsta tækifæri var notað til þess að beita öiyggisráði Sameinuðu þjóðanna til stríðsrekstr- ar. Stríðið gegn Irak var heimsvalda- stefnunni kærkomið tækifæri til að reyna hið nýja stríðstæld, en það var í fyrsta sinn síðan í Kóreustríðinu sent stríð var háð undir fána Sameinuðu þjóðanna. I fjölmiðlaumræðu undanfarinna ára hefur jafnan verið gengið út frá því sem vísu að hrun Sovétríkjanna hafi bætt ffiðarhorfur í heiminum. Sú hugmynd gengur út frá því að Sovétríkin hafi verið eina stríðshætt- an í heiminum, eða þá spennan milli risaveldanna. En hafa friðarhorfur batnað í heiminum undanfarin þrjú til fjögur ár frá upplausn Sovétríkjanna? Mitt svar við því er afdráttarlaust nei. Þrjú stríð í nafni Sameinuðu þjóðanna á jafhmörgum áruin er nægileg sönn- un þess og uggvænleg vísbending uin framhaldið. Stríðið gegn írak, sem enn stend- ur, er glæpsamlegt gereyðingarstríð gegn írösku þjóðinni og í engu sam- ræmi við hið yfirlýsta tilefhi. Stríðið í Sómalíu var fáránleg aðgerð undir yfirskini hjálparstarfs. Stríðið í fyrrum Júgóslavíu er svo alveg sérstakur kapítuli. Ekki aðeins er þetta fyrsta styrjöld í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar ef frá eru talin átök milli fyrrum Sovétlýð- velda. í þessu stríði hefur hlutverki NATO verið breytt í grundvallarat- riðum þannig að olnbogarými þess til árása er aukið. Fyrir fáum vikum var NATO í fyrsta sinn formlega beitt í stríði og þá utan NATO-ríkjanna. Þessu hafa ýmsir fagnað og talað um að NATO sé að þróast að því að vera liður í alþjóðlegu öryggiskerfi undir stjórn S.þ. Þar er m.a. gengið út frá því að Öryggisráð S.þ. sé rétt- látur dómari í málum sem þessurn, NATO sé treystandi tíl að ffamfylgja réttlætinu og að málstaður Bosn- íumúslima sé óvefengjanlegur. Ótímabærar sjálf- stæðisyfirlýsingar íjyrr- um Jugóslavtu En hver er þá þessi málstaður? Sjálfstæði lýðveldanna í fyrrum Júgóslavíu var lýst yfir án þess að nokkur forsenda væri til staðar. Ekki lá fyrir hver vilji íbúanna var, ekki lá fyrir samningur um landamæri milli hinna nýju „ríkja“. Ekki lá fyrir trygging fyrir viðurkenningu á rétti þjóðernisminnihluta o.s.frv. Undir þessum kringumstæðum gat ekkert ffiðelskandi ríki viðurkennt hin nýju lýðveldi sem sjálfstæð ríki. Alþjóðleg viðurkenning á sjálf- stæði Slóveníu, Króatíu og Bosníu Herzegovinu við þessar aðstæður hrinti af stað stríðinu á Balkanskag- anuin. Þessi viðurkenning var því stríðsglæpur gegn þjóðum Júgó- slavíu. Þýskafand hafði mest áhrif á það að Evrópubandalagið viður- kenndi þessi nýju ríki enda hafði Þýskaland lengi kynt undir þessari atburðarás til þess að auka áhrif sín á svæðinu. NATO-ríkin áttu þannig stærstan þátt í því að koma af stað stríðinu á Balkanskaga og því er kaldhæðnislegt ef þau fá heiðurinn af því að stöðva það. Það er í rauninni aðeins í samræmi við þá fáránlegu umfjöllun um þetta stríð sem fyllt hefur flesta vestræna fjöhniðla þessi ár. Hvaða þjóð verðu næst undir fall- öxi NATO effir srimpil Öryggis- ráðsins? Kannski Norður-Kórea, eða segir Kína kannski stopp? Þessi lög- leiðing stríðsaðgerða nokkurra ríkja er í dag alvarleg ógnun við siðmenn- inguna. I lún helst í hendur við þró- un í átt til fasisma í ýmsum hinna voldugri ríkja, ekki síst innan NATO. Að styðja NATO jafn- gildir að styðja fasisma Þetta sýnir að verkefhin á sviði ffiðarbaráttunnar eru ærin og ekki síður brýn en offast áður. Til þess að ná árangri og stöðva þessa þróun er nauðsynlegt að fræða almenning um þessa hættu, leitast við að tengja saman baráttuna fyrir brýnurn hags- munamálum alþýðunnar gegn fas- isrna og stríðsstefnunni. Baráttan gegn hersetunni og NATO er að sjálfsögðu jafngild og hingað tíl. Á- róður um breytt eðli NATO til hins betra er ekki annað en vísvitandi stuðningur við stríðsstefnuna og al- þjóðlegan fasisma. En hvað getum við gert til að efla og hleypa nýju lífi í friðarbaráttuna? Þarf hún nýtt eða fjölbreyttara skipulagsform? Eg vona að fleiri leggi orð í þann helg en mest um vert er að þjóðin vakni áður en það er orðið um seinan. Höfundur er formaður Um- ræðufélags sósíalista Fyiirsögn og inillifyrirsagnir em blaðsins.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.