Vikublaðið - 02.12.1994, Blaðsíða 2
2
VIKUBLAÐIÐ 2. DESEMBER 1994
• Vlkublaðið
LAÐ SEM V I T E R í
Útgefandi: Alþýðubandalagið
Ritstjóri og ábm.: Hildur Jónsdóttir
Blaðamenn: Páll Vilhjálmsson, Friðrik Pór Guðmundsson
og Ólafur Þórðarson
Auglýsingasími: (91)-813200 - Fax: (91)-678461
Ritstjórn og afgreiðsla:
Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík
Sími á ritstjórn: (91)-17500 - Fax: 17599
Útlit og umbrot: Leturval
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja hf.
Hugmyndafrumkvæði ASÍ
og Alþýðubandalagsins
Margir eru þeirrar skoðunar að veikasti hlekkurinn í íslensku
þjóðlífi sé stefnumótun flokka, fyrirtækja, skóla, stofiiana og sam-
taka. Sem betur fer er nú að komast til áhrifa kynslóð sem hefur
burði og vilja til þess að takast á við verkefni af þessu tagi. Við sjá-
um það gerast í nokkrum stórum sjávarútvegsíyrirtækjum, innan
veggja Háskóla íslands og í vegum samtaka atvinnulífsins, sér-
staklega Alþýðusambands Islands. Stjórnmálaflokkar landsins
eru í þessu samhengi sakaðir mn að vera hugmyndalausar hags-
munabræðslur. Alþýðubandalagið hefur rifið sig upp úr hug-
myndadoða flokkanna á þessu kjörtímabili með því að leggja
fram tillögu- og aðgerðasafn í Grænu bókinni undir samheitinu
Utflutningsleiðin.
Alþýðusamband íslands kynnir um þessar mundir framtíðarsýn
í efhahags-, atvinnu- og kjaramálum sem hefur fengið yfirskrift-
ina Atvinnustefna til nýrrar aldar. Hér er um að ræða merka
stefnumótun. Þar er málflutningi ffjálshyggjupostula og atvinnu-
rekenda um að ósveigjanlegur vinnumarkaður, réttindi atvinnu-
lausra og há laun séu orsök viðvarandi atvinnuleysis afdráttarlaust
hafhað. Þeirri leið út úr vandanum að fjölga störfum með því að
lækka laun niður fyrir ffamfærslumörk eins og gert hefur verið í
Bandaríkjunum og reynt er að gera hérlendis er einnig vísað á
bug. ASI vill gera grúndvallarbreytingu á þeirri efnahagslegu
þróunarstefhu sem hér hefur verið ráðandi. I stað þess að ffam-
leiða vöru sem býður upp á illa launuð störf og lágt verð á mörk-
uðum verði lögð höfuðáhersla á að ffamleiða útflutningsvöru
með mun hærra virðisaukastigi en tíðkast hefur. Og ASI bendir á
hvaða aðferðir þarf að nota til þess að ná þessu markmiði og
tryggja hér fulla atvinnu og góð lífskjör.
I ffamtíðarsýn ASI er mikill samhljómur með þeirri greiningu
sem gerð er í Utflutningsleið Alþýðubandalagsins og þeirri að-
gerðaáædun sem hún gerir ráð fyrir. ASI greinir stefnumarkandi
svið sem leggja beri sérstaka áherslu á næstu árin og leit að sókn-
armöguleikum á nýjum sviðum. Alþýðubandalagið talar um
sóknarlínur í atvinnu- og útflutningsmálum sem stjófnvöld,
hagsmunasamtök og stjómendur útflumingsfyrirtækja bindist
samtökum um að fylgja ákveðið tímabil.
Alþýðubandalagið hafði ffumkvæði að því nú í haust að leggja
til sjö milljarða króna tilfærslu til heimilanna til þess að koma í
veg fyrir yfirvofandi gjaldþrot hjá þúsundum fjölskyldna. I þeim
tillögum er meðal annars gert ráð fyrir Björgunarsjóði húsnæðis-
mála sem rétta á hlut þeirra sem hafa farið illa út úr viðskiptum
við hið opinbera húsbréfa- og húsnæðislánakerfi. Það er athygl-
isvert að Kvennalistinn, Framsóknarflokkurinn og Þjóðvaki hafa
nánast ekki gert annað á þingum sínum en að víkja til orðalagi á
tillögum Alþýðubandalagsins um tilfærslur til heimilanna.
I þessu sambandi er það ekki nema ánægjulegt að „ljósritunar-
flokkamir11 í stjómarandstöðu fari að góðu fordæmi Alþýðu-
bandalagsins. Hitt er verra að tillögur þeirra em í litlu samhengi
við vel grundaða framtíðarsýn eða útfærðar hugmyndir um
stjómvaldsaðgerðir á næsta kjörtímabili.
Tillögur Alþýðubandalagsins um tilfærslur til heimilanna era
hinsvegar í fullu samræmi við það stjómarprógram sem ffam
kemur í Grænu bókinni og rúmast innan ramma skynsamlegrar
hagstjómar. Því til viðbótar var á síðasta miðstjómarfundi lagt
ffam viðamikið hugmyndasafh um endurskipulagningu ríkisút-
gjalda og opinberrar fjármálasýslu. Þannig er ekki tjaldað til
einnar nætur í tillögusafhi flokksins heldur er um að ræða mark-
vissan undirbúning að því að stjórna þjóðfélaginu ef kjósendur
veita til þess trúnað.
I nútíma þjóðfélagi verður það æ mikilvægara hverjir ráða dag-
skrá þjóðfélagsumræðunnar og hvaða viðfangsefhi og vandamál
era þar í forgranni. Alþýðusamband Islands er að ná til sín hug-
myndaframkvæði með þeirri vinnu sem nú er verið að kynna.
Það fellur í ffjóan jarðveg sem meðal annars samtök atvinnuveg-
anna, Háskóli íslands, og svo ólíkir aðilar sem Morgunblaðið og
Alþýðubandalagið hafa verið að rækta, hver og einn með sínum
hætti.
Hér er verið að skrifa nýtt stjórnarprógram sem hafa mun áhrif
á hvaða ríkisstjórn sem mynduð verður að kosningum loknum og
vísar á stjóm sem starfað getur í nánum tengslum við Alþýðu-
samband Islands og ffamsækin öfl í atvinnumálum í háskólum
landsins og atvinnulífi.
Pólitízkan
Pólitískt lík í
framboö
Félagarnir Finnur Ingólfsson og
Halldór Ásgrímsson, mennirnir
sem stjórna Framsóknarflokknum,
ætla að byggja upp flokkinn í höf-
uðborginn til að vega upp á móti
fyrirsjáanlegu tapi á landsbyggðinni.
Frambjóðandinn sem valinn var til
að trekkja í Fteykjavík heitir Ólafur
Öm Haraldsson og er fram-
kvæmdastjóri. Eftir að Ólafi var
tryggt annað sætið á lista Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík hefur
komið í Ijós að hann er með hörð-
ustu stuðningsmönnum Sjálfstæð-
isflokksins. Öðmvísi er ekki hægt að
skilja ítrekaðar tilraunir hans til að
komast til metorða í Sjálfstæðis-
flokknum. Pólitízkan greindi frá því
fyrir viku að Ólafur ræddi við Þor-
stein Pálsson sjávarútvegsráð-
herra um framboð fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn á Suðurlancii. Morgunpóst-
urinn fjallar á mánudag um tilraunir
Ólafs til að verða aðstoðarmaður
Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra. Núna þurfa Finnur og Halldór
að útskýra það fyrir höfuðborgarbú-
um hvers vegna þeir ættu að kjósa
sjálfstæðismann í framsóknargæru.
Með því að snikka til nýjasta slag-
orð Framsóknarflokksins er hægt
að búa til hæfilega umgjörð um
framboðið I Reykjavík: Frami í fyrir-
rúmi.
Sáttmálskenningin
Vegir stjórnmálanna eru órannsak-
anlegir. Á stofnfundi Þjóðvaka á
sunnudag flutti ávarp Ásta B.
Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur og formaður Þtoskahjálpar.
Ásta sagði alla menn jafna og að á
hverjum tíma væri í gildi sáttmáli
meðal þegnanna. Þetta er bein til-
vísun í sáttmálskenningu banda-
ríska heimspekingsins John Rawls
sem íslenskur starfsbróðir hans, Vil-
hjálmur Árnason, hefur verið
óþreytandi að kynna mörlandanum
og sérstaklega hefur Vilhjálmur lesið
fyrir heilbrigðisstéttirnar. Sáttmála-
hugsun virðist komin í tízku því að
Halldór Ásgrímsson formaður
Framsóknarflokksins notaði hug-
myndina á flokksþinginu um helg-
ina. Halldór talaði um sáttmála milli
kynslóðanna og yfirvofandi hættu
sem steðjar að honum rétt eins og
formaður Framsóknarflokksins væri
að ávarpa uppreisnargjarna hippa-
æsku. Halldór ætti að kveikja á fatt-
aranum. Sáttmálinn sem er í hættu
er-á milli almennings og stjórnmála-
manna.
Ágúst núllabi
Jonönnu út
Morgunblaðið og baráttumenn fyrir
veiðileyfagjaldi biðu spenntir eftir af-
stöðu Jóhönnu Sigurðardóttur
og Þjóðvaka til veiðileyfagjalds. í
ræðu sinni á sunnudag talaði
Jóhanna um nauðsyn þess að
koma í veg fyrir að forræði auðlind-
arinnar yrði á fárra manna höndum
en hún kom sér ekki til þess að
taka undir hugmyndir um að út-
gerðin borgaði í sameiginlegan sjóð
landsmanna fyrir hagnýtingu fiski-
miðanna. Ágúst Einarsson,
stuðningsmaður Jóhönnu og stór
hluthafi í Granda hf., kom í pontu á
eftir Jóhönnu og var fljótur að draga
út þær litlu vígtennur sem hún sýndi
sægreifunum. Ágúst sagði hóflegt
veiðigjald koma til greina enda rynni
það til útgerðarinnar sjálfrar og yrði
notað til uppbyggingar sjávarút-
vegsins. Sem sagt gervigjald úr ein-
um vasa útgerðarmanna til að setja
beint í hinn.
Villuráfandi
analísa Morgun-
blaösins
í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins
um helgina er miklu púðri eytt í til-
vistarkreppu Alþýðubandalagsins
sem ný stjórnmálasamtök Jó-
hönnu Sigurðardóttur átti að
afhjúpa. Á mánudag kemur skoð-
anakönnun i DV sem sýnir að Jó-
hanna myndi í kosningum hirða átta
þingmenn af Sjálfstæðisflokknum
og sjö af Alþýðuflokknum. Morgun-
blaðið brást enda hart við og í leið-
ara á þriðjudag krafsar blaðið í Jó-
hönnu og stuðningsmenn hennar
fyrir að vera fýlupúkalið. Ekki bein-
línis sterkt hjá Mogga. Bullið er kór-
ónað í dálki Víkverja á miðvikudag
þar sem talað er um að „mikið rót
sé komið á fylgi Alþýðubanda-
lagsins."
QWERTY-greining
á Alþýbuflokknum
Hystería einkennir aðstandendur Al-
þýðuflokksins um þessar mundir og
láir þeim hver sem vill. í Alþýðublað-
inu bregður fyrir gálgahúmor og tal-
að er um að flokkurinn sé kominn
niður í „pilsnerfylgi" og vísað til á-
fengisstyrkleika þessa drykks sem
liggur rétt yfir tveim prósentum.
Pólitízkan mælir með hlutlægri af-
stöðu og leggur til ferli-greiningu
sem er strangvísindaleg athugun á
félagsfyrirbrigðum. (stuttu máli •
byggir greiningin á því að ákvörðun
tekin við tilteknar tæknilegar, félags-
legar eða pólitískar aðstæður veldur
valþröng sem leysist ekki upp þótt
aðstæðurnar breytist. Þessi grein-
ing er stundum nefnd OWERTY í
höfuðið á bókstöfunum sex sem
eru efst á lyklaborði talva. Bók-
stafirnir fengu upphaflega þessa
staðsetningu á lyklaborði ritvéla til
að draga úr innsláttarhraðanum því
að lyklarnir festust saman ef tíðni
innsláttar fór yfir ákveðin mörk. Þótt
ritvélar séu komnar á öskuhaugn-
ana og tölvur teknar við eru QWER-
TY enn á sínum upprunalega stað á
lyklaborðinu því að upphaflega á-
kvörðunin orsakaði valþröng. Val-
þröng Alþýðuflokksins myndaðist
þegar Jón Baldvin Hannibalsson
samdi um ríkisstjórn við Davíð
Oddsson fyrir hálfu fjórða ári. Hlut-
skipti Alþýðuflokksins varð þar með
að búa til hægripólitík í félagi við
Sjálfstæðisflokkinn. Vegna ríkis-
stjórnarþáttöku var flokkurinn utan-
garðs I gerjuninni á vinstri kanti
stjórnmálanna. Það sést best á því
að 30 prósent kjósenda lýsa yfir
stuðningi við Þjóðvaka Jóhönnu
Sigurðardóttur en stefnumáí Þjóð-
vaka eru kratísk útí gegn. Alþýðu-
flokksins bíður hlutskipti ritvélarinn-
ar.