Frjáls þjóð - 25.04.1968, Side 1
VERÐUR GERT UT
Á Sí LDVEIÐAR ?
Alþingi sent heim án þess að
reynt sé að leysa vandann
Þegar Alþingi var sent lieim á
dögunum, vegna þess að ráð-
herrarnir voru orðnir málþola
að komast út í lönd, skildi það
við mörg veigamikil mál lítt
leyst eða óleyst með öllu. Eitt
hinna brýnni viðfangsefna, sem
margir töldu víst að Alþingi
íjallaði um áSur en því væri
slitið, voru ráðstafanir til að
tryggja eftir föngum að gert
yrði út á síldveiðar í ár. Síldar-
útgerSin er nú í fullkominni ó-
vissu ,en vafalaust yrði þaS þjóS
arbúinu meira áfall en það
þyldi, ef ekki tekst aS veiSa
BÁTAR í HÖFN
síldina. Þótt yfir vofi, að enginn
bátur hreyfi sig til síldveiða að
öllu óbreyttu, er AÍþingi slitið
án þess að það væri að ráSi
fjalIaS um þetta stórfellda
vandamál, því síSur að það tæki
ákvarSanir um eitt eSa neitt,
sem stuðlað gæti að lausn þess.
Þegar mál liorfðu þannig viS,
að fullkomin óvissa ríkti úm
það, hvort útgerðarmenn treystu
sér til aS gera út á síldveiðar
vegna lélegs verðs á síld til
bræSsIu og gífurlegs kostnaSar
viS sókn á fjarlæg mið, þegar
hæpið var að kleift reyndist aS
fá sjómenn á skipin — undir
slíkum kringumstæðum dettur
ríkisstjórninni í hug að hægt sé
skattleggja saltsíld stórlega
umfram það, sem áður hefur ver
iS gert. Um þetta fórust Gils
Guðmundssyni þannig orS í út-
varpsumræSunum síðastliSinn
fimmtudag:
„Horfurnar á komandi síldar-
vertíS eru því miður ekki góðar.
Hin stóru skip, sem þessar veið-
ar stunda, hafa flest eða öll ver-
ið rekin með stórtapi undan-
Framhald á bls. 7.
Hvenær opna nýju
sundlaugarnar ?
Oft hafa þau reynzt heldur
haldlítil hin hástemmdu loforð
borgarstjórnaríhaldsins í Reykja
vík. Svo reyndist til dæmis lengi
um loforð þess um nýtt og glæsi
legt borgarsjúkrahús, sem enn
er ekki tekiS til starfa að fullu.
Með þaS hefur þó veriS flagg-
aS fyrir 4—5 síðustu borgar-
stjórnarkosningar sem höfuð-
dæmið um umhyggju SjálfstæS
ismanna fyrir heilsugæzlu Reyk
'-•"idnsta.
iNu, pegar vor er komið og
sumar í nánd er ein spurning á-
kaflega áleitin í huga unga fólks
ins í Reykjavík og reyndar allra
sundáhugamanna: Hvenær á að
opna hinar nýju sundlaugar í
Laugardal? Nú eru liðin tvö ár,
hálft kjörtímabil, síðan kosning-
ar fóru fram til borgarstjórnar
Re)’kjavíkur. Þá, eins og oft áS-
ur, var margt fallegt sagt og
mörg loforS gefin. í hinni frægu
bláu bók SjálfstæSismanna, sem
út kom í maí 19fi6 eins og jafn-
an fyrir slíkar kosningar, stóð
þetta m. a.:
„í sumar munu nýju sundlaug
arnar í Laugardal leysa hinar
gömlu af hólmi, sem starfað
hafa óslitið frá 1907. Nýju laug-
amar eru 50x18 m, aðallaugin,
auk þess vaS- og kennslulaug,
nokkrar setlaugar og gufubað.
Yfirbyggt áhorfendasvæði er fyr
ir 2000 gesti og verður það not-
aS fyrir sólskýli. BorgarsjóSur
hefur varið úmlega 25 milljón-
um króna til sundlauganna, sem
verða eitt myndarlegasta mann-
virki sinnar tegundar á NorSur-
löndum.“
Svo mörg voru þau orð. Og
menn gátu líka séS það svart á
hvítu, að hér skyldi ekki staðið
við orðin tóm. Menn unnu
MEÐAL EFNIS
Hverjir mega teikna skip ?
Sjá baksíðu
Ný utanríkisstefna
Sjá ritstjórnargrein bls. 3
Sérfræöingaþörf dreifbýlis
Sjá bls. 4
Turn Hallgrímskirkju teygir sig nú stöðugt lengra til
himins. Þaðan er þessi mynd tekin niður yfir kirkjuskipið
og kórinn. Eins og af myndinni má sjá er mikils vant af
vinnu og fé, áður en kirkjan verður fullgerð. En hvað
sem um þessa byggingu má annars segja verður því ekki
neitað, að hér hafa Reykvíkingar eignast betri útsýnisturn
en áður var til.
þarna dag og nótt við að leggja
síðustu hönd á plóg og allt var
þar á iði. íbúar borgarinnar,
einkum austurhverfa hennar,
hugðu sannarlega gott til glóSar
innar, að komast innan skamms
inn fyrir veggi þessa glæsilega
mannvirkis í stað bárujárnsgirS-
ingar gömlu lauganna frá 1907.
Haldið var mikið mót í lauginni
með pomp og pragt, margar ræS
ur fluttar og margt fallegt sagt.
HVAÐ SVO?
Síðan hefur ekkert gerzt, eSa
hvað? Tvö sumur hafa liSið,
1966 og 1967, án þess aS dyr
hins mikla mannvirkis við Sund
laugaveg hafi verið opnaSar al-
menningi. Laugarnar frá 1907
hafa enn í tvö ár orðið að nægja.
Og nú spyrja vondaufir Reyk-
víkingar: Á sumariS 1968 einnig
að líSa svo að við fáum ekki dif-
iS fæti í nýju laugina, sem átti
að opna sumariS 1966? Er það
kannski ætlun Geirs Hallgríms
sonar og félaga hans aS nota ó-
breytta ofangreinda málsgrein
úr bláu bókinni 1966 við útgáfu
bláu bókarinnar 1970?