Frjáls þjóð - 05.12.1968, Side 6
V erksmið jutogarar
Framhald af bls. 4.
um hent upp í losunartrog,
en úr því er hann látinn
detta niSur á bílpall. Síðan
er bifreið, oft með 7—8
tonna þunga ekið um mis-
jafnan veg til fiskvinnslu-
stöðvar, en þar er þessu
þunga hlassi sturtað af bíl-
pallinum, líkt og væri verið
að flytja ofaníburð í veg.
Það hljóta al'lir að sjá, þótt
þeir séu ekki sérfróðir á
þessu sviði, að slík meðferð
á viðkvæmu hráefni, sem
vinna á úr útflutningsvöru
til matar, er ekki sæmandi
menningarþjóð og veldur
auk þesr svo miklum skaða
að við erum ekki menn til
að standa þar undir. En hér
er reyndar ekki öll sagan
sögð enn. Eftir þessa með-
ferð á fiskinum, er hann
svo látinn bíða vinnslunn-
ar í fiskmóttökum, sem á
engan hátt svara kröfum
nútímans og þar verður
fiskurinn oft og iðulega fyr
irskemieidum áður en hann
kemst í vinnslu. Við því er
þess vegna ekki að búast
að nýting hins góða hráefn
is sem hér um ræðir, verði
góð og er staðreyndin sú,
að ástandið hér í fisk-
vinnslumálum, hvað við-
kemur meðferð á hráefn-
inu og nýtingu þess þolir
engan samanburð við
stærstu keppinauta okkar á
fiskmörkuðunum, t. d. Norð
menn og Dani. Þeir setja
fiskinn strax í kassa á mið
unum og þaðan er hann
ekki hreyfður fyrr enn
hann fer í vinnslu. Það er
einnig ljóst, að fiskur, sem
veiddur er á fjarlægum mið
um, t. d. við Grænland eða
Nýfundnaland, er orðinn
miklu verra hráefni og verð
minna eftir langa siglingu
hingað. Því er mikilvægt að
þau skip, sem þangað leita
geti unnið strax úr afla sín-
um og skilað honum sem
fullunninni markaðsvöru.
Með því eru gæði og lægsti
mögulegi framleiðslukostn-
aður tryggður.
Hér að framan hef ég
reynt að leiða nokkur rök
að því, að við íslendingar
eigum geysimikið óunnið
verk til uppbyggingar undir
stöðuatvinnuvegi okkar,
sjávarútvegsins. Ég álít, að
sú uppbygging myndi leiða
til öruggari og traustari
þjóðarbúskapar, sem gerði
okkur kleift að búa hér við,
aukna velferð og hagsæld,
sem myndi standa af sér
alla tímabundna erfiðleika.
Ég tel, að þingsályktunar-
tillaga sú, sem hér er til
umræðu bendi á eina stór-
virkustu leiðina til verð-
mætasköpunar og gjaldeyr-
isöflunar fyrir þjóðarbúið
og geti myndað grundvðll-
inn að þeirri alhliða upp-
byggingu, sem fram þarf að
fara. Því er það skylda Al-
þingis og ríkisstjórnar að
kanna þessa leið og hefja
hið fyrsta undirbúning þess
að hrinda málinu í- fram-
kvæmd ef niðursföður
verða jákvæðar.
Bótagreiðslur
almannatrygginganna í Reykjavík
Bótagreiðslur hefjast í desember sem hér segir:
Ellilífeyrir fimmtudaginn 5. desember.
Aðrar bætur, þó ekki fjölskyldubætur, mánudaginn 9. desember.
Fjölskyldubætur greiðast þannig:
Miðvikudaginn 11. desember hefjast greiðslur með 3 börnum og fleiri í fjöl-
skyldu.
Laugardaginn 14. desember hefjast greiðslur með 1 og 2 börnum 'í fjölskyldu,
(þann dag opið til kl. 5).
Sérstök athygli skal vakin á því, að á mánudögum er afgreiðslan opin til kl. 4
síðdegis og auk þess verða greiddar allar tegundir bóta til kl. 5 síðdegis laugar-
daginn 14. desember.
Bótagreiðslum ársins lýkur á hádegi á aðfangadag jóla og hefjast ekki aftur fyrr
en á venjulegum greiðslutíma bóta í janúar.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
Laugavegi 114
Meira en fjórði iáffiL
hyer miði yinnuríipH
DREGIÐ VERÐUR 5. DESEMBER
Hæsti vinningur 1 miiljón
Endurnýjun lýkur á hádegi dráttardags
Vöruhappdrætti SlBS
Nýjar bækur
ÆSKUNNAR 1968
Án söluskatts kr.:
Bláklædda stúlkan ........................ 148.00
Öldufall áranna .......................... 410.00
Gaukur keppir að marki.................... 185.00
Litli og Stóri ............................ 45.00
Yfir úthafið.............................. 145.00
Tamar og Tóta............................ 165.00
Krummahöllin............................... 40.00
Skaðaveður 1897—1901 ..................... 220.00
Ilrólfur hinn hrausti .................... 142.00
Eygló og ókunni maðurinn.................. 163.00
Sögur fyrir börn (Tolstoj)................. 50.00
Fimm ævintýri ............................. 50.00
Úrvalsljóð Sigurðár Júl. Jóhannessonar .. 149.00
Barnablaðið /ískan
Reykjavík, 29. nóv. 1968.
Símaviðtalstími tryggingayfirlæknis verður fram-
vegis á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 11—12.
Viðtalstímar eins og áður eftir tímapöntun.
Tekið er á móti pöntun í síma stofnunarinnar 19300
daglega kl. 10—12.
Tryggingastofnun ríkisins.
islenzkt orðtakasafn I
eftir Halldór Halldórsson er þriðja
bókin í bókaflokknum íslenzk þjóð-
fræði. Bókin er ómissandi uppsláttar-
rit námsmönnum, kennurum og öllum
öðrum sem leita vilja þekkingar á
tungu sinni.
Verð til félagsmanna er kr. 395,—.
z Almenna bókafélagið.
FORVAL
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar auglýsir hér
með eftir verktökum til þátttöku í forvali, þar sem
valdir verða úr, verktakar er gefinn verður kostur
á að bjóða sem aðalverktakar í byggingu 180—850
íbúða í fjölbýlishúsum á efra svæðinu í Breiðholti.
Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu Framkvæmda
nefndarinnar að Lágmúla 8, Reykjavík.
Frestur til að tilkynna þátttöku í forvalinu stendur
til kl. 18 mánudaginn 16. desember n.k.
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar
6
Frjáls þjóð — Fimmtudagur 5. desember 1968