Frjáls þjóð - 19.03.1960, Side 3
cJ!augarc[áginn 19. Inarz 1960
AFGREIÐSLA:
INGÓLFSSTRÆTI 8
SlMI 19985
PÓSTHÓLF 1419
Útgefandi:
ÞjóÖvarnarfJokkur Islánds.
Ritstjórn annast:
Gils Guðmundsson.
Jón úr Vör Jónsson, ábm.
Framkvæmdarstjóri:
Ingiberg J. Hannesson.
Áskriitargjold kr. 9.00 á mánuði.
árgjald 1960 kr. 108.—.
Félagsprentsmiðjan h.í.
Rétt og
Eigum við von á að heyra útvarp
frá öðrum sólkerfum?
r Tndanfarnar vikur hefur
^ enginn dagur liðið að
kvöldi án þess að fréttir bær-
ust urn hækkað verð ein-
hverra vörutegunda eða gef-
in væri út tilkynning um
aukið gjald fyrir þjónustu,
sem hið opinbera lætur borg-
urunum í té. Flóðbylgja
verðbólgunnar vex með slík-
urn hraða, að almenningur er
furðu lostinn. Er þó ljóst, að
enn sem komið er hafa menn
aðeins kynnzt fyrstu sýnis-
hornum þeirra verðhækkana,
sem í vændum eru og fram
hljóta að koma eftir að ,,við-
reisnarkerfi“ núverandi rík-
isstjórnar er að fullu komið
til framkvæmda og afleið-
inga þess tekið að gæta hvar-
vetna. Enn eru það aðeins
fvrstu áhrif gengisfellingar-
innar, sem við blasa. Hin gíf-
urlega vaxtahækkun á eftir
að ségja til sín. Og sömu dag-
ana sem almenningur stend-
ur agndofa frammi fyrir
þeirri stórkostlegu verð-
hækkun, sem þegar er skoll-
in ýfir, dregur fjái'málaráð-
herra upp úr tösku sinni
hvert skattafrumvarpið á
fætur öðru, sem óhjákvæmi-
léga leiða til stórfelldrar
dýrtíðai-aukningar ofan á allt
það, sem á undan var komið.
★
gar fjái'lagafrumvarpið
fyrir árið 1960 var lagt
fram í síðara skiptið, var þar
gert ráð fyrir nýjum al-
mennum söluskatti. Hins veg-
ar var þar skýrt fram tekið,
að ekki væri áformað að
breyta gildandi söluskatti á
innflutningi. en hann hefur
numið 7,7% af tollvei'ði allr-
ar innfluttrar vöru.
En nú er nýtt uppi á ten-
ingnum. í stað þess að skatt-
ur þessi sé óbreyttur, hefur
ríkisstjórnin lagt franx frum-
varp, þai; sem svo er fyrir
mælt, að söluskattur á vörum
úr tolli skuli hækka úr 7,7%
í 16,5%. Skatturinn er di'.iúg-
urn meira en tvöfaldaður.
Fjármálaráðherra segir að
visu af fullkomnu blygðun-
ai’leysi, að hér sé aðeins um
tiifærslur á skattheimtu að
ræða, en sú blekkingartilraun
er gei’samlega haldlaus, þar
eð hvert mannsbarn sér, að
hér er um að í’æða nýjar,
stórfelldar álögur til viðbót-
ar við alla þá súpu, sem áð-
ur var á borð borin. Og þó
að ríkisstjórnina hafi skort
hréinskilni til að játa hvers
kyns er, hafa aðrir fundið
skýringu á þessu fyrirbæri:
Þai’na á að næla í 100 millj-
ónirnar, sem gleymdust við
útreikning ,,viðreisnai’dæm-
isins“, og nokkra milljóna-
tugi í viðbót. Trúlega þykir
stjórninni allur vai'inn góð-
ur, ef fleiri reikningsskekkj-
ur skyldu koma í ljós.
rangt
/^Wg' • svo er það hinn nýi
3% söluskattur, sein á-
kveðið er að leggja á öll við-
skipti ,,á síðasta stigi“, þ. ,e.
á verð erlendi’ar vöru, sölu
innlendrar vöru, vinnu og
þjónustu. Þennan skatt á fólk
að greiða af nálega öllu, sem
það kaupir, þar á meðal .því,
sem þjóðin framleiðir sér til
matar, svo sem kjöt, fisk og
mjólkurvörur. Nýmjólk ein
er undanskilin.
Það er deginum Ijósara, að
þessi skattheimtuaðfei’ð er
einhver hin versta, sem til
er. Jafnvel þótt varið yi'ði
af opinberri hálfu stórfé og
íniklum mannafla til eftirlits
og umsjónar með innheimtu
skattsins, kæmi það aldi’ei að
fullu gagni. Reynslan hefur
hvarvetna sýnt, að veruleg-
ur hluti sliks skatts kemst
aldrei á leiðarenda. Skatt-
heimtuaðferðin hefur þann
stóra annmai'ka, að hún
freistar til undanbragða, og
er hætt við, að helzt til marg-
ir láti undan þeirri freist-
ingu, þar sem næsta litlu
eftirliti verður við komið.
★
TT'nginn hefur lýst göllum
þessarar skattheimtuað-
fei’ðar greinilegar í stuttu
máli en Gylfi Þ. Gíslason,
núverandi viðskiptamálaráð-
herra. Þau ummæli féllu á
alþingi 1953, þegar rætt var
um sams konar söluskatt,
sem þó var ekki nándar
næi’i'i eins víðtækur og skatt-
ur þessi er. Ef til vill bregð-
ur fátt skærari birtu á það, á
hverja refilstigu íhaldsins
Alþýðuflokkurinn er nú
korninn, en samanburður á
oi'ðum Gylfa þá og verkum
í’íkisstjói’nar Aiþýðuflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins
nú.
Árið 1953 mælti Gylfi á
þesa leið:
„Við þetta allt saman bæt-
ist svo, að söluskatturinn er
í eðli sínu ranglátur. Það er
einhver ranglátasti skattur,
sem lagður hefur verið á af
islenzka löggjafanum. Fram-
kvæmdin á söluskattsinn-
heimtunni hefur og verið
þannig, að á því er enginn
vafi, að enginn skattur hefur
verið jafn stói’kostlega svik-
inn og söluskatturinn. Það
er ekki aðeins ríkissjóður,
sem tekur inn mikið fé í
skjóli þessara lagaákvæða
um söluskattinn, heldur taka
ýmiss konar atvinnurekend-
ur einnig inn stórfé í skjóli
þessara ákvæða. Það er auð-
velt að svíkja tekjuskatt fyr-
ir þá, sem hafa stórfelldan
atvinnurekstur með hönd-
um. En það er margfalt auð-
veldara að svíkja söluskatt.
Það er jafn opinbert leyndai'-
mál og skattsvikin í tekju-
Hér á íslandi heyi'ist ekki í
útvai’psstöð þjóðarinnar á milli
landshorna, og mikil tormerki
virðast á að bæta þar nokkuð
úr.
f eftirfarandi gi'ein segir frá
því, að reynt er að heyra út-
vai’pssendingar, sem ekki er
einu sinni vitað, hvort nokkrar
eru.
Spurningin um líf á öðrum
hnöttum kitlar forvitni rnargra,
og hefur reyndar lengi gert.
Ekki skal um það sagt, hvoi’t
svar muni fást við henni á
næstunni, en svo mikið er víst,
að hópur vísindamanna í
Bandaríkjunum mun á þessu
ári gera alvarlega tilraun til
að leysa þessa gátu. Og þeir
munu ekki velta vöngum yfir
því, hvort einhvei’jir burknar
eða mosi vaxi á Marz, heldur
mun athygli þeirra beinast að
öðrum sólkerfum, og þar verð-
ur leitað að háþróaðri tækni-
menningu, ekki síðri þeirri,
sem búið er við hér á jörðinni.
Tilvera slíkra menningarvera
er eftir öllum líkum að dæma
mjög sennileg. í þeim aragrúa
sólkerfa, sem þyrlast um geim-
inn,. er fjöldi af jarðstjörnum,
þar sem skilyrði til lífs eru
mjög svipuð og hér hjá okkur.
Og þótt enginn viti, hvaða sér-
stökum skilyrðum þarf að full-
nægja til þess að kveikt verði
hið fyrsta líf, er samt engin
sanngirni að ætla, að slíkt hafi
hvergi gerzt nema á jörðinni.
Auðvitað er ekki víst, þótt
um líf sé að ræða, að þróun
þess hafi orðið allsstaðar eins,
en vel má þó búast við, að ein-
hversstaðar hafi framvinda þess
orðið svipuð og við þekkjum.
Að öllu þessu athuguðu þykir
sem sagt ómaksins vert að
hefja leit að einhverskonar
mann- eða að minnstakosti
vitsmunaverum, og leit þessa á
að framkvæma á þann hátt, að
hlustað verður eftir útvarps-
sendingum utan úr geimnum;
sem sagt búizt við því, að þar
séu einhverjir, sem sendi út
,,dagskrár“ í því skyni að ná
sambandi við ,,umheiminn“.
í þessu skyni verður stefnu-
loftnetum radíóstjörnusjárinn-
ar í Green Bank í Bandaríkj-
unum beint að þeim sólkerfum,
sem næst okkur eru (fjarlægð
um 11 ljósár, eða umreiknað í
skattinum, að þau eru gífur-
leg í söluskattinum."
Nú stendur Alþýðuflokk-
ui'inn ásamt Sjálfstæðis-
flokknum að frumvarpi um
söluskatt, sem er miklu stór-
kostlegri og víðfeðmari en
fyrri söluskattar, sem hér
hafa verið á lagðir. Fátt sýn-
ir betur en þetta dæmi, hve
langt er nú gengið í skattpín-
ingu, þegar gripið er til þess
ráðs að demba yfir þjóðina,
auk gengisfellingai; og vaxta-
hækkana, „ranglátasta skatt-
inum, sem lagður hefur verið
á af íslenzka löggjafanum.“
venjulegar mælieiningar um ]
104.068.800.000.000 kílómetra),
og síðan hlustað hvort nokkur
þau merki heyrist, er tilkomin
gætu verið fyrir tilstuðlan
mannvera.
Nú er auðvitað erfitt að
fylgjast þannig með öllu þvi
bylgjusviði, sem til greina gæti
komíð, og það væri því til mik-
ils hægðarauka, ef unnt væri
að geta sér til um hvaða tíðni
eða bylgjulengd yrði notuð til
slíkra útsendinga. Hætt er við,
að fiestum þætti hér vandast
getan, en það merkilega er, að
þeir, sem að þessari tilraun
standa, hafa ákveðið að hlusta
aðeins á einni tiðni. Þessi tíðni
er 1.420 kílórið á sekúndu
(bylgjulengd um 21 cm), og
hefur hún orðið fyrir valinu
vegna þess að útvarpsbylgjur
með þessari tíðni eru taldar
eiga sérlega auðvelt með að
komast áfram í rúminu milli
stjarnanna. Stafar það af því,
að vetni, sem mest ber á
allra efna í hinu oft ranglega
nefnda „tóma“ rúmi, sendir
frá sér og endurvarpar sérlega
vel bylgjum af þessari tíðni.
Hafi hinir væntanlegu kunn-
ingjar okkar handan ,,tómsins“
á annað borð yfir að ráða tækni
til að senda útvarpsskeyti,
hljóta þeir einnig að hafa kom-
izt að þessum eiginleika vetnis-
ins.
Þegar tíðnin, sem hlustað skal
á, hefur verið ákveðin, er vissu-
lega stór vandi leystur, en þó
er annar eftir næsturn eins
slæmur og hann er sá, að þekkja
í sundur send skeyti og svo
truflanir, meðal annars frá
geimgeislum.
Við jarðneskar útvarpssend-
ingar er senditíðni stöðvarinn-
ar mótuð með lágtíðni sveiflum,
svo sem tali, tónlist, eða því
um líku, eða hún er rofin
kerfisbundið eins og í morse-
sendingum, en sá, sem þekkir
morse-kerfið, getur skilið
skeytið.
Sennilega verður lukkan að
ráða því hvort hugsanlegt mót-
tekið skeyti skilst; það eitt er
víst, að enginn getur gizkað á,
hvernig það muni hljóða. Það
verður áreiðanlega ekkert CQ
eða SOS.
Okkur þykja loftskeyti fljót í
förum, enda má segja, að þau
fari á augabragði milli fjarlæg-
ustu staða á jörðinni. En þegar
farið er að telja vegalengdina,
sem skeyti þarf að fara, í Ijós-
árum, verður annað uppi á ten-
ingnum. Útvarpsbylgjur berast
með hraða hljóðsins. Það er
um 300.000 km á sek., en það
þýðir, að skeyti, sem heyrt væri
í Green Bank á morgun hefur
lagt af stað frá sendistaðnum
fyrir 11 árum. Og svars við
skeyti sem sent væri af stað nú
frá Green Bank, væri ekki að
vænta fvrr en eftir 22 ár —-
tuttugu og tvö ár.
Það er sem sé eins gott að
erindið sé ekki mjög áríðandi,
og'segja má að fjarskipti með
þessu móti séu ekki fram-
kvæmanleg. Um sinn verður
því að láta nægja að hlusta,
enda þætti það víst nægur
árangur, ef tilraunir þessar
sönnuðu með ótvíræðum hætti,
að einhverskonar lífi sé lifað
úti í geimnum.
S. V. R.
Frá og með 15. þ.m. verða breytingar á eftirtöldum leiðum
um Strætisvagna Reykjavíkur.
Leið nr. 7 — Sogamýri—Blésugróf.
Ekið verður á leið í bæinn, um Sogaveg og Grensás- !
veg í stað Langholtsvegar og Álfheima.
Leið nr. 8 — Sogamýri—Bústaðaliverfi.
Ekið verður frá Hólmgarði austur Bústaðaveg, Tungu-
veg og vestur Sogaveg í stað Réttarholtsvegar. Við-
komustaðir verða við Bústaðaveg/Ásgarð, Litlagerði
og við Tunguveg/Sogaveg, Sogaveg/Borgargerði.
Leið nr. 18 — Bústaðahverfi Hraðferð.
Ekið suður Réttarholtsveg á Bústaðaveg í stað þess, ,
að áður var ekið um Tunguveg. Viðkomustaðir á \
Réttarhoitsvegi verða við verzlunina og sunnan hita- ,
veitustokksins.
Leið nr. 5 — Skerjafjörður.
Brottfarartími frá Baugsvegi verður eftirleiðis 12 mín.
yfir heila og hálfa tímann að undanskildum fyrstu
2 morgunferðunum á virkum dögum. Þá er strax
ekið til baka.
»
Strætisvagnar Reykjavíkur.
Augiýsið í FRJÁLSRI ÞJÓÐ