Frjáls þjóð - 29.08.1968, Qupperneq 1
29. ignst 1968.
F4*»mtödagur
26. töfeWað
15. árgangur
NAUDUNGARSAMNINGARÍMOSKVU
Óvís framtíð frjálslyndisstefnu í Tékkóslóvakíu
Þegar þetta er ritað hafa
samningar tekizt með ráða-
mönnum Sovétríkjanna og
Tékkóslóvakíu á fundum
þeirra í Moskvu og allir helztu
leiðtogar Tékkóslóvakíu eru
komnir aftur til Prag. í samn-
ingum þessum virðist helzt
felast að stjórn Cerniks sitji
áfram að völdum óbreytt að
mestu gegn því að hún komi
aftur á ritskoðun í landinu;
herlið innrásarríkjanna verði
flutt burt, en einhverjar rúss-
neskar herdeildir verði stað-
settar við vesturlandamæri
Tékkóslóvakíu.
^ Nauðungarsamningar —
en þó nokkur sigur
Tékkóslóvaka
Hér er vitanlega um nauð-
ungarsamninga að ræða. Eng-
um dettur í hug að stjórnar-
völd Tékkóslóvakíu hafi geng
ið að þessum kostum öðruvísi
en tilneydd. Engum getum
er unnt að leiða að því hvers
konar hótanir Rússar höfðu í
frammi, en einhverjum ógn-
unaraðgerðum hefur vafa-
laust verið hótað. En þó að
Svoboda forseti hafi undirrit-
að samningana 1 fúllri vitund
þess að meðan götum Prag
væri ógnað af rússneskum
skriðdrekum ætti hann ekki
annarra kosta völ, er þó tæp-
lega hægt að ímynda sér að
sovézku valdhafarnir hafi ver
ið ákaflega sigurreifir heldur.
Við vitum að vísu ekki hverj-
ar hugmyndir þeir gerðu sér
um ástandið í Tékkóslóvakíu,
né heldur nákvæmlega hvað
þeir ætluðu sér að gera að
landinu hernumdu. En það
hlýtur að teljast umtalsverður
ósigur fyrir þá að þeim tókst
ekki að koma á annarri stjórn
í landinu. Allar tilraunir
þeirra til þess að fá Tékkó-
slóvaka til þess að setja fylgis-
menn Dubceks af mistókust,
og eins fór um tilraunir þeirra
til að setja á stofn þæga lepp-
stjórn í skjóli herveldis.
Ástæðan fyrir þessum mistök-
um var einfaldlega sú að ekki
fundust nægilega margir dygg
ir þjónar Rússa í landinu til
þess að þetta væri hægt. Rúss
ar hafa að öllum líkindum
vænzt þess að einhver hluti
þjóðarinnar yrði til að fagna
innrásarhernum og ganga til
samstarfs við hann. En sú von
þeirra brást svo rækilega að
um munaði; þjóðir Tékkó-
slóvakíu tóku innrásarhernum
einhuga af ískaldri fyrirlitn-
ingu. Órofa samstaða þjóð-
anna í frelsisbaráttu síðustu
viku færði henni þann sigur,
að Rússum varð ekki fært að
knýja fram breytingar á stjórn
arvöldum landsins.
Rússncskur skriðdreki hrennur fyrir utan útvarpsstöðina í Prag.
£ Kreppt að frelsinu
Ekki má þó á nokkurn hátt
gera of lítið úr því hve alvar-
legir þeir skilmálar sem sett-
ir voru í Moskvusamningnum
eru fyrir áframhaldandi
grósku stjórnmálalífsins í
Tékkóslóvakíu. Grundvöllur
þeirrar öflugu pólitísku vakn-
ingar sem þar hefur orðið á
þessu ári var afnám ritskoðun
ar í landinu. Fólk greip fegins
hendi tækifærið til að fá loks
að segja hug sinn, gagnrýna
þjóðfélagið, fordæma liðið
ranglæti. Pólitísk hugsun, sem
áður var hneppt í helfjötra
hins opinbera marxisma,
Borgarar í Prag reyna að sannfæra innrásarmennina um mistök þeirra.
blómstraði á nýjan leik með-
al fólksins. Þjóðin vaknaði á
ný til þess mikla verkefnis að
hefja Tékkóslóvakíu upp úr
öldudal Novotnystjórnar og
skriffinnskuveldis og skapa
nýtt og betra þjóðfélag.
Ritfrelsið var höfuðmáttar-
stoð þessarar vakningar. Án
þess er hætt við að hún koðni
niður aftur — að minnsta
kosti um stundarsakir. Nú er
að vísu talað um „takmarkaða
ritskoðun“ sem einungis eigi
að koma í veg fyrir skrif gegn
Sovétríkjunum og öðrum
Varsjárbandalagsríkjum. —
Þetta þyrfti ekki að vera al-
varlegt ef þessi ákvæði verða
framkvæmd bókstaflega og ef
enginn rússneskur her verður
í landinu. Nú er hins vegar
svo að skilja af samningunum
að rússneskar herdeildir verði
við vesturlandamæri Tékkó-
slóvakíu. í orði kveðnu verða
þessar herdeildir þarna til
þess að vernda Tékkóslóvakíu
fyrir Vestur-Þýzkalandi. Raun
verulega verða þær þarna til
þess að vernda valdhafana í
Sovétríkjunum fyrir áhrifum
frá frjálslvndisstefnu Tékkó-
slóvaka.
hafa því að baki sér þrýsting
frá rússneskum her í landinu
sjálfu. Hættan liggur í því að
í skjóli hervaldsins gerist slík-
ar stofnanir íhaldssamar og
valdamiklar, og er þá hætt við
að takmarkanir ritskoðunar-
innar við gagnrýni á Sovétrík
in og Varsjárbandalagslöndin
geti farið að teygjast allmikið.
Einnig er hugsanlegt að hin
íhaldssamari öfl í landinu kom
ist til nokkurra áhrifa gegn-
um ritskoðunarapparatið.
Þeim verður það mikill styrk-
ur að hafa að baki sér rúss-
neskan her staddan í landinu
sjálfu, sem hægt verður að
nota í þvingunarskyni ef þörf
þykir. Það er tvennt ólíkt að
beita ógnunum með herliði
sem þegar er fyrir í landinu
eða gera stórinnrás eins og
gert var í vikunni sem leið.
En þó að útlitið sé ekki sér-
lega glæsilegt gæti það þó
verið miklum mun verra, og
auðvitað er engin leið að sjá
fyrir hvað gerast muni í
Tékkóslóvakíu á næstunni.
0 Árangursríkar bardaga-
aðferðir
Við höfum undanfarna viku
séð í glæsilegri og djarflegri
Ritskoðun í skjóli hervalds framkvæmd þær einu bardaga
Þær stofnanir sem settar aðferðír sem smáríki getur
verða upp til þess að sjá -um vonazt til að beita með nokkr-
framkvæmd ritskoðunarinnar j Framh. á bls. 5.