Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 19.12.1968, Blaðsíða 1

Frjáls þjóð - 19.12.1968, Blaðsíða 1
%i 0 JOLAHUGLEIÐING: // Hann gjörðist fátækur vor vegna // Það fer lítið fyr'vr því í jólnhaldi nútímans, að hátíðin sé hald- inn í minningu þess, að Guðs sonur gerðist fátækur. I raun og veru fer nœsta lítið fyrir því, að þessi hátíð sé yfirleitt trúarhátíð. Verzlanir taka að skreytast og auglýsa ýmsan girnilegan vaming til jólayjafa með rúmlega mánaðarfyrirvara. Götur eru skreyttar greinum og Ijósum; á heimilum eru hengdar upy kúlur, perur og greinar. Trúðar íklœddir furðubúningum og með skegg eru látnir skemmta bömum með söng og bröndurum, og börnunum er talin trú um, að þeir fuglar Jcomi með jólagjafirnar til þeirra. Það er hætt við kannske, að gleymist, til hvers jól eru haldin. Nei, nei. Það vita allir. Eru þau ekki árleg upprifjun á litlu œvintýri, er á að hafa gerzt endur fyrir löngu austur í Pálestínu? Maður fær a. m. k. að heyra það í kirkjunum á jólum. Þar er sögð saga — lítið ævintýri — um umkomulaus hjón, er voru stödd fjarri heim- ili sínu, þegar konan fæddi dreng í fjárhási. Svo er eitthvað talað um engla og fjárhirða. Ósköp fallegt! En þetta er meira en ævintýri; þetta er meira en falleg saga frá löngu liðnum tímum. Þetta er saga, er myndar annan stólpa þann, er boðun, starf, já tilvera kirkjunnar hvílir á. A jólum vill kirkjan minnast þess, er Guð vitjaði mannkyns til að færa því lausn og frið, koma því í sátt við sig. Litla barnið, er fœddist suður í Palestínu við upphaf tímatals vors, var tákn frá Guði sent um elsku hans til jarðarbarna, tákn, sem stendur svo lengi sem heimur er byggður og menn steyta sig á annaðhvort til dóms eða frelsunar. Sagan sjálf, jólaguðspjallið, er flutt á táknmáli, sem þó er öllum auðskilið. Verið getur, að hún standist ekki ströngustu kröfur sannfræði, enda er ekki víst, að hún sé skrifuð í þeim tilgangi held- ur. Því að hún vill einungis skýra atburð, sem í raun og veru er óskýranlegur, og höfundur guðspjallsins notar þá það mál, sem einfaldast er og öllum þeim auðskilið, sem á annað borð eru ekki algerlega lokaðir fyrir myndrœnni túlkun. A máli mynda og tákna tjáir hún þann leyndardóm, að Guð sjálfur nálgast menn í syni sínum Jesú Kristi. Á því máli tjáir hún, að orð Guðs, er hann talaði með til lýðs síns, hafi orðið hold, gerzt maður. Hún skýrir og frá því að koma liins fyrirheitna Guðs sonar hafi orðið með þeim hœtti, að þeir, sem áttu við honum að taka, hafi brugðizt, ekki veitt honum viðtöku. Þrir, sem veittu honum viðtöku, voru hinir fátœku, er ek-ki voru innilokaðir í sinn eigin hugarheim, eklci upp- fullir af fordómum eigin hugmynda og vona, ekki uppbelgdir af sjálfsánœgju; eigingirni og sjálfsréttlæti, heldur látlausir menn, sem væntu einskis frá sér sjálfum og voru því viðbúnir að talca á móti Guði í Jesú Kristi. Þeir skiJdu því táJcnið, er þeir stóðu and- spœnis því. Himinn og jörð voru orðin að einingu, þ. e. hátign, Jjós, dýrð og kœrJeikur Guðs hafði stigið niður í heim vcsaidar, myrkurs, Jiaturs og uppiausnar. Hinir snauðu, fjárhirðamir, skynj- uðu, að á bak við niðuriæginguna, er þeir litu, í jötunni, var hátign- in sjáif, að á bak við hulu smæðarinnar var dýrðaropinberun Guðs sjáifs. Jesií fœddist bara einu sinni. Hann Ufði bara eina örstutta mannsævi. Og Jiann mætti aJls staðar hinu sama og sitt fyrsta œvi- kvöJd: kulda, afskiptaJeysi og að Jokum kossi frá hendi hinna sjálfsréttlátu og eigingjömu. Það var til þeirra, er vissu sig allsvana í sjáJfum sér, börðu sér á brjóst og áköJJuðu Guð um miskunn, er Jesús Kristur náði. Þeir menn fundu í Jionum það, sem hann var: Jífgun, Jífsvon. Hinir fyrr nefndu hrósuðu sigri á GoJgata, en þeir síðar nefndu fengu vitneskju um. annað meira: Upprisuna. JóJ og páskar, þar eru tveir máttnrstóJpar tiJveru kirkjunnar. Jólin — er Jiann kom í Jægingu tiJ að Jifa meðal mann aog fJytja þeim fagnaðarerindið um nálægð Guðs ríkis. PásJcar — er hann Jcom í mœtti og útbjó Jiinn fámenna hóp fyJgjenda sinna með anda sínum, að þeir bæru hann áfram út tiJ aUra jarðarbarna, unz hann kœrni aftur í mætti og miJciUi dýrð. Þangað til það verður, kýs hann huluna. Hann lcýs að koma tiJ manna í einföldum táknum: í orði, sakramentum, þjónustu iærisveina sinna, sem hafa mætt honum í hulu táJcna sinna og séð í Jionum sína einu von. Hann kom í smæð — Jiann kemur enn. Hann er Jiér. Hann stendur enn sem tákn um mesta Jeyndardóm í sögu manna, að Guð í syni sínum vilji draga aJJa til sín, að Jiann viJji eyða sundrungu, ófriði og uppiausn úr heimi manna, en koma á sœtt, fríði og sam- Jyndi. Um það er Jesús, krossfestur og upprisinn, tákn, en tákn, sem taJar og er raunverulegt. Það taiar dómsorðin til sjáifsrétt- Játrar kynsióðar, sem vefur sig inn í hjúp iyga og biekkinga, býr sér tiJ guði úr leiðtogum, stefnum og siagorðum. En orð hans eru um Jeið orð freisis og hjáiprœðis: Ég er sá, sem Jcominn er tii að hjáipa þér, sem engan tilgang sérð með lífinu, sem Jeitar friðar og öryggis, því að ég er sá, sem fiutti Guðs ríki inn í þennan heim; ég er sá, sem sætti menn við Guð og hið eina einingartákn meðai manna. En orð hans eru um Jeið orð ábyrgðar: Það ert þú, sem merktur ert sáramerJcjum mínum í skírninni, sem átt með Jífi þínu v að bera mig út i umhverfi þitt, því að ég, sem er Ijós í heiminn komið, veiti þér af Jjósi mínu, að þú verðir Jjós heimsins, erindreki í minn stað. GJingurjóJ heimsins skyggja á alvöru predikunar Krists. Búðir vorar eru futiar varnings, matborð vor svigna af dýrindisréttum, en meirihJuti mannkyns svettur. TiJ þeirra er Kristur Jíka gjöf, og hin kristnu jóJ er að móttaka Drottin Jesúm Krist sem tífgjöf Guðs, að hlýða á prediJcun hans, prediJcun dóms, fretsis og ábyrgð- ar. Guð gefi þér að finna þau jóJ, svo að þú eigir gJeðileg jóJ og getir sjálfur veitt öðrum af hinum sanna friði og gteði, sem einungis finnst í Drottni Jesú Kristi. Friður sé með þér. Amen. Einar Sigurbjörnsson stud. theol.

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.