Vikublaðið


Vikublaðið - 19.08.1994, Blaðsíða 6

Vikublaðið - 19.08.1994, Blaðsíða 6
Vinsœlasti áfangastaður í haustferðum undanfarin ár: Dublinarferðir á ótrúlequ verði oq farareyrír í kaupbætí Fyrsta brottför 29. september. Síðasta brottför 9. desember. Dublín er borg tónlistar, leiklistar, myndlistar og sögu, borg viðskipta og stjórnmála, en umfram allt borg glaðværra íbúa þar sem allir gestir eru velkomnir, - ekki síst frá íslandi, enda hefð orðin fyrir heimsóknum þeirra á undanförnum árum. írska ferðamálaráðið og ferðamálayfirvöld í Dublin gera það heldur ekki endasleppt við gesti frá íslandi. Til viðbótar • Frábœr verslunarborg. • Glœsilegir gististaðir við allra hœfi, Burlington, Westbury og Temple Bar Hotel. • Hœsta endurgreiðsluhlutfall söluskatta á Bretlandseyjum. • Frábœrir veitingastaðir. • Skemmtilegar og frœðandi skoðunarferðir. • Stórkostleg leiklistarhátíð í október. • Einstök kráarmenning. • Frábœrir golfvellir. • Ódýrir bílaleigubílar. • Blómstrandi heimsmenning. • Mekka rokktónlistar í Evrópu. « Yndislegt viðmót. • Og umfram allt frábœrt verð. við frábært verð á ferðum til Dublin afhenda þessir aðilar nú hverjum farþega sérstakan farareyri að verðgildi 16 þúsund krónur eða 150 írsk pund. Gjaldmiðillinn er ígildi eins, tveggja, fimm, tíu og tuttugu punda seðla sem nota má sem greiðslu hluta viðskipta í völdum / \ verslunum, veitingastöðum, í Fríhöfn í Dublin og við kaup^\ y' annarri þjónustu, sem sérstaklega ertilgreind. Cork * Farareyrir: írsk „feröamannapund". írska ferðamálaráðið og ferðamálaráð Dublinar og Cork gefa út svokölluð „írsk ferðamannapund". Hér er ekki um raunverulega peningaseðla að ræða, heldur sérstaka afsláttarseðla sem nota má sem hluta af greiðslu í ýmsum verslunum, veitingahúsum, skemmtistöðum o.s.frv. í sérstökum verslunarbæklingi, sem fylgir „ferðamannapundunum“ er tilgreint hvar þessi afsláttur er veittur og hve mikill hann er á hverjum stað. Fyrir ykkur sem viljið breyta til á írlandi. sögufrœga borgin í suðri, önnur stœrsta borg írlands. Við viljum bjóða ykkur velkomin til Cork við ána Lee, aldagamallar og virðulegrar hafnarborgar við suðurströnd írlands. Borgin er umvafin sögustöðum í fögru landslagi, fornum byggingum og minnir um margt á Feneyjar með skurðum og síkjum. Cork hefur allt það, sem prýðir skemmtilega stórborg, allar helstu verslanir, frábæra veitingastaði, jazzklúbba, rokkklúbba og venjulega „pöbba" og svo auðvitað þekkt óperuhús. Vandaðir gististaðir: Skoðunarferðir í Cork. • Kerry-hringurinn, - þekktasta skoðunarferðin. • Cobh - hálfsdagsferð um nágrenni Cork. • Kinsale. Ferð fyrir matgœðinga. Skemmtikvöld á Blackrock Castle. Verslun í Cork. Verðdœmi og brottfarardagar. Fjórir dagar í Dublin/Temple Bar hótelið: Öll helstu verslunarhús eru í Cork og öll þekktustu nöfn í tískuheiminum má sjá þar. í Marchants Quay Shopping Centre er að finna Dunnes verslanirnar, Marks & Spencer og Roches vöruhúsin, Vero Moda, Laura Ashley og Paco. Þar skammt frá er Penney's og Fitzgeralds með vörur frá Lacoste, Bally, Hugo Boss, Aquascutum og Magee. Jury's hótelið er fyrsta flokks hótel í Cork, mitt í stórum garði 4-5 mínútna gang frá míðborginni. Metropole hótelið er þægilegt nýendurbyggt hótel við ána Lee, örskammt frá helstu verslunargötum borgarinnar. Eitt þekktasta hótelið sem við bjóðum á írlandi í ár er Silver Springs hótelið í Cork. Hótelið er í stórum garði rétt við útjaðar miðborgarinnar og meðal sérkenna þess er níu holu golfvöllur, rétt við hóteldyrnar. Vallargjöld eru aðeins fjögur pund. 28.590 kr stgr. á mann með öllu ítvíbýli. Fjórir dagar í Cork/Metropole hótelið: 25.760 kr. stgr. á mann með öllu ítvíbýli. Innifalið flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, morgunverður, íslensk fararstjórn og skattar. Miðað við brottför mánudag - heimkoma fimmtudag. Ferðatilhögun: Fimmtudaga - sunnudaga 3 nœtur. Föstudaga - þriðjudaga 4 nœtur. Mánudaga - jimmtudaga 3 nœtur. Dublinarflugvöllur - leiðin framhjá háu viðskiptafargjöldunum. Méð samstarfi við írska flugfélagið Air Lingus, getum við boðið afar hagstæð flugfargjöld til nokkurra helstu borga Evróþu og Bandaríkjanna. Samvinnuferðir-Landsýn hafa einnig gert samninga við frábær hótel í þessum borgum og njóta farþegar okkar þeirra kjara á ferðum sínum. Einföld endurgreiðsla á virðisauka- skatti í Dublin og Cork. Með sérstökum samningum við Cash Back fyrirtækið er endurgreiðsla á virðisaukaskatti gerð mjög einföld. Þið látið sölunótur af hendi á hótelinu og fáið peningana úti á flugvelli!

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.