Vikublaðið - 29.04.1994, Page 20
20
VTKUBLAÐIÐ 29. APRIL 1994
Aumingja Árni og hinir í íhald-
inu. Búnir að leita logandi ljósi
að einhverju, já bara einhverju
hneyksli til að klína á Reykjavíkur-
listann. Og það eina sem hefur
fundist er að óvinurinn notaði Rétt-
arholtsskóla til að halda fund. Ekki
var verið að heilaþvo grunn-
skólakrakka, nei, nei. En gamalt
samkomulag segir að skóla eigi ekki
að nota til pólitískra fundarhalda.
Það er rétt. Þetta var ldaufalegt hjá
Sollu og félögum. Sveiattan.
Elín heitir kona og ber ættarnafn-
ið Hirst. Hún er fréttastjóri á Stöð
tvö. Hún er kona Friðriks Friðriks-
sonar fjölmiðlakóngs, sem gefur út
Pressuna, Viðskiptablaðið, Heims-
mynd, að ekki sé minnst á blaðið
Efst á baugi sem hann gefur út íyrir
vin sinn Hannes Hólmstein (blaðið
sem biður ríkisstofnanir uin skiln-
ing og velvild). Friðrik og Hannes
eru bestu vinir Davíðs Oddssonar
„borgarfulltrúa“ að Hraihi Gunn-
laugssyni frátöldum.
Árni kom skilaboðum til Elínar
hans Friðriks. Reykjavíkurlistinn
hafði á svívirðilegan hátt nauðgað
lögum landsins ef ekki sjálfri stjórn-
arskránni. Rauðliðarnir höfðu not-
að skóla til að halda fund! Og Elín
lét Stöð tvö segja frá hneykslinu.
Pakkið hélt fund í skóla. Jedúd-
damía.
I millitíðinni var Árni að leita að
borðum til að klippa óg málefnum
til að stela. Svo heppilega vildi til að
sumardaginn fyrsta bar upp í sömu
andrá. Skósveinar Arna í Lang-
holts- og Vogahverfi sáu gullið
tækifæri til að misnota tækifærið. í-
þrótta- og tómstundaráð Reykjavík-
ur (ÍTR) stóð að uppákomum og
knattspyrnufélagið Þróttur sömu-
leiðis. I uppákomurnar fóru pening-
ar borgarbúa og stuðningsmanna
þessa ópólitíska fótboltafélags. ÍTR
var látið auglýsa upp úrvals
skemmtikrafta: Árna Sigfússon,
Þorberg Aðalsteinsson og Sigurð
Sveinsson. Á hátíð ITR svifu fall-
hlífastökkvarar niður merktir XD í
bak og fyrir. Forystusauður íhalds-
ins í téðu hverfi, Oskar Finnsson í
Argentínu, bauð í grill. Sjálfstæðis-
flokkurinn var miskunnarlaust aug-
lýstur upp á kostnað borgarbúa og
Þróttar.
Elín Hirst sá ekkert fréttnæint við
þetta. Oruggar heimildir eru fyrir
því að sjálfstæðisfélagið hafi látið
börn dreifa 4.800 sneplum sínum í
hús til að auglýsa skemmtunina.
Þessi börn eiga foreldra með ýmsar
pólitískar skoðanir, en það stöðvaði
ekki íhaldið. Og lög um útivistar-
tíma barna stöðvaði íhaldið heldur
ekki. 10 ára börn voru að koma köld
og þreytt heim til sín klukkan tæp-
lega ellefu um kvöldið eftir dreif-
ingarþjónustuna fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Elín fann enga ólykt. Hún
fann misnotkun á skóla en ekki mis-
notkun á börnum.
Ekki hafa Guðmundur Magnús-
son og félagar á DV heldur séð
ástæðu til að taka málið upp, nema
sem brandara í Dagfara. Mogginn
gat ekki þagað málið í hel. Hann
leyfði Árna Sigfússyni að viðra sig
um málið og segja að það hafi verið
„óheppilegt" að birta nöfn þriggja
frambjóðenda „eins stjórnmála-
flokks" í auglýsingu ÍTR. Blessaður
öðlingurinn lét hafa eftir sér að
hann myndi sjá til þess að svona
gerðist ekki aftur. Jahéma.
Svo stmnsaði hann burt svo
glumdi í lyklakippunni
Heimsfrægð
Sviðsljós
Um og upp úr 1970 sungu lang-
flestír íslenskir popparar, sem
eitthvað kvað að, á ensku. Þeir stefndu
að því að öðlast heimsfrægð og töldu
íslensku ekki brúklega til að ná settu
inarki. Með tilkomu Stuðmanna eink-
um, og síðar Bubba Morthens, lagðist
þessi ósiður af um sinn og var það
ýmsum fagnaðarefni, enda þótt tón-
listarmönnunum væri oft mjög stirt
um stef og æðimargir textar þeirra
hinn voðalegastí leirburður.
Ungir popptónlistarmenn hafa
síðustu misseri litið mjög um öxl tíl
áranna í kringum 1970. Þeir stæla
tónlistína ífá þeim tíma og hafa, því
miður, velflestír lagt af textagerð á
íslensku en syngja þess í stað á ensku
eins og gömlu goðin, í og með í von
um heimsfrægð en einnig vegna þess
að þeim þykir örðugra að orða
boðskap sinn á íslensku en ensku.
Söngvarar á miðjum popp-aldri,
þ.e. þeir sem eru ekki alveg nýir af
nálinni en ná ekki heldur að teljast í
hópi gömlu goðanna, hafa fundið sér
millileið milli ensku og íslensku: þeir
Stólar á sýningu
í Stöðlakoti
syngja einfaldlega íslenska texta með
einhvers konar ensk-bandarískum
sóni. Stefán Hilmarsson er einna
snjallastur söngvara í þessum leik og
er helsta fyrirmynd hans líklega Jónas
R. Jónsson söngvari Flowers sem varð
sér til athlægis á sínum tíma með
fúrðulegri framsögn.
Mér er ekki alveg ljóst hvað Stefán
og félagar ætla sér með þessu hátterni,
því ekki blekkja þeir enskumælandi
menn á þennan hátt, þeir verða áfram
jafnhallærislegir í eyrum þeirra. Mér
verður í því sambandi, þó það komi
þessu ináli ekki beint við, hugsað til
Kristjáns Jóhannssonar óperusöng-
vara, sem sannarlega hefur fögur
hljóð. Á nýrri metsöluplötu sinni
syngur hann, af einhverjum ástæðum,
ensk dægurlög með ítölskunt hreim!
Um síðustu helgi var opnuð sýn-
ing á stólum eftír Þórdísi Zoéga,
húsgagnahönnuð, í Stöðlakoti við
Bókhlöðustíg 6 í Reykjavík.
Á sýningunni er m.a. frumgerð af
tveimur nýjum stólum sem koma á
inarkað á næstunni. Stólarnir bera
nöfnin Tjaldur og Stelkur og eru eld-
hús- eða kaffihúsastólar, sein Sóló-
húsgögn hf. munu annast framleiðslu
á. Einnig verða til sýnis aðrir stólar
sem Þórdís hefur hannað á undan-
förnum 5 árum og hafa verið í fram-
leiðslu og sölu.
Þórdís Zoéga er fædd í Reykjavík
1955. Hún stundaði nám í hús-
gagna- og innanhússhönnun við
Skolen for Brugskunst og Kun-
stakademiets Arkitektskole í Kaup-
mannahöfn á árunum 1976 til
1981. Hún hefur síðan unnið við
hönnun og rekur nú eigin teikni-
stofu. Þórdís hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga hér á landi og er-
lendis, en sýningin í Stöðlakotí er
fyrsta einkasýning hennar. Mark-
mið sýningarinnar er að vekja at-
hygli á að húsgagnahönnun er list-
iðn og sá þáttur nytjalistar sem
einna mest gróska hefur verið í á
undanförnum árum. Sýningin er
opin alla daga frá kl. 14 til 18 en
henni lýkur 8. maí.
Tjaldur, nýi stállinn eftir Þórdisi
Zoega, sem Sólóhúsgögh eru að hejja
framleiðslu á.
Hjartagátan
Setjið rétta stafi í reitina neðan við krossgátuna. Þeir mynda þá nafh á götu í Reykjavík. - Lausnarorð krossgát-
unnar í síðasta blaði er Viktoría.
r 2 3 3 5- ■ 7 9 0 5
n T / 3- yr 18 /9 Zo ^zl w~
IV 23 13- 13- T' 8 21 10 8 V r 9 l¥ )5 7?
8 'll V ‘2b '2J* 1 W V 3 13- ¥> 21
5 -í 2'í 8 íT W 18 T )/ 10 % W~
T 8 b 20 10 T’ 29 l8 V 29 13 8 2W~
ZH- 8 1 T 29 3 20 2o 2 T~ 30 )í?
23 W~ b 5 s T)W\ T~ 29 3 5 20 3
T~ 0 2<i 3 25 TÖ 3 f 18 3- Jö T~ 23
V 8 '52 3 T s\ )3 23 T 3o íT 3o 3
27 3' )3 ¥ iT 20 3" V 7 11 30 /5" 10 V
g 20 23 20 T 11 lb~ 18 23 5' )3- (VJ'* 8 1
2H- 18 3 32 IO ^ T)'i 23 8 b~ 12
lo <3 1¥ 3 3/ ■5“ ' 3 0 lb (
A = 1
Á = 2
B = 3
D = 4
Ð = 5
E = 6
É = 7
F = 8
G = 9
H = 10
1 = 11
í = 12
J = 13
K = 14
L = 15
M = 16
N = 17
O = 18
Ó = 19
P = 20
R = 21
S = 22
T = 23
U = 24
ú = 25
v = 26
x = 27
Y = 28
Ý = 29
Þ = 30
Æ = 31
Ö = 32