Vikublaðið


Vikublaðið - 12.08.1994, Side 1

Vikublaðið - 12.08.1994, Side 1
Annáll ríkisstjórnarinnar I tilefni af yfirvofandi andláti ríkisstjórnarinnar, sem ber síðar að en vænst var, rifjum við upp helstu affek hennar á kjörtíma- bilinu. Bls. 4-5 Tvær Elísabetur Elísabet Jökulsdóttir ræðir við nöfinu sína Ronaldsdóttur kvik- myndagerðamann um ljós, eigin- lega allskonar ljós - ljósið í kvik- myndum, á Laugaveginum og umfram allt í bömum. BIs.6-7 Jón Baldvin vill til Brussel Á sama hátt og Jón Baldvin tróð sér ffarn fyrir í biðröð inn á Evrópusambandsfund á Sögu á dögunum vill hann ffamhjá þjóðinni inn í ES. Bls. 3 31. tbl. 3. árg. 12. ágúst 1994 Ritstjóm og afgreiðsla: sími 17500 250 kr. Fjörutíu og þrjú prósent! Framboð Alþýðubandalags, Kvennalista, Jóhönnu og óháðra fær 43 prósent fylgi í skoðanakönn- un Skáís. Ólafur Ragnar Grímsson: Verðum að hlusta á lýðræðislegan vilja fólksins. Samkvæmt skoðanakönnun Skáís myndi sameiginlegt framboð Alþýðubandalags, Kvennalista, Jóhönnu Sigurðar- dóttur og óháðs félagshyggjufólks fá 43,1 prósent fylgi í kosningum. Sjálfstæðisflokkur fengi 42,3 pró- sent fylgi; Alþýðuflokkur 6,9 pró- sent og Framsóknarflokkur 7,7 prósent. Miðað er við þá sem tóku afstöðu í könnun Skáís. - Ein könnun er vitanlega ekki end- anlegur sannleikur í stjórnmálum. En það er ljóst að gífurlegur hljómgrunn- ur er fyrir samstillingu þessara stjórn- málaafla, segir Olafur Ragnar Gríms- Jóhanna vinnur tíma Fylgismenn Jóhönnu Sigurðar- dóttur sýta það ekki að haust- kosningar hafi verið blásnar af. Telja þeir að í staðinn fáist rýmri tíini til að undirbúa framboð og að um Ieið aukist möguleikinn á sam- fylkingu í stað sérframboðs. - Jóhanna fær nú betri tíma til að athuga sinn gang og þarf ekki að loka fyrir neitt. Það er engin ástæða til að ætla að það dragi úr persónufylgi Jó- hönnu fram að kosningum næsta vor. Hún byggir ekki fyrst og ffemst á hverfulu óánægjufylgi. Hún er tákn sem eini heiðarlegi stjórninálamaður- inn, sem síðasti móhíkaninn. En síðan ber að hafa í huga að þótt haustkosn- ingar hafi ver.ið blásnar af nú þá er það hald ýmissa að Davíð Oddsson muni nota fyrsta tækifærið sem honum gefst til að sprengja stjórnina, segir einn stuðningsmanna Jóhönnu í samtali við Vikublaðið. son formaður Alþýðubandalagsins. stjórnmálaflokka heldur um tiltekið fái þennan stuðning fólksins og að Hann segir umræðuna ekki snúast framboð sjálfstæðra flokka. bæði Alþýðuflokkur og Framsóknar- um það hvort það ætti að leggja niður - Það er ótrúlegt að slík samvinna flokkur verða að peðum. Hingað til 4Bf:: JÞ %% hafa menn gefið sér að báðir þessir flokkar þyrftu að vera með til að búa öflugt ffamboð félagshyggjufólks. Könnunin sýnir að það er hægt að skapa þennan veruleik án Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks, segir Olafur Ragnar. Olafur Ragnar segir einsýnt að menn setjist niður og ræða málin í ljósi þess hversu mikið fylgi er við sameiginlegt ffamboð. - Vilji fólk að flokkarnir séu lýð- ræðisleg sarntök og lúti lýðræðisleg- um vilja hlýtur það að ræða möguleik- ann á því að stilla saman strengina, segir Olafur Ragnar. Þröstur til Bonn? Aðstoðamiaður Jóns Baldvins Hannibalssonar, Þröstur O- lafsson, verður að öllum líkindum næsti sendiherra Islands í Bonn, höfuðborg Þýskalands. Umdeild skipun Jakobs Frímanns Magnússonar í stöðu sendiherra í Lundúnum er talin undanfari að frek- ari hrókeringum í utanríkisþjónust- unni. Staða Jakobs sem sendiherra er tímabundin en við honum á að taka Kjartan Jóhannsson, fyrrverandi for- maður Alþýðuflokksins og núverandi framkvæmdastjóri EFTA. Helgi Á- gústsson sendiherra í Lundúnum var kallaður heim. Hjálmar W. Hannesson hefurverið sendiherra íslands í Bonn en hann verður fluttur til Austurlanda. Þröstur Olafsson er hagffæðingur og niennt- aður í Þýskalandi en undanfarin ár hefur hann verið aðstoðarmaður ut- anríkisráðherra. Davíð gefst upp á haustkosningum. Fyrir hálfúm mánuði gaf Davíð Oddsson forsætisráðherra sterklega í skyn að hann hygð- ist rjúfa þing og efna til haustkosninga. Effir að formaður Alþýðuflokksins lagðist gegn kosningum áður en kjörtímabilið rennur út dró forsætisráðherra í land og hætti við. Á mánudag ræddi Davíð við forystumenn stjórnarandstöðunnar um hugsanlegt þingrof og síð- ar sama dag hitti hann Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og formann Alþýðuflokksins. Skilaboðin sem forsætisráðherra fékk ffá stjórnarandstöðunni voru blendin. Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins var eindregið fylgjandi kosningum en talsmenn Kvenna- lista og forinaður Framsóknarflokksins tóku ekki afgerandi afstöðu til málsins. Jón Baldvin fékk síðustu helgi umboð frá forystuliði Alþýðuflokksins til að ákveða framtíð stjórnarsamstarfsins, en samþykktir flokksins gengu úta það að samstarfinu við Sjálfstæðisflokldnn skyldi haldið áfram. Eftir fundinn með Jóni Baldvini sagði forsætisráðherra að ósennilegt væri að af kosningum yrði og eftir ríkisstjórnarfund á þriðjudag hætti hann forinlega við. Umræðan um haustkosningar hefur veikt ríkisstjórnina enda engin fordæmi fyrir því á Islandi að efnt sé til kosninga áður en kjörtímabili lýkur nema annað tveggja komi til að ríkisstjórn hafi misst þingmeirihluta eða að óyfirstíganlegur ágreiningur sé á milli ríkisstjórnarflokkanna. Eftir að hafa gefið til kynna að kosningar væru yfirvofandi og hætta síðan við hefur forsætisráð- herra ótvírætt gefið í skyn að stjórnarsamstarfið standi ótraustum fótum en tilefni vanti til að slíta samstarfinu. Óvægin árás á forsætisráðherra og helsta samstarfsniann hans af hálfu Jóns Baldvins Hannibalssonar eru eftirmál |iess að forsætisráðherra gældi opinberlega við þá huginynd að rjúfa þing og efna til kosninga. Strax á þriðjudag hófjón Baldvin skeytasendingar á Davíð Oddsson þegar hann sagði að.forsæt- isráðherra hefði heykst á haustkosningum vegna þess að skoðanakönnun DV sýndi að hugsanlegt sérframboð Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi félagsmálaráðherra, myndi taka meira fylgi frá Sjálfstæðisflokknum en Alþýðuflokknum. Á miðvikudag sendi Jón Baldvin Davíð og Birni Bjarna- syni, formanni utanríkismálanefndar og samverkamanni Davíðs, breiðsíðu í Alþýðublaðinu. I forsíðuviðtali segir Jón Baldvin að leikflétta Davíðs og Björns hafi snúist í höndunum á þeim og orðið að absúrdleikriti. Jón Baldvin furðar sig á því að forystumenn Sjálfstæðisflokksins skuli reyna slíka leikfléttu sem stefni í voða stöðugleika í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi hingað til litið á sig sem kjölfestu í íslenskum stjórnmálum. Jón Baldvin minnir á að Davíð ræddi ekki við Alþýðuflokkinn áður en hann kynnti hugmyndir sínar uim haustkosningar í íjölmiðlum fyrir hálf- um mánuði síðan. I leiðara Alþýðublaðsins sama dag eru stóryrðin ekki spöruð og heift Alþýðuflokksmanna skín í gegn. I niðurlagi leiðarans segir að "forystumenn stjórnmálaflokka verða alla jafna að vanda val á ráðgjöfum sínum og trúnaðarmönnum. Sagan sýnir, að þegar óhóflegur inetnaður fer saman við veika dómgreind geta draumar slíkra manna auðveldlega breyst í svefiilausa inartröð."

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.