Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 15.02.1968, Page 1

Frjáls þjóð - 15.02.1968, Page 1
IS. FEBRÚAR 1968 — 6. TÖLtJBLAÐ FIMMTUDAGU: Óbreytt verð 10 krónur Hverjir fá inni á barna- heimilum? ÁBURÐARVERKSMIÐJAN STÓRSKAÐAR BÆNDUR Eins og kunnugt er, gilda ákveðnar reglur um rétt fólks til að koma börnum sínum á dagheimili Reyjcjavíkurborg- ar. Þar eiga einstæðar mæður og námsfólk að njóta forgangs réttar fram yfir þá, sem minni þö?f hafa á hjálp barnaheim- ilanna. Stundum berast blað^inu sög ur um, að þessum reglum sé ekki hlýtt, konur, sem litla þörf hafi fyrir, komi börn- um sínum inn á barnaheimil- in, meðan fólk með forgangs- aðstöðu verði að bíða mánuð- um saman. Nú kann ókunnleiki fólks að valda einhverju um slíkar sögur, og skal þeim því ekki treyst að óreyndu. En sé sett- um reglum hlýtt, geta forráða- menn barnaheimila auðveld- lega hreinsað sig af öllum á- Framh á bls. 7. Tvær tillögur um áburðarframleiðsluna á Alþingi í síðasta blaði var þess ósk að, að Alþingi tæki málefni Aburðarverksmiðjunnar til meðferðar hið fyrsta. Sú ósk hefur orið að veruleika meir og fyrr en varði, og er nú komið fram á Alþingi bæði lagafrumvarp og þingsálykt- unartillaga um þetta efni. Frumvarpið er flutt af Magnúsi Kjartanssyni og Lúð vík Jósepssyni. Felur það í sér skýran úrskurð um, að verksmiðjan sé lireint ríkis- fyrirtæki. Eins og kunmigt er, hefur Einar Olgeirsson Jivað eftir annað flutt frum- varp um þetta efni, en Al- þingi hefur ekki fengizt til að samþykkja það, þótt aldrei liafi komið fram nein haldgóð rök gegn því. FlutningSmenn tillögunnar eru ITjalti Haraldsson, Hanni bal Valdimarsson, Karl Guð- jónsson og Steingrímur Páls- son. Boðar tillaga þessi miklu meira nýmæli á þingi en frumvarpið, en hún er á þessa leið: Alþingi ályktar að kjósa 5 manna nefnd til þess að gera tillögu um breytta og bætta tilhögun á framleiðslu og sölu tilbúins áburðar. Skal álit nefndarinnar liggja fyrir innan eins árs, frá því að hún -er kosin. Þóknun nefod-: arinnar greiðist úr ríkissjóði eftir ákvörðun ráðherra. Þá skorar Alþingi á ríkis- stjórnina að hlutast til um, að lög nr. 51 frá 28. jan. 1935, um verzlun með lilbúinn á- burð, verði numin úr gildi liið fyrsta og að innflutning- Hjalti Haraldsson. ur tilbúins áburðar verði gef inn frjáls, þar til niðurstaða er fengin af störfum nefnd- arinnar. í greinargerð tillögunnar er vakin athygli á þeim al- varlega töðubresti, sem bænd ur hafa mátt þola undanfarin ár, og færð rök að því, að það sé að verulegu leyti sök Kjarnaáburðarins. Um þetta segir m. a. í greinargerðinni: Á vegum Tilraunaráðs jarð ræktar hafa verið gerðar sam anburðartilraunir á notkun Kjarna og kalksaltpéhirs sem köfnunarefnisáburðar, miðað við grunnáburð af steinefnum 70 kg af fósforsýru og 100 kg af kalí á ha. Sé lagt til grund- vallar það köfnunarefnis- magn, sem bændur nota að meðaltali á ha., eða rúm 100 kg, kemur í ljós, að uppskeru mismunurinn Kjarnanum í ó- hag verður 9.5 hestburðir af Framh. á bls. 7. HVAÐ GETUM VIÐ LÆRT? V \ Hvað getum við lært af sjó- slysunum, sem orðið liafa liér við land síðustu vikurnar? Um þetta er fjallað í grein á bls. 2—3. Hægri sigur í Framsókn Ekki verður sagt, að róttæk- ari öflum hafi aukizt máttur í Framsóknarflokknum við þau mannaskipti, sem nú hafa orð- ið þar í æðstu stöðum. Ólafur Jóhannesson hefur tekið við af Eysteini, og vonar víst eng- inn, að hann muni leiða flokks forystuna lengra til vinstri en fyrirrennari hans. Þá hafa tveir ungir flokksmenn komið inn í stjórnina, Tómas Árna- son og Einar Ágústsson. Þeir tilheyra báðir hinum reyk- víska hægriarmi flokksins og eru til flestra hluta líklegri en að taka upp róttæka stefnu. Er þetta enn alvarlegra vinstri öflunum fyrir þá sök, að telja má fullvíst, að Einari sé ætluð formennska í flokknum, áður en langur tími líður. Hér í blaðinu var fyrir nokkru rætt um málefni Fram sóknarflokksins, hernámsand- stæðingar og aðrir vinstri- menn innan hans hvattir til að láta meira til sín taka við val í forystuhlutverk. Af fréttum frá miðstjórnarfundinum er ljóst, að þeir hafa ekki orðið við þeirri áskorun. Þeir láta enn hægraliðið í Reykjavík segja fyrir verkum, og það jafnt þótt flokkurinn sé óðum að missa tiltrú og aðdráttar- afl undir forystu þess. Er nú tími til kominn, að vinstrimenn í Framsóknar- flokknum hugleiði, hvers kon ar öflum þeir eru að lyfta til stjórnmálaáhrifa.

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.