Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 18.06.1960, Qupperneq 1

Frjáls þjóð - 18.06.1960, Qupperneq 1
j júní 1960 laugardagur 24. tölublað 9. árgangur Keflavíkitrgangan á sunnudag: Sameinumst um kröfuna: brottför hersins, hlutleysi jslands Eins og skýrt var frá í síðasta blaði, ætla nokkrir hernámsandstæðingar að efna til mótmælagöngu frá Keflavíkurvelli til Reykjavíkur næsta sunnudag. — Óhætt mun að fullyrða að ganga þessi hefur hvarvetna vakið mikla athygli. Hún vekur greinilega hrifningu meðal andstæðinga hersins og þá ekki síður tortryggni og andúð hjá NATO-vinum og öðrum forsvarsmönnum hernámsins. Fjöldi þeirra, sem ætla að ganga, hefur vaxið með hverjum deginum og fyrstu 3 daga sem skrif- stofa Keflavíkurgöngunnar var opin létu yfir hundrað skrá sig til þátttöku. Margir hafa enn ekki ákveðið, hvort þeir ætla að ganga alla leið, en heita má, að hver einasti andstæðingur hersins, sem FRJÁLS ÞJÓÐ hefur náð sambandi við, hafi í hyggju að koma einhvers stað- ar í gonguna. Um fátt mun meira hafa ver- ið rætt síðustu vikuna en Kefla- víkurgönguna, sem -fram fer næstkomandi sunnudag. Ýmsir fylgismenn hernámsins láta tíðum í Ijós undrun sína á þess- ari göngu og spyrja, hvers vegna fólkið ætli að leggja það erfiði á sig að ganga frá Kefla- víkurflugvelli til Reykjavíkur. Spuyningunni vill FRJÁLS ÞJÓÐ svara með þessum orð- um: 1) Keflavíkurgangan verður farin til þess að vekja at- hygli á þeirri staðre.ynd innanlands sem utan, að ís- lenzka þjóðin hefur aldrei samþykkt hernámið og sætt- ir sig ekki við það fremur nú en áður. 2) Keflavíkurgangan sýnir, að þjóðin er að vakna til vit-í undar um tilgangsleysi her- stöðvanna í stríði. hún skil- ur, að í þeim er engin vernd, Lýðveldið 16 ára íslenzka lýðveldið á sextán ára afntæli 17. júní. Myndin er frá Lögbergi við lýðveldistökuna á Þingvöllum 17. júní 1944. Hátíðahöld jýóðhátíðardags-' ins verða með fjölbreyttu sniði nú eins og áður. Hátíðin hefst kl. 13,15 með skrúðgöngum að Austurvelli frá þremur stöðum, Melaskólanum, Skólavörðutorgi og Hlemmtorgi. Kl. 13.55 er há-, tíðiri svo sett af formanni þjóð-! hátáðanefndar, Eiríki Ásgeirs-j syni. Síðan verður gengið í kirkju, þay sem Jón AuðunsJ dómprófastur, predikar, en ein-1 Spjaldið á myndinni stendur við aðallilið Keflavíkurflugvallar. Hér byrjar leigusvæði Banda- ríkjamanna, og héðan verður gengið á sunnudag. söng syngur Guðmundur Jóns- son óperusöngvari. Kl. 14.30 mun svo dr. jur. Þórður Eyjólfsson, forseti Hæstiréttar, leggja blómsveig frá íslenzku þjóðinni að minn- isvarða Jóns Sigurðssonar, en forseti íslands, herra Ásgeir Ás- geirsson verður fjarverandi. Forsætisráðherra, Ólafur Thors, flytur ræðu af svölum Framh. á 7. síðu. að flugvöllur Bandaríkja- manna leiðir fullkomna tor- tímingarhættu yfir meiri hluta þjóðarinnar. 3) Keflavíkurgöngunni er ætl- að að minna á það tjón, sem hernámið hefur þegar vald- ið í þjóðlífi íslendinga. Með því að afsala sér sjálfstæðri stefnu í utanríkismálum, hefur þjóðin glatað pólitísku sjálfstæði. Menningarlegt sjálfstæði þjóðarinnar fer dvínandi í nábýli við herinn, en sú stefna að tengja fjár- hagsafkomu þjóðarinnar hermangi og öðru svindil- braski liefur leitt af sér botnlausa óreiðu í efnahags- lífinu. 4) Með Keflavíkurgöngunni er lögð sérstök áherzla á arf- leifð núlifandi kynslóðar, hlutleysi í hernaðarátökum. Þeir sem bátt taka í göng- unni, telja það eitt sæma ís- lendingum að standa utan við liernaðarbandalög og skipa sér í sveit hlutlausra þjóða til þess að bera sátta-j orð milli stórveldanna og stuðla þannig að friði í heiminum. 5) Með Keflavíkurgöngunni skapast tækifæri til sam-j stöðu meðal "allra hemáms-. andstæðinga, sein þrátt fyr-J ir ósamkomulag um önnur mál taka höndum saman og sýna vilja sinn til að leggja nokkuð á sig í baráttunni fyrir brottför hersins af Is- landi. Verndarar okkar í Hvalfirði Maður nokkur, sem leið átti um Hvalfjörð nýlega, hefur komið -að máli við blaðið og vakið athygh á því, hvernig amerísku dátarnir í Hvalfirði fara að því að vernda íslend- inga. Bandarísku hermennirnir í Hvalfirði búa í bröggum, sem auðvitað eru grænmálaðir í grænu túni til þess að sem minnst beri á þeim úr lofti. En þeir, sem eiga m. a. að njóta verndarinnar, íslendingarnir í hvalstöðinni, búa hins vegar í bröggum, sem eru eldrauðir og blasa móög vel við augum af sjó og úr lofti. Það þarf varla að taka það fram, að í hugsan- legri árás á mannvirki í Hval- firði, yrðu híbýli íslendinganna sundurskotin, en ameríkumenn- irnir slyppu vel, — enda bráð- nauðsynlegt, ef þeim á að takast að verja hundaþúfurnar í kringum Þyril fyrir átroðningi Rússa. fj ÞjóBvamarféSag Reykjavíkur heitir á alla íéiagsmenn sína og aðra bjóðvarnar- menn að styðja eftir megni mótmælagöngu þá gegn hersetunni, sem farin verður n.k. sunnudag. St jórnin.

x

Frjáls þjóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.