Vikublaðið - 27.05.1994, Page 1
Steimmn og
íþróttirnar
Steinunn Valdís Oskarsdóttir
skipar 7. sæti Reykjavíkur-
listans og tjáir sig um íþrótta-
málin, unga fólkið og fleira.
Bls. 3
Norðurlöndin og
Evrópusambandið
Steingrímur J. Sigfusson þing-
maður er bjartsýnn á framtíð
norræns samstarfs þótt
Norðurlöndin tengist ESB
með ólíkum hætti. Bls. 12-13
íhaldið og
forarpyttirnir
Vikublaðið telur áfram upp
helstu spillingar- og klúðurs-
mál meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík. Dæmin
eruorðin33. Bls. 8-9
20. tbl. 3. árg.
27. maí 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Staðan er hnífjöfn -
hvert atkvæði telur
boðslistanna. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur verið að saxa á for-
skot Reykjavíkurlistans síðustu
vikur og mánuði, en sókn Sjálf-
stæðisflokksins virðist hafa
stöðvast og er jafhvel að snúast
við. Utlit er fyrir mjög spenn-
andi kosningu og er altalað að
munurinn verði aðeins nokkur
hundruð eða jafhvel nokkrir
tugir atkvæða.
Vikublaðið hvetur allt fé-
Iagshyggjufólk til að mæta á
kjörstað og tryggja Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur
öruggt sæti í borgarstjóm og
embætti borgarstjóra í meiri-
hlutastjóm Reykjavíkurlist-
ans á komandi kjörtímabili.
X-R
Borgarkerfíð
hyglar stór-
fyrirtækjum
Eimskip, Vífilfell, fslands-
banki og útgefendur DV eru
meðal þeirra aðila sem hafa óá-
talið af hálfu borgaryfirvalda
komist upp með það að snuða
borgarsjóð um tugmilljónir
króna í fasteigna- og bílastæða-
gjöld.
Bygingarnefrid Reykjavíkur-
borgar hefur ekki séð ástæðu til að
bregðast við því að fjársterkir aðil-
ar leggi fram teikningar af bygg-
ingum sem gera ráð fyrir bílastæð-
um til að kornast hjá því að greiða
í bílastæðasjóð borgarinnar, Bíla-
stæðin á teikingum eru síðan tekin
undir aðra starfsemi, svo sem lag-
erpláss.
Meðal þeirra aðila sem hafa
snuðað bílastæðasjóð eru Sveinn
R. Eyjólfsson, útgefandi DV,
vegna byggingar á Faxafeni 9 og
Vífilfell og Islandsbanki vegna
byggingar á Vitastíg 3.
Þá hefúr Eimskip byggt rúm-
lega 20 hús á lóð sinni við Sunda-
höfn á leyfis og borgar því ekld
fasteignagjöld.
Eini fúlltrúi minnihlutans í
byggingarnefúd, Gunnar H.
Gunnarsson, hefúr ítrekað vakið
adiygli á þessum brotum á reglu-
gerðum og lögum. Gunnar hefur
reiknað út að bílastæðasjóður hef-
ur orðið af tæplega 50 inilljónum
króna tekjum vegna vangoldinna
gjalda stórfyrirtækjanna.
Tryggjum Ingibjörgu
Sólrúnu kosningu a morgun
- og betn borg
i % * ú
Síðustu skoðanakannanir
benda til þess að staðan
sé hnííjöfh á milli
Reykjavíkurlistans og Sjálf-
stæðisflokksins nú síðustu
dagana fyrir borgarstjómar-
kosningar. Það þýðir um leið
að hvert einasta atkvæði gildir
og getur skorið úr um það
hvort framboðið nær meiri-
hluta. Hvort Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir verður borgarfull-
trúi og þar með borgarstjóri
eða hvort Þorbergur Aðal-
steinsson kemst inn.
Þegar kannanir Skáís fyrir
Eintak og könnun Félagsvís-
indastofhunar eru skoðaðar
kemur enginn marktækur mun-
ur á afstöðu svarenda til fram-
Sjálfstæðis-
flokkurinn
kroppar af
öldruðum og
öryrkjum
Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra hyggst skerða lífeyris-
greiðslur til aldraðra og öryrkja
um 200 milljónir króna. - Það
er verið að ráðast á þá sem
lægst hafa launin, segir Ólafur
Jónsson formaður Landssam-
bands aldraðra.
Verkalýðshreyfingin taldi sig
hafa samið um óskertar lífeyris-
greiðslur þegar kjarasamningar
voru síðast ffainlengdir en nefnd á
vegum fjármálaráðherra hefúr út-
fært breytingar á greiðslum sem
spara ríkissjóði um 200 milljónir
króna. Að óbreyttu hefðu um 570
milljónir króna verið greiddar í ár
til aldraðra og öryrkja.
Ólafur Jónsson segir að þrátt
fyrir að aldraðir og öyrkjar hafi
notið stuðnings verklýðshreyfing-
arinnar þá virðist ríkisstjórnin og
sérstaklega þó fjármálaráðherra
ætla að skerða kjör lífeyrisþega.
- Fyrirhuguð skerðing er mjög
tilfinnaleg fyrir okkur og það
skýtur skökku við að um leið og
verið er að viðurkenna almennan
bata í efnahagslífinu með ein-
greiðslum tíl launþega þá er ráðist
á kjör aldraða og öryrkja, segir
Ölafur Jónsson.