Vikublaðið


Vikublaðið - 29.07.1994, Síða 1

Vikublaðið - 29.07.1994, Síða 1
Frjálsar konur á Forum Nú flykkjast konurnar á Forum og skjálfd fer um karla sem óttast hvað þær gætu tekið upp á lausar úr taumhaldinu. Sjá pistil á bls. 6 og baksíðu Röskvukynslóðin Er sameining félagshyggju- ntanna í HI og sigrar árangur aukins stjórnmálaþroska eða þess að engir eru lengur með neinar skoðanir til að greina á um? Bls. 4-5 Svo fæ ég vexti og vaxtavexti... Stór hluti verðs á vöru og þjón- ustu myndast vegna vaxtakostn- aðar, en vextir fylgja sjúklegu vaxtamynstri líkt og krab- bamein. Afhemum þá! Bls. 8-9 29. tbl. 3. árg. 29. júlí 1994 Ritstjóm og afgreiðsla: sími 17500 250 kr. Davíð helm með stefnu Alþýðubandalagsins? Eftir viðræður Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra við forystumenn Evrópusam- bandsins þykir orðið ótvírætt að aðildarumsókn Islands að ESB get- ur ekki verið á dagskrá á næstu árum og í raun ekki fyrr en í fyrsta lagi efrir ríkjaráðsteínu ESB sem hefst 1996. Henni verður vart lokið íyrr en 1998-1999 og fram að þeim tíma verður sj ávarútvegsstefna ESB óbreytt. Um leið er ljóst að engum nýjum ríkjum verður hleypt inn í ESB fyrr en að ríkjaráðstefh- unni lokinni og því tilgangslítið og ótímabært að ræða aðildarumsókn nú, hvað þá að láta næstu þing- kosningar snúast um þetta mál. Þetta segir Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðuban- dalagsins í samtali við Vikublaðið. Ólafur segir að niðurstaðan í við- ræðum Davíðs Oddssonar við for- ystumenn ESB sé í senn ánægjuleg og sérkennileg. „Hún er ánægjuleg vegna þess að hún staðfestir réttmæti þeirrar stefnu sem Alþýðubandalagið hefur haft síð- an 1992, að varanlegir samningar við ESB ættu að byggja á viðsldftaþætti EES-samningsins og einfaldara stjórnkerfi. Nú er niðurstaða Davíðs og Delors að það verði auðvelt og æskilegt að gera slíkan tvíhliða samn- Alþýðan fær skatta fyrirtækjanna Níðurstaða álagningar skattyfirvalda vegna ársins 1993 sýnir 12 prósent hækkun tekjuskatts á einstaklinga milli ára. A sama tíma breyttust skattgreiðslur fýrirtækja lítið þrátt fyrir lækkun tekjuskattshlutfalls og afnám aðstöðugjalds, sem þýðir að hreinn hagnaður fyrirtækjanna hefur aukist milli ára um nálægt 20 prósent. Þessi niðurstaða ætti ekki að koma lesendum Vikublaðsins á óvart, en blaðið hefur ítrekað bent á hvernig núverandi ríkisstjórn hefur aukið á- lögur á fólkið í landinu en létt skatt- byrði fyrirtækjanna. Af fréttatilkynn- ingu fjármálaráðuneytisins varð ár- angurinn af þjóðargjöfinni til fyrir- tækjanna mun meiri en búist var við. Með öðrum orðum varð hagur fyrir- tækjanna talsvert betri en gengið var út frá, bæði í hagnaði og í nettó eign- um. Það vekur sérstaka athygli við á- lagningu skatta nú að skattakóngur ársins er kona, Valgerður Blomster- berg í Hafnarfirði, með rúmar 44 milljónir í skatta, en skattakóngur margra undanfarinna ára, Þorvaldur Guðmundsson í Síld og fisk, greiðir „aðeins“ 41 milljón. Valgerður er eig- inkona Bjarna Blomsterberg í Fjarð- arkaupum, en Bjarni seldi á árinu hlut sinn í versluninni til meðeigandans Sigurbergs Sveinssonar og má því bú- ast við því að um tilfallandi háan sölu- hagnað sé að ræða hjá Valgerði. Þau eru tengdaforeldrar Ingvars Viktors- sonar ffáfarandi bæjarstjóra í Hafhar- firði. Islenskir aðalverktakar greiða hæstu skatta fyrirtækja eða 705 millj- ónir, en af öðrum fyrirtækjum má nefna að Eimskipafélaginu er gert að greiða 230 milljónir króna. Hús í útlöndum fyrir milljarð Islendingar eiga a.m.k. 232 íbúðir og fasteignir í útlöndum, sem all- flestar hafa verið keyptar ffá 1991. Kaupverð þessara fosteigna er að lágmarki um 976 milljónir króna og eru þá ekki meðtaldar fasteignir sem Islendingar kaupa án milligöngu eða atbeina hérlendra stofhana, né heldur eru hér um að ræða fasteignir fyrirtækja með rekstur er- lendis eða opinberra aðila á borð við sendiráða. Fjárfesting Islendinga í fasteignum erlendis náði hámarki árið 1991 þegar keypt var fyrir rúmar 220 milljónir. Arið 1992 dróst svo fjárfesting saman urn rúntlega 30 prósent er fjárfest var fyrir tæplega 150 milljónir króna. Arið 1993 jukust kaupin á ný þegar 29 fasteignir voru keyptar fyrir samtals um 188 milljónir króna á gengi í lok þess árs. Fasteignirnar fyrirfinnast í 17 löndum, en tvö lörid hafa algera sérstöðu. Tæplega 80 prósent fasteignanna eru á Spáni og í Bandaríkjunum (einkum í Florida og þá sérstaklega í Orlando). 131 fasteignanna eru á Spáni og kaup- verð þeirra nálægt 350 milljónum króna. Um 45 íbúðir eru skráðar í Bandaríkjunum og er um öllu dýrari fasteign- ir að ræða því kaupverð þeirra er skráð um 360 milljónir króna. I báðum þessum löndurn hafa þróast upp nokkurs konar Islendingabyggðir. Nánar er fjallað um húsakaup Islendinga erlendis á blaðsíðu 3. ing, sem rneðal annars fæli í sér að lausn mála byggði á viðræðum ráð- herra, sem er veigamikill þáttur eins og Alþýðubandalagið hefur bent á frá því í júní 1992. Viðræður Davíðs við Delors og Dehaene staðfesta raunsæi og réttmæti stefhumótunar Alþýðu- bandalagsins. Ég hef, bæði sem formaður Al- þýðubandalagsins og fulltrúi flokksins í utanrfldsmálanefnd, rekið í allan vet- ur á eftir Jóni Baldvin Hannibalssyni utanrfldsráðherra um að hann sinnti því verki að undirbúa slíkan tvíhliða samning í samræmi við stefhu okkar og Alþingis, en hann hefur skotið sér undan því með alls konar undanslætti. Niðurstaðan í þessum viðræðum er síðan sérkennileg vegna þess að þær voru nauðsynlegar til að sýna fram á að öll þau megin rök sem Jón Baldvin hefur haldið fram undanfarna mánuði hafa reynst staðlausir stafir. Það sem kallað er á hversdagsmáli rugl. Þetta vekur upp þá spurningu hvort utan- ríkisráðherra hafi vísvitandi verið að blekkja þjóðina og því hafi Davíð þurft að fara til Brussel til að leiðrétta þá blekldngu eða hvort Jón Baldvin sé svo heillum horfinn að hann sér eldd raunveruleikann," segir Olafur Ragn- ar. Hann bætir því við að Alþýðu- bandalagið hljóti að fagna því að för Davíðs hafi sýnt ffarn á rétunæti stefhumótunar Alþýðubandalagsins frá 1992. „Það liðsinni kemur úr óvæntri átt, en öllu liðsinni ber að þakka sama úr hvað átt hún kemur.“ ð iSú passa bæði strákar og stelpur sig |Jr á því ao veroa ekki ofurólvi og líka upp á hvert annað til að enginn skaðist á sál eða líkama um þessa helgi. Munið bæði eftir smokknum og Stígamótum. Góða verslunarmannahelgi! Stjórnkerfi borgar- innar í úttekt að hefur verið ákveðið að fora út í úttekt á stjómsýsl- unni hjá borginni og stofn- ununi hennar. Það er í fyrsta lagi í samræmi við kosningaloforð okkar í Reykjavíkurlistanum og í öðm lagi blasir við að það hefur engin endurskoðun farið ffam á stjóm- kerfinu um langt árabil. Hefur af og tíl verið lappað upp á kerfið og starfsheitum breytt, að mér finnst ffekar tíl að laga kerfið að einstak- Iingum, heldur en að gera stjóm- kerfið virkara, segir Guðrún Agústsdóttír forsetí borgarstjóm- ar. Samþykkt hefur verið í borgarráði að taka út ýmsa þætti í rekstri borgar- innar og er markmiðið ekld síst að leita leiða til að gera stjórn borgarinn- ar markvissari. Endurskoðunarskrif- stofu Sigurðar Stefánssonar hefur ver- ið falið að gera sérstaka úttekt á fjár- hagsstöðu borgarsjóðs og gera tillög- ur urn breytta meðferð fjármála borg- arsjóðs. Sama ráðgjafafyrirtæki er með mál- efni Strætisvagna Reykjavíkur í skoð- un. Hvað stjórnsýslukerfi borgarinnar varðar hefur Stefáni Jóni Hafstein verið falið að annast forkönnun næstu vikurnar. Þá hefur verið skipuð þriggja manna nefitd til að meta reynsluna af aðgerðum borgarinnar í atvinnumálum á undanförnum miss- erum, en efast hefur verið um gildi ýmissa átaksverkefha. „Stjórnkerfi borgarinnar er óvenju þungt í vöfum, nema þar sem einstaka maður ræður öllu og þá skortir á lýð- ræðið. Nú skoðum við stjórnkerfi borgarinnar sjálfrar, en síðan á eftir að skoða embætti borgarverkffæðings. Margir sem til embætttisins hafa leit- að þekkja það að hafa þurft að leita til margra aðila jafnvel út af smávægilegu verki. Við vonurn og ætlumst til þess að úttekt leiði bæði til sparnaðar og þess að hlutirnir gangi betur fyrir sig.“ Guðrún segir aðspurð að það sé út. af fyrir sig eðlilegt að stjórnendur í borgarkerfinu hafi beig af slíkum út- tektum. „Það kemur alltaf upp ótti þegar hlutir eru endurskoðaðir, hvórt sem það eru ný öfl sem það gera eða ekki. Ég tel að slíkur ótti eigi að vera óþarfur því umfram allt er þetta gert með jákvæðum formerkjum. Til að laga og bæta,“ segir Guðrún.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.