Vikublaðið


Vikublaðið - 24.06.1994, Side 1

Vikublaðið - 24.06.1994, Side 1
Valdið I búðarlokusamfélagi er þögg- un notuð til að útiloka gagn- rýni á valdakerfið. Af máli Þor- geirs Þorgeirssonar rithöfund- ar má læra um mannréttindi, gagnrýni og búðarlokur. Bls. 3 Velferðin Frámtíð velferðarríkisins var til umræðu á alþjóðlegri ráðstefiiu í Reykjavík um málefni fatl- aðra. Hverjir eru í mestri hættu efvelferðarkerfið hrynur? Bls. 4 - S Stjórnsýslan Sveitarfélögum fækkar og tekjurnar aukast. Geta þau bætt á sig verkefhum og samtímis sinnt félagsþjónustu við atvinnulífið? Bls. 6 - 7 24. tbl. 3. árg. 24. júní 1994 Ritstjóm og afgreiðsla: sími 17500 250 kr. Linkind stjórnvalda í Svalbarðadeilunni Útgerðir og sjómenn eiga skilinn meiri stuðning stjórnvalda en þeir hafa fengið, segir Steingrímur J. Sigfússon Viðbrögð íslenskra stjóm- valda í Svalbarðadeilunni hafa verið mjög linkuleg og ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks til vansa, segir Stein- grímur J. Sigfusson, varaformaður Alþýðubandalagsins. Hann telur málstað Norðmanna veikan og ör- væntingu einkenna aðgerðir þeirra gegn íslenskum skipum á hafsvæð- inu umhverfis Svalbarða. Steingrímur gagnrýnir ríldsstjórn- ina fyrir seinagang en nokkrir sólar- hringar liðu áður en íslensk stjórnvöld brugðust við aðgerðum norsku strandgæslunnar í síðustu viku. Norð- menn skáru á togvíra íslenskra skipa við Svalbarða og höfðu í frammi til- burði til áð sigla á togarana. Islend- ingar hafa ekki viðurkennt forræði Norðmanna yfir hafsv-æðinu um- hverfis Svalbarða en norsk yfirvöld hafa lýst yfir sérstöku fiskverndar- svæði umhverfis eyjuna. - Það er ekki gáfulegt af Norð- mönnum að neita okkur um viðræður og augljóst er að þeir skynja það manna best sjálfir að málstaðurinn sem þeir hafa að verja er mjög veikur, segir Steingrímur. Hann álítur að skeleggur smðning- ur íslenskra stjórnvalda við útgerðar- menn og sjómenn myndi flýta fyrir lausn deilunnar því að Norðmenn spila vitanlega á veikleikamerkin sem þeir sjá hjá Islendingum. - Islenskir ráðherrar vildu stoppa veiðar íslenskra togara í Smugunni í fyrra. Þorsteinn Pásson sjávarútvegs- ráðherra var með tilbúna reglugerð sem bannaði veiðar Islendinga í Smugunni en vegna óljósra réttar- heimilda var horfið frá því að setja reglugerðina. Núna hafa Norðmenn svo gott sem viðurkennt veiðar ís- lendinga í Smugunni með því að þeir eru hættir að amast við þeim. Það eru útgerðir og sjómenn sem hafa drifið þetta áffam en stjórnvöld hafa dregið lappirnar og þarf að leita allt aftur til Viðreisnarstjórnarinnar til að finna viðlíka aumingjadóm, segir Stein- grímur. Hann leggur áherslu á að Islend- ingar eigi að sækja rétt sinn í út- hafsveiðum og vera jafnframt tilbúnir að taka þátt í alþjóðlegum verndarað- gerðum. Steingrímur J. Sigfússon: Þarf að leita allt aftur til Viðreisnarstjórnarinnar til að finna viðlíka aumingjadóm íslenskra stjórnvalda. ASÍ krefst 5-6% kauphækkunar Fastlega er reiknað með því að forystumenn Alþýðusam- bandsins gangi á fund Davíðs Oddssonar forsætisráðherra um eða strax efitír helgi til að kynna honum kröfur sínar um hækkun launa umbjóðenda sinna vegna launaskriðs hjá opinberum starfs- mönnum og bankamönnum. Al- þýðusambandið telur að laun fé- lagsmanna þurfi að hækka um fimm til sex prósent til að forsend- ur þjóðarsáttarsamninganna stand- ist. Alþýðusambandið reiknaði út fyrr í þessum mánuði að laun opinberra starfsmanna hefðu á sl. fjórum árum hækkað um 20,4 prósent, en laun landverkafólks innan ASÍ um 14,6 prósent. Utreikningar þessir voru að vísu með ófullkominni aðferð þar sem sambandinu hefur ekki tekist að fá nánar upplýsingar um breytingu launavísitölunnar eða einstakra liða hennar. Ilefur Hagstofan verið krafin um upplýsingar þar að lútandi, með öðr- um orðum að grundvöllur launavísi- tölunnar verði gerður opinber. Telur ASÍ óverjandi að upplýsingar fáist ekki um samsetningu launavísitölunn- ar og breytingar innan hennar, ekki síst í ljósi þess að þessi ótrausti grunn- ur hefur áhrif á lánskjaravísitöluna, sem mæhr breytingar á fjármagns- kostnaði. Alþýðusambandið hefur einnig fundað með forystu Vinnuveitenda- sambandsins um kröfu sína urn fimm til sex prósenta hækkun launa. Er nú beðið eftir viðbrögðum VSI. Hins vegar hefur Friðrik Sophusson fjár- málaráðherra þegar tjáð sig um út- reikninga ASÍ á launaskriði hjá opin- berum starfsmönnum og hafnað þeim. Upplausn hjá kröt- um eftir afsögn Jóhönnu Mikils taugatitrings gætir nú innan ríkisstjómar- innar en einkum í herbúðum Alþýðuflokksins í kjölfar af- sagnar Jóhönnu Sigurðar- dóttur félagsmálaráðherra. Jóhanna sagði af sér á þriðju- daginn og gerðist það í kjölfar ósigurs hennar í formanns- kjöri gegn Jóni Baldvin Hannibalssyni. Jóhanna hefur sagt að hún verði áfram þingmaður AJþýðu- flokksins en muni hafa óbundn- ar hendur gagnvart málum rík- isstjórnarinnar. Þykir ljóst að staða ríkisstjórnarinnar hafi veikst til muna vegna þessara at- burða. Er þá bæði átt við inn- byrðis styrk stjórnarinnar og ímynd hennar í augum almenn- ings, en persónufylgi Jóhönnu hefur komið stjórninni til góða fram til þessa. I þeirri upplausn og óvissu sem gripið hefur um sig vegna afsagnar Jóhönnu hefur hug- myndinni um haustkosningar skotíð upp sterkar en fyrr. Ekki síst er talið að Sjálfstæðisflokk- urinn kunni að sjá hag sínum best borgið með því að efna til kosninga í haust frekar en í vor. Alþýðuflokkurinn er á hinn bóginn í sárum og þar á bæ ótt- ast menn mjög hugsanlegt sér- framboð Jóhönnu Sigurðar- dóttur eða almennt persónuátök hennar og Jóns Baldvins og ein- stakra ráðherra og þingmanna fýrir prófkjör og kosningar. GALLI: Ekki er hægt að monta sig IVIIKIÐ af útlitinu einu saman í jeppaferðum eða meðal félaga sinna. KOSTUR: Hreint ágætur bíll, sem skilar þér á áfangastað, á sama hátt og dýru jepparnir. LADA SPORT 798.000 kr. ...fjárfes ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.