Vikublaðið


Vikublaðið - 29.04.1994, Síða 22

Vikublaðið - 29.04.1994, Síða 22
22 Menningin VIKUBLAÐIÐ 29. APRÍL 1994 Norrænir Vísnadagar 1994 hefjast um helgina Dagana 1.-5. maí n.k. munu Vísnavinir, í samvinnu við Norræna húsið, standa fyrir Norrænum Vísnadögum 1994. Þetta er í annað sinn sem Norrænir Vísnadagar eru haldnir, fyrra sinnið var 1992 og voru þeir dagar afar vel heppnaðir. Haldnir verða tónleikar víðsvegar um land í samvinnu Norrænu félag- anna og Vísnavina þar sem fram koma íslenskir tónlistarmenn ásamt gestum Norrænna Vísnadaga sem koma ffá öllum Norðurlöndunum. Opnunartónleikarnir verða í Nor- ræna húsinu 1. maí kl. 16:00. Einnig verða tónleikar á Selfossi þá um kvöldið. 2. maí verða tónleikar í Keflavík og á Akureyri. 3. maí á Akra- nesi, Egilsstöðum og í Norræna hús- inu. Fimmtudaginn 5. maí verða svo lokatónleikar hátíðarinnar í menn- ingarmiðstöð Ilafnarfjarðar, Hafnar- borg. Gestir Norrænna Vísnadaga eru allir starfandi tónlistarmenn sem hafa einbeitt sér að flutningi vísnatónlistar hver með sínu sniði. Thérése Juel og Max Áhman eru fulltrúar Svíþjóðar á Norrænum Vísnadögum. Thérése hefúr bæði fengist við að flytja lög og ljóð annarra sem og sitt eigið efni. Náttúran, lífið og tilveran eru henni oft hugleikin. Ertþu að tapa réttindum? Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðsfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 1993: Almennur lífeyrissjóður iðnaðarmanna Ufeyrissjóður bókagerðarmanna Ufeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar Ufeyrissjóðurinn Hlíf Ufeyrissjóður matreiðslumanna Ufeyrissjóður rajiðnaðarmanna Ufeyrissjóður Sóknar Ufeyrissjóður Suðumesja Ufeyrissjóður verkalýðsfélaga á Suðurlandi Ufeyrissjóður verkstjóra Ufeyrissjóður Vestmannaeyinga Sameinaði lífeyrissjóðurinn Ufeyrissjóður Austurlands Lífeyrissjóður Bolungarvíkur Lífeyríssjóður framreiðslumanna Ufeyríssjóður Norðurlands Ufeyrissjóður sjómanna Lífeyrissjóður starfsfólks í veitingahásum Lífeyrissjóður verkafólks í Grindavík Ufeyrissjóður verksmiðjufólks Ufeyrissjóður Vestfirðinga Lífeyríssjóður Vesturlands FAIR ÞU EKKIYFIRLIT, en dregið hefur verið af iaunum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en 1. maí næstkomandi. Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta ELLILÍFEYRI MAKALÍFEYRI BARNALÍFEYRI ORORKULIFEYRI Gættu réttar þíns I lögum um ábyrgðasjóð launa segir meðal annars: Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu íaun- þegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til við- komandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil, sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunn- ugt um iðgjaldakröfuna. Fyrsta hljómplata hennar „Levande" kom út 1979 og er hún nú að vinna að nýrri plötu. Max Ahman er gítar- leikari sem unnið hefur með Thérése á undanförnum árum. Rod Sinclair er skoskur að uppruna en hefur búið í Danmörku s.l. 25 ár. I tónlist Rods blandast því saman írsk /skoska þjóðlagahefðin og notalega danska vísnatónlistin. Rod hefur kom- ið fram á tónlistarhátíðum um allan heim. Skoski' húmorinn í bland við góða söngrödd og lipran gítarleik fell- ur öllum vel í geð. I fjölda ára hefur Rod staðið fyrir einni virtustu þjóð- lagahátíð Evrópu, Tönder Festivalen. Frá Noregi kemur Sinikka Lag- enland. Llún útskrifaðist frá Tón- listarháskólanum í Osló með cand. mag. gráðu í tónlist, þjóðlögum og þjóðdönsum. Sinikka er af finnsku bergi brotin og leikur á kantele, finnska hörpu og þykir sérlega góð söngkona. Hún hefur sérhæft sig í að blanda saman þjóðlegri tónlist og nýrri vísnatónlist með góðum ár- angri. Mecki Knif kemur frá Turku í Finnlandi. Hann er mikill Islands- vinur, kom hingað fyrst árið 1985. Hann hefur getið sér gott orð víða um heim sem góður söngvari og gítarleikari. Mecki hefur jöffium höndum flutt efúi eftir sjálfan sig og aðra. Tónlistin sem hann flytur er undir áhrifum popp og rokktónlistar en vísnatónlist engu að síður. A undanförnum mánuðum hefur hann unnið að hljóðritunum, sem út koma síðar á árinu. Fulltrúi Færeyja á Norrænum Vísnadögum er Kári Petersen. Kári hefur notið mikilla vinsælda í sínum heimabyggðum um áraraðir. Fyrsta hljómplata hans kom út árið 1972. Þar vakti hann athygli á sér fyrir háðska texta sína. Síðan hefu'r hver platan rekið aðra og sú síðasta kom út árið 1991. Kári hefur verið bú- settur hér á landi undanfarin ár og m.a. komið ffam á vísnakvöldum. Fjölmargir Islendingar taka þátt í Norrænum Vísnadögum. Má þar neftia Hörð Torfason, Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Onnu Pálínu, Gísla Helgason og Herdísi Hall- varðsdóttur, Guðrúnu Gunnars- dóttur og Valgeir Skagfjörð, Gunn- ar Sturlu ffá Akranesi, Jasstríóið Skipað þeim ffá Akureyri, Olaf Þórarinsson (Labba í Glóru), Söng- hópinn Samstillingu, Vísnavini á Egilsstöðum og Þorvald Örn og Heiðu. Hægt er að kaupa „fjöliniða" á þá þrenna tónleika sem haldnir verða á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í Nor- ræna húsinu 1. maí, tónleika Thérése Juel í Norræna húsinu 3. maí og lokatónleikana í Hafnarborg 5. maí. MECKI KNIF .agg.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.