Vikublaðið


Vikublaðið - 06.05.1994, Side 6

Vikublaðið - 06.05.1994, Side 6
12 VIKUBLAÐIÐ 6. MAI 1994 HARALDUR BÖÐVARSSON HF. STYRKTI ÚTGÁFU PESSA BLAÐS Það þarf bjartsýni til að fara af stað með atvinnurekstur á sam- dráttartímum. Agústa Friðriks- dóttir gerði það upp við sig að það væri annað hvort að hrökkva eða stökkva þegar hún velti fyrir sér að stofna ljósmyndastofu á Akranesi. - Mig langaði til að starfa við þetta og veit að ég hefði nagað mig í hand- arbökin ef ég hefði ekki látið verða af því, segir hún. I félagi við annan ljós- myndara, Guðna Hannesson, opnaði Agústa Myndasmiðjuna við Kirkju- braut 4 fyrir einum mánuði. Ágústa skipar 9. sætið á framboðs- lista Alþýðubandalagsins og segir að hún hafi verið í nokkrum vafa hvort hún ætti að taka sæti á listanum því pólitíska amstrið sé tímafrekt. En hún ákvað að slá tii, bæði vegna þess að henni ieist vel á fólkið á listanum og vildi leggja góðum málum lið. Ágústa nefnir sérstaklega að bæjarfélagið þurfi að vanda til þess þcgar það tekur að sér rekstur grunnskólans. Eiginmaður Ágústu eru Elvar Elí- asson og eiga þau eitt barn. Myndir: Ljósmyndari Vikublaðsins Ólafur Þórðarson Ekkert nöldur, gerum eitthvað Ingólfur Ingólfsson vél- fræðingur ákvað að nóg væri komið af vinnustaðanöldri og ákvað að gefa kost á sér á lista Alþýðubandalagsins fyrir bæjarstjómarkosning- amar. - Víða á vinnustöðum er passívt nöldur og menn láta þar við sitja. Mér fannst kom- inn tími til að gera eitthvað meira og leist best á að starfa með Alþýðubandalaginu. Aðr- ir flokkar eru ekki áhugaverðir vegna þess að þeir hafa lítið upp á að bjóða annað en gaml- ar Iuminur, segir Ingólfur en hann starfar hjá Ilaraldi Böðv- arssyni hf. Ingólfur er í 10. sætj á. h’sta. /VJjiýóubandalags- ins en hann hefur ekki áður tekið sæti á ffamboðslista. - Atvinnuástandið í bæn- um er alveg skelfilegt, heldur Ingólfur áffam, og bæjarfé- lagið hefur verið upptekið af því að halda lífinu í tveim fyrirtækjum, Þorgeiri og Ell- ert og Haferninum. Á meðan eru á þriðja hundrað manna atvinnulausir. Ingólfur, sem verið hefur stjórnarmaður í Sveinafélag- inu, telur það farsælla að bærinn leiti nýrra leiða í at- vinnumálum, til dæmis með því að liðka fyrir stofnun nýrra fyrirtækja sem nýttu sér nálægðina við Reykjavík- urmarkaðinn. Hann sér fyrir sér aukna iðnaðarffam- leiðslu, gjarnan einyrkjabú- skap. Ingólfur er ltvæntur Ragn- heiði Björnsdóttur og þau eiga þrjú börn. Ingólfur Ingólfsson: Atvinnuástandið er skelfilegif. v fu y ? ■ i r Ágústa Friðriksdóttir: Verður að vanda vel til þess þegar bæjarfélagið tekur við rekstri grunnskólans. Að hrökkva eða stökkva Iþróttabandalag Akraness mun gera átak til að efla almenningsíþróttir í kjölfar samnings við bæjaryfir- völd, að sögn Jóns Runólfssonar formanns Iþrótta- bandalagsins. Samningurinn sem var undirritaður milli bæjaryfirvalda og Iþróttabandalagsins þann 12. apríl síðastliðinn skjalfest- ir gagnkvæman skilning íþróttabandalagsins og bæjarins á hlutverki hvors um sig. Þannig orðar Jón þá hugsun sem liggur til grundvallar samningnum sem gildir til 10 ára. - Með samningum viðurkennir íþróttabandalagið rétt hins almenna borgara til að stunda íþróttir og mun gera sitt til að auka hlut almennings í íþróttastarfinu, segir Jón. Forsögu samningsins má rekja til samstarfshóps sem skipuð var fúlltrúum íþróttabandalagsins og bæj- aryfirvalda. Hópurinn skilaði áfangaskýrslu í nóvem- ber sem var lögð til grundvallar við gerð samningsins. - íþróttabandalagið hefur aldrei gert eins viðamik- inn samning, en heildarupphæðin nemur 166 milljón- um króna og felur meðal annars í sér eignaskipti, sagði Jón. Samningurinn við bæinn myndar ramma um í- þróttastarfið næstu tíu árin. Aðrir þættir hafa einnig á- hrif á íþróttalífið. Jón segir það áhyggjuefni að vegna erfiðrar afkomu margra fjölskyldna geti farið svo að börn og unglingar hafi ekki efni á að greiða æfinga- gjöld. Jón Runólfsson: Hef áhyggjur af því að börn hafi ekki efni á að greiða æfingagjöld. Óvissa í fimm ár í dag starfa rúmlega 60 manns hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og EDerts en starfsmennimir voru helmingi ileiri þegar Einar Gísla- son réðst tdl fyrirtækisins árið 1977. Hann segir starfsmennina hafa búið við óvissu um atvinnu sína í 4-5 ár. - Við sjáum fram á að hafa verk- efni fram yfir mitt sumar og það er harla gott miðað við hvernig á- standið hefur verið, segir Einar en hann skipar 13. sæti á lista Alþýðu- bandalagsins. Hann er kvæntur Auði Oskarsdóttur og eiga þau sex börn. A sínum tíma lærði Einar hjá Þorgeiri og Ellert og á sama tíma var þar annar skipasmiður í námi, Jóhann Ársælsson þingmaður. Fyr- ir 30 árum gat engan órað fyrir því að skipasmíðar myndu flytjast úr landi og nánast leggjast af á Íslandi. - Við búum við óeðlilega sam- keppni frá Póllandi. Utgerðarmenn hafa ekki haft efni á að endurnýja skipin og það litla sem unnið er fyrir íslenska flotann er gert í útlöndum, segir Einar. Einar segir áhuga á atvinnu- og sveitarstjórnarmálum hafa valdið því að hann tók sæti á lista Alþýðubanda- lagsins. Einar Gíslason: Samkeppnin frá Póllandi hefur leikið okkur illa. Vil leysa málin í ró og spekt Þráinn Olafsson húsasmiður hjá Sementsverk- smiðjunni segir það hafa verið sárt að horfa upp á að margir góðir vinnufélagar hans misstu vinnuna þeg- ar verksmiðjan fækkaði starfsfólki um áramótin. Um 30 starfsmenn Sementsverksmiðjunnar misstu vinnuna en verksmiðjan sá sér ekki annað fært en að segja upp fólki vegna samdráttar í ffamleiðslu. Útlitið hefur heldur skánað síðustu vik- ur og mánuði og Þráinn gerir sér vonir um að einhverjir starfsmenn verði endurráðnir. Þráinn skipar 8. sæti á lista Alþýðubandalagsins á Akranesi. Hann er kvæntur Helgu Jónu Ársælsdóttur og eiga þau þrjár stúlkur. Þráinn hefur starfað nokkuð fyrir kvennafótboltann og hann er einn stofnenda Þjóts, íþróttafélags fatlaðra. - Þjálfunarkostnaður er orð- inn hár fyrir íþróttafélögin og ég tel að bæjaryfirvöld þurfi að hlaupa undir bagga með þeim. Við hjá Þjóti höfuin notið stuðnings Kiwanis- og Lionsmanna, en það eru um það bil 15-20 manns á öllum aldri sem eru iðkendur, segir Þráinn. Hann segir áhuga á bæjarmálum hafa valdið því að hann ákvað að gefa kost á sér á framboðsiista. Á þessu kjörtímabili hefur Þráinn setið í bygginganefnd. Hann segist vilja leysa ágreiningsmál í ró og spekt og það hafi iðulega tekist í kurteisri bæjarstjórnarpólitíkinni á Akra- nesi. Þráinn Ólafsson: Sárt þegar góðir félagar missa vinnuna. Aukum hlut almenningsíþrótta

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.