Frjáls þjóð - 19.11.1960, Page 1
"\ nóvember 1969
laugardagur
45. tölublað
9. árgangur
Alit fimm húsasmíðameistara:
Samdráttur í byggingariönaöi
Atvinnuleysi yfirvofandi!
FRJÁLS ÞJCÐ hefur leitað álits nqkkurra húsa- Stefán Júiíus Árnason.
smíðameistara um atvinnuhorfur í byggingariðnaðin-
um og spurt hvort atvinnuleysi væri framundan. Allir
reyndust þeir sammála um, að rmkill samdráttur hefði
átt sér stað og margir óttuðust, að nokkurt atvinnu-
leysi yrði eftir nýár. Svör fimm byggingameistara fara
hér á eftir:
Björn Guðmundsson.
Ég ei- nú kannski ekki rétti
maðurinn til þess að svara
þessu. En það er orðið svo dýrt
að byggja. Fólk getur ekki stað-
ið undir því, efnið hefur hækk-
að og vaxtahækkunin segir til
sín. Lánin til húsbygginga eru
aðeins brot af kostnaðinum öll-
um. Það hefur orðið mikill
samdráttur í byggingum og
frekar útlit fyrir atvinnuleysi
eftir hátiðarnar.
Gunnar Gunnarsson.
Útlitið er ekki gott, ekki
glæsilegt. Að vísu er nægilegt
að gera eins og er, en menn eru
frekar svartsýnir. Húsnæðis-
vandræði eru minni núna en oft
áður, og þörfin rekur því ekki
eins mikið á eftir um bygging-
ar. Það eru margir, sem hafa
trygga vinnu fram að nýári, en
eftir það er frekar útlit fyrir
atvinnuleysi.
Magnvis Vigfússon, Mír h.f.
Það er erfitt að svara þessu.
Byggingariðnaðurinn hefur
dregizt saman. en hvers vegna?
— ástæðurnar eru eflaust marg-
ar. Aflabrestur á síldveiðum
hefur skaðað efnahag margra,
einnig þegar vextir hækka, þá
vilja menn vinna verkið á sem
stytztum tíma og bíða- þá frek-
ar til vorsins, þegar hæ'gt er að
vinna lengi á hveiýum degi.
Enn er ekkert atvinnuleysi, en
sennilegt er að það komi upp
úr nýári.
Ég er ekki mjög kunnugur
þessúm málum, en ég held að
byggingariðnaðuJfinn sé að
ganga saman. Ég hef talað við
marga, sem hafa hætt við að
byggja þetta árið, og mér er
sagt, að fáir aí þeim, sem fengu
lóðir núna í ágúst, hafi byrjað.!
Um atvinnuleysið er erfiðara
að segja nokkuð, við verðum að
bíða og sjá til.
Þeir menn, sem liér hafa
sagt álit sitt, vita um hvað
þeir eru að tala. Það vofir
yfir atvinnuleysi í bygging- .
ariðnaðinum. Fjarri fer, að'
útlitið í öðrum atvinnugrein- j
um sé svo gott, að búast megi TIMINN OG VIÐ heitir sjónleikurinn, sem Leikfélag Reykja-
þar við aukinni atvinnu. Rík-! víkur hefur nýlega hafið sýningar á og er eftir enska skáldið
isstjórnin virðist sem sagt | Priestley. Leikurinn hefur fengið mjög góða dóma. — Á mynd-
stefna að því með vaxtaokri inni hér að ofan sjást þær Helga Bachman og Guðrún Ásmunds-
Framh. á 9. síðu. dóttir í hlutverkum sínum.
Stórsmygliö frá New York er ítrekun á kröfunni um:
Rannsókn á innstæðum erlendis!
Þriðja aflið
sigraði
Sigurvegari dönsku þingkosn-
inganna er ótvírætt Axel Lar-
sen og flokkur hans, sósíaliski
þjóðflokkurinn. Axel Larsen
hafði verið foringi kommúnista
í aldarjjjórðung, þegar hann
komst í andstöðu við flokks-
bræður sína og var rekinn úr
flokknum. Hann neitaði að vera
handbendi Moskvu og hlýða fyr-
irskipunum frá rússneskum
kommúniíitum. Flokkurinn, sem
hann stofnaði var þjóðlegur
sósíalistaflokkur, er barðist
gegn vigbunaði og aðild Dana
að Atlantshafsbandalaginu.
Stefna hans er sú, að Dan-
mörk ætti að vera óháð og
hlutlaus í átökum stórveldanna.
Það var þriðja aflið, afl friðar
og afvopnunar, sem sigraði í
dönsku þingkosningunum. Sá
sigur olli ekki aðeins hruni
kommúnistaflokksins, heldur
virðist jþjóðlegi sósíahstaflokk-
urinn hafa fengið um helming
fylgis síns frá borgaraflokkum
og millistéttum. ,
Árni Jónasson.
Atvinnuhorfurnar fara versn-
'andi. Enn er ekki atvinnuleysi,
'en hins-vegar hefur kaupgeta al-1
mennings rýrnað mjög mikið.
Lóðir ganga til baka, fólk verð-
ur að gefast upp, enda er ætlazt
til þess af stjórnarvöldunum, að
hagur fólks versni. Sennilega
verður atvinnuleysi upp úr ný-
árinu.
Undanfarna daga hefur hve'rt skipið af öðru lagzt
að bryggju í Reykjavík hlaðið smyglvarningi frá New
York. Það er hverjum manni augljóst, að hér er um
að ræða meiri verðmæti en svo, að sjómenn geti átt þar
eimr hlut að máli. Stórfynrtæki í Reykjavík eiga þenn-
an varmng og hafa keypt hann fynr eitthvað af þeim
gjaldeyn, sem þau hafa komið undan og geyma í New
York. Ríkisstjórnin verður því tafarlaust að láta rann-
saka allar ínnstæður íslendinga erlendis.
Vafasöm ákvöröun
Meii'ihluti á Alþýðusam-
bandsþingi hefur samþykkt að
neita Verzlunarsambandinu um
inngöngu í samtök sín. — I
Fyrir allmörgum árum sóttu
verzlunarmenn um inngöngu í,
sambandið en var synjað á'
þeirri forsendu, að fyrst yrðu
þeir að koma skipulagsmálum
sínum í viðunandi horf, t. d.
skilja sig frá kaupmannastétt-
inni og stofna hreinræktuð laun-
þegasamtök. Verzlunarmenn
hafa nú gengið að þessum skil-
yrðum í öllum aðalatriðiun og
eiga fuilan rétt á a*5 vera í Al-
þýðusambandinu. Þær ástæð-
ur, sem fram eru bornar til að
koma í veg fyrir aðild verzlun-
armanna að Alþýðusambandinu
eru hreinar tylliástæður og af
pólitískum toga spunnar.
Það er fráleitt að láta það
ráða afstöðunni til inntöku-
beiðni nýrra félaga, hvaða póii-
tískur aðili hefur hag af þeim.
Framkoma meirihlutans á þing-
inu verður enn furðulegri, þeg-
ar tekið er tillit til þess, að
Framh. á bls. 10.
Eftir að dómstóll í New York
hafði skyldað banka þar í borg
til að gefa upp leynireikninga
Vilhjálms Þór og Hauks Hvann-
berg vegna olíumálsins, bar
FRJÁLS ÞJÓÐ fram þá sjálf-j
sögðu kiöfu, að ríkisstjórnin
gengi á lagið og Iéti rannsaka
J bankainnstæður allra íslend-j
‘ inga erlendis. Nú hefur mál
. þetta komizt á nýtt stig, eftir
J að farinn er að berast til Iands-!
ins smyglvarningur fyrir hundr-1
uð þúsunda frá New York með
skipum Eimskipafélagsins.
Samkvæmt upplýsingum
Unnsteins Beck hfá tollgæzl-i
unni er kaupverð þess varnings, I
hlýtur að vera ljóst, að sjó-
mennirnir sem játað hafa á sig
að vera eigendur góssins, eru
í rauninni aðeins flugumenn
smyglarahringa, sem hafa út-
vegað gjaldeyrinn og ætluðu að
sjá um dreifinguna innanlands.
Hins vegar stendur lögregla og
tollgæzla máttvana frammi fyr-
ir glæpahringunum, hefur tak
á nokkrum sjómönnum en get-
ur ekkert aðhafzt.
Það er ríkisstjórnin sem
á næsta leik. Ef hún hefur
einhvern hug á því að halda
Framh. á 9. síðu.
Jóla-
getraunin
er á
8. síöu.
sem búið er að rannsaka um 650
000 kr. ísl. Hverjum manni^