Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 07.11.1968, Síða 1

Frjáls þjóð - 07.11.1968, Síða 1
\ fitób bióft október 1968. FinrnittHÍagnr $5. tökiblað 17. árgangur Alþýðubandalagið gert að stjórnmálaflokki Hannibal Valdimarsson segir af sér formennsku — Ragnar Arnalds kosinn form. Á landsfundi Alþýðubandalagsins, sem lauk s.I. sunnu- dagskvöld, var bandalagið formlega gert að stjórnmálaflokki. Hannibal Valdimarsson sagði af sér formennsku í Alþýðu- bandalaginu daginn sem landsfundurinn hófst, én formaður var í hans stað kjörinn Ragnar Arnalds, lögfræðingur. Vara- formaður var kjörinn Adda Bára Sigfúsdóttir, veðurfræðing ur, en ritari Guðjón Jónsson formaður Rélags járniðnaðar- manna. Landsfundur AlþýSubanda- lagsins, sá annar í röðinni, var settur í Sigtúni kl. 14 á föstu- daginn var. VaraformaSur, Lúðvík Jósef^son, setti fundinn o'g bauS fulltrúa velkomna. Þá var skipaS í kjörbréfanefnd og néfndanefnd, og kannaði kjör- bréfanefnd kjörbréf fulltiúa, én alls sendu 38 félög (af 43) 129 fulltrúa til þings. Fundar- stjóri ,var kjörinn Jóhannes Stefánsson frá Neskaupstað, en til vara GuSjón Jónsson Rvík og BjarnfríÍSur Leósdóttir frá Akranesi. Fundarritarar voru kjömir Gísli B. Björnsson, Gísli Gunnarsson, Guðrún GuS varðardóttir og Ólafur Einars- son. í bréfinu, kæmu ekki til um- ræðu á fundinum. I upphafi fundar voru stadd- ir nokkrir menn úr félogum þeim á NorcSurlandi, er ákveð- ið höfðu að senda ekki fulltrúa á landsfundinn. Fundurinn sam þykkti tillögu Magnúsar Kjart anssonar um, aS fulltrúar þess- ir ættu seturétt á fundinum án atkvæSisréttar. Þessu næst var kosiS í starfs nefndir þingsins. Guðmundur Hjarlarson flutti síðan skýrslu framkvæmda- stjórnar og greindi frá störfum hennar síSan á síðasta lands- fundi. LagSi hann áherzlu á þaS í ræSu sinni, aS AlþýSu- bandalagið þyrfti að virkja þá krafta, sem nú byggju undir yfirborSinu í þjóSfélaginu og Ijóslega hefSu komið fram í forsetakosningunum í vor. Eftir skýrsluna og kaffihlé tók Lúðvík Jósepsson til máls um stjórnmálaviShorfiS og ræddi lítillega um viSræSur Ragnar Arnalds nýkjörinn formaður Alþýðubandalagsins. allra stjórnmálaflokkanna, sem hann sagSi aS niðurstöður birt ust um innan skamms. Ræddi hann almennt um þau stefnu- mál, sem AlþýSubandalagiS hefði lagt áherzlu á í þeim viSræðum, en ræddi ekki um gagn viSræSnanna né einstaka þætti þeirra. Hann lauk máli sínu meS því aS segja, að AI- þýðubandalagiS gæti orSiS miklu öflugra en nú er. íslenzk alþýSa þyrfti nú sterkan og samstæðan stjórnmálaflokk. AlþýðubandalagiS þyrfti aS verSa sá flokkur. Gils Guðmundsson mælti því næst fyrir tillögu til ályktunar um vinstra samstarf, en tillög- una flutti hann ásamt GuS- mundi Hjartarsyni og GuS- mundi Vigfússyni. Tillagan birt ist á öðrum staS í blaSinu. Þá voru lögS fram drög til stjórnmálaályktunar og þau síSan rædd. Þessir tóku til máls: Ólafur Einarsson, Helgi GuSmundsson, Bjarnfríður Le- ósdóttir, Þorgrímur Starri Björgvinsson, Magnús Kjart- ansson, Skúli Guðjónssön og Sigurjón Bjömsson. Um kvöldiS var fundi hald ið áfram og þá í Lindarbæ. Þar flutti Ragnar Arnalds fram söguræSu fyrir frumvarpi til laga AlþýSubandalagsins, en miSstjórnarfundur kaus í fyrra nefnd til aS vinna aÖ frumvarp inu. 1 nefndinni áttu þessi sæti: BöSvar Pétursson, GuSmundur Ágústsson, GuSrún GuðvarSar dóttir, Gunnar Karlsson, Ragn- ar Arnalds, Sigurður GuSgeirs- son og Svandís Skúladóttir. Urðu síSan allmiklar umræS ur um lagauppkastiS, og voru bornar fram ýmsar breytinga- tillögrur við þaS. Var þeim síS an vísaS til skipulags- og laga- nefndar, en fundi lauk um miS nætti. STEFNUMÁL Á laugardag voru nefnda- . Framh. á bls. 4 Viðræður stjórnmálaflokkanna að sigla í strand „Bjargráð“ ríkisstjórnarinnar í deiglunni LúSvík Jósefsson kvaddi sér hljóSs utan dagskrár og las upp bréf frá formanni AlþýSu bandalagsins, Hannibal Valdi- marssyni, þar sem hann lýsti þ«ví yfir, að hann segSi af sér formjsnnsku í bandalaginu. Er bréfiS birt á öðrum stað í blaS- inu. LúSvík kvaSst ekki mundu gera athugasemdir við bréfiS og vonaSi, aS þau mál, er Hannibal gerSi aS umtalsefni Ritstjórá- skipti Sverrir Hólmarsson hef- ur látið af ritstjórn Frjálsr- ar , þjóðar, þar eð hann dvelst í vetur við framhalds nám erlendis. Blaðstjórn og samstarfsmenn hans í rit- nefnd þakka honum vel unnin störf. Við ritstjórn Frjálsrar þjóðar tekur nú Júníus H. Kristinsson, stud. phil. — Blaðstjórn býður hann vel- kominn til starfa. Telja má nokkurn veginn víst að hugmyndin um fjög- urra flokka stjórn eða svo- kallaða „þjóðstjórn“ sé nú með öllu úr sögunni. Mun og mála sannast að það fóstur var andvana fætt. Frá upp- hafi gætti mikillar andstöðu við þjóðstjórnarboðskap inn- an allra flokka, og hefur hún sízt farið minnkandi. Það eru í rauninni aðeins nokkrir stjórnmálaforkólfar sem í alvöru gældu við þessa hug- mynd, og er þó eins líklegt að sumir þeirra hafi fremur lit ið á hana sem hentugan bið- leik í pólitískri refskák en æskilega ákvörðun. Bendir margt til að forustumenn stjórnarflokkanna hafi talið sér hagkvæmt að hefja við- ræður við stjórnarandstöðuna um „lausn efnahagsvandans“, án þess að ætla sér annað en að tefja tímann þangað til þeir teldu jarðveginn nógu vel und irbúinn til að gera fyrirhugað ar ,,ráðstafanir.“ Langt er síð- an allir skyni bornir menn hefðu mátt gera sér ljóst, að hrun atvinnuveganna, hóf- laus eyðsla, skipulagsláus fjár- festing og gegndarlaus gjald- eyrissóun, hlutu að leiða stór felld vandræði yfir þjóðina. Lá í augum uppi, að ástandið yrði þeim mun verra sem lengra liði án þess að neitt væri að gert. En stjórnarherr arnir virðast hafa hugsað sem svo: Með því að draga allt á langinn, láta fólkið finna vofu atvinnuleysis og kreppu nálg- ast, halda áfram umræðum um nauðsyn stórfelldra að- gerða, væri jarðvegurinn und- irbúinn til þess að fram- kvæma þá lausn, sem þeir telja óhjákvæmilega. Þegar þjóðin öll hefði beðið mánuð- um saman og bollalagt um yf- irvofandi efnahagsráðstafanir, væri rétti tíminn til þess kom- inn að demba þeim á: stóiý felldri gengisfellingu eða hrikalegum skattahækkunum. En nú er búið að bíða svo lengi og ástandið orðið slíkt, að reiknimeistararnir segja hvoruga leiðina einhlíta. Gera verði hvorttveggja í senn, fella gengið og hækka skatt- ana! Svo á að heita að enn standi yfir viðræður fulltrúa stjórn- málaflokkanna allra um efna- hagsmálin. En sýnt þykir, að þær leiða ekki til neinnar nið- urstöðu. Er því gert ráð fyrir að upp úr slitni einhvern næstu daga. Mun þess þá skammt að bíða, að almenn- ingur kynnist því, hvaða tök- um ríkisstjórnin hyggst taka efnahagsmálin. Nú telja stjórn arflokkarnir jarðveginn full- plægðan. Búið sé að berja það inn í þjóðina með langvinn- um og áköfum áróðri, að verð- fall og aflabrestur sé aðalor- sök þess, að skerða verði Iffs- kjör almennings gífurlega. Þessu muni fólk taka, ef til vill ekki möglunarlaust, en án virkra aðgerða. Með þeirri áróðursaðstöðu, sem stjórnarflokkarnir hafa yfir að ráða, gera þeir sér.von- ir um að almenningur gleymi því, að erfiðleikarnir nú eru fyrst og fremst áfleiðing glæfralegrar stjórnarstefnu um árabil. Er eins víst að þeim takist þetta. Staðreyndin er þó sú, að þjóðin þoldi „við- reisnarstefnuna" illa í góðæri, en í miðlungsárferði er sú stefna voðinn sjálfur. — Það kemur þeim mun betur í ljós sem lengra líður. En dýrt mun það reynast almenningi hve margir átta sig seint á þessu. Er ekki annað sýnna en þjóðin verði að súpa viðreisnarbikar- inn í botn. Dreggjarnar ve.rða beizkar.

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.