Frjáls þjóð - 19.12.1968, Blaðsíða 6
votforOI atvinnubllsfiðra
Fœsi h|á flesfum hjölbarOasölum á landinu
Hvergi lægra verO
SlMM-y 3 73 ^ ^ ^ jHFVg
HAPPDRÆTTI
DAS
óskar öllum landsmönnum
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsældar á komandi ári.
HAPPDRÆTTI
DAS
I
|
|
I
I
I
I'
Auglýsing
/ t ■
um takmörkun á umferö í Reykjavík 12.—23.
desember 1968.
Ákveðið hefur verið að gera eftirfarandi ráðstafanir
vegna umferðar á tímabilinu 12.—23. desember n.k.:
I. Einstefnuakstur:
1) Á Vatnsstíg frá Laugavegi til norðurs að Hverfis-
götu.
2) Á Frakkastíg frá Hverfisgötu til norðurs að Lind-
argötu.
3) í Naustunum frá Hafnarstræti til norðurs að
Tryggvagötu.
4) í Pósthússtræti til norðurs frá Austurstræti að
Tryggvagötu.
'íl. Vinstri beygja bönnuð:
1) Úr Njálsgötu norður og suður Snorrabraut.
2) Af Klapparstíg vestur Skúlagötu.
3) Af Vitastíg vestur Skúlagötu.
4) Af Rauðarárstíg austur Hverfisgötu.
5) Af Snorrabraut vestur Laugaveg. Bannið gildir
ekki gagnvart S.V.R. og einungis á þeim tímum, sem
nauðsyn krefur að mati lögreglunnar).
III. Aðrar takmarkanir:
Bannað er að aka Rauðarárstíg í suður yfir gatnamót
Hverfisgötu.
IV. Bifreiðastöðubann:
Á Skólavörðustíg norðan megin götunnar frá Týs-
götu að Njarðargötu.
V. Bifreiðastöður takmarkaðar við hálfa klukkustund
á almennum verzlunartíma.
1) Á eyjunum á Snorrabraut frá Grettisgötu að Flóka-
götu.
2) Á Frakkastíg austan megin götunnar, milli
Grettisgötu og Njálsgötu.
3) Á Klapparstíg vestan megin götunnar frá Lindar-
götu að Hverfisgötu og frá Grettisgötu að Njálsgötu.
4) í Garðastræti norðan Túngötu.
5) Á Týsgötu, austan megin götunnar frá Skólavörðu-
stíg að Þórsgötu.
Þessi takmörkun gildir á almennum verzlunartíma
frá fimmtudeginum 12. desember til miðnættis mánu-
daginn 23. desember n.k. Frekari takmarkanir en hér
eru ákveðnar verða settar um bifreiðastöður á Njáls-
götu, Laugavegi, Bankastræti, Aðajstræti og Austur-
stræti, ef þörf krefur.
VI. Ökukennsla 1 miðborginni er bönnuð milli Snorra-
brautar og Garðastrætis á framangreindu tímabili.
VII. Bifreiðaumferð er bönnuð um Austurstræti, Að-
alstræti og Hafnarstræti, laugardaginn 21. desember
kl. 20.00 til kl. 23.00 og mánudaginn 23. desember
kl. 20.00 til kl. 24.00. Ennfremur verður sams konar
umferðartakmörkun á Laugavegi frá Snorrabraut og
í Bankastræti á sama tíma, ef ástæður þykja til.
VIII. Athygli skal vakin á takmörkun á umferð vöru-
bifreiða, sem eru yfir 1 smálest að burðarmagni og fólks-
bifreiða 10 farþega og þar yfir, annarra en strætis-
vagna un. Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og Að-
alstræti. Sú takmörkun gildir frá kl. 13.00 þar til al-
mennum verzlunartíma lýkur alla virka daga nema laug-
ardaginn 21. og mánudaginn 23. desember, en þá gildir
bannið frá kl. 10.00. Ennfremur er ferming og afferming
bönnuð á sömu götum á sama tíma.
Þeim tilmælum er beint til ökumanna, að þeir forð-
ist óþarfa akstur, þar sem þrengsli eru, og að þeir
leggi bifreiðum sínum vel og gæti vandlega að trufla
ekki eða tefja umferð. Þeim tilmælum er beint til gang-
andi vegfar'enda, að þeir gæti varúðar í umferðinni,
fylgi settum reglum og stuðli með því að öruggri og
skipulegri umferð.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
11. desember 1968
Sigurjón Sigurðsson.
Hagnýtt
leiðbeiningar-
rií
Nýkomin er út bók, sem
nefnist „Fundir, félagsstörf,
Ieikir“, leiSbeiningar um
æskulýðsstarf. Bókina hef-
ur skrifað séra Árelíus Níels
son, en útgefandi er Banda-
lag æskulýðsfélaga Reykja-
víkur.
Mikill fengur er a<5 þess-
ari bók, sem bætir úr brýnni
þörf á leiSbeiningarriti um
félagsstörf ýmiss konar. Til
að gefa hugmynd um inni-
háld hennar, skal drepið á
helztu kafla hennar, er nefn
ast Félagsstofnun, verksvið
Sr. Árelíus Níelsson
æskulýðsforingjans, félög og
klúbbar, leiklist og listkynn
ingar, áfram-lengra, tóm-
stundaiSja, samfélagiS, dag
skrár, ýmiss konar dagskrár,
góður félagi og lokaorcS.
Séra Árelíusi hefur tekizt
afar veí'upp, er hann ritacSi
þessa hagnýtu bók, sem bók
staflega virðist ná til allra
hluta á hinu fjölbreytta
sviSi æskulýðsstarfsins,
enda hefur höfundur flestum
öðrum hérlendum mönnum
meiri reynslu af fjögurra ára
tuga starfi aS æskulýðsmál-
um og er því öllum hnútum
kunnugur. Þá hefur hann
dregið að sér viS samningu
bókarinnar fróSleik úr er-
lendum ritum um þetta efni.
Er fyllsta ástæða til að
þakka séra Árelíusi fyrir
þetta merka framlag til
æskulýðsstarfseminnar, sem
áreiSanlega verSur hagnýtt
af öllum þeim, sem eiga og
þurfa aS hafa handbók, er
hér um ræSir, sér til trausts
og halds við störf í þágu
æskulýSsfélaganna.
eh.
6
Frjáls þjóð — Fimmtudagur 19. desember 1968.