Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 05.12.1968, Qupperneq 3

Frjáls þjóð - 05.12.1968, Qupperneq 3
Ritstjórnargrein * ♦ Ekki er því aS neita, aí5 I erfiíSleikar þeir, sem nú » steSja a?S íslenzkri þjóð, r varpa nokkrum skugga á | hálfrar aldar afmæli full- J veldisins. Hér er ekki ein- 4 ungis um aíS ræíSa þrenging- ♦ ar efnahagslífsins og ugg- I vænlegar horfur í atvinnu- A málum. íslending/ar hafa áð- t ur, eftir að þeir urðu full- 4 valda, orðið að sigla krapp t an sjó, þegar fast svarf að I af völdum stórfellds verð- f falls og markaðsörðugleika, x svo sem í heimskreppunni á 4 f jórða áratug þessarar aldar. f Það voru vissulega þung- X bærir tímar stöðugs gjald- ▼ eyrisskorts og hörmulegs at- i vinnuleysis, og hljóta allir ♦ að vænta að aðrir eins komi T ekki aftur. En þrátt fyrir 4 margvísleg áföll, sem þjóð- T in varð þá fyrir, brást hún 4 við af þreki og manndómi 4 og lét hin kröppu kjör ekki Isvo mjög beygja sig. Þá heyrðist varla nokkur sú rödd hér á landi, sem boð- aði uppgjöf og hélt fram þeirri kenningu, að við vær um of fáir og fátækir til að lifa sem sjálfstæð og full- valda þjóð. Enginn málsmet andi maður hélt því fram Ium þær mundir, að Islend- ingar yrðu að fórna sjálf- stæði sínu og tengjast stæm\ Og sterkari heild til að tryggja betri fjárhagsaf- komu. Það var vissúlega margvíslegum erfiðleikum bundið og lagtSi á þegnana þungar kvaðir, að viðhalda stjórnarfarslegu og fjárhags- ÞJÓÐ í legu sjálfstæði, en engum datt í hug að gefast upp í þeirri baráttu. Menn trúðu því, að þegar til lengdar léti væri það affærasælasl fyiir þjóðarheildina a‘ð halda merki frelsis og sjálfstæðis hiklaust á lofti. Annað kæmi ekki til greina. Þrátt fyrir margvísleg víxlspor, sem stigin hafa ver ið á fimmtíu árum íslenzks fullveldis, hefur reynslan ó- umdeilanlega sannað að þessi kenning var rétt. Ef við ætlum að halda sjálfs- virðingu okkar og þreki ó- buguðu, eigum við þann kost einan að takast á við erfiðleikana sjálfir, á grund velli þess fullveldis sem við öðluðumst 1918 og fulls stjómarfarslegs sjálfstæðis lýðveldisársins 1944. Þrátt fyrir allt sem miður hefur farið, eigum við að vera stórum betur undir það bún ir að sigrast á efnahags- vandamálum nú en þjóðin var fyrir þremur til fjórum áratugum, þegar kreppan mikla svarf fastast að. Það er því ömurlegt að verða þess var, hve fjölgandi fer nú þeim röddum, sem boða undanhald eða uppgjöf í einni eða annarri mynd. Æ fleiri einstaklingar hafa við orð að flýja land og flytja til Ástralíu, Suður-Afríku eða annað i leit að gulli og grænum skógum. Aðrir boða nauðsyn þess að fsland tengist stórum og öflugum efnahagsheildum, þótt sú hætta vofi yfir að stjómar- VANDA STÖDD farslegt sjálfstæði fylgi með í þeim kaupum, þegar til lengdar lætur. Þeir sem vara við þeim margvíslegu hættum, sem samfara eru hugmyndum um „tengsl við stærri heild- ir“, eru oft sakaðir um ein- angr narstefnu. Hér er ekki um neitt slíkt að ræða, held ur raunhæft mat á sérstöðu 200 þús. manna dvergþjóð- ar. Margvísleg samvinna við aðrar þjóðir er okkur nauð- synleg, einkum þær þjóðir, sem eru okkur skyldastar og líkastar að menningu og hugsunarhætti. En í öllum skiptum við stórþjóðir og bandalög, þar sem þær ráða leysa, og um margt eru Is- lendingar betur til þess fær- ir en löngum áður. Vissu- lega þarf þjóðin að axla allþungar byrðar, og skiptir þá mestu máli að þær séu réttlátlega á lagðar. Verka- menn, sjómenn og fleiri lág launastéttir hafa þegar orð- ið að taka á sig svo stór- fellda Iífskjaraskerðingu að á það verður ekki bætt. Það leysir ekki efnahags- vandann að þrýsta kjörum Iáglaunafólks niður á hung- urstigið. Hitt er vafalaust, að þeir tiltölulega f jölmennu hópar, sem á undanförnum árum hafa haft bezta að- stöðu og Iagt mest kapp á FRJÁLS ÞJÓÐ Útgefandi HUGINN HF. Ritstjóri: Június H. Kristinsson (ábm.) Framkvæmdastj óri: Jóhann J. E. Kúld } Ritnefnd: Einar Hannesson, Gils Guömundsson, Gunnar Karlsson, Haraldur Henrýsson og Svavar Sigmundsson. Áskriftargjald kr. 400.00 á ári. Verö i lausasölu kr. 10,00. Prentsmiðjan Edda mestu, er okkur sérstakur vandi á höndum. Þetta er einföld og auðskilin stað reynd. Varðveizla og efling sjálfstæðis svo fámennrar þjóðar sem Islendingar eru, gerir óneitanlega miklar kröfur til hvers einstaklings. En þá þraut er hægt að að taka þátt í lífsþæginda- kapphlaupinu, hljóta nú að axla sínar byrðar. Við höf- um ekki efni á að láta henti stefnuna og gróðavonina eina ráða því, hvert hinn afmarkaði og dýrkeypti gjaldeyrir rennur. Þess verð ur að krefjast af fullri ein- beitni, að upp verði tekin ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ raunhæf stjórn gjaldeyris og fjárfestingarmála og allt kapp á það lagt að efla út- flutningsframleiðslu og gjaldeyrissparandi iðnað. Á tímum efnahagsörðug- leika er sú hætta jafnan fyr ir hendi, að upp komi kröf- ur um sparnað á því fé, sem rennur til fræðslu- og menntamála, vísindastarf- semi og lista. Er ekki laust við að á því sé farið að brydda nú. Sjálfsagt er að gera kröfur til þess að slíku fjármagni sé svo vel varið sem kostur er, en hitt er stórhættulegt, að draga úr rauhæfu menningarstarfi. Enginn höfuðstóll er nútíma þjóð dýrmætari en sem allra flestir vel menntaðir og þjálfaðir einstaklingar, jafnt á bóklegu sem verk- legru sviði. Reynslan hefur sannað, að menningarstig þjóða skiptir meira máli en flest eða allt annað og sker úr um það, þegar til lengd- ar lætur, hver efnahagur þeirra og lífsafkoma verður. Þess er að vænta, þrátt fyrir öll mistök og tíma- bundna erfiðleika af þeim völdum, samfara þrengdum viðskiptakjörum, að íslenzk þjóð beri gæfu til að varð- veita fullveldi sitt og efna- hagslegt sjálfstæði. Að því verður hún að stefna án hiks og fordóma. Það kostar breytt vinnubrögð á mörg- um sviðum. En á erfiðleik- um getum við sigrazt. Það verður að takast. I ♦ i V erkalýðshreyf ingin Framhald af bls. 1. arstöður samtakanna. Þetta hafði þau áhrif, að andrúms- loftið á þinginu var þrungið óeðlilegri spennu og jöðruðu störf þess við skrípaleik und- ir lokin. Loft var þá allt lævi Ulandið í þingsölum. Hinir ó- breyttu fulltrúar húktu þar aðgerðarlitlir í óratíma og biðu eftir ákvörðunum tíún- aðarmanna stjórnmálaflokk- anna, sem verzluðu með at- kvæði þeirra í skúmaskotum. Annað mál varð þinginu einnig til lítillar frægðar. — Fram kom tillaga um fordæm- ingu á stríðinu ’ í Víetnam, mjög í samræmi við þær til- lögur, sem samþykktar hafa verið á þingum verkalýðssam- takanna á hinum Norðurlönd- unum. Þessari tillögu var vís- að frá þinginu af einhverjum torkennilegum ástæðum. Áður hafði þó réttilega verið sam- þykkt harðorð fordæming á innrásinni í Tékkóslóvakíu. • Þung ábyrgð Nýafstaðið þing Alþýðusam bandsins hafði að vísu ekki fyllilega það svipmót, sem við urkvæmilegt hefði verið. Þess er þó að vænta, að nýkjörin forusta samtakanna rísi undir þeirri þungu byrði, sem á hana er lögð. Fyrirsjáanlegt er, að á næstunni muni al- þýða landsins eiga mjög í vök að verjast í lífsbaráttu sinni. Henni er því lífsnauðsyn, að þeir, sem hún hefur valið til forustu í stéttarsamtökum sín um láti ekki deigan síga en haldi á málum hennar með hyggindum og einurð. Reynsl- an sýnir, að örðugt er að mynda samvirka forustu með sambræðslu ólíkra' skoðana- hópa, en þó er ekki fyrir það brennt, að slík forusta vaxi með verkefnum sínum og reynist hin öruggasta þegar á hólminn er komið. Á það hljóta íslenzkir launþegar nú að treysta. Norrænar bækur Framh. af bls 1. vandaðan frágang, svo margar íslenzkar útgáfubækur eru nú fyllilega sambærilegar við það bezta með öðrum þjóðum. Þeg ar norræna bókasýningin er skoðuð kemur þó í ljós, að margt eigum við eftir ólært í þessu efni, einkum þó á því sviði, sem áreiðanlega er mik- ilvægast en það er kennslu- bækurnar. Þar virðast Svíar standa einna fremst og eru sumar kennslubækur þeirra á sýningunni hreinasta augna- yndi. Það er full ástæða til að hvetja fólk að skoða norrænu bókasýninguna, sem opin er frá kl. 10—22 alla daga. Þar gefst því ekki aðeins kostur á, að sjá fallegar og fjölbreyti- legar bækur heldur einnig fög ur og nýstárleg salarkynni Norræna hússins, sem virðist vera á góðri leið með að verða sú miðstöð norrænnar menn- ingar, sem upphaflega til stóð. Morgunblaðið Framh. aí bls. 8. kvæma aðdáun *í augum. Lík- lega er þjóðinni borgið í bráð. EFTIRMÁLI. Að fáu hefur verið hlegið meira aS undanförnu en því fjaðrafoki, sem títt nefnd skóla blaðsgrein hefur vakið meSal vissra aSila. Móðursýkiskennd viSbrögð Morgunblaðsins viS róttækum hugmyndum ungs fólks eru aS vísu gamalkunn, en þaS vekur enn furSu manna aS sjá hina ótrúlegu iSni blaSs ins við að gera sig aS athlægi. VíSa út um heim sýnir unga fólkið óánægju sína með kröft ugum mótmæiaaSgerSum og jafnvel óspektum. Hætt er viS aS þeir, sem nú mega vart vatni halda út af meinlausum ritsmíSum, yrSu alvarlega lasn ir, ef unga fólkiS á íslandi tæki upp þær baráttuaSferS- irnar. J.H.K. Frjáls þjóð — Fimmtudagur 5. desember 1968 3

x

Frjáls þjóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.