Frjáls þjóð - 28.03.1968, Síða 1
FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1968 — 9. TÖLUBLAÐ — 17. ÁRG.
Ánægjuleg tíðindi:
Dr. Kristján Eldjárn í forsetaframboö
MEÐAL EFNIS
UM ÞÝÐINGAR
bls. 4 eftir Heimi Pálsson.
ALMANNAVARNIR -
SÝNDARMENNSKA
eftir Harald Henrísson bls. 6.
AÐ GEFNU TILEFNI
UM KOMMÚNISMA
bls. 3 eftir G.K.
Nú eru ráðin framboð
tveggja manna til forseta-
kjörs, sem fram fer eftir rúma
þrjá mánuði. Annars vegar er
framboð dr. Gunnars Thorodd
sens, sem unnið hefur verið
skipulega að í nokkur ár í
Reykjavík, Bessastöðum og
Kaupmannahöfn og hins veg-
ar framboð dr. Kristjáns Eld-
járns, þjóðminjavarðar, sem
tilkynnti í síðustu viku að
Dr. Kristján Eldjárn
hann myndi gefa kost á sér ga
vegna eindreginna tilmæla jn
fjölda fólks úr öllum stjórn- þ2
málaflokkum, stéttum og þ€
landsfjórðungum. sp
Dr. Gunnar kvartar.
Tilkynning dr. Gunnars
Thoroddsens um framboð birt
ist s.l. föstudag, 22. þ.m. í
viðtali við Morgunblaðið á
laugardag er helzt á honum að
skilja að ódrengilegt hafi ver-
ið af dr. Kristjáni Eldjárn að
tilkynna svo snemma um fram
boð sitt og hefja þar með
kosningabaráttuna. Verður að
telja þetta allmikla hótfyndni
þegar haft er í huga, að skipu-
lögð starfsemi hefur verið í
gangi í marga mánuði til und-
irbúnings framboðs Gunnars
og stuðningsmenn komnir í
hlaupastöðu þegar á nýársdag,
er forsetinn tilkynnti að hann
myndi ekki gefa koát á sér.
Sameiningartákn
Frjáls þjóð vill minna les-
endur sína á forystugrein V
blaðsins hinn 25. janúar s.l.
um val forseta, þar sem bent
var á það, að eigi forseta-
embættið að þjóna þeim til-
gangi sínum að vera samein-
ingartákn þjóðarinnar eigi
það „að standa þrepi ofar
þeim öflum, sem fara með
stjórn ríkisins daglega og vera
því til tryggingar, að þjóðin
njóti jafnan stjórnar, þótt
þingræðisleiðin bregðist af
einhverjum ástæðum. Forseta
embættið þarf að njóta al-
mennrar virðingar þjóðarinn-
Framh. á bls. 7.
Dr. Gunnar Thoroddsen
ER VINNUFRIDUR TRYGGÐUR?
Flestum létti stórJ.cga, þeg-
ar verkfallinu mikla, er tæp-
lega 25 þúsund manns tóku
þátt í, lauk á dögunum. Þó var
gleði allra ekki jafn mikil og
margir verkamcnn urðu fyr-
ir sárum vonbrigðum í sam-
bandi við frágang málsins.
Margir munu telja að mcð
þessum endalyktum hafi
vinnufriður verið tryggður a.
m. k. til næstu áramóta. Eng
ar slíkar skuldbindingar er að
finna í samkomulaginu og
sárafá félög liafa bundna
samninga þannig, að þau geta
flest farið á kreik, ef þeim
sýnist svo, livenær sem er.
Eins og alkunna er, snerist
krafa verkalýðshreyfingarinn-
ar að þessu sinni um fullar
vísitölubætur á laun og var
það lágmarkskrafan eina. Ein-
falt og klárt mál. Rökin næg
og sannfærandi, þegar þess er
gætt, hve hlutur launþega hef
ur rýrnað mikið einungis við
það, að eftirvinna hefur
skroppið saman á síðustu miss
erum og launþegar í hinum
lægri launum geta ekki lifað
sómasamlega á dagvinnutekj-
um sínum. Þessu mikilvæga
atriði virðast menn oft gleyma
þegar þeir ræða þessi má'l, sér
staklega þeir, sem ekki hafa
þurft að berjast fyrir „fjár-
hagslegu lífi sínu,“ þó að ekki
sé talað uni þá, sem sjálfir
skammta sér laun sín.
1/4 fellur algjörlega niðtir
Gert er ráð fyrir að hækk-
un á þessu ári muni nema
10%, vegna verðhækkana, en
niðurstaða samkomulagsins
hljóðaði upp á rúmlega þrjá
fjórðu þessarar hækkunar og
kémur hún í áföngum. Þá
fyrst 1. desember kemur þriðj
ungur hækkunar þeirrar, sem
á sér stað á tímabilinu 1.
febrúar til 1. maí þessa árs.
Þannig fellur niður bóta-
laust fjórði hluti þeirrar
hækkunar, sem skellur á laun
þegum á árinu. Þær vísitölu-
bætur, sem fást koma að fullu
á laun aðeins að upphæð 10
þúsund kr. Á laun að upphæð
16—17 þús. kr. koma verð-
lagsbætur, sem nema helm-
ingi þeirra bóta, sem greidd
eru á 10 þúsund kr. og á laun,
sem eru hærri en 17 þús. kr.
koma engar bætur. Þetta
ásamt nokkrum veigaminni at-
riðum er árangur þessa mikla
verkfalls.
Falleg viljayfirlýsing.
Það væri ómaklegt í þessu
sambandi, að mmnast ekk] á
yfirlýsingu þá. er ríkisstjórn-
in gaf út í tilefm þessá sam-
komulags. Þar er lofað aðgerð-
um til úrbóta í atvinnumálum
o. fl. Falleg viljayfirlýsing,
sem væntanlega reynist betur
í raun en ýmislegt annað, sem
þessi ríkisstjórn hefur farið
höndum um síðustu misseri.
Við bíðum og sjáum til, hverj-
ar efndirnar verða.