Frjáls þjóð - 28.11.1968, Qupperneq 2
YFIRLÝSING
Vegna ummaela Björns
Jónssonar alþm. á Alþingi,
sem nú hafa verið endurtek
in í frréttum útvarpsins, óska
ég sem formatSur þingflokks
Alþýðubandalagsins, aS
taka fram eftirfarandi:
ÞaS er meS öllu tilhæfu-
laust aS Birni Jónssyni eða
nokkrum öSrum þingmanni
Alþýðubandalagsins hafi
veriS varnaS aS taka þátt í
útvarpsumræðum af þing-
flokki AlþýSubandalagsins.
Björn Jónsson hefur fengiS
að taka þátt í útvarpsum-
ræSum á vegum AlþýSu-
bandalagsins hvenær sem
hann hefur óskað þess og
haft nákvæmlega sama rétt
í þeim efnum sem aSrir
þingmenn AlþýSubandalags
ins. Björn Jónsson og Hanni
bal Valdimarsson hafa allt-
af verið boSaSir á þing-
flokksfundi AlþýSubanda-
lagsins eins og aðrir þing-
menn þess enda hafa þeir
ekki sagt sig úr þingflokkn-
um né AlþýSubandalaginu
svo kunnugt sé þó aS þeir
hafi ekki í heilt ár mætt á
fundum þing^lokksins en
þess í stað tekiS upp samn-
inga viS aðra flokka um
starf á Alþingi og boSi nú
stofnun nýs þingflokks.
Alþingi, 22. nóv. 1968.
LúSvík Jósepsson.
form. þingflokks AlþýSubl.
HAFÍS VIÐ ÍSLAND
Efni þessarar bókar er
frásagnir af baráttu þjóSar-
innar við hafísinn bæSi fyrr
og síðar.
Guttormur Sigbjarnarson,
jarSfræSingur, ritar fróS-
lega og skemmtilega grein
um myndun hafíssins, ferðir
hans um heimshöfin og á-
hrif á veðurfar.
Lýst er erfiSleikum og
hættum íslenzkra sjómanna,
er sigla þurftu í gegnum ís-
inn og halda uppi samgöng-
um viS sjávarþorpin á ísa-
svæSinu.
Bændur í afskekktum
byggSarlögum segja frá
ævilöngum kynnum af haf-
ísnum og reynslu, sem þeir
og forfeSur þeirra öfluSu
sér í þeirri baráttu. Þá
segja gamlir menn frá því,
hvernig þeir horfðu á fugla,
seli og hvali heyja vonlausa
baráttu við hafísinn, og
rifja upp gamlar bjarndýra-
sögur.
Bókinni er ætlaS aS vera
spegilmynd af áhrifum haf-
íssins á þjóSlífið og baráttu
manna og dýra við „lands-
ins forna fjanda'*.
Tíu menn víSs vegar um
landiS leggja til efni í bókr
ina. Hún er 227 blaSsíSur
og prýdd fjölda mynda. —
VerS kr. 430.00 án sölusk.
AÐ HANDAN
AS handan er bók, sem
listmálarinn Grace Rosher
Framhald á bls. 3.
Betri heimur
Frjamh. af bls. 8.
aS taka beinan þátt í þessu
mikla mannúSarstarfi. ViS ætt
um ekki aS vera hrædd viS aS
takast þá ábyrgð á hendur. Að
því mun líka koma fyrr eða
síSar. Heimurinn er allt í
kringum okkur. Við getum
ekki hlairpist frá honum.
Islenzkir ungtemplarar.
Dómaradans
Fyrir nokkru sendi Máls-
varnarsjóður nokkrum Reyk-
víkingum bókina Dómaradans
ásamt bréfi. Voru þeir hvatt-
ir til að kaupa bókina. eða
selja eintakið, og gera skil á
afgreiðslu Frjálsrar þjóðar
innan viku, eða skila bókinni
öðrum kosti. Margir hafa tek
ið þessari málaleitan vel og
þegar gert skil. Málsvarnar-
sjóður hvetur aðra til að
hraða skilum. Ef mönnum
kæmi betur að andvirði bók-
arinnar — eða bókin sjálf —
verði sótt, geta menn gert við
vart í síma 19985 eða 18350 á
venjulegum skrifstofutíma.
MálsvarnarsjóSur.
Auglýsing
Óheimilt er að stunda kvöld- eða nætursölu í Kópa-
vogskaupstað nema með leyfi bæjarstjórnar sam-
kvæmt ákvæðum reglugerðar um lokunartíma sölu-
búða í kaupstaðnum.
Er hér með lagt fyrir þá sem nefnda sölu óska að
reka, að senda undirrituðum umsókn um það hið
fyrsta.
25. nóvember 1968.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
NORRfNA HUSIÐ
Hafið bí'- áhuga fyrir aí kynnast POHJOLAN TAIO
bókmenntum Norðurlánda 1968? NORDENS HUS
NORRÆN BÓKASÝNING 1968
verður opnuð fimmtudaginn 28. nóvember kl. 20 og verður opin daglega frá kl. 10— 22 • Yður er
boðið að velja 10 fallegustu bækur Norðurlanda 1968. Veitt verða góð bókaverðlaun (fyrir alls kr.
43.000) eftir eigin vali. © Aðgangur að sýningunni er ókeypis. Sýningarskrá með bókalista og getrauna-
seðli verður til sölu við innganginn. © Hver 50. kaupandi að bókaskrá fær bókagjöf © Sérstök bókaget-
raun verður fyrir börn. © Komið og sjáið fyrstu sýninguna á norrænum bókum frá sama ári. Hér eru
sýndar allar tegundir bóka, samtals um 2000 eintök. • Kaffistofan er opin allan daginn. • Verið velkomin!
NORRÆNA HÚSIÐ
-
/
TRÉSMIÐJAN VÍÐIR H. F. AUGLÝSIR
Nýkomið mikið úrval af
BORÐSTOFUSETTUM, STÓLUM og
SKÁPUM.
Látið yður verða mikið úr krónunni
Stærsti húsgagnaframleiðandi landsins býður yður nú sem fyrr
upp á fjölbreyttasta húsgagnaúrval sem völ er á, á einum stað.
Afborgunarskilmálar okkar eru löngu landsþekktir fyrir hve
hagstæðir þeir eru viðskiptavinum.
Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt.
Verzlið í Víði Símar: 22222
22229
2
Frjáls þjóð — Fimmtudagur 28. nóvember 1968