Vikublaðið - 06.05.1994, Qupperneq 5
VIKUBLAÐIÐ 6. MAI 1994
Akranes
11
Ingunn: „Ekkert er betri fjárfesting til lengri tíma en að tryggja að skólarnir okkar skili frá sér nemendum með góða
þekkingu og heilsteyptan persónuleika".
bergi núna þegar hillir undir Hval-
fjarðargöng. Bæta þ#rf samgöngur um
Vesturland og gæta þess að atvinna
við fólksflutninga haldist á Akranesi.
Bryndís: Vöruúrval og verð í versl-
unum á Akranesi er vel samkeppnis-
fært við lægstu verð í Reykjavík og því
ástæða til að auglýsa Akranes sem
verslunarstað fýrir Vesturland. Aukin
verslun í héraði skapar aukna vinnu á
svæðinu.
Sveinn: Samstaða verslunarmanna
og þjónustuaðila hefur auldst upp á
síðkastið og Atakshópurinn hefur
unnið gott starf við kynningu á bæn-
um. Okkar hlutverk er að hlúa að slíku
framtaki.
Aukin ábyrgð sveitarfé-
laga
Næstu misseri mun ábyrgð sveitar-
félaga aukast með því að verkefni sem
hingað til hafa verið á könnu ríkis-
valdsins flytjast yfir á sveitarfélögin.
Akveðið hefur verið að færa rekstur
grunnskóla alfarið yfir til sveitarfélag-
anna og rætt um að málefni fatlaðra
flytjist þangað líka.
Guðbjartur: Styrkur sveitarfélags
felst í þeirri þjónustu sem það veitir
smæstu borgurum sínum. Standist á-
kvarðanir ríkisvaldsins verður rekstur
grunnskólanna hér alfarið í höndum
bæjarins þegar á næsta ári. Þennan til-
flutning þarf að undirbúa mjög vand-
lega og tryggja þarf nægar tekjur til að
hægt verði að reka grunnskólann sam-
kvæmt grunnskólalögum.
Ingunn: Þegar grunnskólinn flyst
til sveitarfélaganna fáum við Akurnes-
ingar gullið tækifæri til að standa að
menntun barna okkar með þeim hætti
sem við teljum best. Við þurfum að
nota þessa breytingu til sóknar í skóla-
málum, til að bæta námsaðstöðu, að-
búnað og kennsluhætti. Ekkert er
betri fjárfesting til lengri tíma en að
tryggja að skólarnir okkar skili ffá sér
nemendum með góða þekkingu og
heilsteyptan persónuleika.
Bryndís: Við eigum því miður enn
langt í land með það að bjóða upp á þá
þjónustu sem nútímasamfélag krefst,
ég nefni í því sambandi einsetinn
skóla og skólamáltíðir. Ilér þarf bær-
inn að marka stefnuna.
Sveinn: Það er hægt að taka undir
með Inga Steinari Gunnlaugssyni
skólastjóra sem benti stjórnmálaflokk-
unum á það að Akranes hefur aldrei
sætt sig við annað en að vera í úrvals-
deild í íþróttum og það á líka að gilda
um frammistöðu okkar í skólamálum.
Það er vandasamt að flytja skólann
yfír á sveitarfélögin og þarf að gera
það af þekkingu.
Guðbjartur: Ekki má gleyma leik-
skólunum. A næsta kjörtíntabili þurf-
um við einnig að byggja þriggja deilda
leikskóla í stað Akrasels og bjóða upp
á leikskólapláss fyrir börn frá eins árs
aldri.
íþróttir fyrir alla
Akranes hefur orð á sér fyrir að v&ra
íþróttabær og nýlega var gagnmerkur
samningur undirritaður milli Iþrótta-
bandalagsins og bæjarins. Samningur-
inn er tdl tíu ára og tekur til feam-
kvæmda, reksturs og samskipta þess-
ara aðila. Einhugur var um samning-
inn í bæjarstjórn og tók Guðbjartur
þátt í gerð hans.
Guðbjartur: Stefna Alþýðubanda-
lagsins er að allir skuli eiga kost á þátt-
töku í íþróttum án tdllits til efnahags.
íþróttir eru í senn mikilvægar í upp-
eldi barna og unglinga og jafnffamt
stuðla þær að betra og ánægjulegra
mannlífi. Við erum ánægð með samn-
inginn við Iþróttabandalagið en engu
að síður eru mörg verkefni óleyst.
Bryndís: Til að mynda er kominn
tími til ljúka ffágangi við sundlaugina
og gjarnan vildi ég sjá þar vatnsrenni-
braut. Iþróttir og félagsstarf unglinga
eru nátengd mál. Þær Svala Hreins-
dóttir og Guðrún Gísladóttir, nemar í
félagsráðgjöf við Háskólann, gerðu
nýlega umfangsmikla könnun á hög-
um unglinga hér á Akranesi og við-
horfum þeirra. I könnuninni eru mik-
Sveinn: „Vonandi komast á fót lítil fyrirtæki í sjávarútvegi sem skapa ný atvinnutækifæri í bænum“.
ilvægar upplýsingar sem vinna þarf úr.
Bærinn þarf að beita sér fyrir nám-
skeiðahaldi fyrir unglinga og skipu-
legri tómstundaiðju. Starfsemina í
Arnardal verðum við að auka og hús-
næðið þarf að stækka og nýta skólana
betur.
Sveinn: Markmið okkar ætti að
vera að búa þannig um hnútana að all-
ir unglingar geti fundið sér þroskandi
og uppbyggileg verkefni við hæfi og
gæta þess að enginn tínist úr hópnum.
Listasafn að Görðum
Nýlega var stofinaður minningar-
sjóður um séra Jón M. Guðjónsson
heiðursborgara bæjarins. Sjóðurinn
hefur að markmiði að byggja listasafn
að Görðum.
Guðbjartur: Lista- og menningar-
málin eru mikilvægur málaflokkur.
Fylgja þarf eftir óskum séra Jóns urn
að reisa hér listasafh. Frarn hefur
komið sú hugmynd að minningar-
sjóðurinn kaupi Kirkjuhvolinn og reki
þar listamiðstöð til að byrja með. Mér
finnst þetta góð huginynd og á
Kirkjuhvolnum gæti Gallerí Grá-
steinn, félag handverkafólks, fengið
aðstöðu og ef til vill fleiri aðilar.
Sveinn: Gott lista- og menningarlíf
gerir bæinn betri að búa í og laðar að
gesti. Söfin af ýmsu tagi eiga ekki síst
þátt í að laða að ferðamenn. Byggða-
safnið gegnir þar mikilvægu hlutverki
og hugmyndir manna um sjávardýra-
safn eru mjög áhugaverðar.
Opnara bæjarfélag
Snemma í vemr sendi Alþýðu-
bandalagið öllum Akurnesingum bréf
þar sem bæjarbúum voru kynnt sjón-
armið flokksins og þeir hvattir til að
taka þátt í því að móta framboð G-
listans.
Sveinn: Viðbrögðin voru rnjög góð
og rnargir sendu okkur skrifleg svör.
Við teljum að brýnt sé að bregðast við
þeirri þróun að bæjaryfirvöld hafa
fjarlægst almenning. Það sýndi sig í
umræðum um stjórnsýsluhúsið í vemr
að fólk hafði ekki fengið að fylgjast
nægilega vel með ákvörðunum bæjar-
yfirvalda.
Ingunn: Okkar hugmyndir ganga
út á það að útvarpað verði ffá bæjar-
stjórnarfundum og að bæjarráðs- og
embættismenn haldi reglulega fundi
með íbúum einstakra hverfa.
Guðbjartur: Tilgangurinn er að
auðvelda aðgang að upplýsingum um
störf og ákvarðanir bæjarstjórnar.
Snar þátmr í miðlun upplýsinga era
bæjarblöð eins og Skagablaðið. Það er
mildl eftirsjá að blaðinu og æskilegt að
slíkur fféttamiðill verði áfram starf-
rækmr. I opnu og lýðræðislegu bæjar-
félagi er miklu líklegra að almenning-
ur taki þátt í því með kjörnum fulltrú-
um að inóta aðstæður sínar og urn-
hverfi. Þannig gerurn við góðan bæ
betri.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Gönguferð fyrir
fjölskylduna
Fimmtudaginn 12. maí,
uppstigningardag.
Hittumst hjá OLÍS-nesti ki. 10.00.
Gönguferð fyrir fjölskylduna;
Kalmansvík, Innsta Vogsnes.
Skoðum útivistarparadís Akurnesinga.
Endað í félagsaðstöðu hestamanna-
félagsins Dreyra.
Grillaðar pylsur og drykkir á staðnum.
Georg V. Janusson og Bjarnfríður Leósdóttir
stjórna ferðinni.
Frambjóðendur heimsækja vinnustaði eftir
því sem tími leyfir.
Vinnustaðir sem óska eftir heimsókn hafi
samband við kosningaskrifstofu í Rein,
s: 11630 eða einhvern frambjóðenda.
Frambjóðendur
Alþýðubandalagið á Akranesi
KOSNINGASKRIFSTOFA
Kosningaskrifstofan í Rein verður opin fyrri hluta maí
mánaðar alla virka daga frá kl. 16.30 - 18.30, laugardaga og
sunnudaga kl. 14-16, mánudagskvöld kl. 20.30 - 22.00
Lítið inn - Kaffi á könnunni.