Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 11.07.1968, Blaðsíða 7

Frjáls þjóð - 11.07.1968, Blaðsíða 7
forsetakosninganna. Er vant að sjá hvaða erindi slíkar harmtölur éiga í við- tal, en e. t. v. finnst skýr- ingin í eftirfarandi frásögn Einars um fjöl úr Flatar- tungu: . , . „Ég man ekki fyrir víst hvenær ég fann fjölina, en svo var það þegar gamli bærinn var rifinn, líklega 1949 eða 1950, þá finnast tvær útskornar fjalir í bæn um, þær höfðu verið notað- ar í árefti. Ég hafði vitað um aðra þéssa fjöl, því hún hafði verið í rjáfrinu í bað- stofunni og sást, hin sást' ekki fyrr en baðstofan var rifin. Kristjáni Eldjárn þjóð- minjaverði var svo tilkynnt um þennan fund strax, og hann kom von bráðar norð- ur og skoðaði fjalirn-ar og tók þessar tvær nýfundnu, og jafnframt var honum sagt frá fjölinni minni. Ég man ekki hvort hann falað- ist eftir að fá hana líka, en ekki gerði hann það að kappsmáli, enda hefði ég verið ófáanlegur til að láta hana af hendi. Eftir þetta fór ég í vega- vinnu, og meðan ég var f jar verandi, þá kemur Kristj- án Eldjárn aftur að Flata- tungu og telur móður mína á að láta sig hafa fjölina mína. Hún fór í kofortið mitt og tók fjölina og lét hann hafa hana, og hann fór með hana suður. Þar er hún enn í dag. Ég var aldrei beðinn um hana, hún var aðeins tekin frá mér að mér fjarverandi, og mér hefur ekki einu sinni verið þakkað fyrir hana. En það má Kristján Eldjárn eiga, að hann bauð mér seinna á fyrirlestur sinn um fjalirn- ar og ég þáði það. En ég sá mikið eftir fjölinni og var að hugsa um að orðfæra það við Kristján að hann léti mig hafa hana aftur, en taldi við nánari umhugs- un, að það mundi ekki bera árangur. Síðar skrifaði svo Selma Jónsdóttir um þessar fjalir. (Suðurland 6. júlí). Var ríkisstjórnm ? Framh. af bls. 2. þjócS sína á slíkan hátt í sambandi við þýSingar- mikla ákvörðun hennar og fær það svar frá þjócS sinni sem felst í umræddri niður- stöðu forsetakosninganna, þá vaknar sú spurning, getur sá er svarið fékk haldið á- fram að vera forsætisráð- herra. Eru ekki rök fyrir því, aS hann hugleiði þær raddir, sem greindar eru hér acS framan. Það er vitanlega ekki afsökun fyrir forsætis- ráðherrann þótt einhver ann ar rácSherra kasti steinum úr glerhúsi í sambandi viS nefndar forsetakosningar, samanber t. d. þina frægu samlíkingu vicS skipstjóra, sem ekki þekki á áttavitann. Slíkt eykur að sjálfsögðu á- byrgcS forsætisráðherrans, því acS hann ber vissa á- byrgcS á öSrum ráðherrum í rácSuneyti sínu. Neiti þjóðin, ecSa mikill meirihluti hennar, aSvörun- um margra ráSherra sinna, virðist erfitt að sanna, aS Til kaups óskast lítið hús í útjaðri borgar- innar eða nágrenni. ALMENNA FASTEIGNASAUN Höfum til sölu íbúðir af flestum stærðum og gerðum. Tilkynning til vörzlu- manna opinberra sjóða frá Ríkisendurskoðuninni Ríkisendurskoðunin minnir vörzlumenn opinberra sjóða á að senda ársreikninga fyrir árið 1967. Allir þeir, sem enn eiga ósvarað erindum vegna sjóðaeftirlitsins, eru beðnir að gera það sem allra fyrst. viðkomandi ríkisstjórn hafi traust þjóðarinnar. Af þess- um sökum hlýtur ríkisstjórn okkar nú að vera í vanda stödd. ASeins ný traustsyfir lýsing frá þjóSinni getur leyst hana úr slíkum vanda. Reykjavík, 3 .júlí 1968. VerkamaSur. Yfirvofandi hungur Framh. af bls. 1 gerst nema með útrýmingu Biaframanna. Stefnu sem leið- ir til þjóðarmorðs getur engin siðuð þjóð stutt til lengdar. Samvizka heimsins verður að rísa upp gegn markvissri út- rýmingu heillar þjóðar, bjarga milljónum Biaframanna frá hungurdauða og binda enda á styrjöldina. Þetta er því aðeins hægt að allir leggist á eitt. íslendingar mega ekki liggja á liði sínu. Sem betur fer er þegar hafin söfnun á vegum Rauða kross- ins til hjálpar bágstöddum Bi- aframönnum og á laugardag- inn var fóru um 70 tonn af matvælum frá Reykjavík áleið is til Biafra. Við viljum ein- dregið hvetja alla íslendinga til að leggja þessari söfnun lið. Úr víðri veröld Framh. af bls. 2. frá fjórðu hæð og niður. Þeir voru allir með kylfur. Ferðin niSur var hryllileg. Ég reyndi aS vernda vin- stúlku mína eftir mætti. Þeg ar nicSur kom létu þeir okk- ur ganga ac$ lögreglustöS- inni meS hendur á höfSi meSan kylfuhöggunum rigndi yfir okkur. Ég reyndi að fá CRS-mennina til aS hætta aS berja vinstú'lku mína og sagði þeim aS hún væri ekki nema 45 kíló og gæti því augljóslega ekki fleygt götusteinum. Þetta gerði þá bara ennþá ólmari og þeir kölluðu hana ónefn- um og sögSust mundu taka hana í gegn. Á lögreglustöS inni héldu þeir áfram aS berja okkur. Þetta eru aSeins tvö dæmi og alls ekki þau verstu úr þessari bók. ÚTIBÚ ÚTVEGSBANKANS ÚTIBÚ ÚTVEGSBANKANS Álfhólsvegi 1 - Kópavogi Laugavegi 105 - Reykjavík Kostir QfRÓ-pjóoustu fgrlr ftvrt? mtmm Svo einfalt — svo auðvelt — og svo HAGKVÆMT fyrir yður Þ#e sfoftrið I Ótvtgstanfcnnam Leggið þar inn LAUNIN yðar eða hluta af þeim. Þér getið beðið launagreið- anda yðar að gera það. (Gefið honum upp Gíró-númer yðar). ÞÁ ERU LAUNIN KOMIN INN Á REIKNING YÐAR Á ÚTBORGUNARDEGI. Þá getið þér, eða annar, sem þér gefið umboð, gengið að þeim vísum í bankanum og byrjað að ráðstafa þeim að vild. — Og þér fáið VEXTI af innistæðunni. Ekkert mas við talningu eða geymslu peninga —- engin hlaup með ávísanir. Þeir, sem hafa slí'ka fasta reikninga í bankanum að staðaldri, mega vænta MEIRI FYRIRGREIÐSLU en aðrir að öðru jöfnu. ÞÉR GETIÐ: Tekið út peninga til daglegra útgjalda. Beðið bankann að annast allar fastar greiðslur fyrir yður (rafmagn, síma, skatta, húsaleigu, afborganir, trygg- ingagjöld, o. s. frv. — jafn- vel greiðslu VÍXLA í öðrum bönkum! — Þér fyllið að- eins út alLslierjarbeiðni yð- ar yfir þessar útborganir af Gíró-reikningi yðar). 2Engin hlaup. Engin hætta á að lokað verði fyrir raf- magn eða síma! — Engin hætta á dráttarvöxtum, aukakostnaði eða sektum vegna vangreiðslu á ákveðn- um tíma — eða fyrir inni- stæðulausar ávísanir! — ÞÉR LÁTIÐ BANKANN VINNA FYRIR YÐUR! 3 Þér getið lagt afganginn inn á almenna sparisjóðsbók og þannig myndað yður VARA SJÓÐ. — Reynslan sýnir að það verður FREMUR af- gangur hjá þeim, sem nota GÍRÓ-reikninga. Frjáls þjóð — Fimmtudagur 11. júlí 1968 7

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.