Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 15.08.1968, Page 2

Frjáls þjóð - 15.08.1968, Page 2
Hátíðaljóð 1968 Sú niSurstatSa dómnefnd ar í vertSlaunasamkeppni StúdentarátSs un ljóS til söngs á hálfrar aldar afmaeli fullveldis, að ekkert af þeim 39 ljóðum sem bárust hafi verið verðlaunanna vert, hef ur vakið töluverða athygli og jafnvel reitSi manna. ÞjóSin átti erfitt meS aS trúa því, aS skáld hennar gætu ekki sett saman boS- legan ættjarðaróð, verð- launahæfan og fallinn til söngs á fullveldisafmæli, Hér var skömm og hneisa ger þjóS, sem hefur lengi haldið sig vera skáldmælt- ustu þjóS heims, miðaS viS höfSatölu. Og Þóroddur frá Sandi kvartaSi sáran undan illri meSferS á skáldum. Ungur athafnamaður, Sverr- ir Kristinsson, sá sér leik á borði og safnaSi keppnis- IjóSunum til útgáfu; hefur sennilega talið aS IjóS þessi yrðu útgengilegri söluvarn- ingur en títt er um bundiS mál á Islandi, sökum for- vitnisgildis, en yfirlýstur til- gangur útgáfunnar er aS gefa þjóSinni tækifæri til aS leiSrétta úrskurð dóm- nefndar, ef henni þykir á- stæSa til. Tókst að fá 26 af 39 keppnisljóSum til útgáf- unnar, og liggja þau nú fyrir í kveri—HátíSaljóS 1968, 26 óverSlaunuS IjóS — og fylgir meS atkvæSaseðill handa ljóSaunnendum til aS tjá sig um það, hvort þeim þyki eitthvert kvæSi þessarar bókar vert 10.000 króna verSIauna, sem útgef andi kveSst af örlæti sínu reiSubúinn aS greiða úr eig- in vasa, ef vilji einfalds meirihluta fæst. Að bókinni lesinni verð ég þó aS segja, aS þaS yrði aS teljast meiriháttar áfall fyrir skáldskaparsmekk þjóS arinnar ef til þeirrar verS- launaveitingar kæmi. Mér er þaS mjög til efs að gefin hafi veriS út á þessari öld bók meS jafnsamþjöppuðu leirhnoði. Það skal þó tekiS fram þegar í staS aS í bók- ina vantar þau þfjú kvæSi er dómnefnd taldi bezt, þannig aS bókin gefur al- ranga mynd af keppnisljóS- unum. Auk þess vil ég í hin- um almenna dómi yfir Ijóð bókarinnar undanskilja fram lag Þorsteins Valdimarsson- ar, sem er nánast í sérflokki. Sýnir þaS bezt hversu firna- vond hin kvæSin eru, að þetta lítilfjörlega og raunar ómerkilega IjóS Þorsteins skuli svo gersamlega bera af þeim, aS varla er um sam jöfnuð að ræSa. Þó aS leirinn sé allur á eina bók lærSur hvaS gæSi snertir (það er engin leiS að segja hvor stendur framar, flóin eSa lúsin, sagði dr. Johnson), má þó greina hann sundur í nokkrar höf- uStegundir, Fyrst má telja þau IjóS sem einkennast af fullkominni flatneskju, barnalegri ættjarðardýrkun og hinu sérstaka „skáldlega'* orðalagi ættjarSarskálda fyrri tíma. Þau einkennast mjög af hinum klassisku og föstu rímorSasamböndum, ljóð-þjóS, mold-fold, saga- daga, böndum-ströndum o. s. frv. Eitt lítið dæmi af handahófi: Island þú mitt ættarland eyjan björt meS hvíta tinda, girt í hafsins bláa band, blika vötn í grænum linda. I næsta flokki má telja þau ljóð, sem einkennast af ruglandi og kauSaskap, bæSi í málfari, kveSandi og hugsun. Oft á tíSum leggj- ast skáldin svo djúpt í hugs- un sinni að hún verSur með öllu óskiljanleg, eins og t. d. í síSustu línu þessa er- indis: ViS hyllum þig í hundruð ár með hafsins gnægS og prýði, þín svanavötn og silungsár og sólskinsdaga og regnsins tár, húsakostinn, perlur lands og lýSi. Þriðji og síðasti flokkur- inn er sá sem einn gefur þess ari bók nokkurt gildi, en þaS eru ljóð absúrdista, en þeir hafa allmargir lagt skerf til bókarinnar. Umrædd skáld eru auSvitað absúrdistar án þess aS vita af því, en þaS gerir kvæSi þeirra þeim mun skemmtilegri. Ég birti hér örlítiS dæmi af fjölmörgum: Brumar hamingjan heit, þegar hámenntuð sveit flettir handritum þrykktum á skinn. Sem betur fer er ástand íslenzkrar IjóðagerSar ekki alveg eins slæmt og þessi bók gefur til kynna. En eftir stendur, aS skáldum okkar hefur ekki tekizt aS leysa þá þraut aS yrkja viðunandi fullveldisljóð. Vafalaust er samkeppni sem þessi ákaf- lega illa fallin til aS laSa skáld til raunverulegra átaka viS efniS. Strax og minnst er á hátíSarljóð og tækifær- isskáldskap finnst mönnum aS það hljóti aS eiga aS vera virSulegt og gamaldags. Þeir sem aS samkeppninni stóðu hefSu átt aS geta séS þessi ósjálfráSu viðbrögS fyrir og ef til vill hefSi eitthvaS mátt gera til að sporna viS þeim. Að minnsta kosti ætti þessi samkeppni að geta orS iS mönnum víti til varnaSar í framtíSinni. Sverrir Hólmarsson. LANDBÚNAÐARSÝNINGIN í Laugardalnum, er aðeins opin fram á sunnudag. Sýningin er opin frá kl. 10 til 22 daglega. KOMIÐ OG SJÁIÐ STÆRSTU SÝNINGU LANDSINS Leyfið börnunum að fara og skoða eina dýragarð landsins. ATHUGIÐ! Sýningin verður ekki framlengd 2 Frjáls þjóð — Fimmtudagur 15. ágúst 196?

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.