Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 13.02.1960, Síða 1

Frjáls þjóð - 13.02.1960, Síða 1
Efnahagsmálafrumvarp ríkisstjórnarinnar er glæfraspil með tilveru þjóðarinnar Stöðvast togaraútgerðin við nýju bjargráðin? Togaraeigendur hafa þegar tjáð ríkisstjórninni, að útreikn- ingar, sem þeir hafi látið einka- sérfræðinga sína gera, hafi leitt i ljós þá hörmulegu niðurstöðu, að verði bjargráðafrumvarp rikisstjórnarinnar samþykkt, muni tap togaranna árið 1960 verða til muna meira en það var á árinu 1959 með þeim upp- bótum, sem þá voru í gildi. Bera þeir sig stórilla undan þessum bjargráðum og eru ó- mjúkir á manninn. Segja þeir einsýnt, að þeir verði að leggja togurunum ef þeir fái ekki taf- arlaust styrk og nýtt uppbóta- kerfi til viðbótar við gengis- fellinguna. Þó segja þeir, að það dæmi verði enn óleysanlegra, hvernig gera eigi út nýju tog- arana eftir að bjargráðin komi til framkvæmda. Samkvæmt frásögn sjálfs leiðtogans, Ólafs Thors, á síð- asta Varðarfundi, á nýsköp- unartogari að kosta milli 37 og 38 milljónir króna eftir gengis- bi-eytinguna. Nú hlýtur að verða að reikna með, að einhver stór- virkustu fjramleiðslutæki þjóð- arinnar geti skilað hæstu bankavöxtum af því fjármagni, sem í þeim er bundið í þjóð- félagi, sem búa á við „sterkt og heilbrigt efnahagskerfi“. Sam- kvæmt því, sem „Alþýðublaðið hefur hlerað“ eru það 12%. Útgerð nýs togara þyrfti því að reikna með 4.4 milljónum í þennan lið. Auk þess þyi'fti rekstur hans að þola a. m. k. 20% afskrift, þegar 25% er leyfileg. í þennan lið þyrfti því 7,4 milljónir eða í þessa tvo liði samtals 11,8 milljónir. Væri nú reiknað með, að framangreint skip fiskaði bezt allra togara, sem ekki væri ó- sanngjarnt, eða 6000 tonn ári, og fengi 2,40 fyrir kg. upp úv skipi hjá fiskvinnslustöðvunum, sem mun að vísu ofreiknað, og þar að auki væri reiknað með því að 60% kæmu í hlut skips- ins, þegar hlutur sjómannanna væri dreginn frá, þá væru brúttótekjur togarans þó ekki nema 8,6 milljónir króna. Væri þá eftir að greiða nokkrar mill- jónir í olíu, veiðarfæri og ann- an kostnað. Þegar togaraeigendur hafa lagt þessa útreikninga fyrir Ól- af Thors hafa þeir spurt hann, hvernig eigi að gera þá út eftir að „hið nýja efnahagskerfi“ er komið til framkvæmda. Sjálfir hafa þeir aðeins eina lausn á takteinum. Nýjan styrk fyrir togarana, gamla jafnt og nýja, og hann hærri en nokkru sinni fyrr, VEGNA hinna nýju bjargráða. Með t»ví er Ieitast við að hrinda í framkvæmd þeim óskabjargráðum íhaldsaflanna, að gera að engu áratuga kjarabaráttu alþýðunnar, skapa atvinnuleysi og kreppu- ástand og minnka þjóðartekjurnar. i Það er bemlínis viðurkennt af forsvarsmönnum þessara ráðstafana, að mistakist einhver þáttur þeirra jafngildi það hvorki meira né minna en því, að allt hið nýja efnahagskeríi sé hrunið til grunna og þá blasi við ægilegn verðbólga en nokkru sinni fyrr og óvið- ráðanlegt efnahagsöngþveiti. Þrátt fyrir þessa frómu játn- ingu og augljósu staðreynd eru núverandi stjórnarherrar svo kaldrifjaðir og kærulausir um velferð þjóðarinnar, að þeir hika ekki við að leggja út á þessa glæfrabraut, enda þólt hver heilvita maður sjái á augabragði, að ekki aðeins einn, heldur miklu fremur hver og einn af meginþáttum og burðarásum þessa nýja hag- kerfis muni brotna eins og eld- spýtur í þeim átökum, sem ráð- stafanirnar sjálfar beinlínis kalla yfir þjóðfélagið. Kjarni hins nýja kerfis. Það er óumdeilanlega og' ómótmælt kjarni hins nýja Merkilegt rannsóknarefni A síðasta aðalfundi Sölu- miðstöðvar Hraðfrystihús- anna fékk þar til kjörin nefnd í hendur lista yfir aðila, sem áttu inni fé hjá þeirri stofnun og dóttur- fyrirtækjum, og aðila, sem skulduðu þar. Þar kom í ljós, að flest litlu frystihúsin áttu inni stórfé hjá S. H. & Co., en aftur á móti skuld- aði Einar ríki Sigurðsson Sölumiðstöðinni 6 milljónir króna, Tryggingarmiðstöð- inni 1 milljón og Jöklum h.f. stóra fúlgu. Þegar nefndin hafði gluggað í þessi plögg voru þau innkölluð og sáust ekki framar á fundinum Er hetta öllu ómerkara rannsóknarefni en olíumálin o. fl.? Samkvœmt frásögn Ólafs Thors mun hver nýr togari kosta 37 til 38 milljónir kr. eftir gengisfelling- una! Hvernig hefði af- koma nýsköpunar- togaranna orði ð, hefðu þeir kostað upp undir 40 millj- ónir? kerfis að skapa samdrátt í athafnalífi landsins og „hæfi- legt atvinnuleysi", eins og það heitir á máli sérfræðinganna. Nú er það sjónarmið út af fyrir sig, enda margoft rök- stutt af þessu blaði áður, að draga þyrfti saman margvíslega öfugþróun í þessu þjóðfélagi. Fyrst og fremst þyrfti að gera þetta hjá hinu opinbera og koma í veg fyrir þjóðhættulega þenslu, sem þar hefur átt sér stað að undanförnu, en auka á í hinu nýja kerfi í stað þess að minnka. En það er algjörlega ófyr- irgefanlcgt að gera ráðstaf- anir, sem hljóta að hafa í för með sér samdrátt á flest- um sviðum þjóðlífsins, nauð- synlegum sem ónauðsynleg- um, án þess að gera minnstu tilraun til að ganga úr skugga um það, hvort þessar ráðstafanir skapa meiri sam- drátt en ætlazt var til, eða óhæfilegt atvinnuleysi, jafn- vel að dómi talsmanna hins „hæfilega atvinnuleysis“. Yrði sú raunin, væri komið hér slíkt kreppuástand og eymd með tilheyrandi böl- sýni og vonleysi, að spila- borgin hlyti að hrynja af sjálfu sér, ef hún hefði ekki áður beinlínis framkallað þau átök í þjóðfélaginu, sem hefðu liðað hana í sundur. Hvort heldur sem yrði væri tjón þjóðarinnar óbætanlegt um langa framtíð. í Ný skipting þjóðarteknanna. Gengisfelling er í eðli sínu ekkert nema tilfærsla á tekjum milli stétta í þjóðfélaginu. Þegar gengið er fellt og launum alls þorra þjóðfélagsþegnanna hald- ið óbreyttum í krónutölu, eins og nú á að gera með afnámi vísitölukerfisins, gerist ekkert 2> @ Fundkir þjóðvarnar- félaganna Þjóðvarnarfélögin í Reykja- vík héldu ágætan fund í Silfui’- tuglinu á þriðjudagskvöldið um. efnahagsmálin. Framsögumenn voru við- skiptafræðingarnir Bergur Sig- urbjörnsson og Ingimar Jónas- son. Aðrir, sem til máls tóku á fundinum, voru Nikulás Þórðar- son, verkamaður, Kári Arnórs- son, kennari, Leifur Haraldsson, skrifari, Aðalsteinn Davíðsson, stud. mag., og Bjarni Arason, ráðunautur, formaður Þjóðvarn- arflokksins. Fundarstjóri var Bergþór Jóhannsson, formaður Félags ungra þjóðvarnarmanna. Mývetningar skora á Al- þingi að fella „bjargráðin“ Eftirfarandi ályktun hefur blaðinu borizt til birtingar: Almennur sveitarfundur í Skútustaðahreppi, haldinn að Skjólbrekku 4. febr. 1960, mót- mælir harðlega fyrirhuguðum efnahagsaðgerðum ríkisstjórn- arinnar, en í þeim felst yfir 100% gengislækkun, aukinn söluskattur svo hundruðum milljóna skiptir, hækkun vaxta o. s. frv. Fundurinn lítur svo á, að þar sem framleiðsla þjóðarinnar hefur aldrei verið meiri, sem er afleiðing aukinnar tækni o_g framfara, hefði hagur bænda, verkamanna, sjómnana og alls vinnandi fólks átt að batna stór- lega. Með þessum fyrirhuguðu efna- hagsaðgerðum verða kjör al- mennings hins vegar svo frek- lega skert, að varla eru dæmi til. Fundurinn álítur ennfremur, að sú skerðing á kaupgetu al- mennings í bæjunum, sem af aðgerðum þessum leiðir, muni óhjákvæmilega draga úr kaup- um landbúnaðarframleiðslu og bitna ráðstafanir þessar því margfaldlega á stétt bænda. Fundurinn átelur harðlega þau vinnubrögð ríkisstjórnar- innar við undii’búning efna- hagsaðgerða þessara, að hafa engin samráð við fjölmennustu hagsmunasamtök landsmanna, Alþýðusamband íslands og’ Stéttarsamband bænda. Álítur fundurinn, að ýmsar aðrar leiðir hefðu verið færar til lausnar efnahagsmálunum^ sem ekki. hefðu rýrt kjör almennings eins freklega eða aukið dýrtíð, sem nóg var fyrir, en slíkt munu ráðstafanir þessar óhjákvæmi- lega gera. Skorar fundurinn eindi’egið á hið háa Alþingi að fella fram- komið frumvarp ríkisstjórnar- innar um gengisfellingu og fleira.

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.