Vikublaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 21
VIKUBLAÐIÐ 29. APRIL 1994
21
Rithöndin
Hefur ánægju af flóknum viðfangsefnum
list að koma á jafnvægi gamals og nýs
Skriftin þín sýnir afar mikið skap og
dlfinningahita, en þú hefur þjálfað
það og náð góðri stjórn á því. Þú ert
jákvæð og framfarasinnuð. Þú hefur á-
nægju af erfiðum og flóknum við-
fangsefnum sem reyna verulega á
heilann. Þér finnst gaman að láta hug-
ann fljúga hátt. Andleg málefni og
listir heilla þig.
Hinsvegar finnst þér trúlega afleitt
að þurfa að fara eftir reglum bg skipu-
lagi. Vinnutíma viltu helst ráða sjálf.
Trassagangur gæti komið til greina
hjá þér. En þú ert skemmtileg per-
sóna, hlý og hugmyndarík. Það gæti
kornið að þér að vera veik fýrir freist-
ingum, en varla er það neitt óhóflegt.
Einhver togstreita virðist vera hjá
þér milli garnals og nýs tíma. Þér virð-
ist þykja öryggi í því að vera nærri
hinu gamla sem þú þekkir en að hinu
leytinu finnst þér nýir straumar heill-
andi.
Þetta er raunar vandamál flestra
nútímamanna, þannig að þú getur
sem best hugsað um málið í stærra
samhengi. Til dæinis sem list. Það er
og ekki sama hvernig til tekst.
Oftast vinnurðu hratt og vel, tengir
mjög vel orsök og afleiðingu og hefur
þar að auki gott lag á börnum. Vel-
gengni þín í lífinu mun trúlega ganga
nokkuð upp og niður, eins og sagt er,
en þú ert sterk og munt alltaf sjá ein-
hver ráð.
Gangi þér vel.
R.S.E.
Steinunn V Óskarsdóttir, frambjóð-
atidi Reykjavíkiirlistans.
Sýning á verkum gesta-
nemenda við MHI
Nú stendur yfir í anddyri Nor-
ræna hússins sýning á verkum
gestanemenda Myndlista- og hand-
íðaskóla Islands. Nemendurnir eru 18
talsins og koma ffá Danmörku, Finn-
landi, Noregi, Svíþjóð, Litháen og
Þýskalandi. Þau hafa öll stundað nám
við MHÍ sem Erasmus og Nordplus
skiptinemar í vetur og sýna örlítið
sýnishorn afþví sem þau hafa verið að
skapa í myndlistarnámi sínu hér á
landi.
Verkin á sýningunni eru mjög fjöl-
breytt og er beitt margvíslegri tækni.
Þarna má sjá olíumálverk, grafi'k,
teikningar, keramík, textíl, innsetn-
ingar o.fl.
Sýningin er opin alla daga frá 9 - 19
nema sunnudaga frá kl. 12 - 19, en
henni lýkur 4. maí.
Bubbi á ferð
um landið
„Awinnuleysið er komið til að
fara“ er yfirskrift tónleikaraðar
Bubha Morthens, en hann hefur
nú lokið fýrri hluta ferðar sinnar
um landið þar sem hann kemur
einn frain með gítarinn sinn. Efir-
isskráin er samsett úr gömlum og
nýjum lögum og er af nógu að
taka. Hann flytur einnig lög af
væntanlegri hljómplötu, sem gefin
verður út með haustinu. Bubhi
hefur nokkrum sinnum ferðast á
þennan hátt um landið og leikið
við góðar undirtektir.
Næstu tónleikar Bubba verða á
Raufarhöfn föstudaginn 29. apríl,
á Ólafsfirði 3. maí, á Dalvík4. maí
og í Sjallanum á Akureyri fimmtu-
daginn 5. maí. Tónleikarnir hefj-
ast allirkl. 21:00
Sviðsljós
Putti, Madda-
mamma og dverg-
arnir kveðja Pjóð-
leikhúsið
Nú fer að fækka sýningum í Þjóð-
leikhúsinu á ævintýraleiknum
Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þor-
steinsson. Skilaboðaskjóðan er ís-
lenskt ævintýraleikrit með söngvum
fyrir börn á öllum aldri og byggir höf-
undurinn verkið á sögupersónum í
vinsælli verðlaunabarnabók sinni með
sama nafni. Þorv'aldur hefur einnig
samið söngtexta í sýningunni, en Jó-
hann G. Jóhannsson samdi tónlistina
og er hljómsveitarstjóri.
I Skilaboðaskjóðunni fáum við að
kynnast öllum þeim merkilegu per-
sónum sem búa í Ævintýraskóginuin,
mannfólki, dvergum, ævintýrapersón-
um, illþýði og tröllum. Aðalpersónan
Putti er mikill draumóraputti sem
þráir það heitast að lenda í alvöru æv-
intýri og hann lætur sér ekki nægja að
dreyma heldur laumast út í skóg að
næturlagi til þess að leita að ævintýri
og honum verður svo sannar-
lega að ósk sinni.
Skilaboðaskjóðan var frum-
sýnd í nóvember sl. og hefur
verið sýnd við miklar vinsæld-
ir. Fyrir skönnnu kom út á
geisladiski tónlistin úr verkinu.
Sýningum á Skilaboðaskjóð-
unni lýkur um iniðjan maí.
Harpa Arnardóttir í hlutverki
Pntta ogjón Stefán Kristjáns-
son sem Dreitill skógardvergur.
Hannes Lárusson með
sýningu í Gerðubergi
Sunnudaginn 1. maíkl. 15:00 opnar
Hannes Lárusson myndlistarsýn-
ingu í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi.
Þessi sýning er sú þriðja í
samhangandi röð sýninga
sem Hannes hefur haldið
undanfarið. A fyrstu sýning-
unni, sem haldin var í janúar á
þessu ári í Gallerí Acadia há-
skólans í Nova Scotia í
Kanada, var gólfið alþakið á-
prentuðum, hvítum kössum.
A sýningu sem hann hélt fyrir
skömmu á kaffihúsinu
Mokka, var loftið þakið þakið
áprentuðum, uppblásnum,
hvítum blöðrum.
A sýningunni í Gerðubergi
verða veggirnir alþaktir áletr-
uðum prófílum. Auk þess að
draga ffam grundvallarfor-
sendur rýmisins, er höfuðvið-
fangsefhi sýningarinnar í
Gerðubergi, eins og hinna
sýninganna, margbreytileiki
sjónskynjunarinnar, einkum
með liti sem útgangspunkt, og félags-
leg og menningarleg frumöfl. Sýning-
unni lýkur 29. maí.
Einleikstón-
leikar
Gerðubergs
Gunnar Kvaran sellóleikari
kemur ffam á fjórðu og síð-
ustu einleikstónleikum Gerðu-
bergs í vetur, laugardaginn 30.
apríl, kl. 17 og leikur Gísli Magn-
ússon á píanó.
Gunnar er kennari við Tónlist-
arskólann í Reykjavík og deildar-
stjóri í strengjadeild skólans.
Hann er meðlimur í Tríó Reykja-
víkur og hefur komið fram sem
einleikari víða um heim.
A efnisskrá tónleikanna eru
bæði einleiksverk sarnin fyrir selló
og fyrir selló og píanó. Á efnis-
skránni má finna verk eftir Henry
Eccles, Beethoven, Gabriél Fauré,
Pabló Vasals og Hafliða Hall-
grímsson, en nýverið flutti Gunn-
ar Kvaran verk Hafliða Hallgríms-
sonar „Solitaire" við góðar undir-
tektir á tónleikum í Wigmore Hall
í London, en verkið er tileinkað
Gunnari.
Blómið
besta
Sýning á verkurn efitir böm að
Kj arvalsstöðum
Laugardaginn 30. apríl verður opn-
uð sýning í vesturforsal Kjarvalsstaða,
sem ber yfirskriftina Blómið besta -
fjölskyldan og lýðveldið. Þetta er sýn-
ing á úrvali verka sem börn í Álfta-
mýrarskóla unnu undir handleiðslu
kennara sinna í tilefhi af ári fjölskyld-
unnar og lýðveldisafmælisins.
Verkin á sýningunni eru unnin í hin
ólíkustu efni. Þarna gefur að líta mál-
verk, en einnig verk unnin í leir, tau,
vír o.fl.
Þessi fjölbreyttu verk sýna á
skenuntilegan hátt ffjótt og óbeislað
ímyndunarafl barnanna, en um leið
ögun í gerð myndverkanna. Verkin
eru eftir börn í flestum árgöngum
skólans frá 1. og upp í 10. bekk.
Sýningin verður opin öllum al-
menningi til sunnudagsins 8. maí.
Tilveran
Vinnu ininni er þannig háttað að
á stundum neyðist ég til að
hlusta á útvarpsstöðvar, sein ég
myndi aldrei gera ef ég væri sjálf-
ráður. Yfirleitt er þetta kvöl og pína
þar sem ég er bjargfastur Gufuað-
dáandi. Þó kemur fyrir einstaka
sinnum að stillt er á stöð þar sem
ekki er einvörðungu gargað. Þannig
hef ég komist að því mér til nokk-
urrar furðu að verslun ein f Kringl-
unni er með þriggja tíma morgun-
þátt á Aðalstöðinni uppá hvern ein-
asta virkan dag. Ef til vill um helgar
líka en þá er ég yfirleitt ekki í vinn-
unni svo mér er ókunnugt um mál-
ið.
Umrædd versiun heitir Betra líf
og morgunþátturinn að sjálfsögðu
líka. Hvorttveggja starfrækt af
konu, sein mér skilst að hafi orðið
heimsfræg á Islandi með því að
halda því fram í þætti hjá Hemma
Gunn að hún væri ineð rass og stolt
af. Gott er að geta glaðst yfir litlu.
En ekki er nú mikið fjallað um rassa
í Betra Iífi, mér heldur til leiðinda.
Þess í stað byrjar prógraminið á því
að konan dregur sér engil. Eg hef
nú ekki komist að því hvernig farið
er að þessu, hvort hún er með töfra-
mannahatt og dregur ræflana upp á
vængjunum í stað kanínanna, sem
að sjálfsögðu eru löngu farnar úr
móð. Eg hef þó frekar grun um að
þetta sé einhvers konar páskaegg
sem hún er með því þeiin engli sem
hún dregur fylgir alltaf eitthvert
spakmæli svona eins og maður fær í
þessum brúnu eggjum. „Oft er kátt
undir kaffiborðum,“ held ég sé það
besta sem ég hef fengið. Konan hef-
ur kannski fengið Mónu til að setja
engla á sín páskaegg í stað þessara
hallærislegu unga og svo rífur hún
eitt í sundur á hverjum morgni, étur
marsipanengilinn og eggið og les
málsháttinn. Engill dagsins. Ein af
ástæðunum fyrir því að mér dettur í
hug að þannig gangi þetta fyrir sig
er að mér skilst að hún hafi játað í
umræddum þætti hjá Hemma að
hún væri eða hefði verið sælgætis-
fíkill. Þá fer þetta nú að verða skilj-
anlegt með rassinn á henni.
En burtséð frá þessu englaáti
tekst henni að draga hina furðuleg-
ustu sérvitringa í þennan hátt og er
þar ekkert heilagt. Eg býð bara eftir
því að Jói á hjólinu og Leibbi dóni
mæti í beina útsendingu. Þá ætla ég
að taka þáttinn upp og spila þegar
ég Ieggst til að deyja.
Grasætur, lófalesarar, miðlar,
furðuhlutaskoðarar, kaffibollalesar-
ar og handayfirlagningameistarar.
Allir mæta þeir í þáttinn Betra líf.
Það iná eiginlega segja að meðal
heilagsandahoppara Islands sé það
álíka bráðnauðsynlegt að rnæta í
Betra Iíf eins og íyrir þá sem hafa
ekkert að segja að koma í Dagsljós.
Ég man sérstaklega eftir einum,
sem hafði lent í þeirri makalausu
Iífsreynslu að eiga samtal við geim-
verur. Merkilegt nokk höfðu ver-
urnar aðallega áhuga á konva á
framfæri þeim skilaboðum að menn
ættu að hafa hundasúrur út á skyrið
sitt. Mér fannst þetta einhvern veg-
in draga aðeins úr trúverðugleika
þeirrar fullyrðingar mannsins að
umræddar geimverur væru á miklu
hærra þroskastigi en venjulegir
jarðarbúar. Ég held að þetta hafi
bara verið einhver agent frá sölu-
samtökum bænda.